Tíminn - 30.12.1986, Side 11
Tíminn 11
ARNAÐ HEILLA
Guttormur Oskarsson
sjötugur
Pann 29. desember verður Gutt-
ormur Óskarsson á Sauðárkróki sjö-
tugur. Það eru merk tímamót, lang-
ur áfangi að baki, en vonandi drjúg-
ur spölur framundan.
Guttormur er Skagfirðingur,
fæddur í Hamarsgerði í Lýtingsstaða-
hreppi en þá bjuggu þar foreldrar
hans, Sigríður Hallgrímsdóttir og
Óskar Þorsteinsson, en þau fluttu
síðar að Kjartansstöðum í Staðar-
hreppi. Þau hjón voru barnmörg og
er af þeim kominn mikill ættbogi
hins merkasta fólks.
Guttormur stundaði nám í Reyk-
holti og síðar í Samvinnuskólanum
1942-1944. Þar var hann lærisveinn
Jónasar Jónssonar og fleiri mikil-
hæfra manna. Ég hygg ekki ofmælt
að Jónas hafi haft mikil áhrif á
Guttorm og alla tíð síðan hefur hann
verið trúr þeim hugsjónum, sem
hann tileinkaði sér ungur.
Guttormur réðist til Sambands
íslenskra samvinnufélaga strax að
prófi loknu og var þar starfsmaður
fræðsludeildar. Árið 1946 fluttist
Guttormur aftur norður í sína
heimabyggð og gerðist þar gjaldkeri
hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og þeim
starfa hefur hann gegnt í fjörutíu ár.
Það var engin tilviljun að Guttormur
tileinkaði samvinnuhreyfingunni
starfskrafta sína. Hann neíur aiia tíó
verið hinn einlægasti samvinnu- og
félagshyggjumaður og haft á því
ríkan skilning að svo best yrðu
einstaklingarnir frjálsir og hamingju-
samir að þeir hjálpuðust að. Gutt-
ormur hefur flestum betur skilið eðli
samvinnunnar og samhjálparinnar.
Það hefur ekki ætíð verið auðvelt
að vera gjaldkeri Kaupfélags Skag-
firðinga. Starf gjaldkerans var lengi
öðrum þræði starf fjárhaldsmanns
fólksins í héraðinu Reikningsviðskipti
voru tíðkuð og tíðkast raunar enn í
miklum mæli. Alla tíð hafa margir,
of margir, ekki haft úr nógu að spila
og búið við þröngan fjárhag. Gutt-
ormur hefur öllum tekið af ljúf-
mennsku og hlýju og reynt að leysa
hvers manns vanda, þó oft væri ekki
mikið svigrúm til þess. Þó mun því
svo farið að flestir hafi farið sæmi-
lega glaðir af fundi Guttorms. Hann
benti mönnum á björtu hliðarnar,
enda dvelur hugur hans sjálfs fremur
við þær og fæstir efuðust um það að
hann hefði veitt þá úrlausn sem
frekast var unnt. Þannig hefur hann
ætíð verið fátækum mönnum í
Skagafirði heillakarl. Jafnvel þótt
hann gæti ekki klyfjað þá meö
peningum gaf hann þeim bjartsýni
og kjark og það er ekki svo slæmt
veganesti.
Guttormur hefur ekki staðið einn
í lífinu. Hinn 15. október 1944 giftist
hann Ingu Rögnvaldsdóttur verk-
stjóra á Sauðárkróki Jónssonar. Inga
er einstök mannkostamanneskja og
eru þau hjón mjög samvalin. Þau
hjón eignuðustu tvær dætur, Sigríði,
sem gift er Pétri Skarphéðinssyni og
Ragnheiði sem gift er Sigurði Frosta-
syni. Þá fóstruðu þau bróðurdóttur
Guttorms, Elsu, en hún missti móð-
ur sína barnung. Allar eru dætur
þeirra ágætustu konur.
Gottormur hefur allt frá unglings-
árunum verið í forustusveit fram-
sóknarmanna og gegnt fyrir flokkinn
fjölmörgum trúnaðarstörfum. For-
maður Félags ungra framsóknar-
manna var hann á Reykjavíkurárum
sínum. Þegar hann fluttist norður
var hann strax kjörinn í stjórn Fram-
sóknarfélags Sauðárkróks og sat þar
í tuttugu ár, lengst af formaður. Þá
situr hann í stjórn Framsóknarfélags
Skagafjarðar og hefur setið lengi.
Þegar framsóknarmenn á
Norðurlandi vestra stofnuðu
kjördæmissamband sitt var hann
strax kjörinn í stjórn þess og formað-
ur kjördæmissambandsins var hann
í yfir 20 ár. í miðstjórn Framsóknar-
flokksins hefur hann setið fjölda ára.
Þá hefur Guttormur gegnt fjölda
trúnaðarstarfa fyrir bæjarfélag sitt
og stéttarfélag svo og samvinnu-
hreyfinguna. Hvarvetna þar sem
Guttormur hefur komið hefur hann
haft mikil áhrif, glæsilegur ræðu-
maður og óþreytandi baráttumaður
fyrir hugsjónum sínum og ávallt
geislandi af bjartsýni og góðvild.
Þau hjón Inga og Guttormur hafa
á heimili sínu á Sauðárkróki
í fjörutíu ár haldið nokkurs konar
félagsheimili fyrir framsóknarmenn.
Gestrisni þeirra er alveg einstök og
þar hefur verið samkomustaður
fjölda manna, bæði úr kjördæminu
og af landinu öllu og æviniega allir
velkomnir. Á heimili þeirra hafa
framsóknarmenn löngum ráðið ráð-
um sínum og ætíð hefur Guttormur
haft gott til málanna að leggja.
Þegar Guttormur kom norður aft-
ur var Steingrímur Steinþórsson al-
þingismaður framsóknarmanna í
Skagafirði. Þeir Guttormur urðu
miklir vinir. Þegar Steigrímur Stein-
þórsson var kominn á efri ár þá réði
Guttormur því að Skagfirðingar leit-
uðu eftir því við Ólaf Jóhannesson
að hann tæki sæti á lista flokksins.
Það mun hafa verið nokkuð torsótt
í fyrstu að fá Ólaf, sem þá var í góðu
starfi og á mikilli framabraut sem
vfsindamaður við Háskólann, til
þess að taka að sér forystuhlutverk í
stjórnmálum, en það tókst Guttormi
og á þjóðin honum mikið að þakka
að hann skyldi koma Ólafi til þing-
mennsku. Guttormur var nánasti
vinur og ráðgjafi Ólafs í kjördæminu
og mat Ólafur hann umfram aðra
menn.
Þegar ég valdist til þingmennsku
var það meðal annars fyrir tilverkn-
að Guttorms. Hefur hann ætíð
reynst mér ráðhollur svo sem fyrir-
rennurum mínum og ætið sýnt mér
frábæra vináttu og drengskap.
Guttormur hefur unnið að út-
breiðslu viðhorfa framsóknarmanna
mjög ötullega. Hann var um mjög
langan aldur umboðsmaður Tímans
á Sauðárkróki og hefur hvorki spar-
að tíma sinn né fyrirhöfn í þágu
blaðsins. Þá hefur hann um langan
aldur verið fréttaritari Tímans í
Skagafirði og leyst það vel af hendi
eins og annað, enda ágætlega riftfær.
Guttormur er víðlesinn, hefur
yndi af skáldskap og hefur ánægju af
hestum. Guttormur hefur átt nokkra
gæðinga og einn þeirra stóð efstur
alhliðagæðinga á Fjórðungsmótinu
á Einarsstöðum.
Starfsemi stjórnmálaflokka
byggist ekki hvað síst á fórnfúsum
baráttumönnum. Ég vil fyrir hönd
framsóknarmanna þakka Guttormi
hans ötula starf og farsæla forystu og
árna honum allra heilla. Við Helga
þökkum þeim hjónum órofa vináttu
þann tíma sem leiðir okkar hafa
legið saman. Það er dýrmætt að hafa
kynnst svona manni. Guttormur er
maður sem bætir allt í kringum sig.
Páll Pétursson.
—
(BUMM...)
Verðlækkun á flestum áramótavörum okkar
er sprengja ársins!
í ár verða flugeldar okkar ódýrari en nokkru sinni fyrr.
Jákvæð gengisþróun og hagstæð innkaup gera
okkur kleift að lækka verðið á flestum áramótavörum svo um munar.
Nú geta allir kvatt árið á glæsilegan hátt,
með flugeldum frá okkur.
LANDSSAMBAND
HJÁLPARSVEITA SKÁTA
L.H.S
Þriðjudagur 30. desember 1986