Tíminn - 30.12.1986, Qupperneq 14
14 Tíminn
ERLENDUR ANNÁLL
1986
um á óvart er þau samþykktu áætlun
sem gerði ráð fyrir verulegri fram-
leiðsluminnkun og hækkaði þá
olíuverð strax um tvo Bandaríkja-
dali á tunnu. Fyrri hluti ársins var
nefnilega hin mesta raun fyrir OPEC
samtökin, verðið á olíu hríðféll og
mikil misklíð einkenndi allt starf
þeirra. Með þessari samþykkt í
Genf(og öðrum sem eftir fylgdu)
tókst hinsvegar aðeins að klóra í
bakkann þó samtökin mættu muna
fífil sinn fegri frá árunum milli 1973
og 1980 er þau réðu að mestu
heimsmarkaðsverði á olíu.
Ný útvarpsstöð í Róm á Ítalíu var
gagnrýnd fyrir dagskrá sína en hún
bauð upp á þjónustu þar sem ónafn-
greindir einstaklingar gátu hringt
inn og ausið skömmum, hótað
reyndar sagt hvað sem var í eina
mínútu. Notaði fólk sér þessa þjón-
ustu óspart og nokkrir margoft,
meðal annars einn sem hrópaði klúr-
yrði með rödd Jóhannesar Páls páfa
og annar sem hermdi eftir Mússolini.
Afmæli Berlínarmúrsins var
minnst en í ágúst voru liðin 25 ár frá
því austur-þýsk yfirvöld létu hefja
byggingu hans. Helmut Kohl kansl-
ari Vestur-Pýskalands kallaði
inn minnismerki um miskunnarleysi
en hinum megin hans var haldin
hersýning í tilefni dagsins.
Sovétstjórnin tilkynnti að hún
myndi framlengja einhliða tilrauna-
bann sitt með kjarnorkuvopn til
áramóta.
Reagan og Gorbatsjov áttu fund í Reykjavík og komu mikið við sðgu
á árinu, sérlega sá fyrrnefndi
Á Filippseyjum gerðust miklir atburðir í febrúarmánuði þegar Marcos
forseti hrökklaðist frá völdum og við tók Corazon Aquino
Deng Xiaoping valdamcsti maður
Kína hélt upp á 82 ára afmæli sitt en
þrátt fyrir aldurinn voru stjórnmála-
sérfræðingar flestir sammála um að
hann væri en ótvíræður leiðtogi
fjölmennustu þjóðar heims.
SEPTEMBER
Þing samtaka óháða ríkja var
haldið í Harare í Zimbabwe í byrjun
mánaðarins. Par var ásamt fleirum
mættur til leiks Kaddafi Líbýuleið-
togi sem reyndi að vinna stuðning
þriðja hcims ríkja við afstöðu fjand-
samlega Bandaríkjunum.
Á Svartahafi rakst farþegaskipið
sovéska „Nakhimov flotaforingi" á
flutningaskipið Pyotr Vasev og sökk
flotaforinginn á skammri stundu og
fjöldi manns fórst.
í Chile gerðu samtök vinstrisinn-
aðra skæruliða tilraun til að ráða
einræðisherrann Pinochet af dögum.
Sú tilraun mistókst, umsátursástandi
var lýst í landinu og fjöldahandtökur
á stjórnarandstæðingum hófust.
Hosni Mubarak Egyptalandsfor-
seti og Símon Peres forsætisráðherra
ísraels á þessum tíma áttu saman
viðræður um miðjan mánuðinn og
lauk þeim með sameiginlegri yfirlýs-
ingu þar sem árið 1987 var lýst ár
friðarumleitana í löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafs.
Sprengjutilræðin í Parísarborg
vöktu ótta í borginni og óhug víða
um lönd. Hver sprengingin rak aðra
og létust margir og enn fleiri áttu um
sárt að binda. Talið var að hryðju-
verkamenn frá Mið-Austurlöndum
stæðu að baki sprengingunum.
Afvopnunarráðstefnunni í Stokk-
hólmi lauk formlega eftir nærri
þriggja ára samningaviðræður. Ár-
angurinn lá í Stokkhólmsskjalinu
’86, fyrsta samningnum í Evrópu um
vopnatakmörkun og vopnaeftirlit
síðan í lok heimsstyrjaldarinnar síð-
ari.
Stórveldasamskiptin voru mjög
áberandi í septembermánuði.
Bandaríski blaðamaðurinn Nicholas
Daniloff var handtekinn í Moskvu
sakaður um njósnir en áður hafði
sovéskur eðlisfræðingur verið hand-
tekinn í Nýju Jórvík fyrir sömu
sakir. f kjölfar handtöku Daniloffs
fylgdu svo hótanir og gagnhótanir,
samningaviðræður utanríkisráð-
herra ríkjanna Shultz og Shervadna-
dze og í lok mánaðarins fæddist svo
samkomulag þar sem meðal annars
var kveðið á um að leiðtogafundur
yrði haldinn í Reykjavík.
OKTÓBER
Reykjavík varð nafli alheimsins í
mánuðinum. Fréttamennska varð að
fári þegar Mikhail Gorbatsjov
Sovétleiðtogi og Rónald Reagan
Bandaríkjaforseti komu til borgar-
innar og ræddu saman í Höfða eina
kuldalega helgi. Að afloknum við-
ræðunum lýstu fjölmiðlar út um
allan heim vonbrigðum með að ekki
tókst að ná neinu samkomulagi um
takmörkun vígbúnaðar. Hinsvegar
var slégið á jákvæðar nótur í flestum
löndum heims enda voru ræddar
djarfar lausnir á vígbúnaðarkapp-
hlaupinu þó ekki tækist samkomu-
lag.
Rajiv Gandhi forsætisráðherra
Indlands og fleiri háttsettir ráða-
menn þar í landi sluppu ómeiddir úr
skotárás sem byssumenn hófu á
meðan á bænargjörð undir beru lofti
stóð. Atvik þetta vakti enn á ný upp
efasemdir um indverska öryggis-
gæslu og sögðu vitni að Gandhi
sjálfur hefði þurft að benda örygg-
isvörðum sínum á hvaðanskothríðin
kom.
Miklir jarðskjálftar urðu í San
Salvador, höfuðborg E1 Salvador,
sem urðu um 900 manneskjum að
bana og skildu 200 þúsund aðra eftir
heimilslausa.
í Tanzaníu fór forseti landsins Ali
Hassan Mwini fram á asnalegan
sparnað er hann bað bændur um að
notast við asna og uxakerrur til að
flytja uppskeru sína á markaði. For-
setinn sagði beiðnina stafa af því að
þjóðin hefði ekki efni á að sóa
erlendum gjaldeyri í flutningabíla
og bensín.
Corazon Aquino forseti Filipps-
eyja ræddi við leiðtoga kommúnista
um möguleika á vopnahléi. And-
staða gegn slíku vopnahlé var mikil
og hæst lét Enrile varnarmálaráð-
herra sem gagnrýndi forsetann
mjög.
f Suður-Afríku var róstusamt og
stjórn hvíta minnihlutans lá stöðugt
undirgagnrýni. Ekki batnaði ástand-
ið þegar Samora Machel forseti
Mósambik lét lífið í flugslysi innan
landamæra Suður-Afríku og sökuðu
Þriðjudagur 30. desember 1986
margir þarlend stjórnvöld um að
eiga sök á dauða hans.
Breska stjórnin rauf stjórnmála-
samskipti sín við Sýrlandsstjórn í
kjölfar þess að Jórdani var fundinn
sekur um tilraun til að lauma
sprengju inn í ísraelska farþegaflug-
vél á Heathrowflugvelli. Jórdaninn
sagði fyrir rétti að Sýrlendingar
hefðu aðstoðað hann í þessari til-
raun.
NÓVEMBER
Demókratar náðu yfirráðum yfir
báðum deildum Bandaríkjaþings í
fyrsta sinn síðan árið 1980. Kosning-
ar fóru fram í Bandaríkjunum í
byrjun mánaðarins og voru kosn-
ingaúrslitin, og þá sérstaklega sigur
demókrata íöldungadeildinni, ósig-
ur fyrir repúblikana og Reagan
Bandaríkjaforseta, sem fórum land-
ið þvert og endilangt til að afla
flokksmönnum sínum fylgis.
Úrslit aukakosninga í Vestur-
Þýskalandi bentu til að Helmut Kohl
kanslari og flokkur hans, Kristilegir
demókratar, nytu mikils fylgis en
Jóhannes Rau kanslaraefni jafnað-
armanna og flokkur hans hlaut þar
slæma útreið.
Vyacheslav Mólotov fyrrverandi
utanríkisráðherra Sovétríkjanna og
einn af nánustu samstarfsmönuum
Jósefs Stalíns lést fyrrihluta nóvem-
bermánaðar 96 ára að aldri.
Ástandið í Suður-Kóreu var á
síðum blaða í þessum mánuði sem
og öðrum. Þar sakaði leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar Chun Doo Flwan
forseta og stjórn hans um að traðka
á lýðræðinu og hafa komið á „óyfir-
lýstum herlögum1'.
Og enn um Kóreu. „Platfrétt"
ársins barst frá Suður-Kóreu og
Japan og var hún þess efnis að Kim
11-Sung leiðtogi Norður-Kóreu væri
látinn og valdabarátta ætti sér stað
innan þessa lands þar sem ein sér-
stæðasta persónudýrkun síðari tíma
ríkir. Daginn eftir kom þó í ljós að
fréttir þessar hefðu ekki verið á
rökum reistar, „hinn mikli leiðtogi1'
var við hestaheilsu og birtist sprelllif-
andi í kínversku sjónvarpi.
Líbanon hélt áfram að vera stríðs-
hrjátt land. Palestínumenn og músl-
imar úr hópi shíta börðust þar hatr-
ammlega í svokölluðu búðastríði.
Corazon Aquino forseti Filipps-
eyja lék sterkan leik í flókinni stöðu
er hún lét sinn helsta gagnrýnanda,
Juan Ponce Enrile, varnarmálaráð-
herra segja af sér. Afsögnin fylgdi í
kjölfar uppljóstrana um fyrirhuguð
byltingaráform stuðningsmanna
Enriles.
Sögur um vopnasölu Bandaríkja-
stjórnar til frans og peningasending-
ar til Contra skæruliða í Nicaragua
fyrir ágóðann af henni fóru að leka
út í nóvembermánuði og það var
fljótlega ljóst að hér var á ferð mesta
hneykslismálið sem mætt hafði Re-
agan Bandaríkjaforseta og stjórn
hans á valdaferlinum. Forsetinn
skipaði rannsóknarnefnd í málið í
kjölfar afsagnar John Poindexters,
helsta öryggismálaráðgjafa síns, og
brottvikningar Olivers North úr
starfi sem lykilmanns innan Þjóðar-
öryggisráðsins.
Suður-Kórea: Stjórnarandstæð-
ingur fyrirfór sér í Seoul.
DESEMBER
Þrátt fyrir að árið væri alþjóðlegt
friðarár Sameinuðu þjóðanna kom í
ljós í desembermánuði að útgjöld til
hermála myndu enn aukast og verða
um 900 milljarðar dollara á árinu í
samanburði við 810 milljarða í fyrra.
Þetta kom fram í skýrslu sem alþjóð-
legir friðarhópar gáfu út.
Á Indlandi og í Pakistan var
heldur ófriðlegt. Aðskilnaðarsinnar
úr hópi síkha höfðu sig nokkuð í
frammi í Punjabhéraði og átök milli
síkha og lögreglu brutust út í Nýju
Delhi. IKarachi, stærstu borg Pak-
istan, börðust svo pashtúnar og mo-
hajirar í blóðugum ættflokkaátök-
um.
Stúdentar í Frakklandi mótmæltu
harðlega áætlunum stjórnvalda um
breytingar á starfsemi háskóla og
fengu sitt fram að lokum.
Ríkisstjórnin í Suður-Afríku
skerti enn fjölmiðlafrelsið í landinu
og hóf fjöldahandtökur á stjórnar-
andstæðingum fyrir jólin.
fransmálið hélt áfram að stjórna
öllum fjölmiðlaskrifum vestur í
Bandaríkjunum, margvíslegar rann-
sóknanefndir voru skipaðar og
margir lögðu hart að Reagan forseta
að bera sjálfur vitni frammi fyrir
þingnefndum til að hjálpa við að
komast til botns í flóknu vopnasölu-
máli sem sífellt tók á sig fjölbreyttari
myndir.
Á Filippseyjum samdi stjórn
Corazonar Aquino forseta um sextíu
daga vopnahlé við skæruliða kom-
múnista og þar með skal punktur
settur við nokkra helstu viðburði úti
í hinum stóra heimi árið 1986.
Eyðnisjúkdómurinn var inönnum ofariega í huga allt árið