Tíminn - 30.12.1986, Qupperneq 19
Tíminn 19
Þriðjudagur 30. desember 1986
ÚTVARP/SJÓNVARP
Stórstjörnur syngja í uppfærslu Scala óperunnar á Aida sem sýnd
verður í Sjónvarpinu á nýársdag, þ.á m. sjálfur Pavarotti.
Heimildaþáttur um Kristján
Jóhannsson óperusöngvara
verður á nýársdagskvöld á Stöð
2.
Kristján
Jóhannsson
á Stöð 2
M Kl. 20.30
/—' að kvöldi nýársdags
^ verður á Stöð 2
íslenskur heimildaþáttur um
Kristján Jóhannsson
óperusöngvara, líf hans og list.
M.a. syngur Kristján nokkur lög af
nýútkominni plötu sinni, Með
kveðju heim.
LIF TIL
EINHVERS
— eftir Nínu Björk Árnadóttur
trx Kl. 21.40
á nýársdag sýnir Sjónvarpið leikritið Líftil einhvers eftir Nínu
Lj* Björk Árnadóttur.
Marta félagsráðgjafi býr með Haraldi sem er sjö árum yngri en hún.
Sif, dóttir Mörtu, er einmana og brestur oft raunsaei. Sama máli gegnir
að vissu marki um Birnu ömmu hennar, móður Mörtu. Milli mæðgnanna
eru átök og Haraldur hrærist í ástríðuþrungnum draumum þeirra.
Bryndís er ein með ungt barn sitt og lifir í heimi strits og fíknar. Marta
verður í starfi sínu að láta dæma af henni barnið. Vegna þessa sækir
Bryndís að Mörtu með ýmsum ógnum sem að lokum ganga of langt.
Það ríkir ekki einu sinni friður við matborðið.
AIDA
með Pavarotti o.fl. stjörnum
Kl. 14.45
á nýársdag verður
óperan Aida eftir
Giuseppe Verdi sýnd í
Sjónvarpinu í flutningi La Scala
óperunnar í Mílanó.
Hljómsveitarstjóri er Lorin
Maazel.
Það er sjálfur Luciano Pavarotti
sem syngur þar í aðalhlutverki
ásamt mörgum öðrum
stórstjörnum, s.s. Ghena
Dimitrova, Paata Burchuladze,
Maria Chiara, Nicolai Ghiaurov,
Juan Pons, Ernesto Gavazzi og
Francesca Garbi.
Benda má áhorfendum á að nú
gefst þeim kostur á að heyra og
sjá sovéska bassasöngvarann
Paata Burchuladze, sem vonir
stóðu til að syngi hér á Listahátíð
í sumar, en eins og menn muna
brugðust þær vonir.
Óperan Aida er einmitt næsta
verkefni íslensku óperunnar og
verður frumsýnd innan fárra
daga.
Seinna bindið af bréfum Bjarna
Thorarensen er í þann mund að
koma út. Úr því verður lesið í
útvarpsþættinum.
„Ungum
áður
songvar
200 ára afmæli
0
Bjarna Thorarensen
Kl. 15.15
á nýársdag verður á
'sí*' Rás 1 dagskrá í tilefni
þess að 30. des. eru liðnar tvær
aldir frá fæðingu Bjarna
Thorarensen skálds og
amtmanns. Dagskráin nefnist
Ungum áður söngvar og er í
samantekt Þorleifs Haukssonar
sendikennara í Uppsölum.
Nýársgleði
0
útvarpsins
Kl. 13.30
á nýársdag verður nýársgleði á Rás
og þar leggur fólk úr öllum
landsfjórðungum til efni í mæltu máli, söng og
hljóðfæraleik. Einar Kristjánsson tengir saman
dagskrána sem er klukkustundar löng.
Hugmyndin að baki þáttarins er að sameina
útvarpshlustendur vítt og breitt um landið fyrir
framan viðtækin, þaðan sem á öldum
ljósvakans berast nýárskveðjur, talað mál og
tónar frá þáttagerðarfólki Ríkisútvarpsins í
Borgarnesi, á ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum
og Selfossi undir kjörorði Ríkisútvarpsins:
Útvarp allra landsmanna.
Kl. 00.15
á nýársnótt, að lokinni áramótakveðju útvarpsstjóra, lenda
sjónvarpsáhorfendur inni á áramótadansleik á
veitingahúsinu Broadway, en þar leikur
Glenn Miller hljómsveitin. Margt fleira
verður til skemmtunar og stjórnar
Marianna Friðjónsdóttir
útsendingunni sem stendur til kl. 4.
Áramótadansleikur í Sjónvarpinu