Tíminn - 31.12.1986, Qupperneq 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 31. desember 1986
Lánasjóður íslenskra námsmanna:
Greiðslustaða sjóðsins
allt önnur og betri
- en oftast áður í sögunni segir stjórnarformaður sjóðsins
Stjórnarformaður Lánasjóðs ísi.
námsmanna segir greiðslugetu sjóðs-
ins nú með allt öðrum og betri hætti
en oftast áður í sögunni og jafnframt
að það sé út í bláinn að tala um að
frystingin á lánsupphæðum í ársbyrj-
un 1986 hafi verulega rýrt kjör
námsmanna, að því er fram kom á
fundi með fréttamönnum í gær.
Áætlaðar lánveitingar á yfirstand-
andi skólaári eru áætlaðar um 1.366
millj. króna til á 7. þúsund náms-
manna. Þar af voru rúmlega 364
millj. greiddar í haustlán til 3.637
námsmanna, eða um 100 þús. kr. að
Vinningstölurnar 27. desember, 1986.
4-19-23-30-32
• 1. vinningur var kr. 1.562.046,- Þar sem enginn fékk
fyrsta vinning, flyst hann yfir á fyrsta vinning í næsta
útdrætti.
• 2. vinningur var kr. 468.237,- og skiptist á milli 93ja
vinningshafa, kr. 5.034,- á mann.
• 3. vinningur var kr. 1.092.553,- og skiptist á milli 4858
vinningshafa, sem fá 224 krónur hver.
Áætlað er að fyrsti vinningur næsta laugardag verði 3,5
til 4 milljónir króna.
Upplýsingasími: 685111
meðaltali til hvers námsmanns.
Árdís Þórðardóttir benti á að
þarna væri urn 25% hækkun að ræða
á meðalláni frá haustinu 1985, eða
um 7% umfram hækkun verðbólg-
unnar milli tímabila. Það þýddi
raunhækkun lánanna. Fulltrúi SINE
á fundinum vildi á hinn bóginn
meina að hækkun meðallána væri
vegna breyttra úthlutunarreglna.
Ótvírætt væri að kjör námsmanna
flestra hefðu skerst verulega.
Áætlað er að þær 1.002 milljónir
kr. sem eftir er að lána til vors
skiptist á milli um 6.240 námsmanna,
þannig að um 144 þús. komi í hlut
hvers að meðaltali.
Af þeim 3.637 sem lán fengu í
haust voru 1.229 í Háskóla íslands,
1.421 erlendis og 987 í sérskólum
hér á landi. Fjöldi 1. árs nema sem
sóttu um lán í haust var tæplega 2
þús., sem skiptust nær jafnt á hina
þrjá framangreindu hópa.
Um bætta stöðu Lánasjóðs kom
það m.a. fram hjá Sverri Hermanns-
syni menntamálaráðherra, að sjóð-
urinn mundi nú fyrir áramótin
endurgreiða fjármálaráðuneytinu
þær 50 millj. króna sem ráðuneytið
útvegaði í desember 1985 vegna þess
fjárskorts sem LÍN stóð þá frammi
fyrir vegna haustlána þess árs.
-HEI
Sjóöur Ásu Wright verðlaunaði:
Guðmund Pálmason
jarðeðlisfræðing
- fyrir víðtækar jarðhitarannsóknir og kannanir á
eðli jarðskorpunnar
Heiðursverðlaun Verðlaunasjóðs
Ásu Guðmundsdóttur Wright veitti
verðlaun sín í fyrradag. Verðlaunin
hlaut í þetta sinn dr. Guðmundur
Pálmason fyrir víðtækar jarðhita-
rannsóknir sínar og kannanir á eðli
jarðskorpunnar.
Dr. Guðmundur fæddist 11. júní
1928 á Oddsstöðum í Miðdala-
hreppi, Dalasýslu. Hann varð stúd-
ent frá Menntaskólanum t' Reykja-
vík árið 1949 og lauk prófi í eðlis-
fræði við Konunglega tækniháskól-
ann í Stokkhólmi árið 1955 og hlaut
MS gráðu í eðlisfræði eftir nám við
Purdue University í Indiana í
Bandaríkjunum árið 1957. Guð-
mundur varði doktorsritgerð við
Háskóla íslands 1971. Hann hefur
unnið að fjölmörgum verkefnum á
sviði jarðhitarannsókna, m.a. fyrir
Sameinuðu þjóðirnar á Filippseyj-
um, í Taiwan, N-Kóreu og E1 Salva-
dor.
Guðmundur tekur við verðlaunun-
um úr hendi dr. Sturlu Friðriksson-
3r* Tímamynd Pjetur
Samtök sykursjúkra - Neytendasamtökin:
„Sykursnauður“
segir Iftið um
innihaldið
„Útilokað er fyrir neytendur að
átta sig á merkingum eins og sykur-
skertur, sykursnauður og sykur-
minna, þegar ekkert annað er til-
greint“ segir m.a. í niðurstöðum
könnunar á kolvetnainnihaldi
nokkurra matvæla sem Neytenda-
samtökin og Samtök sykursjúkra
gengust fyrir, vegna ítrekaðra kvart-
ana út af ónógum merkingum á
vörum með framangreindum merk-
ingum, og gruns um meira sykurinni-
hald sumra þeirra en merkt er, en
slíkt er sérstaklega bagalegt fyrir
þau hundruð landsmanna sem sykur-
sjúkir eru og einnig fyrir fólk í
megrun.
Við sykurmælingu kom m.a. í ljós
að litlu minna kolvetnishlutfall getur
um heldur en venjulegum, eða allt
upp í 18% á móti 24% í þeim
venjulega. Svipaður munur reyndist
á „sykurminna" maltöli og venjulegu
og allt frá 1,4% upp í 5% sykur
fannst í „sykurskertum" ávaxta-
drykkjum, Hi-C, Svala og Gosa.
Sykur í venjulegum tegundum af
þessum drykkjum er um 11-12%.
Vörumerkingar á sykurlausum
gosdrykkjum reyndust réttar, þ.e.
enginn sykur fannst í þeim, né
heldur í sykurlausum djúsum.
Könnunin er talin sýna að merk-
ingar á umbúðum fyrir ávaxta-
drykki, djúsa og grauta séu ófull-
nægjandi. Sjálfsögð krafa sé að þær
verði tafarlaust endurbættar og eðli-
legt að þar sé tekið fram um magn
kolvetna og fjölda hitaeininga.
-HEI