Tíminn - 31.12.1986, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 31. desember 1986
Tíminn 13
að um upplýsingar uin stöðu fyrir-
tækisins þrátt fyrir það að Reykja-
víkurborg eigi mestan hlutann í
fyrirtækinu. Er ekki að efa að sveit-
arstjórnarkosningarnar 31. maí hafa
haft sín áhrif á málið.
Biðstaða á fasteignamarkaði
í kjölfar setningar nýrra húsnæðis-
laga urðu miklar breytingar á fast-
eignamarkaði. Lánsupphæðir hækk-
uðu verulega en jafnframt kom upp
ákveðin biðstaða á markaðnum þar
sem reglugerð um framkvæmd lag-
anna koma ekki fyrr en síðla sumars.
Versta hret frá 1948
Fremur kalt var í maí og 24.-25.
gerði mjög slæmt veður um vestan-
norðan- og austanvert landið. Vjða
varð alhvítt niður í flæðarmál og
urðu bændur að taka fé á hús, en
sauðburður var víðast langt kominn.
Knattspyrna og
sjónvarpsgláp
Verslanir með sjónvörp duttu
heldur betur í lukkupottinn eftir að
ljóst varð að íslenska sjónvarpið
myndi sýna um þrjátíu leiki frá HM
í knattspyrnu og flesta þeirra beint.
„Gerðum ráðstafanir" sagði einn
verslunarstjórinn og hugði gott til
sölunnar.
Úrslit sveitarstjórnarkósninga
lágu l'yrir fyrsta útkomudag Tímans
í júní mánuði. Framsóknarmenn
fögnuðu borgarfulltrúa sínum. Sjálf-
stæðismenn fögnuðu meirihluta
sínum, sem á tíma var óttast um.
Víða um land urðu niðurstöður
kosninganna óvæntar og má þar
nefna Hafnarfjörð, Keflavík og Ak-
ureyri.
Nær árekstur
Litlu mátti muna að tvær farþega-
flugvélar lentu í árekstri yfir Aust-
urlandi íbyrjun mánaðarins. Aðeins
munaði tólf metrum að 561 farþegi í
tveimur þotum léti lífið. Flugmála-
stjóri, Pétur Einarsson sagði í sam-
tali við Tímann að um röð að
mistökum hefði verið að ræða, og
grundvallarmistök hefðu átt sér stað.
Vélarnar sem nær lentu saman voru
frá SAS og British Airways.
Rannsókn á máli þessu og orsök-
um þess að flugvélarnar voru í sömu
hæð, var rakin til þess að flugum-
ferðarstjórar hcfðu brotið starfsregl-
ur. Talsverð umræða varð um málið.
Járnhæll í andlit
Málefni Pjóðviljans voru mikið í
fréttum í júní mánuði. SvavarGests-
son var títt nefndur sem verðandi
ritstjóri í stað Össurar Skarphéðins-
sonar. Tíminn birti forsíðufrétt um
málið um miðjan mánuðinn, undir
fyrirsögninni Járnhæll flokksins í
andlit Þjóðviljans. Sá járnhæll var
Svavar Gestsson því fullyrt var að
allir myndu ganga út af ritstjórninni
kæmi hann inn á blaðið. Talið var að
þessar væringar væru runnar undan
rifjum Ásmundar Stefánssonar, að
því er einn alþýðubandalagsmaður
sagði í samtali við Tímann.
Vísindaveiðar á grænu
Grænt Ijós fékkst á vísindaveiðar
íslendinga á fundi Alþjóða Hval-
veiðiráðsins sem haldinn var í Sví-
þjóð í mánuðinum. Tillaga um til-
högun á sölu afurða dýra veiddum í
vísindaskyni var samþykkt og inni-
hélt hún ákvæði urn „staðarneyslu”
að svo miklu leyti sem hægt væri.
Petta mál dró heldur betur dilk á
eftir sér þegar leið á árið.
Frægar hljómsveitir
Tvær frægar hljómsveitir komu til
landsins í júní mánuði. Pær höfðuðu
til tveggja kynslóða og vöktu mikla
athygli. Þetta voru hljómsveitirnar
Madness og Shadows sem báðar
komu í tilefni af listahátíð í Reykja-
vík.
Hafskipsmenn úr haldi
Þegar nokkuð var liðið á mánuð-
inn voru forráðamenn Hafskips
ið vel. Porsteinn Pálsson varspurður
hvort honum fyndist Albert ætti að
segja af sér ráðherradómi meðan
rannsókn málsins færi fram. Hann
sagði að hefði hann talið nauðsynlegt
að Albert færi úr ríkisstjórninni þá
hefði hann beðið um það. Pann 20.
júní sagði Þorsteinn að hann hefði
ekki enn komist að þeirri niður-
stöðu.
Gamli Iðnskólinn brennur
Talsvert tjón varð þegar húsnæði
gamla Iðnskólans í Reykjavík
brann. Svo að segja ómetanlegar
innréttingar urðu eldinum að bráð.
Talsverðar skcmmdir urðu cinnig á
leikmunum og búningum Lcikfélags
Reykjavíkur. Ákveðið var í borgar-
stjórn að endurbyggja turninn sem
brann og var fljótlega tekið til við
það.
Aprílgabbið alvara
Vinsælt aprílgabb fjölmiðla varð
að veruleika í lok júní. Þá var
auglýst útsala á nokkrum víntegund-
um í „ríkinu". Fólk fjölmennti en
tcgundirnar voru ekki allar
jafn eftirsóttar.
JÚLÍ
Vatnavextir á Norðurlandi
Mikil hlýindi ollu vatnavöxtum á
Norðurlandi í byrjun mánaðarins.
Eyjafjarðará t.a.m.flæddi yfir bakka
sína og gerði usla. Vegaskemmdir
urðu miklar og tilfinnanlegastar
urðu þær í Ólafsfjarðarmúla, þar
sem stórt stykki hreinlega hrundi úr
veginum og í sjó fram. Talsvert
landbrot varð vegna vatnavaxtanna
og var það mál manna að aðrir eins
vatnavextir hefðu ekki orðið í Eyja-
firði frá 1939.
Hestamannafagnaður
Landsmót hestamanna hófst á
Hellu annan júlí. Mikill mannfjöldi
sótti mótið og ekki vantaði fjölda
sprækra hrossa. Veðurguðirnir
sýndu mótinu áhuga og úthelltu
geislum sínum yfir knapa og klára.
Frystihúsavandi
Eitt af verkefnum ríkisstjórnar-
innar í júlí var að ræða og skoða
Jón L. Árnason kom í júlí og með stórmeistaratitilinn upp á vasann.
leystir úr haldi, eftir að Hæstiréttur
hafði hnekkt úrskurði sakadóms um
framlengt gæsluvarðhald sex-
menninganna. Það var 19. júní sem
mönnunum var sleppt, en gæsluvarð-
haldsúrskurðurinn hljóðaði upp á
varðhald fram til 25. júní.
Flugslys að Flúðum
Maður á fertugsaldri lést þegar
flugvélin TF MOL hrapaði við
Flúðir. Flugmaður vélarinnarslasað-
ist mjög alvarlega en var þó ekki í
lífshættu.
Pressa á Albert
Guðmundur Einarsson BJ maður
fyrrverandi krafðist þess að forsætis-
ráðherra krefðist afsagnar Alberts
Guðmundssonar iðnaðarráðherra
vegna umræðu um tengsl hans við
Hafskipsmálið. Steingrímur Her-
mannsson sagðist mundi skoða mál-
Þeir hófu hvalveiðar aftur í ágúst eftir óvænt sumarfrí á meðan viðræður
við Bandaríkjamenn fóru fram.
vanda þann sem frystihúsin áttu við
að etja. Málið kom upp á yfirborðið
á sumarmánuðum og var lengi í
umræðunni. Meðal þesssem kannað
var, var gengistap frystihúsanna
vegna afurðarlána frá árinu 1985.
Töluðu menn um uppsafnaðan
vanda frá fyrri árum og þar sem ekki
væri hagnaður af rekstrinum skapað-
ist ekki svigrúm til að greiða niður
skuldir.
Stórmeistari
Jón L. Árnason náði síðasta
áfanga að stórmeistaratitli í júlí.
Hann tryggði sér titilinn með sigri á
móti í Búlgaríu. í síðustu umferðinni
þurfti Jón L. að ná jafntefli. Pað
hafðist í aðeins sextán leikjum. Þar
með var Jón L. orðinn fjórði stór-
meistarinn sem íslendingar eignuð-
ust á rúmu ári.
Flugslys á
Reykjavíkurflugvelli
Litlu mátti muna að stórslys yrði
á Reykjavíkurflugvelli, þegar lítilli
einkaflugvél hlekktist á flugtaki.
Fjórir mcnn voru í TF-TAM en
engan þeirra sakaði alvarlega.
Einkaflugvélin var nær lent á Fokker
vél frá Flugleiðum og áttu tollþjónar
og flugfreyjur, sem voru að yfirgefa
vélina fótum fjör að launa. Eldur
kom upp í litlu vélinni og tókst
Ævari Björnssyni að slökkva eldinn
mcð handslökkvitæki. Var almennt
talið að Ævar hefði unnið mikið
afrek, vegna þess hversu snöggur
hann var að slökkva eldinn sem
hefði getað haft ófyrirsjáanlegar af-
leiðingar.
Tvíkynja og tröllvaxinn
Það bar við á bænum Gilsfjarðar-
múla í Barðastrandarsýslu að tröll-
vaxinn og tvíkynja kálfur fæddist.
Leið afkvæmi vel eftir atvikum þrátt
fyrir ýmsa útlitsgalla frá náttúrunnar
hendi. Vottaði jafnframt fyrir þriðja
framfætinum á skepnunni. Þegar
kálfurinn meig, mátti þegar vel stóð
á sjá bununa standa bæði fram og
aftur úr skepnunni.
Ævar fékk gullmerki
Flugvirkinn snarráði, Ævar
Björnsson sem slökkti eldinn í TF-
TAM, sem sagt er frá hér að ofan
var heiðraður af Brunabótafélagi
íslands með því að honuni var veitt
gullmerki félagsins fyrir björgun
farþega.
Loðnuverð ákveðið
Loðnuverö var ákveðið 1900
krónur fyrir hvert tonn. Yfirnefnd
Verðlagsrás sjávarútvegsins ákvað
verðið. Tveirfulltrúarkaupenda létu
bóka á fundinum að þeir væru alger-
lega mótfallnir verðinu.
Viðskiptaþvinganir
íslenskum yfirvöldum bárust þau
tíðindi að nú skyldi hvalveiðum hætt
ella gætu íslendingar átt von á við-
skiptaþvingunum af hálfu Banda-
ríkjamanna. . „Óþolandi" sagði
Steingrímur Hermannsson um þess-
ar fregnir. Málið gerðist mjög alvar-
legt ogm.a. spurði HalldórÁsgríms-
son hvort um trúnaðarbrest væri að
ræða í Washington, fyrst upplýsingar
um málið láku út. Bandaríkjamenn
ákváðu að frcsta að taka afstöðu til
málsins og hófust viðræður milli
íslendinga og Bandaríkjamanna.
Embættismenn í Bandaríkjunum
voru undrandi á viðbrögðum Islend-
inga. SteingrímurHermannsson hélt
blaðamannafund í lok mánaðarins,
þar sem hann lagði fram gögn sem
ótvírætt sýndu að Bandaríkjamcnn
ætluðu að beita íslendinga viðskipta-
þvingunum.
Bandaríkjamenn brugðust hinir
verstu við birtingu á skjölum þessum
og sökuðu Steingrím um trúnaðar-
brot.
ÁGÚST
Verslunarmannahelgi og
hvalveiðideilan
Það er óhætt að segja að ágúst
| mánuður hafi verið mcð rólegri
mánuðum á liðnu ári. Þó var nokkur
undiralda og gætti helst sviftinga á
sviði sjávarútvegs. En við skulum
líta nánar á hver þau mál voru sem
hæst bar.
22 slasaðir
Veislunarmannahelgin setur
ávallt svip sinn á byrjun ágúst mán-
aðar og var svo einnig í ár. Útihátíðir
víða um land fóru fram og tókust
ágætlega. Umferðin tók þó sinn toll
og 22 slösuðust í rúmlega sjötíu
umferðaróhöppum sem urðu yfir
helgina. Þar af meiddust fjórir alvar-
lega. Umferðarráð taldi umferðina
hafa gcngið vel eftir atvikum.
Hvalveiðiviðræður
Hvalveiðideila Bandaríkjamanna
og íslendinga hélt áfram. Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráðhcrra
hóf viðræður við Malcolm Baldridge
viðskiptaráðherra Bandaríkjanna
um hvalamálið. Halldór Ásgrímsson
kom óvænt heim oggerði ríkisstjórn-
inni grein fyrir málinu. Forsætisráð-
hcrrar Norðurlandanna funduðu um
málið og sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra í samtali
við Tímann að niðurstaða fundarins
hefði verið sú að ekki ætti að leysa
mál af þessu tagi milli einstakra
landa heldur á fundum Alþjóða
hvalveiðiráðsins.
Lausn í deilunni náðist með yfir-
lýsingu sem ríkisstjórnin sendi frá
sér, þar sem sagt var að íslendingar