Tíminn - 31.12.1986, Qupperneq 15

Tíminn - 31.12.1986, Qupperneq 15
Miðvikudagur 31. desember 1986 Tíminn 15 Engu að síður lýstu báðir leið- togarnir því yfir áður en þeir fóru að árangurinn væri meiri en búast hefði mátt við jafnvel þó ekki hafi verið undirritað samkomulag. Alþýðuf lokkur stækkar um B J 1 byrjun mánaðarins boðuðu Al- þýðuflokkurinn og Bandalag jafnað- armanna til blaðamannafundar þar sem þeir greindu frá þeirri ákvörðun að þingflokkur og þeir aðrir sem gegndu trúnaðarstörfum fyrir BJ hefðu gengið í Alþýðuflokkinn. Á þessum fundi sögðu BJ menn að þeir hefðu í bili a.m.k. fallið frá kröfum sínum unr stjórnkerfisbreytingar ss. um beina kosningu forsætisráðherra. Formaður Alþýðuflokksins boðaði jafnframt að flokkur sinn væri tilbú- inn til að fara annað hvort í viðreisn- arsamstarf með Sjálfstæðisflokki eða nýsköpunarsamstarf með Alþýðu- bandalagi og Sjálfstæðisflokki. Gefist upp á frjálsum kartöflum Neytendasamtökin lýstu því yfir í byrjun mánaðarins að þau hefðu gefist upp á frjálsri verðlagningu á kartöflum. þar sem verð kartaflana hafi hækkað tvöfalt til þrefalt um- fram hækkun vísitölunnar. Sólmyrkvi Sólmyrkvi varð þann 3. október. Klukkan 17:58 varð myrkvinn 85% í Reykjavík. Myrkvinn varð þó mestur fyrir norðan og um 99% myrkvi sást á hafinu milli íslands og Grænlands. Slæmt útlit með síldina Síldarvertíðin hófst þann 7. okt- ober þegar Snæfari landaði síld á Eskifirði sem fryst var í beitu. Síldar- söltun hófst síðan á Fáskrúðsfirði. Frarnan af var útlit fyrir að ekkert yrði af síldarsöltun í neinu magni þar sem samningar höfðu ekki tekist við Sovétmenn um síldarsölu. Þess vegna fór vertíðin hægt af stað og nær eingöngu saltað upp í Skandin- avíusamninga. Viðræður hófust við Sovétmenn undir lok mánaðarins aftur og og á endanum tókust samn- ingar við Rússana um 200 þúsund tunnur í nóvember. Steingrímur fram á Reykjanesi Þann fjórtánda október tilkynnti Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra að liann myndi bjóða sig fram á Reykjanesi í komandi kosn- ingum. Sagði formaðurinn nauðsyn- legt að styrkja flokkinn í þéttbýli og þó að sér væri óljúft að fara frá Vestfjarðakjördæmi yrði hann sem formaður flokksins að gera það sem flokknum væri fyrir bestu. Albert 1 .sætið í Reykjavík Albert Guðmundsson iðnaðarráð- herra bar sigur úr býtum í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík 18.- 19. október. Friðrik Sóphusson varaformaður flokksins lenti í 2. sæti og Birgir ísleifur Gunnarsson í því þriðja. NÓYEMBER Hvalbátum sökkt Það vakti heimsathygli þegar frétt- ist að hryðjuverkamenn hefðu sökkt tveimur hvalbátum í Reykjavíkur- höfn aðfaranótt mánudagsins 10. nóvember. Það voru menn úr sam- tökunum Sea Shepherd, sem telja sig vera málsvara náttúruverndar. sem stóðu að spellvirkinu. Mennirn- ir unnu einnig skemmdarverk á tækj- um hvalstöðvarinnar í Hvalfirði. f tengslum við málið yfirheyrði rann- sóknarlögreglan einn fslending sem er félagi í Sea Sheperd samtökunum, en hann var þó ekki talinn eiga hlut að máli. Flokksþing Framsóknarflokksins „Ný öld í augsýn" voru kjörorð 19. flokksþings Framsóknarflokks- ins sem haldið var dagana 7.-9. nóvember. Þingið var jafnframt af- mælisþing, en Framsóknarflokkur- inn var stofnaður árið 1916. Á þinginu sátu nær 600 fulltrúar víðs vegar af landinu sem mótuðu þar framtíðarstefnu flokksins. 12-14 ára stúlkubörn kæra kynmök Krafist var gæsluvarðhalds yfir 27 ára gömlum manni þann 12. nóv- ember. Manninunt var gefið að sök Bankamálaumræða Mikil umræða var um framtíð bankamála á íslandi í nóvember- mánuði. Þann 11. varbirt rannsókn- arskýrsla vegna Útvegsbankans og Hafskips. Þar mátti finna harðorða gagnrýni á yfirstjórn bankans. Daginn eftir skilaði bankastjórn Seðlabankans viðskiptaráðherra til- lögum sínum um framtíð Útvegs- bankans. Lagði Seðlabankinn til að Útvegsbanki, Verzlunarbanki og Iðnaðarbanki yrðu sameinaðir í einn hlutafélagsbanka. Steingrímur Hermannsson taldi Seðlabankaskýrsluna ckki nógu vel unna, og þann 19. nóvember sam- þykkti þingtlokkur Framsóknar- flokksins að rétt væri að Búnaðar- bankinn yfirtæki Útvegsbankann. Því voru sjálfstæðismenn andvígir og varð því að lokum samþykkt að ríkisstjórnin léti athuga báða mögu- leikana til hlítar. að hafa átt kynmök við barnungar stúlkur í einkasamkvæmum er hann hélt á billjardsstofu sinni f Garðabæ. Það voru 12-14 ára stúlkubörn sem kærðu manninn fyrir kynferðisaf- brot, en í varðhaldskröfunni var einnig talað um brot við áfengislög- gjöf og fíkniefnalöggjöf. Listaverkaskemmdir að Korpúlfsstöðum Miklar skemmdir urðu á verkum nokkurra listamanna sem geymdu verk sín í geymslum Myndhöggvara- félags Reykjavíkur að Korpúlfsstöð- um, þegar heitavatnsleiðsla þar brast og heitt vatn streymdi um húsið helgina 16.-17. nóvember. Sala Olís á síðum Tímans Þann 18. nóvember birtust fréttir um leynilegar viðræður milli Skelj- Tveimur hvalbátum var sökkt í Reykjavíkurhöfn aðfaranótt 10. nóvemb- er. Það voru menn úr Sea Sheperd samtökunum sem unnu spellvirkin. 19. flokksþing Framsóknarflokksins var haldið dagana 7.-9. nóvember. Hér má sjá æðstu embættismenn flokksins fagna kjöri Halldprs Ásgríms- sonar til varaformanns. DESEMBER Framsóknarf lokkurinn 70 ára Framsóknarflokkurinn varð 70 ára þann 16. desember og héldu þingmenn tlokksins afmælishóf að því tilefni að Hótel Sögu. Fjöldi manns mætti í hófið og minntist þessa merka áfanga. Eru íslendingar hýrudregnir í skreiðarsölu? Um miðjan mánuðinn birti Tím- inn fréttir af stórvandræðum í sölu skreiðar til Nígeríu. Þar kom fram að til Nígeríu hefur verið flutt skreið fyrir 70 milljónir en engin greiðsla borist. Þá tengjast máli þessu dular- fullar mútugreiðslur og virðist málið allt vera hið skringilegasta, en nokk- uð ljóst að íslenskri skreiðarfram- leiðendur hafa tapað gífurlegunt fjárhæðum á þessum viðskiptum. Fjölmiðlafárviðri Aðfaranótt 15. desember geisaði sannkallað fjölmiðlafárviðri. Þá gekk djúp lægð yfir landið og höfðu fjölmiðlar varað fólk mjög kröftug- lega við náttúruhamförum. Þegar til kom var veðrið langt frá því að vera eins slæmt og fólk átti von á og var mál manna að hvassviðrið hafi mest verið í fjölmiðlum. Samningar Samningamál í desember byrjuðu með því að þann fyrsta gekk Dagsbr- ún út úr samningaviðræðunum. Verkamannasambandið og aðrir að- ilar héldu hins vegar áfram. Þeir uppskáu síðan laun erfiðis síns að- faranótt 6. desember, cn þá var kjarasamningur undirritaður. Það sem sérstaklega einkenndi samning- inn var mikil hækkun lægstu launa. Fjölmiðlafárviðri gekk yflr landið. Hér má sjá trillu sem er við það að sökkva í veðrinu. Eitthvað virðist vera maðkað í skreiðarviðskiptum við Nígeríumenn. Hér má sjá nokkrar skreiðar, sem bíða þess að komast til Nígeríu. Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins heldur ræðu í 70 ára afmælishófl Framsóknarflokksins ungs og Olíuverslunar íslands, Olís, um að Skeljungur keypti hlutafé Olís á tvöföldu nafnverði. Tíminn fékk síðan staðfest af einum stjórn- armanni Olís þann 21. að skuldir félagsins væru um 1,1 milljarður króna og að yfir stæðu viðræður um kaup Skeljungs. Daginn eftir birtist frétt um að Olís hefði hafnað sam- einingu og var málið þá úr sögunni í yrsta malbikaða sveitin • mánuðinum birti Tíminn frétt um fyrstu malbikuðu sveitina á land- inu. Það voru íbúar Þykkvabæjar sem í sumar lánuðu ríkinu 18 mill- jónir og létu malbika hvern vegar- spotta í sveitinni í stað þess að bíða í 20 ár eftir varanlegum vegi. Banaslys við Hrífunes Fullorðinn maður lést og fullorðin kona komst í mikla lífshættu, eftir harðan árekstur sem varð í grennd við bæinn Hrífunes í V- Skaftafells- sýslu þann 27. nóvember. Samningar hefjast Samningar milli aðila vinnumar- kaðsins hófust þann 25. Töldu menn stemmningu fyrir að samningar tækj- ust á viku. Hins vegar olli stjórnar- samþykkt Dagsbrúnar þann 26. nokkrum taugatitring, því hún gerði ráð fyrir öðrum leiðum en ASÍ. Dagsbrún hélt þó áfram samn- ingaviðræðum við hlið ASÍ. Eru tannlæknar stórskatt- svikarar? „Vantar 450 milljónir í skattfram- tölin?" var forsíðufyrirsögn Tímans þann 4. desember. í fréttinni var fjallað um skattframtöl tannlækna og kom í Ijós að a.m.k. 450 milljónir króna af tekjum tannlækna á íslandi, eru ekki taldar fram til skatts. Þá kemur í Ijós að tannlæknakostnaður íslendinga er 950 milljónir króna. Rangar forsendur afurðalána Steingrímur Hermannsson fors- ætisráðherra sendi Seðlabankanum ítarlegar athugasemdir vegna útreik- inga sem Seðlabankinn framkvæmdi vegna afurðalána til sláturleyfishafa í byrjun desember. í viðtali við Tímann 5. desember segir Stein- grímur að útreikningarnir hafi virst gerðir af manni sem liafi vitað akaf- lega lítið um málið. Hagvöxtur sá mesfi á Vestur- löndum í nýrri þjóðhagsspá sem birt var í desember kemur í ljós að hagvöxtur á Islandi á árinu 1986 verði sá mesti á Vesturlöndum. Þjóðartekjur gætu aukist um 8%, sem þýðir 6% hag- vöxtur. Þá er gert ráð fyrir að verðbólga verði um 12% á árinu, en verði 7-8% á því næsta. Borgarspítalamálið Mikil ólga skapaðist meðal starfs- fólks Borgarspítalans 2. desember, þegar fréttist að borgarstjórinn hefði farið fram á við heilbrigðisráðherra að ríkið yfirtæki hlut borgarinnar í spítalanum. Mál þetta var á döfinni allan desembermánuð og sýndist sitt hverjum. Þann 19. desember sendu forsætisráðherra, fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra borgarstjóra bréf, þar sem þeir lýstu eindregnum vilja ríkisstjórnarinnar til að verða við óskum borgarstjóra og taka yfir hlut borgarinnar og mælst til að lokasamningar færu fram eftir ára- mótin. Óli kaupir Olís Olís málið fékk óvæntan endi þann 1. desember þegar heildsalinn Óli Kr. Sigurðsson gerði sér lítið fyrir og keypti 74% hlutafjár í fyrir- tækinu, öllum að óvörunt. Skeljung- ur hafði guggnað á kaupum á skuldabréfum Olís vegna slæmrar skuldastöðu Olís, en Óli sagðist mundi grynnka á skuldunum með harðari innheimtuaðgerðurn á úti- standandi skuldum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.