Tíminn - 31.12.1986, Page 20
SAMBANDSFÓÐUR
WiW'
PíWW?'y^ý-TT^TpTív T$^^:' \\ 'f ',", *?T '<:
Lánasjóöur íslenskra námsmanna:
“Rangt hjá ráðherra að
samkomulag hafi náðst“
- segir Finnur Ingólfsson, sem lýsir undrun á
yfirlýsingum Sverris Hermannssonar
„Það er alrangt hjá Sverri Her-
mannssyni að eitthvert samkomulag
sé fyrir hendi milli fulltrúa stjórnar-
flokkanna og ég er alveg hlessa á
ráðherranum að koma með svona
yfirlýsingar þar sem hann lætur að
því liggja að komin séu fram loka-
drög sem taka eigi til umræðu í
ríkisstjórninni, þegar viðræður við
námsmenn eru á mjög viðkvæmu
stigi og margt benti til að samkomu-
lag gæti náðst,“ sagði Finnur Ingólfs-
son við Tímann í gær þegar hann var
spurður út í fullyrðingar Sverris
Hermannssonar í Morgunblaðinu í
gær um að Finnur væri sáttur við
frumvarpsdrög um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna eins og þau
liggja nú fyrir, þrátt fyrir að óvíst
væri hvort samkomulag næðist við
námsmenn. Finnur Ingólfsson sagði
hins vegar í samtali við Tímann fyrr
i þessum mánuði að hann teldi unnt
að ná samkomulagi við námsmenn
um ný drög að lögum fyrir LÍN, en
hann ásamt Friðrik Sóphussyni hefur
verið í sérstakri samráðsnefnd með
námsmönnum frá því í byrjun mán-
aðarins. Finnursagði að fullyrðingar
Sverris Hermannssonar um að kom-
ið væri fram samkomulag um þessi
drög væru hreinlega rangar og „ég lít
svo á að þessu samráði við náms-
menn sé einfaldlega ekki lokið.“
Finnur sagði að hann hefði staðið í
þeirri meiningu þar til hann hafi
lesið Morgunblaðið í gær, að málinu
hafi verið frestað fram yfir áramót
meðan námsmenn kynntu í sinn hóp
þær hugmyndir sem uppi væru. „Ég
hef aldrei sagt að það sem í þessum
drögum stendur séu sameiginlegar
tillögur okkar Friðriks Sóphussonar,.
það er rangt hjá Sverri, enda hefur
Sverrir aldrei rætt þessi mál við
mig,“ sagði Finnur. „Til þess að
mmm
JÓN PÁLL SIGMARSSON
var mættur á Opna Reykjavíkurmótið
í kraftlyftingum sem fram fór um helg-
ina, ekki þó til að keppa heldur mynd-
aði kappinn í gríð og erg.
Fjöldi íslandsmeta var settur á móti
þessu en nánar má lesa um úrslitin á
bls. 7 í Tímanum í dag.
Tímamynd - Pjetur
r.-:;
.
1111111111
Miðvikudagur31. desember 1986
hann átti sig á því hverjar mínar
tillögur eru, mun ég senda honum og
forsætisráðherra þær skrjflega strax
eftir áramót,“ sagði hann ennfrem-
ur. Kvað hann þær tillögur talsvert
frábrugðnar þeim tillögum sem nú
hafa komið fram í veigamiklum
atriðum, ss. að tekjutengingu endur-
greiðslnanna yrði breytt þannig að
hún yrði á bilinu 3,5 - 4,5% , að 3ja
manna nefndin sem gert er ráð fyrir
í drögunum og skipuð er fulltrúa
námsmanna, menntamálaráðuneyt-
isins og hagstofustjóra yrði að sam-
þykkja breytingar á framfærslu áður
en menntamálaráðuneytið gæti
breytt henni en ekki einungis að fá
álit nefndarinnar eins og nú er gert
ráð fyrir, og að sá þröskuldur sem
miðað væri við í sambandi við náms -
lán verði 1,9 milljón en ekki 1550
þúsund.
Foreldrar, systkini og nánustu ættingjar Hauks
Más þegar minningargjöfin var afhent fulltrúum
Slysavarnafélagsins. Innfelld mynd er af Hafþóri
Má Haukssyni.
Minningargjöf til SVFÍ:
Hálf milljón til
minningar um Hafþór Má
Hjónin Sigrún Steinsdóttir og
Haukur Harðarson, börn þeirra og
nánustu ættingjar afhentu nýlega
Slysavarnafélagi íslands hálfa millj-
ón króna að gjöf til minningar um
son þeirra og bróður Hafþór Má.
Hafþór Már hefði orðið tvítugur
daginn sem gjöfin var afhent, þann
fjórða dcsember, en hann hvarf af
heimili sínu 20. janúar 1985 en
fannst síðan í Sundahöfn 30. mars
1986.
í gjafabréfi sem fylgdi með gjöf-
inni segir að upphæðinni skuli varið
óskiptri til kaupaá köfunarsímakerf-
um. Ijósabunaði fyrir kafara og næt-
ursjónauka, en þessi búnaður á það
sameiginlegt að auðvelda og flýta
fyrir leitar- og björgunarstörfum og
auka öryggi þeirra, sem fást við þau.
Óskum landsmönnum öllum árs og íriðar.
Þökkum samstarfið á liðnum árum og vonum
að árið 1987 verði íarsœlt ílutningaár.
DALVÍK
SIGLUFJÖRÐUR
ÍSAFJÖRÐUR ÓLAFSFJÖRÐUR
SUÐUREYRI SAUÐÁRKRÓKUR
FLATEYRI BOLUNGARVÍK NORÐURFJÖRÐUR
ÞINGEYRI BÍLDUDALUR
TÁLKNAFJÖRÐUR
PATREKSFJÖRÐUR
HRISEY
AKUREYRI
GRIMSEY
HÚSAVÍK
ÞÓRSHÖFN VOPNAFJÖRÐUR
RAUFARHÖFN BAKKAFJÖRÐUR BORGARFJÖRÐUR EYSTRI
SEYÐISFJÖRÐUR
MJÓIFJÖRÐUR
NESKAUPSTAÐUR
ESKIFJÖRÐUR
REYÐARFJÖRÐUR
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR
STÖÐVARFJÖRÐUR
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR