Tíminn - 09.01.1987, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Fncti irlani ir Q
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
íslandsmótið í handknattleik rúmlega hálfnað:
Hörkuhandbolti
á skemmtilegu og
afar spennandi
Islandsmóti
- FH-ingar og Víkingar hafa tekið forystuna en fleiri lið gætu blandað sér í
toppslaginn -
íslandsmótið í handknattleik er
nú rúmlega hállnað og er óhætt að
scgja að sjaldan Itafi verið boðið upp
á jafnskemmtilegt og spennandi mót
og nú. f>að sanna leikirnir í fyrra-
kvöld. FH vinnur KA með einu
marki norður á Akureyri þar sem
Eggert Tryggvasyni norðanmanni
mistekst vítaskot þegar leiktíminn
er úti og KR sigrar Fram, einnig með
einu marki, í hörkuleik í Höllinni.
Hinir leikirnir tveir, viðureignir
Breiðabliks og Stjörnunnar og
Hauka og Árntanns, enda svo með
jafntefli.
Spennandi mót og það kunna
áhorfendur ætíð vel að meta enda
hcfur þeim fjölgað gífurlcga frá því
á síðasta keppnistímabili þegar
áhorfendur mátti oft tclja á fingrum
annarrar handar - eða rúmlcga það.
Að vísu verður að taka með í
reikninginn að undirbúningur lands-
liðsins undir hcimsmeistarakeppn-
ina í Sviss gerði allt mótshald hér á
landi að ákaflcga miklu aukaatriði
hjá handknattleikssambandinu í
fyrra og 1. deildarkeppnin varð því
ekki svipur hjá sjón.
Nú er annað upp á teningnum.
Mótið nokkuð samfellt til þcssa,
leikirnir spennandi og margir góðir
og það sem sérstaklega er eftirtekt-
arvert er hversu margir ungir og
efnilegir leikmenn fylla nú skörð
þeirra cldri mcð miklum sónta. For-
ráðamenn handknattleiksins þ.e.
stjórnendur og þjálfarar eiga hrós
skilið fyrir að koma sífellt með unga
leikmenn fram á sjónarsviðið, leik-
menn scm eiga eftir að bera merki
íslands á alþjóðavettvangi hátt á
lofti á næstu árum.
FH-ingar, KR-ingar og Víkingar
virðast eiga mest af upprenntindi
stjörnum, tvö liðin berjast reyndar á
toppi deildarinnar með þennan
mannskap innanborðs en KR-ingar
hafa átt nokkuð erfitt uppdráttar og
meiðsli lykilleikmanna dregið úr
þeim máttinn.
En hvar standa svo liðin þegar
lokaspretturinn fer að hefjast? FH-
ingar er efstir með 17 stig eftir ellefu
leiki. Eftir slaka byrjun hefur liðið
verið ósigrandi og ungu mennirnir á
borð við Héðin Gilsson, Pétur Pet-
.ersen, Óskar Helgason og Gunnar
Beinteinsson virðast vera hlaðnir
orku og tilbúnir til að hlaupa enda-
laust eftir strangar æfingar Viggós
Sigurðssonar þjálfara. Pað eru þó
reyndari leikmcnnirnir, þeir Þorgils
Óttar Mathiesen, Guðjón Árnason
og Óskar Ármannsson sem hafa að
undanförnu borið uppi leik Hafn-
firðinganna og má líklegt telja að
þeirra verði enn frekar þörf í kom-
andi toppbaráttu.
Víkingar eru einnig með 17 stig,
að vísu með verra markahlutfall en
FH-ingar en eiga frestaðan (og unt-
deildan) leik við Valsmenn inni.
Víkingar hafa fjóra landsliðsmenn,
þá Guðmund Guðntundsson, Hilm-
ar Sigurgíslason, Karl Þráinsson og
Kristján Sigmundsson og einnig eru
þeir Bjarki Sigurðsson og Árni Frið-
leifsson í hópi efnilegustu leikmanna
Jöfnum leikjum fylgja fleiri áhorfendur
hér á landi. Víkingar hafa fengið á
sig færri mörk en nokkuð annað lið
í deildinni og góð markvarsla, sterk-
ur varnarleikur ásamt verulegri
landsliðsreynslu gera íslandsmeist-
arana sannarlega að því liði sem
sigurstranglegast er í deildinni.
Spútniklið Brciðabliks úr Kópa-
vogi er með 16 stig að afloknum 11
leikjum en liðið lciddi deildina er
jólafrí gekk í garð. Blikar hafa tapað
naumlcga fyrir FH-ingum og gert
jafntefli við Stjörnuna á nýja árinu
og sýnt í þeim leikjum að þeir eru til
alls vísir í baráttunni um íslands-
meistaratitilinn. Margir spáðu því
eftir nokkra leiki að Blikar ntyndu
senn springa á limminu cins og
gengur í gerist með nýliða í 1.
deildarkeppnum. Það hefur ekki
gerst ennþá því samheldni og
baráttugleði gera Kópavogsbúana
að einu skemmtilegasta liði dcildar-
innar og jafnframt því hættulegasta.
Ekki hefur það skemmt fyrir að
Guðmundur Hrafnkelsson mark-
vörður og varamarkvörðurinn Þórir
Siggeirsson hafa sýnt mjög góðan
leik í allan vetur og bræðurnir Björn
og Aðalsteinn Jónssynir eru leik-
menn sem allir vildu hafa í sínum
liðum.
Valsmenn hafa hlotið 12 stig úr tíu
lcikjum og hafa mannskap til að
blanda sér í toppslaginn. Hinsvegar
hefur markvarslan ekki verið upp á
það besta og leikmenn virðast oft
hugsa nreira um sinn eigin franta en
velgengni liðsins. Vörn Valsmanna
er sterk með Geir Sveinsson og
gamla brýnið Þorbjörn Guömunds-
son í aðalhlutvcrkum. Þrír snjallir
horna- og hraðaupphlaupsntenn,
þeir Jakob Sigurðsson, Valdimar
Grímsson og Pálmi Jónsson, eru í
liðinu og í skyttuhlutverkum eru
Júlíus Jónasson og Stefán Halldórs-
son, ekki ónýtur mannskapur það en
spurningin er fremur unr liðssam-
vinnu og liðsanda.
KA á Akureyri er komið með 1.
deildarlið sem gefur toppliðunum
lítið eftir og stuðningur norðlenskra
áhorfenda er mikill t.d. létu um tólf
hundruð manns sjá sig í íþróttahöll-
inni á Akureyri í fyrrakvöld er KA
lék við FH. Brynjar Kvaran, mark-
vörðurinn góðkunni, þjálfar og leik-
ur með liðinu og hefur átt ágætis
keppnistímabil. Fyrir utan eru skytt-
urnar Jón Kristjánsson unglinga-
landsliðsmaður og Friðjón Jónsson
fyrirliði í aðalhlutverkum ásamt
þeim hvika Pétri Bjarnasyni. Liðið
siglir nú lygnan sjó í miðri deild, er
með 11 stig, og stefnir sjálfsagt að
því að vera í efri hluta deildarinnar.
Frant og Stjarnan hafa bæði hlotið
tíu stig úrellefu viöurcignum. Fram-
arar hafa orðið fyrir því áfalli að
missa sína helstu skyttu Egil
Jóhannsson frá vegna meiðsla um
tíma og við því hefur Per Skarup,
hinn danski þjálfari og ágæti
leikmaður liðsins, ekki fundið svar.
Fram tapaði mcð miklum nrun fyrir
KA á Akureyri um helgina og aftur
fyrir KR í fyrrakvöld. Agnar Sig-
urðsson er sá leikmaður sem mest
Arni til
liðs við
Stjörnuna
Knattspyrna:
Geir Sveinsson Valsari skorar framhjá Guðmundi Friðrikssyni Ármannsmarkverði. Geir og félagar hans geta með góðum endaspretti
blandað sér í toppbaráttu 1. deildarinnar en Ármenningar falla líklegast niður í 2. deild.
Árni Sveinsson, hinn gamalkunni
landsliðsmaður frá Akranesi, hefur
tilkynnt félagaskipti yfir í Stjörnuna
í Garðabæ og mun leika með liðinu
á komandi keppnistímabili. Það er
mikill fengur fyrir Garðbæinga að fá
Árna til liðs við sig, hann hefur
mikla og góða reynslu og kemur
sjálfsagt til með að styrkja hið annars
unga og óreynda 3. deildar lið
Stjörnunar verulega.
Þá hafa tvær kunnar knattspyrnu-
konur gengið til liðs við 1. deildarlið
Stjörnunnar og eru það Magnea
Magnúsdóttir og Margrét Sigurðar-
dóttir. Magnea lék á síðasta ári með
Breiðablik, Margrét spilaði hinsveg-
ar með norsku liði en þar áður með
Breiðablik.
Kristinn Björnsson hefur verið
endurráðinn þjálfari karlaliðsins og
var gerður samningur við hann til
tveggja ára. Aðalsteinn Örnólfsson
mun hinsvegar þjálfa kvennaliðið og
einnig 2. flokk karla.
hefur sótt sig á tímabilinu hjá Fram
en besti maður liðsins hefur óum-
dcilanlega vcrið Birgir Sigurðsson
línumaður cr lék með Þrótti í fyrra,
mikill skorari og útsjónarsamur
leikmaður er sannarlega kemur til
greina í landslið.
Stjörnunni var spáð mikilli vel-
gengni á þessu tímabili en hún hefur
látið bíða eftir sér. Stjarnan hefur
skorað mest allra liða í deildinni og
hafa Hannes Leifsson og Gylfi Birg-
iisson verið drýgstir við skorunina.
Stigasöfnunin hefur hinsvegar ekki
gengið sem skyldi það sem af er
vetrar en nú virðist liðið vera á
uppleið á ný eftir öldudal sem fylgdi
eftir Evrópuviðureignir þcss í haust.
Það veitir liðinu einnig styrk að
Magnús Teitsson, línumaðurinn
snjalli, er byrjaður að leika á ný eftir
slæm meiðsli.
KR-ingar eru með 8 stig en hafa
verið óheppnastir allra liða í deild-
inni. ÞeirfenguHansGuðmundsson
til liðs við sig fyrir byrjun móts sent
lykilskyttu. Hans hefur hinsvegar
lítið getað leikið, tvíbrotnað á hendi
og er skarð fyrir skildi. Flestir leik-
menn liðsins eru mjög ungir að
árum, leikmenn á borð við hinn
stórgóða hornamann Konráð Olavs-
son og Þorstein Guðjónsson. Leik-
reyndir jaxlar á borð við Jóhannes
Stefánsson og Ólaf Lárusson eru
einnig fyrir í liðinu en stcfnan hjá
Vesturbæingum hlýtur, sem komið
er, að vera sú að halda sér í deildinni.
Það er ærið verk.
Haukar frá Hafnarfirði nrunu að
líkindum berjast við KR-inga um
fallið. Haukarnir eru með 6 stig en
eru dulítið óútreiknanlegir. Þeir
hafa markahæsta leikmann 1. deild-
arinnar Sigurjón Sigurðsson innan
sinna vébanda og góðan markvör'ð í
fornti Gunnars Einarssonar. Þá er
Jón Örn Stefánsson snjall og dugleg-
ur leikmaður og Ólafur Jóhannesson
knattspyrnukappi er nú farinn að
leika með sínu gamla liði af fullum
krafti. Annars er lítið hægt að segja
um stigasöfnun Haukanna, hún fer
ekki alltaf eftir venjulegum Iögmál-
um.
Það kemur nær örugglega í hlut
Ármenninga að falla niður í 2. deild.
Ármenningar hafa 1 stig eftir 11
leiki, fengu sitt fyrsta stig í fyrra-
kvöld en setja verður stórt spurn-
ingamerki við hvort þau verði fleiri.
Guðmundur Friðriksson getur varið
ágætlega þegar sá gállinn er á honum
en tvo til þrjá verulega góða útileik-
menn vantar til að leikur Ármenn-
inga geti verið á 1. deildarstigi.
hb
Páll Ólafsson og aðrir KR-ingar hafa átt erfítt uppdráttar í vetur og það hafa Framarar einnig. Bæði liðin hafa orðið fyrir þeirri blóðtöku
að missa sínar helstu skyttu í meiðsli.
Brasilía efst
Brasilíumenn er efstir í heimsmeistarkeppni öld-
unga, keppninni um Pelebikarinn, sem nú fer fram í
Brasilíu. Heimamenn gerðu jafntefíi við Uruguay í
gær 0-0 og hafa því fengið 3 stig úr tveimur leikjum.
Argentínumenn, Vestur-Þjóðverjar og Uruguay-
menn hafa eitt stig en ítalir ekkert. Öll þessi lið hafa
leikið einn leik en ítalir og Vestur- Þjóðverjar áttu að
leika seint í gærkvöldi.
Landsliöshópur í handknattleik hefur verið valinn:
Konráð í ÓL-hópinn
KR-ingurinn Konráð Olavsson er
eini nýliðinn í 22ja manna hóp sem
Bogdan landsliðsþjálfari hefur valið
til æfinga og keppni fyrir Ólympíu-
leikana í Seoul árið 1988. Hinn ungi
hornamaður hefur staðið sig mjög
vel það sent af er vetrar með 1.
deildarliði KR-inga.
Aðrir leikmenn sem valdir hafa
verið í þennan hóp eru markverðirn-
ir Kristján Sigmundsson, Einar Þor-
varðarson, Guðmundur Hrafnkels-
son og Brynjar Kvaran og útileik-
mennirnir Jakob Sigurðsson, Guð-
mundur Guðmundsson, Bjarni
Guðmundsson, Karl Þráinsson, Geir
Sveinsson, Þorgils Óttar Mathiesen,
Hilmar Sigurgíslason, Bjarki Sig-
urðsson, Kristján Arason, Sigurður
Sveinsson, Héðinn Gilsson, Sigurð-
ur Gunnarsson, Páll Ólafsson. Al-
freð Gíslason, Júlíus Jónasson, Atli
Hilmarsson og Þorbergur Aðal-
steinsson.
Hugsanlega bætast þeir Steinar
Birgisson og Þorbjörn Jensson við í
geysisterkan hóp sem gefur tilefni til
bjartsýni fyrir komandi Ólympíu-
leika.
Konráð Olavsson KR-ingur er kom-
inn í æfíngahóp Bogdans landsliðs-
þjálfara sem undirbúa á sig fyrir
Olympíuleikana í Seoul árið 1988.