Tíminn - 16.01.1987, Side 8
Timirm
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvæmdastjóri Kristinn Finnbogason
Ritstjóri: NíelsÁrni Lund
Aöstoöarritstjóri: OddurÓlafsson
Fréttastjórar: BirgirGuðmundsson
Eggert Skúlason
Auglýsingastjóri: Steingrí mur G íslason
Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og
686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans.
Prentun: Blaöaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306
Verð í lausasölu 50.- kr. og 60.- kr. um helgar. Áskrift 500.-
Gerræðisleg vinnubrögð
menntamálaráðherra
Á þessu kjörtímabili hefur starfsferill Sverris
Hermannssonar, menntamálaráðherra verið litríkur.
Hvað eftir annað hefur hann sýnt vald sitt og
yfirgang, hvort heldur það hefur verið í orðræðu eða
athöfnum, með þeim hætti að þjóðinni blöskrar.
Öllum er í fersku minni árásir hans á Lánasjóð
íslenskra námsmanna fyrir ári, sem einkum beindust
að framkvæmdastjóra lánasjóðsins og starfsmönnum
hans. Þeirri deilu lauk með brottvikningu fram-
kvæmdastjórans úr embætti.
Enn hefur menntamálaráðherra reitt til höggs og
nú er það Sturla Kristjánsson, fræðslustjórinn í
Norðurlandi eystra sem verður fyrir barðinu á
skapvonsku ráðherrans. Fyrirvaralaust er honum,
sem opinberum embættismanni, vikið úr starfi, af
þeirri ástæðu einni að hann hefur framfylgt þeim
lögum sem í landinu gilda um nám í grunnskólum.
Augljóst er að menntamálaráðherra er andvígur því
að svo sé gert og þar af leiðandi á móti þeirri
skólastefnu sem rekin hefur verið í Norðurlandi
eystra.
I ályktun sem skólastjórar og kennarar á svæðinu
hafa sent frá sér lýsa þeir yfir fullum stuðningi við
fræðslustjórann og mótmæla þeirri rangsleitni Sverris
Hermannssonar að reka hann úr embætti fyrir
samþykktir skólamanna í Norðurlandi eystra. Þá
gera þessir aðilar þá kröfu að uppsagnarbréf Sturlu
verði dregið til baka þegar í stað.
Engin ástæða er til að halda að Sverrir Hermanns-
son sé slíkur maður að hann verði við þeirri kröfu.
Hann hefur margsinnis sýnt að hann skirrist ekki við
að taka ákvarðanir upp á eigin spýtur sem ganga
þvert á venjur um mannleg samskipti. Hann einn
ræður. Orð hans eru lög.
Vera má að um þessa ráðstöfun hans sé full
samstaða meðal sjálfstæðismanna, og að sú skóla-
stefna sem í þessari aðgerð felst sé hin raunverulega
stefna sem Sjálfstæðisflokkurinn berst fyrir. Sé það
svo verður að gera þá kröfu að formaður flokksins
skýri það opinberlega.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn er á hinn bóginn ósam-
mála þessum vinnubrögðum menntamálaráðherra er
nauðsynlegt að það komi fram. Ótækt er að lands-
menn viti ekki hver skólastefna Sjálfstæðisflokksins
er örfáum vikum áður en gengið er til kosninga.
Vinnubrögð menntamálaráðherra í þessu máli eru
hneyksli sem ekki er hægt að líða. Enda þótt vald
ráðherra sé mikið verður ekki þolað að þeir leyfi sér
að reka háttsetta embættismenn fyrirvaralaust úr
starfi fyrir það eitt að þeir framfylgi landslögum.
Þessi aðgerð menntamálaráðherra er mjög alvar-
leg. Reynist Sturla Kristjánsson ekkert saknæmt
hafa unnið hlýtur að koma upp sú krafa að mennta-
málaráðherrann segi af sér embætti. Menntamálaráð-
herra sem aðrir þegnar þjóðfélagsins verða að vera
ábyrgir gerða sinna.
8 Tíminn
Föstudagur 16. janúar 1987
GARRI
ÞorsteinsPasson^
Oum 'Xe a athygl'-. A- "kvörðun um að sj6.l
iafnan tfethað vel íyru- 1 aaman ti\ {undarfl L jetningu
nennt rn® stiómmálan\en \ nnadei\una me AsMfstæð-L
..Lgnar slððu Og btjótast \ LvitundarformannsS^ k
ara otroo m5taða ramma. \ -„f\0^ksms. ^að ý forystu-L
'ormaður Sj að stóðva \ itað bar {° vægt mál viðl
Morgunblaðið styður
Þorstein
Eins og tryggir Garralesendur
muna vafalaust lauk hann pistli
sínum í gær með því að spyrja
hvort óvæntur stuðningur við Þor-
' stein Pálsson, scm fram kom í
baksíðufrétt Morgunblaðsins í
fyrradag, næði einnig inn á rit-
stjóm blaðsins. Ekki þurfti Garri
lengi að bíða eftir svari við þeirri
spurningu. Það kom í leiðara
Morgunblaðsins í gær og cr ótví-
rætt jákvætt.
Þessi leiðari er langur og torskil-
inn eins og Morgunblaðsleiðarar
eiga að vera. Eins og menn vita
ætlast þeir hjá Morgunblaðinu ekki
til þess að almennir lesendur eyði
tíma i þessi skrif, þvi að þeir leggja
enga áhcrslu á að gera þau aðgengi-
leg eða læsileg fyrir allan alinenn-
ing. Eins og Garri hefur áður bent
á eru þessi stjórnmálaskrif Morg-
unblaðsins ætluð miðaldra kaup-
sýslumönnum og tæplega lesin af
öðrum.
En þegar leiðarinn er lesinn
niður í kjölinn fer ekki á milli mála
að núna er Morgunblaðið loksins
farið að styðja formann Sjálf-
stæðisflokksins. Eins og menn vita
hefur blaðið alls ekki stutt flokkinn
undanfarið nema þegar því hefur
sýnst svo. Það hefur til dæmis
tckið neikvæða afstöðu gagnvart
Albert Guðmundssyni. Líka hefur
tónninn gagnvart Þorsteini Páls-
syni vægast sagt verið heldur nei-
kvæður. Þangað til í gær og fyrra-
dag.
Steingrímur og Halldór
leystu málin
Nú er það sannast sagna að
afskipti Þorsteins Pálssonar höfðu
í rauninni litla sem enga þýðingu
fyrir lausn sjómannadeilunnar.
Þegar málin cru vegin og metin af
réttsýni sjá menn strax að það voru
þeir Steingrímur lierinannsson og
Halldór Ásgríinsson sem réðu úr-
slitum um aö hún leystist. Og
kallarnir úr Sjálfstæðisflokknum í
ríkisstjórninni, sem Þorsteinn er
núna að rcyna að knésetja.
Það sem geröist var að deilan
var komin í sjálfheldu á sunnudag-
inn var. Ríkisstjórnin, undir for-
ystu Steingríms Hermannssonar, •
kom þá til skjalanna, ákvað að
kalla saman þing og leggja fyrir
það frumvarp til laga um að binda
enda á dciluna. Jafnframt vann
sjávarútvegsráðhcrra ötullega að
því að koma deiluaðilum saman á
fund að nýju. Vitaskuld varhonum
styrkur í ákvörðun ríkisstjórnar-
innar, en árangurinn af þéssu starfi
hafa menn nú fengið að sjá.
Og sjálfstæðisráðherramir mega
ciga það að þeir virðast hafa staðið
heils hugar að starfi ríkisstjórnar-
innar að þessarí lausn málanna.
Þorsteinn, aftur á móti, gerði í
rauninni ekkert annað en að halda
eina ræðu þegar hann kom heini,
gera hávaða í þinginu og gera sitt
besta til að gera samflokksráðherra
sína að ómerkingum.
Nær Þorsteinn
völdunum?
Þótt Morgunblaðið hafi núna
tekið þá stefnu að styðja Þorstein
tii valda og þar með áframhaldandi
formennsku þá er ekki þar með
sagt að það dugi. Það sem Morgun-
blaðið virðist vilja er sterkur for-
maður f flokknum, en það hefur þó
sýnt sig áður að til beggja átta
getur bragðið um það hvort stuðn-
ingur Morgunblaðsins reynist í
raun gagnlegur þegar á hólminn er
koinið.
Þau Matthías Bjarnason, Matt-
hías Mathiescn, Ragnhildur Helg-
adóttir, Sverrir Hcrmannsson og
Albert Guömundsson eru öll gam-
alreynd á vígvelli stjórnmálanna.
Hvað sem skoðunum þeirra líður
þá er þar á feröinni fólk sem allir
vita að er lítið fyrir að láta gera sig
ómerkt orða sinna af cinhverjum
strákpjökkum. Og sem er lítið fyrir
það að láta Morgunblaðið beygja
sig. Þess vegna er ekki annaö að
sjá en að nú sé framundan styrjöld
í Sjálfstæðisflokknum. Á öðrum
vængnum eru Morgunblaðið og
Þorsteinn, sem það hefur nú loks-
ins tekið upp á arma sína eftir
langa bið úti í kuldanum. Á hinum
vængnum eru hinir ráðherrarnir,
sem verða vafalaust þungir á bár-
unni. Og Garri fær ekki betur séð
en að hér geti vcrið á ferðinni hið
versta mál fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn, svona rétt fyrir kosningar.
Garri.
VÍTT OG BREITT
Uppar í framboði
Tímarnir breytast og gildismat
gærdagsins er orðið úrelt og ný
viðhorf taka við. í stjórnmálum er
allt á hverfanda hveli og meira að
segja er Stefán Valgeirsson ekki
lengur í framboði fyrir Framsókn-
arflokkinn. Menntamálaráðherra
rekur flokksbróður sinn úr embætti
fyrir óútskýrðar sakir og fjármála-
ráðherra endurtekur garpskap
Árna Oddssonar, lögmanns, þegar
hann tók land á Austfjörðum og
reið dagfari og náttfari til að bjarga
málum föður síns á Þingvöllum.
Hverra æru Þorsteinn var að bjarga
er enn ekki ljóst, en að minnsta
kosti ekki flokksbræðra sinna í
ráðherrastólum.
Eitt sinn kenndi Alþýðubanda-
lagið sig við verkalýð og fyrir
nafnbreytingu hafði það valdatöku
með byltingu á stefnuskrá, eins og
hver annar almennilegur kommún-
istaflokkur. En verkalýður heyrir
nú sögunni til og er svoleiðis fólk
ekki lengur gjaldgengt til stjórn-
málaþátttöku, eins og glöggt má
sjá á framboðslistum.
Sósíalismi og verkalýðshreyfing
er ekki lengur í tísku hjá allaböll-
um og óánægjunöldur og þvarg
hefur tekið við af baráttunni fyrir
framtíðarríkinu.
Borgaralegir verðleikar
Áróðursaðferðirnar breytast.
S.l. laugardag gat að líta heilsíðu
G-listinn á Reykjanesi
Hæfni. Heiðarleiki.
Nýjar hugmyndir
G.EIR-.-:r::
Olafur ragnar-.- ...—..—
ASDIS-..-; — .
BJARGEY-^. - .---------
JÓHANNA- .... .....—
Gerum ísland
að fyrirmynd
auglýsingu í DV sem við fyrstu sýn
lítur út eins og þekkileg kynning á
tískuvörum frá vandaðri fatabúð.
Þegar betur var að gætt, kom i ljós
að frambjóðendur allaballa á
Reykjanesi auglýsa til að ganga í
augun á kjósendum. Og rétt er
það, dáfríður er flokkurinn, og
ágætlega puntaður.
Auglýsingatextinn er líka vand-
aður. Þar er ekkert lúið kjaftæði
um öreiga og djöfulskap auðvalds-
ins. Hann undirstrikar aðeins það
sem myndirnar segja okkur: Hér
eru uppar á ferð og þeir skírskota
náttúrlega einkum til þeirra sem
einnig eru á uppleið.
Hæfni. Heiðarleiki. Nýjar hug-
myndir. Þessar upphrópanir
mundu hæfa vel frambjóðendum
til forseta JC. Sömuleiðis þeir verð-
leikar sem frambjóðendurnir eru
gæddir.
Sá fyrsti er þekktur fyrir ábyrga
afstöðu í fjármálum og framsýni í
framkvæmdum. Annar hefur sýnt
að íslendingar geta átt frumkvæði
á alþjóðavettvangi. Sá þriðji hefur
tekið þátt í að gera Kópavog að
fyrirmynd annarra byggðarlaga. Sá
fjórði hefur byggt upp vaxandi
fjölskyldufyrirtæki í útflutningi á
sjávarafurðum á nýjan markað í
Bandaríkjunum og sá fjórði skipu-
lagt víðtæka tölvufræðslu sem opn-
ar nýju kynslóðinni nýja framtíð.
Upparnir eru menn framtíðar-
innar í Alþýðubandalaginu. Þar er
ekki rúm fyrir verkalýðsleiðtoga,
nerna að þeir séu að minnsta kosti
hagfræðingar. Byltingarmóðurinn
er horfinn og háborgaraleg viðhorf
tekin við. Ágæti frambjóðenda
flokksins miðast ekki við afstöðu
til verkalýðsbaráttunnar heldur
glæsimennsku í fasi og veraldlega
velgengni.
Vafamál er hvort Sjálfstæðis-
flokkurinn getur boðið upp á jafn
glæsilegt úrval fyrirmyndaruppa og
Alþýðubandalagið. Að minnsta
kosti ekki á meðan íhaldið þarf að
burðast með vin litla mannsins
innanborðs. OÓ