Tíminn - 16.01.1987, Qupperneq 20
KR-INGAR og KA-menn frá Akur-
eyri léku í gærkvöld í Laugardals-
höll í 1. deild karla á íslandsmótinu I
í handknattleik. Leiknum lauk meö
jafntefli eftir miklar sviftingar. Vík-
ingur og Ármann léku einnig í
gærkvöldi.
Sjá íþróttir bls 11.
Föstudagur 16. janúar 1987
Bankasameiningin:
Frestur Matthíasar
liðinn án tíðinda
- fresturinn var til 15. janúar, segir Halldór Ásgrímsson
Misskilningur, segir Geir Hallgrímsson
Enn hefur ekki verið rekið smiðs-
höggið á viðræður einkabankanna,
Seðlabanka og ríkisins um samein-
ingu bankanna þrátt fyrir yfirlýsingu
Matthíasar Bjarnasonar, viðskipta-
ráðherra um að viðræðunum skyldi
lokið í gær, 15. janúar. Telja áreið-
anlegar heimildir Tímans, að þó
viðræðurnar kunni að dragast eitt-
hvað, setji Matthías sem skilyrði að
þeim verði ekki lokið seinna en þann
19. janúar, þ.e. næsta mánudag.
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra staðfesti í samtali við Tím-
ann í gær að Matthías hefði sett
umræddan frest.
Ekki eru þó allir aðilar málsins
sammála því að frestur hafi verið
ákveðinn í þessu máli og segir Valur
Valsson, bankastjóri Iðnaðarbank-
ans f viðtali í Tímanum í dag, að
þeim hafi aldrei verið sett nein
skilyrði né gefinn neinn tímafrestur.
Þá sagði Geir Hallgrímsson, banka-
stjóri Seðlabanka að það væri á
misskilningi byggt að frestur hafi
verið gefinn til 15. janúar. Þó telja
þeir báðir, Valur og Geir að línur
fari að skýrast eftir næstu helgi.
Það liggur hins vegar fyrir að þó
einkabankarnir gefi svar í næstu
viku um það hvort þeir séu tilbúnir
að hefja lokasamningaviðræður við
mótaðila sína um sameiningu, þá á
auðvitað eftir að ná samkomulagi og
aðilar geta dregið sig út úr viðræð-
um, sýnist þeim svo.
Geir Hallgrímsson sagðist hins
vegar telja, að viðræður þær sem
hingað til hafi farið fram, væru það
ítarlegar að menn ættu að vera búnir
í næstu viku að svara til um það
hvort þeir væru reiðubúnir til sam-
einingar eða ekki.
Enginn fundur var með aðilum í
gær en Geir Hallgrímsson bjóst við.
að fundur yrði haldinn í dag. Sagði
Geir að þá væri gengið út frá því að
bráðabirgðamat á fastafjármunum
allra bankanna lægi fyrir, en von var
á því í gær.
Þá eru tveir lykilmenn í þessum
viðræðum erlendis, þeir Matthías
Bjarnason og Davíð Scheving Thor-
steinsson og mun ekki von á þeim til
landsins fyrr en eftir helgi. Sjá bls. 5.
-phh
Farmannadeilan:
ADILAR
FUNDA
IDAG
f dag mun sáttasemjari ákveða
fund með deiluaðilum í samn-
ingaviðræðum farmanna og
kaupskipaútgerða. í gær var
óformlega tilkynnt um fund en
hann verður ákveðinn í dag af
sáttasemjara.
Guðmundur Hallvarðsson for-
maður Sjómannafélags Reykja-
víkur og oddviti samninganefnd-
ar farmanna sagði í samtali við
Tímann í gær að undirnefnd hefði
rýnt í stöðuna í gær og heldur
hefði miðað. Er því óhætt að
segja að Guðmundur hafi verið á
jákvæðari nótunum vegna fund-
arins í dag.
Þórarinn V. Þórarinsson höfuð
samninganefndar fyrir kaup-
skipaútgerðir sagði að lausn
sjómannadeilunnar hlyti óneitan-
lega að flýta fyrir að saman
myndi ganga. -ES
Ríkisstjómarfundur:
Samningar
ræddir
- Jón Baldvin óábyrgur
Sjómannasamningar voru ræddir
á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun og
sá aðdragandi sem var að þeim.
Forsætisráðherra sagði í gær að full
samstaða væri innan ríkisstjórnar-
innar um að hárrétt hefði verið
haldið á þessu máli. „Ég tel að þetta
mál hafi fengið mjög farsælan endi
og verið að öllu leyti til sóma hefði
ekki komið það upphlaup sem kunn-
ugt er um á Alþingi,“ sagði Stein-
grímur
Hann var spurður hversu tæpt
fiskmarkaðir okkar í Bandaríkjun-
um stæðu núna. Sagði hann að nú
væri afgreitt beint upp úr skipunum
og að skömmtun væri komin á í
Bandaríkjunum. Þessu mætti hins-
vegar bjarga með því að fragtskipin
kæmust fljótlega af stað og gætu flutt
út það magn sem hægt er.
„Menn geta deilt um það hvort
Bandaríkjamarkaður sé einhvers
virði og það er alveg ótrúlegt að
hlusta á menn segja það sem Jón
Baldvin Hannibalsson sagði í samtali
við Stöð 2 í fyrrakvöld að þetta sé
allt saman „húmbúkk" í sambandi
við Bandaríkjamarkað. Þetta er svo
óábyrgt að ég hef aldrei heyrt annað
eins,“ sagði Steingrímur.
-ES
Hafnarfjöröur:
Malbikunar*
framkvæmdir
um miðjan
janúarmánuð
- á meöan Evrópu-
menn skjálfa úr kulda
Bæjarstarfsmenn eru sennilega vanari snjómokstri en malbikun á þessum árstíma. rimamynd: Pjciur
a meoan samgongur og verklc
ar framkvæmdir liggja niðri t
gervalla Evrópu vegna miki
frosta, þá gera þeir í Hafnarfii
sér lítið fyrir og fara að malbik
líkt og hásumar væri. Nú er vei
að leggja síðustu hönd á bílasta
fyrir utan nýju lögreglustöðina
Hafnarfirði og var verið að malbi
planið í gær. Það hvarflaði ekki,
forráðamönnum bæjarins, að m;
bikunarframkvæmdum yrði lok
fyrr en með vorinu, enda ligg
malbikunarframkvæmdir yfirle
niðri á vetrum. Það eru líklega
dæmi þess að malbikunarfrai
kvæmdir séu á fullu í janúarmá
uði, en vegna óvenju góðrar tíð
er þetta nú hægt. -H
Forsætisráðherra um „fræðslustjóramálið":
Hef ekki séð óvefengjanleg rök
- fyrir uppsögninni: - Einungis dómstólar geta hnekkt ákvörðuninni
Á ríkisstjórnarfundi sem haldinn
var í gær var ekki rætt eitt helsta
hitamálið sem upp hefur komið
lengi, þ.e.a.s. brottvikningufræðslu-
stjórans úr starfi í Norðurlandskjör-
dæmi eystra. I gær birti Tíminn frétt
þar sem helstu stofnanir skólakerfis
umdæmisins biðla til Steingríms
Hermannssonar að „létta af sér þeim
rangindum" sem menntamálaráð-
herra beitti. Af því lilefni gefnu
spurði Tíntinn Steingrím hvort hann
hygðist beita sér í málinu. Hann
sagði að brottvikning embættis-
manns úr starfi væri samkvæmt lög-
um á valdi ráðherra en að sömu lög
tækju skýrt frani að slíkt á ekki að
geta átt sér stað nema sá maður hafi
gerst brotlegur í starfi og það veru-
lega. „Samkvæmt lagaskýringunt
Óíafs Jóhannessonar er þetta á valdi
ráðherra og einungis dómstólar geta
hnekkt því. Ég er þeirrar skoöunar
að brottvikingaf þessu tagi eigi aldrei
að koma til framkvæmda nema ráð-
herra geti lagt fram óvefengjanleg
rök fyrir því að embættismaður hafi
gerst brotlegur í starfi. Ég verð að
segja það að þau rök hafa ekki
komið fram mér vitanlega. Maður-
inn hefur sennilega farið í taugarnar
á ráðherra," sagði Steingrímur Her-
mannsson.
Úr fræðsluumdæminu er það að
frétta að kennsla mun að öllum
líkindum leggjast niður í öllum skól-
um kjördæmisins. Kennarar og
skólastjórar ætla að funda um málið
og ræða þá stöðu sem upp er komin.
Sendimenn úr menntamálaráðu-
neytinu fóru í gær norður og fund-
uðu með starfsfólki fræðsluskrifstof-
unnar. Að sögn Trausta Þorsteins-
sonar fulltrúa í fræðsluráði voru
engar frekari skýringar gefnar. Ekki
hefur náðst í Sverri Hermannsson
en hann er í fundaherferð í kjördæmi
sínu. -ES