Tíminn - 25.01.1987, Síða 2

Tíminn - 25.01.1987, Síða 2
2 Tíminn Grænmetissmáréttir Litlir skammtar af grænmeti, annaðhvort soðnir eða bornir fram eins og salat eru tilvaldir smáréttir, sérstaklega ef grænmet- inu er blandað saman við ávexti, hnetur eða ost. Vandaðu vel valið á grænmetinu, svo það líti vel út, það getur gert gæfumuninn á vel heppnuðum smárétti. Camembert tómatar 4 stórir eða 8 litlir tómatar 100 gr. camembert ostur 2 msk. söxuð steinselja 2 msk. brúnað heilhveiti brauðrasp 8 ferhyrningar ristað heilhveitibrauð 8 steinseljugreinar Hitið ofninn í 170 gráður. Skerið tómatana í tvennt þversum. Hreinsið innan úr þeim (ágætt t.d. í súpu). Skerið camembertinn smátt. Látið helminginn af ostinum í tómatana, stráið steinseljunni yfir og látið síðan afganginum af ostinum í tómatana. Setjið tómatana í smurt ofnfast mót. Pekið þá með álpappír og látið í ofninn í um það bil 15 mínútur. Takið álpappírinn af, stráið brúnaða raspinu yfir og látið aftur í ofninn, nú í 5 mínútur. Berið hvern tómathelming fram á ristuðu brauði og skreytið með steinseljugreinum. Heitt selleri- og hnetusalat 4 selleristönglar 2 matarepli 3 msk. matarolía 1 hvítlauksbátur, fínsaxaður 100 gr. valhnetur, saxaðar 50 gr. rúsínur 2 msk. mysa Skerið selleristönglana í sneiðar, takið kjarnahúsið úr eplunum og skerið þau í bita. Hitið olíuna á pönnu við meðalhita. Látið selleríið og hvítlaukinn þar út í og steikið í 2 mínútur. Hrærið stöðugt í á meðan. Bætið út í valhnetum, rúsínum og eplum og steikið í 1 mínútu í viðbót. Hellið mysunni yfir og látið suðuna koma upp á henni. Skiptið salatinu í fjórar litlar skálar og berið strax fram. Gulróta- og bananasalat 350 gr. gulrætur 2 þroskaðir bananar 4 msk. mysa 2 msk. sesamfræ 50 gr. hnetur gúrkubiti Rífið gulrótina fínt. Merjið bananana og blandið þeim saman við mysuna til að búa til þykka salatsósu. Bætið út í gulrótunum, sesamfræjunum og hnetunum, blandið vel saman. Skerið gúrkuna í þunnar sneiðar. Skiptið salatinu í fjóra hluta og látið á miðjuna á fjórum litlum diskum. Raðið gúrkusneiðunum í hring utan um salatið og skreytið með gúrkusneið ofan á gulrótasalatinu. Jólasalat með vínberjum og appelsínum 2 höfuð jólasalat 175 gr. blá vínber 2 appelsínur safi úr 1 sítrónu 1 tsk. hunang 4 msk. jógúrt 1 msk. Tahini 1 hvítlauksbátur, marinn með ögn af sjávar- salti nýmalaður svartur pipar Skerið frá endann á stönglinum á jólasalatinu. Skerið hvert salathöfuð í tvennt eftir endilöngu og sneiðið það síðan fínt. Skerið vínberin í tvennt og takið úr þeim steinana. Afhýðið appelsínurnar. Skerið hverja í tvennt eftir endilöngu og síðan hvern helming í fjórar sneiðar. Þeytið saman afganginn af efnunum. Skiptið jólasalatinu í fjóra skammta og látið hvern skammt á miðjuna á litlum disk. Ausið salatsósunni yfir. Raðið vínberjun- um og appelsínusneiðunum í kring um salatið á diskinum og skreytið með vínberi ofan á salatinu. Sunnudagur 25. janúar 1987 - rætt við Axel Eiríksson , uppfinningamann á 5 sjötungsaldri : ■" '-. V FYRSTA BERJATÍNAN Hann fann upp eina fyrstu og áreiðanlega bestu berjatín- una á Islandi. (Tímamynd Pétur) Smíðaði vindmyllu átján ára ótt veturinn á höfuð- borgarsvæðinu hafi verið í mildasta lagi, þá eru þeir margir sem hafa fengið að kenna á því endrum og eins að bíllinn hefur fest í snjódyngjum heima við hús eða á götum úti. Mest verður hættan á slíku stundum þegar hann byrjar að hlána, eins og oft í vetur, eftir að snjó hefur fest á jörð skamma hríð. Svona hrellingum eru menn fljótir að gleyma - eða þar til vandræðin dynja yfir næst - og þó eru ekki til sanníslenskari vandræði en þessi. skilja bilinn sinn eftir fastan í greipum Vetrar konungs. Þetta eru forkunnarmerkileg trébretti, með rifluðum gúmfetli á endanum. Brettið er hraunað með grófri húð, og með biturri málmbrún við hinn endann. Sé þessi búnaður lagður undir hjólið er bíllinn þegar eins og kominn á besta spyrnuvöll og rykkir sér þegar upp úr festunni. Búast má við að menn hafi gefið vel í og þess vegna eru spottar festir við fjölina og bundnir við bílinn, sem kemur í veg fyrir að menn þurfi að leita að brettinu löngu á eftir. SUÐRÆNN JARÐHITIÁ ÞORRA En Axel hefur sinnt fleiru en þessu og komið hefur hann inn á svið raffræðinnar, því nýlega gekk hann frá búnaði sem er til þess ætlaður að ylja upp moldina í gróðurhúsum. Þetta er kerfi af hitavírleiðslum, sem lagðar eru eins og nokkurs konar net niður í moldina nærri rótum gróðrarins, sem fyrir vik- ið sprettur miklu hraðar og á árstímum sem ekki hefði verið mögulegt áður að láta hann þrífast á. Þetta kerfi hefur verið prófað í heimagróðurhúsi á Holtastöðum með góðum árangri og Axel sýnir okkur stoltur vitn- isburð sérfræðings frá Búnaðar- félaginu, sem staðfestir hve vel þetta hafi gefist. Einkum segir Axel að þetta henti þeim vel sem hafa heimarafstöðvar til sveita og geti þannig fengið ódýrt rafmagn. ÓTAL EINKALEYFI Uppfinningar hans eru orðnar ótal margar og á sumum hefur hann einkaleyfi, bæði hérlendis og utanlands, eins og mjög sér- stakri gerð af gönguljósaskilti, sem gnæfir upp úr öllu smíðaefn- inu á verkstæðinu í bílskúrnum - og ef við megum gera að gamni okkar - þá veitir ekki af, því það er enginn leikur að ganga þar um ! En hvað um það. Axel mun halda áfram að gera nýjar upp- götvanir, halda áfram að koma auga á einfaldar lausnir stærri og smærri vandamála daglegrar til- veru. Hamingjan gefi okkur fleiri uppfinningamenn af hans tagi, en færri kjarnorkuspreng- jusmiði og vígvélafræðinga! Nei, þetta er ekki fyrsta upp- finning Axels. Hann er ættaður austan af Skeiðum og þegar þar sem unglingur gerði uppfinn- ingamaðurinn í honum vart við sig. Hann bjó til eina fyrstu og áreiðanlega bestu berjatínuna sem notuð hefur verið á íslandi, sem sýnir að hann hefur haft í huga að töfra fram hluti sem umhverfi og aðstæður í sveit höfðu gagn af. Meira færðist hann þó í fang þegar hann átján ára gamall gerði sér lítið fyrir og smíðaði vindmyllu, sem knúði vatnsdælu heima við bæ foreldra hans og gekk með ágætum í fimm eða sex ár. UPP ÚR SNJÓNUM! En einn er sá maður sem hefur klórað sér í kollinum og spurt sjálfan sig hvort ekki mætti finna einhverja góða lausn á þessu. Hann er eins og skáldin, sem velta fyrir sér svo mörgu af því sem aðrir sjá ekki. Aftur á móti benda skáldin oftast á vandann, en leysa hann ekki. Það gerði uppfinningamaðurinn Axel Eiríksson hins vegar. Við erum staddir í bílskúr á bak við Rauðalæk númer 27 og ræðum við þennan hægláta snilling, sem þó er greinilega mikið tamara að eiga einræður við málminn, plastið, þræðina, hringjurnar og verkfærin sem fylla skúrinn frá gólfi til lofts en blaðamenn. Það er hér sem hann gerir frumdrögin að upp- finningum sínum sem eru orðnar margar í áranna rás. Og sú nýjasta þeirra leysir raunir bíl- stjóra sem til þessa hafa orðið að j r I t. L tw im \ i H Axel með brettin, sem frelsa munu fslenska bflstjóra úr festum í snjó. (Tímamynd Pétur)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.