Tíminn - 10.02.1987, Side 4
4 Tíminn.
Þriðjudagur 10. febrúar 1987
Farmannaverkfalli lokið:
Grunnkaup hækkar um 16%
og yfirvinnuálag í 73%
- áætlanir skipafélaganna komast í eðlilegt horf í þessari viku
Starfsfólk í húsgagnaiðnaði:
SAMNINGAR SAMÞYKKTIR
Á FÉLAGSFUNDI í GÆR
- 70 samþykkir, 20 á móti og 83 sátu hjá
Samtök starfsfólks í húsgagna-
iðnaði samþykkti á félagsfundi í
gær nýgerðan kjarasamning. Voru
70 meðmæltir,20 á móti en 83 sátu
hjá. í samningnum er gengið út
frá sama grunni og í jólaföstusamn-
ingunum þó tölur séu aðrar. Byrj-
unarlaun ófaglærðra eru 27.500 kr.
en faglærðir fá 39.800 kr. Að sögn
Þórarins V. Þórarinssonar, frkvstj.
VSÍ kemur það til af því að áfanga-
hækkunum 1. mars og 1. maí er
flýtt og koma til strax, þannig að
þeir fá enga áfangahækkun fyrr en
í október.
Það er hins vegar nýtt í þessum
samningi að það er ákveðið ákvæði
um menntun ófaglærðra, þannig
að hægt er að taka sveinsprófið í
áföngum og er samið um að fyrsti
hluti sveinsprófsins gefi rúmlega
6% launahækkun.í samningnum
er ekki gert ráð fyrir starfsaldurs-
hækkunum. -phh
Samningar tókust í farmannadeil-
unni aðfaranótt síðasta laugardags
og voru samningarnir undirritaðir
hjá sáttasemjara þá um nóttina. Þeir
voru síðan samþykktir á félagsfundi
í Sjómannafélagi Reykjavíkur á
laugardag með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða.
í samningnum er kveðið á um að
grunnlaun háseta hækki um 16 %
eða úr 23.612 kr. í 27.401 kr.
Samningurinn er til tveggja ára og
hækka laun farmanna á samnings-
tímanum um 2% 1. mars, l.júní, og
1. október, en verði hækkanir á
almennum vinnumarkaði umfram
þetta þá hækka laun farmanna einnig
sem því nemur. Gert er ráð fyrir að
laun farmanna á næsta ári hækki
hliðstætt hækkunum verkamanna í
landi. Þá hækkar yfirvinnuálag úr
60% í 73%, sem sjómenn hafa sagt
mikilvægan áfanga. Uppstokkun
vinnuramma verður jafnframt nokk-
ur en þó minni en vinnuveitendur
höfðu óskað eftir.
Með því að samningar tókust lauk
um 5 vikna löngu verkfalli farmanna
sem farið var að hafa víðtæk áhrif á
atvinnulífið. Ekkert varð heldur af
boðuðu samúðarverkfalli Dagsbrún-
ar, en Dagsbrúnarmenn höfðu þrýst
á Sjómannafélagið að reyna til
þrautar að ná samningum. Sam-
komulagið tókst eftir langar óform-
legarviðræðuríhúsakynnum Vinnu-' á laugardag, en það var Eyrarfoss, áætlanir skipafélaganna verði komn-
veitendasambandsins á föstudag. og síðan hefur hvert skipið af öðru ar í eðlilegt horf strax í þessari viku.
Fyrsta kaupskipið lét úr höfn strax látið úr höfn og er búist við að -BG
' Tilraunasendingar skólaútvarps-
ins, Útrásar FM 88,6 hófust í dag
eftir hádegi. Seinkun varð á útsend-
ingu af tæknilegum ástæðum.
Mikil spenna var í loftinu auk
útvarpsins og vildi svo óheppilega
til, að á meðan verið var að tengja
síðustu tækin, hófust útsendingar
öllum að óvörum: „Það hlýtur að
vera hægt að stöðva þetta. Við erum
í loftinu,“ hljómaði fyrsta samfellda
. setningin sem nemendur MS sendu
út í þessari tilraunasendingu. Það
kippti sér svo sem enginn upp við
það heldur kipptu menn málum í
liðinn hið snarasta. En taugarnar
voru spenntar til hins ítrasta, eins og
berlega kom í ljós þegar roðnuðu
kinnar eins aðstandenda Útrásar og
hann sagði í hálfum hljóðum um leið
og hann leit á fætur sér: „Ég hef nú
verið vankaður í höfðinu í morgun.
Ég hef farið í sitthvorn skóinn.“
þj
Samningarnir samþykktir í gær. Fleiri sátu hjá en voru meðmæltir.
Tímamynd Pjeíur
Útvarp framhaldsskólanema:
Útrásin ræst
Kindakjötsútsala:
10-12 prósent
verðlækkun
- á birgðum frá haustinu
1985
Útsala hófst í gær á kindakjöts-
birgðum sem til eru frá haustinu
1985. Vcrð á dilkakjöti í heilum
og hálfum skrokkum svo og pört-
um lækkar uin 10% en 15%
lækkun er á kjöti af fullorðnum
kindum.
Sem dæmi um verð, má nefna
að kílóverð dilkakjöts í fyrsta
flokki er nú kr. 181,26 en var
áður 201,40. Verð þetta gildir
fyrir heiia og hálfa skrokka og
samsvarandi lækkun er á pörtum.
Heildarbirgðir kindakjöts frá
haustslátrun 1985 eru eitthvað á
bilinu 6 til 700 tonn, en útsalan
mun standa út þennan mánuð og
eitthvað fram í næsta mánuð.
„Þetta er kjörið tækifæri fyrir
fólk að kaupa kjöt á lágu verði.
Þetta kjöt hefur verið geymt í
plastpokum frá því í sláturtíð í
fyrra og er í góðu ástandi þótt
það sé orðið þetta gamalt,“ sagði
Steinþór Þorsteinsson hjá
Afurðasölu Sambandsins.
ABS
FRÉTTAYFIRLIT
JÓHANNESARBORG—
Víst þykir að hófsamir menn í
röðum hvítra í Suður-Afríku
eigi eftir að fylgja eftir gagnrýni
sinni á P.W. Botha forseta eftir
að Denis Worrall sendiherra
sagðist hafa sagt starfi sínu
lausu vegna þess að umbætur
á aðskilnaðarstefnunni hefðu
ekki orðið neinar.
MOSKVA - Sovésku geim-
faramir Yuri Romanenko og
Alexander Laveikin kveiktu á
hitastigs- og lífstuðningskerf-
um í sovésku geimstöðinni Mir
en þeir eru nú komnir um borð
í stöðina.
BEIRÚT - Bílsprengja
sprakk í þéttbýlu hverfi í
suðurhluta Beirútborgar sem
stjórnað er af sjítum. Að
minnsta kosti fimmtán manns
biðu bana.
JERÚSALEM - Israelskar
hersveitir skutu og særðu fimm
Palestínumenn er þátt tóku í
mótmælum gegn ísraelstjórn
á hinum hertekna Vesturbakka
MOSKVA - Stjórnvöld í
Sovétríkjunum og Kína hófu
að nýju viðræður um ianda-
mæradeilu ríkjanna tveggja
eftir nærri níu ára hlé. Svo
virtist sem sovéska stjórnin
hefði gefið eftir í kröfum sínum
ummarkalínueftirtveimurfljót-
um við landamærin.
LUNDÚNIR — Bresk stjórn-
völd skýrðu í gær frá nýjustu
tölum yfir þá sem fengið hafa
sjúkdóminn eyðni. Alls hafa
686 tilfelli verið skráð, þar af
hafa 355 manns látist. Frá
lokum desembermánaðar til
janúarloka voru 76 ný tilfelli
skráð í landinu og hefur mán-
aðarleg fjölgun ekki verið meiri
hingað til.
NAIROBI - Filippeyskur
byssubátur skaut vióvörunar-
skotum að dráttarbát frá Kenya
sem dró flutningaskip á alþjóð-
legu hafsvæði. Dráttarbáturinn
var síðan fluttur til hafnar á
Filippseyjum en ekki fengust
fullnægjandi skýringar á at-
burðinum í gær.
PORT MORESBY -Jarð-
skjálfti olli miklu tjóni á eynni
Umboi í norðurhluta Papúa
Nýju Guineu.
N'DJAMENA - Ríkisút-
varpiÓ í Chad sagöi heri stjórn-
arinnar hafa fellt tólf líbýska
hermenn og tekiö sjö til fanga
í átökum Líbýumanna og
stjórnarhersins í norðurhluta