Tíminn - 10.02.1987, Blaðsíða 5

Tíminn - 10.02.1987, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 10. febrúar 1987 Tíminn 5 llllillllllllllllllllH ÚTLÖND illlllllllllllllllliniMllllllllllllllllllllllllllllllllll Athygli heimsins beinist að Beirút í Líbanon - Sjötti floti Bandaríkjahers í viðbragðsstööu eftir hótun um aftöku gísla Reuter- Bandarísk stjórnvöld neituðu í gær að semja um lausn fjögurra manna sem skæruliðasamtök í Beir- út héldu föngnum og sagði talsmaður Hvíta hússins að aðrir aðilar yrðu ekki hvattir til að semja við mann- ræningjana. Marlin Fitzwater talsmaður Bandaríkjaforseta sagði að banda- ríska ríkisstjórnin hefði ekki farið þess á leit við ísraelstjórn að semja við samtökin „Heilagt stríð fyrir frelsun Palestínu“ sem höfðu hótað að taka fjóra gísla, þrjá Bandaríkja- menn og einn Indverja, af lífi yrði ekki gengið að kröfum þeirra fyrir miðnætti í gær. Samtökin kröfðust þess að ísraels- menn létu 400 Palestínumenn sem í fangelsi eru lausa í skiptum fyrir gíslana fjóra. Símon Peres utanríkisráðherra fsraels neitaði í gær að verða við kröfum mannræningjanna og sagði Bandaríkjastjórn ekki hafa beðið fsraelsstjórn að semja við samtök þessi sem haldið er að öfgafullir sjítar stjórni. Fréttir höfðu ekki borist af afdrif- um gíslanna fjögurra, sem allir eru háskólakennarar í Beirút, þegar blaðið fór í prentun í gærkvöldi. Um fimmtán bandarísk herskip í sjötta flota Bandaríkjahers, þar af tvö flugmóðurskip, voru á austur- svæði Miðjarðarhafsins í gærkvöldi. Bandarísk stjórnvöld hafa ekki úti- lokað hernaðaðgerðir í hefndarskyni fyrir dráp gísla í Beirút en að minnsta kosti 26 erlendum mönnum er nú haldið föngnum í Líbanon. Flugmóðurskipin áðurnefndu eru John F. Kennedy sem lá við akkeri í ísraelsku hafnarborginni Haifu og Nimitz, sem sigldi um undan Líban- onströndum. William Crowe flotaforingi í Bandaríkjaher sagði við fréttamenn í gær að sjötti flotinn væri tilbúinn til að fara að hverjum þeim fyrirmælum sem Reagan Bandaríkjaforseti gæfi. Hann benti hinsvegar á hversu erfitt væri að viðhafa venjubundinn hern- að gegn óvinum á borð við hópana sem halda mönnum í gíslingu í Líbanon. Belgía: Verkfræðingur talar tungum Rrussci - Reutcr Belgískur verkfræðingur hefur sýnt fram á að hann getur talað 22 lifandi tungumál og mállýskur, allt frá japönsku til gelísku. Ekki segist þó verkfræöingurinn trúa að sumir hafi sérstaka hæfi- ieika til að læra tungumál og tala tungum fleiri en tveimur og fleiri en þremur. Jóhann Vandewallc sem er 26 ára gamall og býr í borginni Bruges vann til verðlauna eftir að hafa spjallað við starfsmenn er- lendra sendiráða og háskólapróf- essora á öllum tungunum 22. „Ég trúi ekki á tungumálahæfi- lcika,“ sagði Jóhann í gær og bætti við að þetta væri einungis árangur mikils erfiðis dag sem nótt. Auk tungumálanna 22 þekkir Vandewalle einnigtil níu annarra tungumála sem ekki eru notuð dags daglega s.s. Iatínu. Friður úti á Filippseyjum Munila - Reuter Skæruliðar kommúnista á Filipps- eyjum drápu fimm borgara í árás í gær, þeirri fyrstu sem skýrt var frá síðan hinu sextíu daga vopnahléi milli skæruliðanna og stjórnarhers- ins lauk á sunnudag. Þá var hersveit- um stjórnarinnar skipað að ráðast gegn skæruliðum sem drápu fimm hermenn og særðu fimm aðra í árás á föstudaginn í Kalinga-Apayao hér- aðinu í norðurhluta landsins. Fidel Ramos yfirmaður hersins Keisari í Kína tekinn fastur Pekíng - Reutcr Lögregla í Jiangsuhéraði í Kína hefur handtekið mann sem lýsti sjálfan sig sem keisara, kvaðst ætla að ná völdum í Kína og hafði gerst sekur um nauðganir og svindl. Petta kom fram í frétt dagblaðs eins í gær. Xinhua dagblaðið skýrði svo frá að Zhong Chongzhen og sonur hans hefðu stofnað „heilagar dyr“ árið 1974, trúarhóp sem einir 300 ein- staklingar gengu í og voru skírðir inn í hann sem „bræður" og „systur". Blaðið sagði feðgana hafa notfært sér aðstöðu sína og nauðgað fjórtán konum sem gengu í trúarsöfnuðinn. Zhong hélt mikla hátíð í febrúar á síðasta ári þar sem hann lýsti sjálfan sig sem keisara, kvað trúar- söfnuðinn ekki vera undir stjórn kínverskra yfirvalda og sagði hann munu ná völdum í landinu innan fárra ára. sagði í gær að sveitir sínar myndu berjast gegn „öfgamönnum", bæði á vinstri og hægri væng stjórnmála, sem færu ekki að lögum. Þjóðlega lýðræðishreyfingin (NDF), hinn pólitíski armur vinstri- sinnaðra skæruliða í landinu, hafn- aði um helgina boði Corazonar Aq- uino forseta og ríkisstjórnar hennar um að framlengja vopnahléð og hefja samningaviðræður að nýju til að finna lausn að skæruhernaðinum. Hann hefur staðið undanfarin sautj- án ár. Ramos yfirhershöfðingi sagði í ræðu sem hann hélt í æfingabúðum hersins vestur af Maniluborg að öfgamenn á vinstri vængnum, sem samanstendur meðal annars af NDF og kommúnistaflokknum, beittu of- beldi til að reyna að ná völdum. Hann sagði herinn ekki hafa annað ráð en að nota vald það sem honum hafi verið gefið til að vernda þjóðfé- lagið. Já, það var greinilegt á yfirlýsing- um beggja aðila í gær að friðurinn virðist úti á Filippseyjum, allavegana í bili. Helsti samningamaður stjórn- ar Aquino sagði þó dyrnar enn vera opnar fyrir viðræðum og bætti við að samninganefnd stjórnarinnar myndi nú reyna að semja við skæruliða kommúnista í hinum ýmsu héruðum landsins. í gær hófu hinsvegar samninga- menn ríkisstjórnarinnar viðræður við fulltrúa skæruliða múslima sem barist hafa gegn stjórnvöldum síð- ustu fjórtán árin í suðurhluta landsins. Verður rætt um hugsanlega sjálfstjórn múslima á þessu svæði. Bandaríska stórblaöiö New York Times: VIDSKIPTAHÖFTUM GEGN PÓLVERJUM ÞARF AD AFLÉTTA New York - Reuter Bandaríska stórblaðið The New York Times hvatti í gær til þess að Bandaríkjastjórn aflétti þeim við- skiptaþvingunun sem beint er gegn Pólverjum þar sem pólitískt frjáls- ræði hefði verið aukið þar eystra að undanförnu. I leiðaragrein blaðsins var Pól- land enn sagt vera lögregluríki en ríkisstjórnin hefði þó slakað nokk- uð á tökunum. Bandaríkjastjórn hefur aflétt flestum þeim viðskiptaþvingunum sem settar voru á árið 1982 eftir að pólska stjórnin hafði sett á herlög og tekið til að handtaka leiðtoga hinna frjálsu verkalýðssamtaka, Samstöðu. Enn eru þó nokkrar hömlur á viðskiptunum við Pólland. „Léttum viðskiptabanninu að fullu“, sagði í New York Times. Skæruliðar á Norður-Filippseyjum: Störf hafin að nýju mip . * 'T::$ K ■•-1 Sovésk bylting? Bonn - Rculer Umbætur þær sem Mikhail Gor- batsjov Sovétleiðtogi vinnur við að koma í framkvæmd innanlands má líkja við byltingu sem þýðir að kosið verður í flest mikilvæg embætti og jafnvel í miðstjórn kommúnista- flokksins. Þetta var haft eftir hátt- settum sovéskum embættismanni um helgina. „Við viljum ekki að lýðræði verði bara slagorð eða merki. Það verður að vera áþreifanlegt“, sagði Valentin Falin yfirmaður Novosti frétta- stofunnar í samtali sem birt verður í vestur-þýska blaðinu Die Welt í dag. Texti samtalsins var sendur út til fréttastofa um helgina. „Pað sem er að gerast hjá okkur er bylting...,“ sagði Falin. Falin taldi að breytingarskeiðið í sovésku þjóðfélagi gæti staðið yfir í nokkur ár, hugsanlega til 1990 eða lengur, áður en varanleg áhrif yrðu sjáanleg. „í framtíðinni verður kosið í öll embætti..“ var haft eftir Falin sem bætti við að leynilegar kosningar yrðu jafnvel viðhafðar þegar velja þyrfti fólk í miðstjórn kommúnista- flokksins. Falin viðurkenndi að andstaðan gegn umbótastefnu Gorbatsjovs væri veruleg. Hann taldi þó að breytingunum yrði komið í fram- kvæmd þar sem Sovétleiðtoginn nyti mikils almenns stuðnings. ^RARIK RAFMAGNSVEHijR RlKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi: RARIK-87003: 7/12 kV Aflstrengur. Opnunardagur: Þriðjudaginn 3. mars 1987, kl. 14:00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með miðvikudegi 11. febrúar 1987 og kosta kr. 200,- hvert eintak. Reykjavík 9. febrúar 1987 RAFMAGNSVEITUR RÍKISiNS Haugsuga Óska eftir að kaupa haugsugu u.þ.b. 2.500 lítra. Upplýsingar í síma 93-7843.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.