Tíminn - 10.02.1987, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 10. febrúar 1987
Tíminn 15
ÚTVARP/SJÓNVARP
Lausnin í sjónmáli
- fröken Marple svíkur engan!
Fröken Marple fer stundum
svolítið í taugarnar á
yfirmönnum lögregiunnar en
þeir verða þó oftast að
viðurkenna að hún hafi rétt
fyrir sér. Joan Hickson leikur
þessa yfirlætislausu gömlu
konu sem ekkert fer framhjá.
Sögurí
Morgunstund
barnanna
vikuna
þessa
0
Kl. 9.03
á virkum morgnum er
Morgunstund
barnanna á Rás 1. Þessa vikuna
endursegir Elísabet Brekkan
ævintýri af rússneskum,
persneskum, sænskum og
þýskum uppruna.
í dag segir Elísabet rússneska
ævintýrið Fjöður úr hvíta
fálkanum Fönix, eitt þeirra
sígildu ævintýra sem
rússneskum börnum eru sögð
enn þann dag í dag. Á morgun
er það ævintýrið
Ormadrottningin úr Þúsund og
einni nótt. Á fimmtudag segir
Elísabet svo ævintýri frá
Vermalandi, þjóðsögu sem
nefnist Umskiptingurinn, sem
Selma Lagerlöf skráði og fjallar
hún um samskipti manna og
trölla. Síðasta sagan, sem sögð
verður á föstudag, er úr
Grimmsævintýrum og nefnist
Stúlkan í glerkistunni.
o. Kl. 20.35
í kvöld verður
lokaþáttur
Auglýsingar um morð í
Sjónvarpinu.
í síðasta þætti mátti sjá að
fröken Marple var orðin einhvers
vísari um hver væri að verki við
að fækka íbúum sveitaþorpsins,
a.m.k. sagði hún ákveðið að
mistök hefðu átt sér stað þegar
lagskona ungfrú Blacklock lá
látin í rúmi sínu eftir að hafa
tekið inn aspirín úr eigu vinkonu
sinnar.
Þá var komið fram að
sennilega erfi ungfrú Blacklock
mikil auðæfi innan skamms,
þ.e.a.s. ef hún verður langlífari
en ekkja auðkýfingsins sem
arfleiddi hana, en hún á skammt
eftir ólifað. Snúist dæmið við eru
tvö systurbörn auðkýfingsins
erfingjar auðsins, en enginn veit
hvar þau eru niðurkomin, Pipp
og Emma á aldrinum 25 ára til
þrítugs.
Satt best að segja liggur
lausnin ekki enn í augum uppi
svo að þeir sem misstu af síðasta
þætti geta rólegir fylgst með í
kvöld og verða sjálfsagt
jafnmikið með á nótunum og
aðrir.
KASTLJÓS
- um erlend málefni
Kl. 22.25
í kvöld er Kastljós um
erlend málefni í
Sjónvarpinu eins og reglan er á
þriðjudagskvöldum.
Umsjónarmaður í kvöld er Bogi
Ágústsson.
Kastljósþættimir fjaila yfirleitt
um þau mál sem efst eru á baugi
hverju sinni og þess vegna er oft
ekki hægt að segja til um með
löngum fyrirvara hvaða
efniverður fyrirvalinu.
En alltaf er það
eitthvað áhugavert.
í lokaþættinum úr brúðuheimi sýnir franski leikbrúðumeistarinn
Philippe Genty listir sínar. Hér er sýnishom af brúðum hans.
Philippe Genty
- í brúðuheimi
Kl. 21.30
í kvöld verður í
Sjónvarpinu sýndur
sjötti og síðasti þátturinn úr
brúðuheiminum og er það franski
leikbrúðumaðurinn Philippe Genty
sem nú sýnir listir sínar.
Philippe Genty einskorðar sig
ekki við eina tegund leikbrúða,
heldur grípur til aht frá
strengbrúðum til handbrúða.
Hann blandar saman látbragði,
dansi og lýsingarbrellum í
atriðunum sínum sem eru sköpuð
fyrir augað og höfða þar af leiðandi
til áhorfenda á öllum aldri og af
öllum þjóðemum.
Bogi Ágústsson
fréttamaður er
umsjónarmaður
Kastljóss í kvöld.
Mary Crosby, dóttir Bings
Crosby fer með eitt
aðalhlutverkið í Hættustund.
Margir muna sjálfsagt eftir
henni úr Dallas en þar lék hún
Kristínu sem skaut JR og gerði
eitthvað fleira sögulegt.
Heimaeyjar-
fólkið
- eftir August Strindberg
0
Kl. 21.30
hefur Baldvin
Halldórsson lestur
sögunnar Heimaeyjarfólkið eftir
August Strindberg í þýðingu
séra Sveins Víkings á Rás 1.
Heimaeyjarfólkið er frægasta
saga Strindbergs um lífið í
sænska skerjagarðinum.
Vermlendingur sem lítt þekkir til
sjómennsku gerist ráðsmaður
hjá ekkju og á að reisa við bú
hennar og sonar hennar á eyju í
skerjagarðinum.
Heimaeyjarfólkið lýsir
samskiptum þeirra og annarra
sem við sögu koma og örlögum
þessa fólks sem fléttast saman,
verkahring þess og umhverfi.
Strindberg samdi söguna
sumarið 1887 en skerjagarðinum
kynntist hann ungur og dvaldist
þar oft á sumrum. Öld er því
senn liðin frá því að
Heimaeyjarfólkið kom fyrst út,
en íslensk þýðing séra Sveins
Víkings var prentuð 1969.
Myndaflokkur hefur verið
gerður um Heimaeyjarfólkið og
sýndur í íslenska sjónvarpinu.
Dagurinn
endar
með
skelfingu
Tj Kl. 21.05
. J í kvöld sýnir Stöð 2
^ bandaríska kvikmynd
sem gefið hefur verið nafnið
Hættustund (The Final
Jeopardy) og er hún alls ekki við
barna hæfi.
Ung hjón ætla að gera sér
glaðan dag í stórborginni
Detroit. En dagur þeirra fer allur
úr skorðum og endar með
skelfingu. Þannig hljómar
lýsingin á efni myndarinnar.
Kl. 22.35 kemur svo bandaríski
körfuboltinn í umsjón Heimis
Karlssonar á skjáinn.
Þriðjudagur
10. febrúar
6.45 Veðurtregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin -Jón Baldvin Halldórsson,
Sturla Sigurjónsson og Lára Marteinsdóttir.
Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00 og veðurfregn-
ir kl. 8.15. Tilkynningar eru lesnar kl. 7.25,7.55
og 8*í5. Guðmundur Sæmundsson talar um
daglegt mál kl. 7.20.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna: „Fjöður úr hvíta
fálkanum Fönix“ Elísbet Brekkan endursegir
þetta rússneska ævintýri.
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar.
9.35 Lesið úr forustugreinum dagblaðanna.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Tölvur og heilsa. Umsjón:
Lilja Guðmundsdóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Móðir Theresa“ eftir
Desmond Doig Gylfi Pálsson les þýðinqu sína
(10).
14.30 Tónlistarmaður vikunnar Kim Larsen.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Landpósturinn Frá Vesturlandi. Umsjón:
Ásþór Ragnarsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Síðdegistónleikar. a. Sónatanr. 10 í As-dúr
eftir Georg Bertouch. Stig Nilsson og Káre
Fuglesang leika á fiðlur, Aage Kvalbein á selló
og Magne Elvestrand á sembal. b. Catarina
Ligendza syngur Tvær þýskar aríur eftir
Georg Friedrich Hándel með Kammersveit
Thomas Brandis. c. Svíta nr. 1 eftir Ottorino
Respighi. Sinfóníuhljómsveitin í Boston leikur;
Seiji Ozawa stjórnar.
17.40 Torgið - Neytenda- og umhverfismál
Umsjón: Steinunn Helga Lárusdóttir.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur frá morgni sem Guðmundur
Sæmundsson flytur.
19.35 Spurningakeppni framhaldsskólanna.
Áttunda viðureign af níu í fyrstu umferð keppn-
innar: Fjölbrautaskóli Suðurnesja - Mennta-
skólinn á Laugarvatni. Stjórnandi: Vernharður
Linnet. Dómari: Steinar J. Lúðvíksson.
20.00 Djass í útvarpssal Tríó Jóns Páls Bjarna-
sonar leikur. Umsjón: Ólafur Þórðarson.
20.40 íþróttaþáttur Umsjón: Ingólfur Hannesson
og Samúel örn Erlingsson.
21.00 Perlur Paul Anka og Brenda Lee.
21.30 Útvarpssagan: „Heymaeyjarfólkið“ eftir
August Strindberg Sveinn Víkingur þýddi.
Baldvin Halldórsson byrjar lesturinn. Hjörtur
Pálsson flytur formálsorð.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Sólborgarmál Síðari hluti. Klemens Jóns-
son samdi útvarpshandrit og stjórnar flutningi.
Sögumaður: Hjörtur Pálsson. Flytjendur: Þor-
steinn Gunnarsson, Sigurður Skúlason, Pálmi
Gestsson, Róbert Arnfinnsson, Arnar Jónsson,
Margrét Guðmundsdóttir, Lilja Guðrún Þor-
valdsdóttir, Valgerður Dan og Ragnheiður
Steindórsdóttir. Hreinn Valdimarsson valdi tón-
listina. (Áður útvarpað í nóvember sl.)
23.20 íslensk tónlist a. Sinfónía nr. 1 („Heimur-
inn okkar“) eftir Skúla Halldórsson. Sinfóníu-
hljómsveit íslands leikur; Jean-Pierre Jacquillat.
b. „Einskonar rondó“ eftir Karólínu Eiríksdóttur.
Edda Erlendsdóttir leikur á píanó. c. Sinfónía í
þrem þáttum eftir Leif Þórarinsson Sinfóníu-
hljómsveit íslands leikur; Bohdan Wodiczko
stjórnar.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
áiv
9.00 Morgunþáttur í umsjá Kolbrúnar Halldórs-
dóttur og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Meðal
efnis: Tónlistargetraun og óskalög yngstu hlut-
endanna.
12.00 Hádegisútvarp með fréttum og léttri tónlist
í umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Skammtað úr hnefa Stjórnandi: Jónatan
Garðarsson.
15.00 I gegnum tíðina Þáttur um íslenska dægur-
tónlist í umsjá Ragnheiöar Davíðsdóttur.
17.00 Allt og sumt Helgi Már Barðason stjórnar
þætti með tónlist úr ýmsum áttum.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,10.00,11.00,12.20,
15.00,16.00 og 17.00.
17.30-18.30 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og
nágrenni - FM 90,1
18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni - FM 96,5 Trönur. Umsjón: Finnur
Magnús Gunnlaugsson. Fjallað um menningar-
líf og mannlíf almennt á Akureyri og í nærsveit-
um.
Þriðjudagur
10. febrúar
18.00 Villi spæta og vinir hans (Woody Wo-
odpecker) Fjórði þáttur. Bandarískur teikni-
myndaflokkur. Þýðandi Ragnar Ólafsson.
18.20 Fjölskyldan á Fiðrildaey (Butterfly Island)
Ellefti þáttur. Ástralskur framhaldsmyndaflokkur
fyrir börn og unglinga um ævintýri á Suðurhafs-
eyju. Þýðandi Gunnar Þorsteinsson.
18.45 íslenskt mál. Ellefti þáttur um myndhverf
orðtök. Umsjón: Helgi J. Halldórsson.
18.55 Sómafólk. (George and Mildred) 14. Af-
drifaríkt rafmagnsleysi. Breskur gaman-
myndaflokkur. Þýðandi Ólöf Pétursdóttir.
19.20 Fréttaágrip á táknmáli
19.25 Poppkorn. Umsjónarmaður Þorsteinn
Bachmann.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Fröken Marple. Auglýsing um morð -
Sögulok. (Murder Is Announced) Bresk saka-
málamynd í þremur þáttum um eina vinsælustu
söguhetju Agöthu Christie. Aðalhlutverk: Joan
Hickson. Þýðandi Veturliði Guðnason.
21.30 í brúðuheimi (The World of Puppetry)
Lokaþáttur. Breskur myndaflokkur í sex
þáttum. Jim Henson kynnir Philippe Genty
franskan brúðulistamann. Þýðandi Hallveig
Thorlacius.
22.25 Kastljós. Þáttur um erlend málefni. Umsjón
Bogi Ágústsson.
22.55 Fréttir í dagskrárldK
Þriðjudagur
10. febrúar
7.00- 9.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni.
Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur
yfir blöðin, og spjallar við hlustendur og gesti.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00.
9.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum.
Palli leikur uppáhaldslögin ykkar. Áfmæliskveðj-
ur, mataruppskriftir og spjall til hádegis. Síminn
er 611111.
Fréttir kl. 10.00 11.00 og 12.00
12.00-14.00 Á hádegismarkaði með Jóhönnu
Harðardóttur. Fréttapakkinn Jóhanna og
fréttamenn Bylgjunnar fylgjast með því sem
helst er í fréttum, spjalla við fólk og segja frá.
Flóamarkaðurinn er á dagskrá eftir kl. 13.00.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00-17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd.
Pétur spilar síðdegispoppið og spjallar við
hlustendur og tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00,16.00 og 17.00.
17.00-19.00 HallgrímurThorsteinsson í Reykja-
vík síðdegis. Hallgrímur leikur tónlist, lítur yfir
fréttirnar og spjallar við fólkið sem kemur við
sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00-20.00 Tónlist með léttum takti.
20.00-21.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi
Rúnar Óskarsson kynnir 10 vinsælustu lög
vikunnar.
21.00-23.00 Ásgeir Tómasson á þriðjudags-
kvöldi. Ásgeir leikur rokktónlist úr ýmsum
áttum.
23.00-24.00 Vökulok. Þægileg tónlist og frétta-
tengt efni í umsjá Efírrar'Kirst-fréttamanns.
24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist
og upplýsingar um veður.
Þriðjudagur
10. febrúar
17.00 Vandræðabörn (North Beach and Rawhi-
de). Tveir ungir drengir eru sendir á vinnuhæli
eftir að hafa reynt að stela mótorhjóli. Þar leitast
fyrrverandi fangi við að beina þeim inn á rétta
braut áður en það er um seinan. Aðalhlutverk:
William Shatner, Christopher Penn og Tate
Donovan.
18.30 Myndrokk.______________________________
19.00 Teiknimynd. Gúmmíbirnir (Gummi Bears).
19.30 Fréttir.
20.00 Allt er þá þrennt er. (3’s Company). Þegar
Larry og Jack ákveða að skipta um íbúð heldur
Larry að nú séu draumar hans loksins að rætast.
20.25 í návígi. Yfirheyrslu- og umræðuþáttur í
umsjón Páls Magnússonar.______________________
21.05 Hættustund (The Final Jeopardy). Banda-
rísk bíómynd með Richard Thomas, Mary
Crosby og Jeff Corey í aðalhlutverkum. Ung
hjón ætla að gera sér glaðan dag í stórborginni
Detroit. En dagur þeirra fer allur úr skorðum og
endar með skelfingu. Bönnuð börnum.
22.35 Bandaríski körfuboltinn (NBA). Umsjónar-
maður er Heimir Karlsson.
00.05 Dagskrárlok.