Tíminn - 10.02.1987, Blaðsíða 16

Tíminn - 10.02.1987, Blaðsíða 16
BAKKI VEITINGAHÚS Lœkjargötu 8, sími 10340 Skaftahlíð 24 - Sími 36370 Rjúkandi morgunbrauö kl. 8 alla daga i YAMAHA Vélsleðar og fjórhjól BÚNADARDEILO S?SAMBAHDSIIIS ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SIMI 38900 Timinn Þriðjudagur 10. febrúar 1987 Bjarni Einarsson.Byggðastofnun um hraðfrystihús Stokkseyrar: Staða hraðfrysti- hússins er erf ið - en látum ekki undirstöður byggðarlaga fara á hausinn að ástæðulausu - Lánum að fullnægðum skilyrðum „Byggðastofnun er reiðubúin að' lána Hraðfrystihúsi Stokkseyrar, en að fullnægðum skilyrðum. Þá verður, að liggja fyrir að lánveitingin dugi til að koma þessu á réttan kjöl,“ sagði Bjarni Einarsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Byggðastofnunar í. samtali við Tímann í gær. Bjarni sagði að það væri unnið í þessu máli eins og öðrum af svipuðu tagi. „Útreikningar eru gerðir, sem sýna hvað þarf til og svo er málið leyst. Og það er alveg ljóst að þar sem frystihús eru undirstaða byggð-' arlaga, þá eru þau ekki látin fara á í hausinn að ástæðulausu." Sagði Bjarni að úttekt á stöðu hraðfrystihússins á Stokkseyri hefði, verið gerð og dæmið væri erfitt, þannig að Byggðastofnun stæði ekki ein að þessu heldur þyrfti Fiskveiða- sjóður og viðkomandi viðskipta- _ banki að koma til. „Ef mál hraðfrystihússins leysist eins og gerst hefur hjá öðrum Kópavogur - Reykjavík:, Árásarmanns leitað í gærkvöldi Réðist að ungri konu með hníf Lögregla úr Kópavogi og Reykja- vík leitaði í gærkvöldi ákaft að unglingspilti eftir árás á konu í Fossvogsdal í gærkvöldi um klukkan 21. Tapaði konan veski sínu í viður- eign sinni við piltinn og var það ekki fundið í gærkvöldi þegar Ttminn fór í prentun. Pilturinn, sem konan sagði að væri sautján eða átján ára gamall ógnaði henni með hnífi þegar hún var á leið í gegnum Fossvogsdalinn á móts við götuna Reynigrund í Kópavogi. Komst hún undan manninum og gat gert lögreglu viðvart. Pegar var sent út stórt útkall frá Kópavogi og lögreglumenn héldu á þá staði sem líklegastir voru taldir sem undankomuleið mannsins. Lýs-, ing sú sem konan gaf var að pilturinn j væri ljóshærður og klæddur blárri vatteraðri úlpu. Hún sá ekki hvCrt ‘ hann hélt eftir árásina. Rannsóknarlögreglan tók við mál- inu í gærkvöldi og hóf rannsókn á árásarstaðnum. Ekki var búið að finna piltinn þegar Tíminn fór í prentun seint í gærkvöldi. Fyrirhug- að var í gærkvöldi, af lögreglu, að fylgjast með næsta nágrenni við Fossvogsdalinn ef ske kynni að koma mætti auga á árásarmanninn. Ekki var vitað í gærkvöldi hvort konan hafði hlotið áverka. -ES Þingflokkur Framsóknarflokksins: Stefán áfram í þingflokknum - út kjörtímabilið Stefán Valgeirsson fór fram á atkvæðagreiðslu í þingflokki fram- sóknarmanna um það hvort honum væri heimilt að sitja þingflokks- fundi. En Stefán hefur vikist undan nefndarstörfum vegna þeirrar ó- ljósu stöðu sem hann telur sig vera í gagnvart þingflokki framsókn- armanna. Þess má geta að Stefán kemur víða við í nefndarstörfum Alþingis, er formaður bæði samgöngunefnd- ar og landbúnaðarnefndar neðri deildar og varaformaður í félags- málanefnd sömu deildar. Þá er hann varaformaður félagsmála- fiefndar Sameinaðs þings. Samkvæmt lögum flokksins geta' einstakir þingmenn farið fram á atkvæðagreiðslu þingflokksins urrt hvers kyns mál. Það var síðan samþykkt einróma að þingflokkurinn liti svo á að Stefán Valgeirsson væri meðlimur þingflokks framsóknarmanna út yfirstandandi kjörtímabil. -ÞÆÓ húsum, þá verða að sjálfsögðu settir í þetta peningar. Menn verða að sjálfsögðu að gera sér grein fyrir rekstrinum og hvernig á að standa að honum, þannig að heimamenn eru ekki stikkfrí. Eg þori hins vegar ekki að segja til um hvenær ákvörð- un getur legið fyrir, þetta er þó nokkuð mikið verk, en okkur þykir jafnt vænt um Stokkseyri eins og Djúpavog o.s.frv.,“ sagði Bjarni Einarsson. phh. Athafnasöm fíkniefnalögregla: Sjöunda gæsluvarð- haldið á rúmri viku 23 húsleitarheimildir veittar fyrstu daga ársins: Karlmaður var úrskurðaður í hálfs mánaðar langt gæsluvarðhald á föstudag vegna fíkniefnamáls. Úrskurðurinn var kveðinn upp í sakadómi í ávana- og fíkniefnamál- um. Þetta er sjöundi maðurinn sem úrskurðaður er í gæsluvarðhald á innan við hálfum mánuði. Fimm þessara manna eru viðriðnir að því er virðist eitt viðamesta mál sem rekið hefur á fjörur fíkniefnadeild- ar lögreglunnar, sem verst allra frétta. Konan, sem viðurkenndi að hafa dreift 800 grömmum af hassi og Tíminn skýrði frá, er laus úr haldi og maðurinn sem settur var í gæsluvarðhald fyrir helgi er einnig sér á báti. Fíkniefnalögreglan hefur verið óvenju athafnasöm það sem af er árinu. Kveðnir hafa verið upp sjö gæsluvarðhaldsúrskurðir frá ára- mótum. í fyrra voru alls kveðnir upp þrjátíu gæsluvarðhaldsúr- skurðir. Húsleitarheimildir sem veittar hafa verið eru orðnar 23 én voru allt árið f fyrra um sjötíu. Gæsluvarðhald tveggja þeirra fyrstu sem fíkniefnalögreglan handtók rennur út f dag. Ekki er ljóst hvort farið verði fram á fram- lengingu þess. Fíkniefnadeildin neitar að gefa nokkrar uppiýsingar um hið viða- mikla mál sem er til rannsóknar og sætir það nokkurri furðu þar sem greiðlega hefur gengið að fá upp- lýsingar um önnur mál. ES/ÞJ Veiðimenn heiðraðir Stangaveiðifélag Reykjavíkur hélt árshátíð sína um helgina. Við það tækifæri rann upp langþráð stund félagsmanna. Afhending verðlauna fyrir stærstu fiska sumarsins. Hrafnkell Kjartansson hlaut Gull- og silfur fluguna og Sportvalsbikarinn fyrir stærsta flugulaxinn veiddan á vatnasvæði Stangaveiðifélagsins í fyrra. Sá flskur var tekinn í Soginu í landi Alviðru á Klöppinni. Fiskurinn vóg 22 pund. Gull- og silfurflugan er einn eftirsóknarverðasti heiður sem íslenskum veiðimanni hlotnast og er gripurinn hinn fallegasti og gerður af gulli og silfri og fær veiðimaðurinn hann til eignar. Nánar verður greint frá verðlaunaafhendingunni síðar Tímamynd Pjeíur Staðgreiðslukerfi skatta: Framsóknarmenn samþykkja framlagningu frumvarpa - er miða að skattkerfisbreytingu í samræmi við óskir aðila vinnumarkaðarins Þingflokkur Framsóknarflokksins samþykkti á fundi sínum í gær að lögð yrðu fram þau fjögur frumvörp sem fela í sér skattkerfisbreytingar til að koma á staðgreiðslu skatta á næsta ári. Nokkrar athugasemdir komu fram í þingflokknum um efnisatriði máls-' ins eins og þau eru lögð fyrir af fjármálaráðherra. Sérstaklega höfðu menn áhyggjur af því að skattbyrði hátekjufólks yrði hlutfallslega minni en árinarra.' En í grófum dráttum miðar þetta frumvarp við 35% skattprósentu og persónuafslátt upp á 11.500 krónur á mánuði. Þá er gert ráð fyrir að mánaðarlaun undir 33.000 krónum beri enga skatta. 1 ÞÆÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.