Tíminn - 10.03.1987, Síða 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 10. mars 1987
Norðurland vestra:
Borða helmingi minna af
lyfjum en Reykvíkingar!
Lyfjakostnaður á hvern íbúa
hefur verið nær helmingi lægri að
meðaltali á Norðurlandi vestan-
verðu og raunar nokkrum öðrum
stöðum á landinu heldur en í
Reykjavík og annarsstaðar þar sem
hann er hvað hæstur. Ef lyfj akostn-
aður á hvern íbúa hefði verið sá
sami árið 1985 og hann var í
Skagafirði hefði það sparað
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur um
203 milljónir króna það ár, en
lyfjakostnaður þess var þá um 357
millj. króna. Þessi hlutföll komu
fram í skýrslum Tryggingastofnun-
ar ríkisins bæði árið 1984 og 1985.
Árið 1985 var lyfjakostnaður
Ástæðan ókunn
Sjúkrasamlags Reykjavíkur tæpar
4 þús. krónur á hvern borgarbúa,
nánast sá sami á Ólafsfirði og litlu
lægri í Stranda- og Rangárvalla-
sýslum. f nágrannasveitarfélögum
Reykjavíkur var hann mun lægri
eða frá 2.800 til 3. þús. kr. á íbúa.
Á sama tíma var kostnaðurinn
aðeins um 1.700 kr. á íbúa í
Skagafirði og um og innan við
2.200 kr. í Húnavatnssýslum báð-
um og á Sauðárkróki. Af öðrum
stöðum sem skáru sig úr í lægri
kantinum má nefna tæplega 1.800
kr. á hvern Bolvíking og um 2.300
kr. á íbúa á ísafirði og Norðfirði.
Eru Húnvetningar og Skagfirðing-
ar t.d. svona miklu hraustari en
Reykvíkingar, Ólafsfirðingar og
fleiri? Eru læknar á hinum ýmsu
stöðum misjafnlega fúsir til að gefa
lyf við öllum sköpuðum hlutum?
Hafa sumir læknar fremur í huga
en aðrir að ávísa á ódýr lyf en dýr
ef þau gera sama gagn? Er mismun-
ur milli staða hvað fólk er fljótt að
leita læknis ef það fær kvefpest eða
önnur ónot sem oftast læknast af
sjálfu sér og lyf eru jafnvel gagns-
laus við? Einhlíta skýringu á þess-
um mikla mun á lyfjakostnaði milli
staða kunna yfirmenn heilbrigðis-
mála ekki.
-HEI
sS^rS^H'veiai
íanns eld'
2%t
Leikfélag Menntaskólans að Laugarvatni reiðubúið að takast á við Reykja-
víkursögur Ástu.
Rífandi fjör í Menntaskólanum að Laugarvatni:
Reykjavíkursögur Astu
sýndar á sviði í ML
Félagslíf f Menntaskólanum að
Laugarvatni er mjög öflugt og óvíst
er að íþróttir séu stundaðar í jafn
ríkum mæli í nokkrum öðrum skóla.
Til dæmis léku 4. bekkingar blak
samfleytt í 30 klukkustundir í fjár-
öflunarskyni, svo stúdentar komist
til Túnis í vor.
Bridge kunna allir nemendur í
ML og hafa unnið bridgemót fram-
haldsskóla sl. 5 ár. Karlaveldið hefur
farið flatt einnig að Laugarvatni, en
í febrúar settist Auður Perla Svans-
dóttir í hæsæti nemendafélagsins og
er kölluð Stallari.
Langþráð íþróttahús verður loks
vígt á laugardag nk. Verður þá
mikið um dýrðir, en sama dag verður
34. árshátíð Menntaskólans haldin
með pompi og pragt, bumbum og
básúnum. Eftir vígslu íþróttahússins
setjast nemendur og gestir þeirra að
mikilli veislu, sem lýkur með sýningu
Leikfélags ML á Reykjavíkursögum
Ástu Sigurðardóttur í leikgerð
Helgu Bachmann. Leikstjóri er G.
Margrét Óskarsdóttir og leikarar
eru fjölmargir nemendur í skólan-
um.
Mikil vinna liggur að baki sýning-
unni og hefur nótt verið lögð við
nýtan dag. Búningar frá 6. áratugn-
um höfðu verið grafnir upp úr hirsl-
um foreldra, afa og amma,frænkna
eða vina. „Ekki má gleyma ómetan-
legri greiðasemi leikfélaganna á Self-
ossi og á Hvolsvelli og þá er ótalinn
hlutur lögreglunnar á þessum stöð-
um vegna búninganna,“ segj a hressir
leikendur í ML. þj
Harmoníkusnillingurinn
Lars Ek leikur um helgina
Sænski harmoníkusnillingurinn
Lars Ek, sem hefur unnið sér heims-
frægð fyrir leik sinn, er væntanlegur
til Islands til að halda tónleika á
laugardag.
Lars Ek hefur tvívegis komið til
landsins áður og svo sem margir
listamenn aðrir fengið áhuga á landi
og þjóð. Hann heldur eina tónleika
í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli í
Garðabæ á laugardag nk. klukkan
16.00. Hann er allur á léttu nótunum
og leikur tónlist eftir sjálfan sig auk
Pietro Frosini, Ragnar Sundqvist,
Nisse Lund o.fl. Með honum leika
Þorsteinn Þorsteinsson á gítar og
Þórður Högnason á bassa. Lofað er
léttum og fjörlegum harmoníkutón-
Ieikum.
Hveitimyllan hf.
í júní mun nýtt fyrirtæki Hveiti-
myllan hf. væntanlega hefja starf-
semi. Er þetta fyrirtæki, eins og
nafnið gefur til kynna, hveitimylla
þar sem malað verður korn fyrir
innanlandsmarkað. Fyrirtækið er í
eigu Fóðurblöndunnar hf. sem á
50% hlutafjár, danska fyrirtækisins
Valsemóllen og sænska fyrirtækisins
Finax Forselling. Að sögn Gunnars
Jóhannssonar hjá Fóðurblöndunni
mun þetta nýja fyrirtæki geta boðið
hveiti á samkeppnisfæru verði við
innflutninginn og þar að auki betri
þjónustu. Kornið verður flutt inn
eftir þörfum viðskiptavina og er gert
ráð fyrir að hægt verði að vera með
þrjá mismunandi flokka af hveiti.
Auk hveitisins kemur hýðið af korn-
inu og verður það aðallega notað til
skepnufóðurs, en einnig í bakstur.
Þó ekki verði um að ræða veruleg-
ar verðlækkanir á þessum kornvör-
um má þó benda á það að þetta
fyrirtæki kemur til með að spara
verulegan gjaldeyri þar sem stór
hluti vinnuslukostnaðar verður inn-
lendur. Gert er ráð fyrir að þetta
skapi 10-12 ný störf og innlend orka
verður notuð við vinnsluna. RR
Ferðamálaráðstefnan ’87
Ferðamálaráðstefnan 1987 verður
haldin á Hótel Sögu dagana 26.-27.
mars næstkomandi. Fulltrúar allra
þingflokka munu flytja stutt ávörp
þar sem þeir munu skýra stefnu og
afstöðu viðkomandi stjórnmála-
flokks til uppbyggingar ferðaþjón-
ustu sem atvinnugreinar á íslandi.
Megin viðfangsefni ráðstefnunnar
verða landkynningarmál og um-
hverfis- og náttúruverndarmál. Flutt
verða framsöguerindi um þessa
málaflokka, en að þeim loknum er
gert ráð fyrir að ráðstefnugestirskipi
sér í tvo vinnuhópa sem skili svo
tillögum og verða þær svo ræddar
seinni hluta föstudagsins 27. mars.
Ferðamálaráðstefnan er opin öllu
áhugafólki um ferðamál og umhverf-
is- og náttúruverndarmál. Þátttöku
ber að tilkynna til Ferðamálaráðs
íslands, Laugavegi 3 í Reykjavík.
Ráðstefnur þessar hafa verið
haldnar nánast á ári hverju undan-
farin 15-20 ár og var síðasta ráð-
stefna haldin í Vestmannaeyjum
1985.