Tíminn - 10.03.1987, Blaðsíða 6

Tíminn - 10.03.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn* Títnitin MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Kristinn Finnbogason Ritstjóri: NíelsÁrni Lund Aðstoöarritstjóri: OddurÓlafsson Fréttastjórar: BirgirGuðmundsson EggertSkúlason Auglýsingastjóri: Steingrímur G íslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 (tæknideild) og 686306 (ritstjórn). Verð í lausasölu 50.- kr. og 60.- kr. um helgar. Áskrift 500.- Hvar sjást breytingarnar? í setningarræðu sinni á Landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins var formanni hans Þorsteini Pálssyni tíðrætt um þann árangur sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur að hans dómi náð í þessari ríkisstjórn. Það er gömul og ný regla að forsvarsmenn stjórnmála- flokka eigna sér það sem vel er gert og af þeim sökum þarf engan að undra þótt Þorsteinn Pálsson haldi því fram að Sjálfstæðisflokkurinn eigi heiðurinn af þeim árangri sem ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar hefur náð. Þetta er röng túlkun staðreynda, því ef litið er raunhæft á þá málaflokka sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur kemur í ljós að litlar sem engar breytingar hafa þar verið gerðar og fráleitt að halda því fram að stjórnun þeirra málaflokka eigi stóran þátt í þeim árangri á sviði efnahagsmála sem náðst hefur á kjörtímabilinu. Mesti árangurinn er á sviði efnahagsmála. Enda þótt efnahagsmál snerti öll ráðuneytin er yfirstjórn þeirra óumdeilanlega í höndum forsætisráðherra. Það kom því í hlut forsætisráðherra Steingríms Hermannssonar að fylgjast með þróun þeirra og gera tillögur um aðgerðir. Það verður að segjast eins og er að um flestar þeirra hefur náðst samstaða hjá stjórnarflokkunum og á hún stóran þátt í því hve vel hefur tekist til. í upphafi kjörtímabilsins var ljóst að setja þyrfti ákveðnari reglur um stjórnun fiskveiða við ísland en gilt höfðu. Það kom í hlut sjávarútvegsráðherra Halldórs Ásgrímssonar að taka á þeim málum. Þrátt fyrir harða andstöðu margra stjórnmálamanna úr öllum flokkum, þ.á.m. einstakra ráðherra tókst honum að ná fram samstöðu hjá hagsmunaaðilum í sjávarútvegi um nauð- synlegar aðgerðir. Fyrir þessi vinnubrögð sín ávann Halldór Ásgrímsson sér traust sem ábyrgur stjórnmála- maður. Stjórnun fiskveiða var ein af forsendum þess að tækist að rétta við íslenskt efnahagslíf, og að halda hér fullri atvinnu, sem voru tvö helstu markmið ríkisstjórn- arinnar. Það má því færa gild rök fyrir því að ábyrg stjórnun sjávarútvegsráðherra á stóran þátt í árangri ríkisstjórnarinnar. í ráðuneyti Alexanders Stefánssonar hafa húsnæðis- málin verið erfið en á þeim fundist lausn. Þegar ríkisstjórnin tók við völdum var ljóst að húsnæðiskerfið var hrunið og nauðsynlegt að byggja það upp að nýju með nýjum lögum og reglum. Það hefur verið gert og þrátt fyrir vankanta sem hljóta alltaf að koma fram við svo viðamiklar ráðstafanir má fullyrða að staða hús byggjenda og íbúðarkaupenda er nú allt önnur og betri en í langan tíma. Það var einnig ljóst strax við myndun ríkisstjórnarinn- ar að á málefnum landbúnaðarins varð að taka. Þær aðgerðir komu í hlut landbúnaðarráðherra, Jóns Helga- sonar að framkvæma. Sett voru ný lög um framleiðslu búvara og reglur þar að lútandi. Þótt aðgerðir í landbúnaði hafi bæði verið erfiðar og umdeildar er þeim ætlað að tryggja bændum svipaða afkomu og öðrum þjóðfélagsþegnum og stefna að því marki. Á þessu má sjá að það hefur fallið í hlut ráðherra Framsóknarflokksins að taka á erfiðu málum ríkis- stjórnarinnar. Það hafa þeir óumdeilanlega gert og á þeim aðgerðum byggist góður árangur ríkisstjórnarinn- ar. Þriðjudagur 10. mars 1987 ■lllllllll GARRI Sívælandi og sí- heimtandi þræll Jónas Kristjánsson ritstjóri DV, hins háifopinbera málgagns Sjálf- stæðisflokksins, skrifar leiðara í blað sitt á laugardag sem ber fyrirsögnina „Tökum erlenda þræla“. Leiðarinn byrjar svona: „Of lengi hafa íslendingar haft hinn hefðbundna landbúnað að þrael, sem stritar fyrir litla umbun. Svo lengi hefur þræHinn vanist Mutskipti sínu, að hann er farinn að líta á sig sem ríkiseign - lög- skipaðan niðursetning þjóðfélags- ins. Hann er sívælandi og síhcimt- anéi. Nágrannar okkar í Vestur-Evr- ópu hafa í nokkra áratugi flutt inn erlenda þrsela til að'strita fyrir titla umbun. Um leið hafa þeir flutt inn vandamál farandverkamanna, sem reynst hefur eríitt að ráða við. Til er betri leið - að láta þrælana sitja heima hjá sér. Við hagnýtum okkar þetta raun- ar á flestum sviðum landbúnaðar. Við neitum okkur ekki um að njóta innflutnings ódýrrar búvöru, sem við kaupum á heimsmarkaðs- verði. Það er verð hagkvsemasta framleiðandans, stutt niðurgreiðsl- um hinna, sem óhagkvæmari eru. Við neitum okkur samt um þessi þægindi á sviðum, þar sem hinum innlenda þræl tekst með herkjum að framleiða vöru. Við látum hann til dæmis stritast við að búa til smjör, þótt það sé tíu til tuttugu sinnum dýrara en það, sem við getum keypt frá útlöndum. “ Og þannig er þarna haldið áfram í sama dúr. Lokað í sveitunum Því er sem sagt haldið fram þarna að best færi á að loka öllu í sveitum landsins, hætta landbún- aði og flytja inn kjöt og mjólk í staðinn. Við skulum athuga dálítið nánar hvað slíkt myndi þýða. Það myndi væntanlega hafa í för með sér að sveitir landsins, og raunar meginhluti þess, myndu tæmast af fólki. Bændur og búalið myndu flytja á mölina. Og ekki bara bændur einir, held- ur meginhluti þess fólks sem býr í þjónustumiðstöðvum í þorpum víðs vegar um landið. Ef Garri man rétt skapar hver bóndi fjögur til fimm störf í þjónustu og úr- vinnslu, svo að þetta yrði dálagleg- ur hópur. Eftir yrðu ekki ncma þeir sem vinna við fiskvinnslu og útgerð í stærstu sjávarplássunum. Það fólk inyndi lifa á smjöri frá Danmörku og dilkakjöti frá Nýja Sjálandi. Er ekki hætt við að einhver myndi segja oj bara? Og ritstjórinn gleymir að geta þess hvað allt þetta fólk á að taka sér fyrir hendur á mölinni. Ætlar hann kannski að ráða það allt til sín á DV? Draugaborgir Eftir stæðu sveitirnar auðar og tómar. Er þá ógctið þess að þar stæðu gífurlcgar fjárfestingar ónot- aðar, ekki bara heima á bæjunum heldur í þorpunum líka. Þar stæðu til dæmis mjólkurstöðvar, slátur- hús og kjötvinnslustöðvar líkt og draugaborgir. Svo sem hin reisu- lega mjólkurstöðvarbygging Mjólkurbús Flóamanna á Selfossi. Og nýtt og fullkomið sláturhús Sláturfélags Suðurlands á Hvols- velli. Og þannig mætti halda áfram hringinn í kringum landið. Allt yrði auðn og tóm. Við íslendingar erum aðeins rétt um tvö hundruð og flmmtíu þúsund. Við búum í erfíðu landi, sem þarf manndóm og kjark til að takast á við. Þctta land hefur alið upp í þjóðinni dugnað og seiglu, sem uppbygging síðustu áratuga er besti vitnisburðurinn um. En þó eru til pappírsbúkar og tcoríuhcstar suður í Reykjavík sem reikna það út cftir cinhverjum frjálshyggjuformúlum að öllu mætti þessu haga betur. Menn sem hafa lagt sig eftir rauðvínstegund- um og matsölustöðum í útlöndum en hafa ekki sjáanlcgt hundsvit á íslensku atvinnulífl. Og slíkir menn gera sér það síðan að atvinnu að efna til illinda á milli dreifbýlis og þéttbýlis, á tímum þegar þjóðinni ríður á að standa saman. I þeim tilgangi ein- um að selja blöð sem þeir gefa út og vilja græða á. Er þetta ekki nokkuð langt gengið? Garri. VÍTT OG BREITT Skattar greiddir með bros á vör Happaþrennan er algjört æði. Milljón miðar voru settir á markað fyrir helgina og eru uppseldir. Prentsmiðjan sem framleiðir þessi dýrmæti hefur ekki undan og er ekki hægt að fá næstu sendingu fyrr en í næsta mánuði. Spilaglöð þjóð verður því að þreyja góuna þar til aftur verður hægt að taka til við að tapa og græða með jafn skjótvirk- um hætti og happaþrennan býður upp á. Spilavíti eru bönnuð með lögum, en bingó og happdrætti koma í þeirra stað. Happdrættin hafa þann góða kost, að þau styrkja góð málefni og ef heppnin er með er hægt að auðgast verulega með því að leggja sitt af mörkum til þjóð- þrifamála. Gömlu happdrættin eru farin að verða lúin. Hjá þeim, sem rekin eru að staðaldri, er dregið aðeins einu sinni í mánuði, og er þá löng bið eftir að verða ríkur. Getraunir íþróttahreyfingarinnar voru aðeins skárri, en hafa aldrei orðið reglu- lega spennandi, þar sem fátt er um glæsivinninga. Svo kom lottóið. Seðlarnir stimplaðir úti í sjoppu síðdegis á laugardögum, engin glóra að gera það fyrr, og svo er beðið í svitakófi með notalegum, köldum hríslingi niður eftir bakinu, þegar kúlurnar renna í sjónvarpinu. Lottóið er eina happdrættið sem hefur látið sér hugkvæmast að vera ekki líka aðalþáttakandinn í keppninni um vinning. Þegar vinn- ingur gengur ekki út er hann ein- faldlega lagður við næst. Eðlilega margborgar þetta sig fyrir fyrirtæk- ið, því það er eins og að pissa í skóinn sinn, þegar forráðamenn happdrætta halda að þeir græði á því að fá sjálfir stærstu vinningana ár eftir ár. Við spilum nefnilega ekki í happdrætti til að styrkja nein málefni, heldur til að fá vinning. Enda leið ekki á löngu þar til lottóið fór að velta hundruðum milljóna. Framlög sem enginn séreftir En eins og vera ber á Háskólinn að vera í fararbroddi, og nú hafa þeir hjá happdrættinu þar slegið öllum öðrum við. Happaþrennan er einmitt það sem vantaði. Bara kaupa miða, skafa ofan af tölum og maður sér eins og skot hvort vinningur fellur manni í skaut og hve hár hann er. Rétt eins og á tombólunum í gamla daga, þar var annað hvort núll eða ávísun á gamalt tólgarstykki eða þvottaefnispakka. Háskólaþrennan gerir betur því þar er hægt að þéna allt að hálfri milljón yfir búðarborðið. Viðtökurnar eru með þeim ágæt- um að yfir eina helgi seldust miðar fyrir 50 millj. kr. Vafamál er hvort þjóðinni hefur tekist að skemmta sér og þamba áfengi fyrir jafnháa upphæð á sama tíma. Á því má glöggt sjá hvílíkur happafengur er að þrennuleiknum. Lengi getur gott batnað og verð- ur æsilegt að fylgjast með hvaða happdrættisform lítur næst dagsins Ijós á farsælda Fróni. Það verður náttúrlega að slá þau sem fyrir eru út í vinningshlutfalli og hraða, og verður þeim þá tekið opnum örmum, huga og buddum. Skjótvirk og aróvænleg napp- drætti leysa margan vanda, líklega þann mestan, að skuldarar sem ekki sjá fram úr vandræðum sínum eygja von, aðeins ef þeir fá stóran vinning. Þau leysa líka fjárþörf ágætra stofnana. Ríkishappdrætti réttlætismál Landssjóðurinn er eitt þeirra fyrirbæra sem stríðir við sífellda fjárþröng. Það er sama hvað í hann er látið, alltaf streymir meira úr honum. Hér skal enn einu sinni á það bent að hugkvæmnislega rekið ríkishappdrætti gæti rétt hallann af. Allir stjórnmálaflokkar hafa lof- að að lækka eða afnema tekjuskatt með öllu. Það er heldur hallæris- legt að flokkur fjármálaráðherra hefur gengið lengst í loforðunum, og enginn hefur haft tækifæri til að svíkja þau jafnrækilega. Tekju- skatturinn er enn ein höfuðhremm- ing launafólks, og heldur því fá- tæku og voluðu, í öllu góðæri þeirra sem ekki greiða skatta. Vel rekið ríkishappdrætti gæti sem best gert tekjuskattinn óþarf- an. Þeir sem spila í happdrætti gera það af glöðum og fúsum vilja, andstætt því þegar um beinar skatt- greiðslur er að ræða. Gróðavonin gerði greiðslurnar léttbærar og væntanlega mundu fleiri en launþegar einir efla ríkissjóð með miðakaupum. Ef nú ríkið ekki vill keppa við hin happdrættin, gæti það sem best breytt lögurn og komið sér upp alvöru spilavíti. Viljinn til að leggja nokkuð á hættu í von um skjóttekinn gróða er greinilega fyrir hendi og happ- drættisrekstur er þekkilegri aðferð til að innheimta peninga, en að níðast endalaust á launafólki, eins og gert er. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.