Tíminn - 10.03.1987, Side 4

Tíminn - 10.03.1987, Side 4
4 Tíminn Þriðjudagur 10. mars 1987 Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalags: Stefna ASÍ yfirleitt önnur en okkar stef na „Stefna ASÍ hlýtur yfirleitt aö vera önnur en stefna Alþýðubanda- lagsins," sagði Svavar Gestsson form. Alþbl. á fréttamannafundi í gær. í Ijósi þess hve formanninum hefur verið tamt að setja samasem- merki á milli verkalýðshreyfingar- innar og Alþýðubandalagsins og framboðs forseta ASÍ í baráttusæti á lista flokksins virðist þessi yfirlýsing Svavars gcta bcnt til að eitthvað sé þar þó grunnt á hinu góða um þcssar mundir. Ólafur Ragnar Grímsson áréttaði að alls ekki mætti rugla saman stefnu Alþýðubandalagsins og stefnu ASÍ, sem eðli samkvæmt byggðist á ýmisskonar málamiðlun- um bæði milli pólitískra flokka og við vinnuveitendur og ríkisvald. Varðandi það hvort þetta gæti ekki valdið nokkrum vanda, m.a. vegna framboðs forseta ASÍ fyrir flokkinn, varð ekki annað skilið á þeim Svavari og Ólafi en að það væri þá vandi Ásmundar cn ekki Alþýðu- bandalagsins. „Hringdu í Ásmund sjálfan í síma 83044," var svar Svavars þegar Tímamaður lét í Ijós efasentdir um að Ásmundur væri sammála þeirri gagnrýni sem forystumcnn Alþýðu- bandalagsins settu fram á nýja hús- næðiskerfið og m.a. það aö taka upp jafnan húsnæðisafslátt til allra í stað vaxtafrádráttar af skatti, sem var eitt atriðið í kjarasamningum á sínum tíma og ætlað að jafna milli fólks þeirri húsnæðisaðstoð scm hið opin- bera veitir í gegn um skattakerfið. Ressi orðaskipti fóru fram á fundi sem fjórir forystunienn Alþýöu- bandalagsins, Svavar Gestsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Kristín Ólafsdóttir og Ragnar Arnalds, boð- uöu til í gær til að kynna helstu áherslupunkta flokksins eftir mið- stjórnarfund sem Alþbl. hélt um helgina. í stuttu máli leggur Alþbl. áherslu á stórhækkun lágmarks- launa, aukna samneyslu og félags- legar úrbætur ásamt verulcgum skattaíækkunum, scm þeir áætla að minnkuðu tekjur hins opinbera um 1.200 millj. króna. Efst á blaði eru þó málefni fjöl- skyldunnar sem sérstök ályktun var samþykkt um á miðstjórnarfundin- um. Helstu stefnumálin eru: Aö fjórðungur dagvinnulauna dugi til að tryggja öllum gott og heilsusam- legt húsnæði - launahækkun og stytt- ing vinnutíma - dagheimili fyrir öll börn - samfelldur skóladagur og máltíðir í skólum - lenging fæðingar- orlofs í eitt ár - og að öll fjölskyldu- form verði jafn rétthá. Jafnframt samþykkti miðstjórn- arfundurinn kröfu til tíkisstjórnar- innar um ráðstafanir til þess að búvörur hækki ekki umfram almennt verölag þó bændur fái að íullu og án tafar þær kjarabætur scm þeim ber. Látinn er Þórir Bergsson tryggingastærðfræðingur bórir Bergsson, trygginga- stærðfræðingur, lést í Landsspít- alanum 7. marz s.l... Þórir var fæddur 2. júlí 1929, sonur hjón- anna Bergs Jónssonar, sýslu- manns og síðar bæjarfógeta í Hafnarfirði, og Guðbjargar Lilju Jónsdóttur. Þórir lauk prófi í tryggingastærðfræði og statistik frá Hafnarháskóla árið 1959. Hann starfaði unr skeið hjá Al- mennunr tryggingum h.f., en frá 1961 starfaði hann sjálfstætt við tryggingafræðilega og statistiska útreikninga. Jafnframt var hann um skeið skólastjóri Trygginga- skólans. Þórir sat í stjórn Lánasjóðs ísl. námsmanna sem fulltrúi Sam- bands ísl. stúdenta erlendis á 7. áratugnum og hann var formaður Félags íslenskra tryggingastærð- fræðinga frá 1984 til dauðadags. Þórir ritaði margar greinar í blöð og tímarit um trygginga-, lána- og lífeyrissjóðamál. Þórir var kvæntur Björgu Hermannsdóttur og áttu þau fjögur börn. Börkur NK 122 kemur drekkhlaðinn að landi. (Tímamynd: S.H.) Neskaupstaður: Frysting hafin á loðnuhrognum Frá Svanfríði Hagwaag, fréttaritara Tímans á Ncskaupstaö Frysting loðnuhrogna er nú hafin á Ncskaupstað. Búið cr að frysta um 120 tonn af hrognum úr nóta- skipunum Berki og Beiti. Á mynd- inni má sjá þegar verið var að landa unt 1200 tonnum af loðnu úr Berki nú fyrir helgi, sem veidd var í Brciðafirði. Sagði Már Lárusson, verkstjóri hjá SVN, að hrognatakan gengi vel og hrognin væru fersk. Það er unnið við hrognafrystinguna á vöktum frá klukkan fjögur að nóttu til ellefu á kvöldin. Þó cru hrognin þvegin allan sólarhringinn. Mjög mikil vinna hefur verið undanfarið hjá SVN þar sem áður en farið var að frysta hrogn var verið að frysta loðnuhrygnu. Voru fryst um 180 tonn og var einnig unnið að þeirri frystingu á vöktum. Ný stjórn Hjálparstofnunar kirkjunnar kosin: „Vekja þarf aftur traust til Hjálparstofnunarinnar“ - Greiðslustöðvun á næsta leiti Árni Gunnarsson, nýkjörinn stjórnarformaður Hjálparstofnunar kirkjunnar, Haraldur Ólafsson stjórnarmaður og Pétur Sigurgeirsson, biskup. (Tímamynd: Svcmr) „Hjálparstofnun kirkjunnar er að hefja nýjan áfanga eftir erfið þátta- skil,“ sagði Pétur Sigurgeirsson, biskup, við kynningu nýrrar stjórnar í gær. „Stofnskrá stofnunarinnar, sem nú veröur unnið eftir, hefur hlotið samþykki Kirkjuráðs." Ný stjórn Hjálparstofnunar kirkj- unnar hefur verið kosin og skipulags- skrá stofnunarinnar endurbætt í kjölfar umræðu um að ekki hafi ver- ið heiðarlega staðið að uppgjöri reikninga. Stjórnarmenn eru Arni Gunnarsson, ritstióri, stjórnarfor- maður, Haraldur Olafsson, alþingis- maður, og séra Þorbjörn Hlynur Árnason. Varamenn cru séra Sól- veig Lára Guðmundsdóttir og séra Úlfar Guðmundsson. Helstu verkefni aðalfundar Hjálp- arstofnunarinnar voru afgreiðsla árs- reikninga 1986, breytingar á reglu- gerð stofnunarinnar og loks kosning stjórnar og félagskjörinna endur- skoðenda, sem nú eru Hanna Páls- dóttir, aðalféhirðir, og séra Guðni Þór Ólafsson. Allt fyrrverandi starfslið hefur sagt stöðum sínum lausum að eigin ósk. Hjálparstofnunin er févana og nánast komið að greiðslustöðvun, þar sem hætt var við alla fjársöfnun á tekjuhæstu mánuðum stofnunarinn- ar á síðasta ári vegna gagnrýni á rekstur hennar. „Skuldir eru miklar," sagði Árni Gunnarsson, nýkjörinn stjórnarfor- maður. „Meðal annars er það vegna kaupa á húseign við Engihlíð 9. Hún verður nú seld hið snarasta. Hjálpar- stofnunin á ekki lengur bifreið og mun ekki eignast. Þar að auki er um milljóna króna skuldbindingar að ræða, sem stefnt er að að standa við. Það eru verkefni í Kenýa og Súdan, en stærsta verkefnið er bygging mun- aðarleysingjahælis í Haik í Eþíópíu. Þegar voru hafnar framkvæmdir og systurstofnanir í Finnlandi og Noregi hafi lýst yfir vilja til að taka þátt í því verkefni. Áfall stofnunarinnar má ekki bitna á skjólstæðingum hennar." Með nýrri skipulagsskrá eru tengsl stofnunarinnar við kirkjuna efld til muna og valddreifing meiri. Leita skal heimildar Kirkjuráðs vegna meiriháttar skuldbindinga. Fyrir- tækið verður allt opnara og undir strangara eftirliti en verið hefur. Ársreikningar þess verða birtir í Stjórnartíðindum. Allt til að „berja í trúnaðarbrestina og auka traust þjóðarinnar á Hjálparstofnuninni aftur,“ eins og Árni Gunnarsson orðaði það. Stjórnarmenn töldu gagnrýni á fyrrverandi stjórn að nokkru rétt- mæta, - til dæmis að ekki hefði verið heiðarlega staðið að uppgjöri, en að sumt hefði ekki átt við rök að styðjast. „Gáleysislega var farið með tölur um rekstrarkostnað, því að ekki var reiknaður inn í allur kostn- aður við íslenskt hjúkrunarfólk f þróunarlöndunum," sagði Árni. „Við biðjum þjóðina um brautar- gengi," sagði Haraldur Ólafsson stjórnarmaður. „Hjálparstofnunin innir merkilegt starf af hendi og stjórnin biður um annað tækifæri henni til handa." Tekjumöguleikar hennar eru framlög styrktaraðila, tekjur af söfnunum og vaxtatekjur. Til rekst- urs og stjórnar verður að jafnaði var- ið 8% af öllu söfnunarfé. „Við byrj- um frá grunni," sagði Árni að lokum. „Þrátt fyrir að trúnaðar- traustið hafi hlotið hnekki býst ég við að það heppnist. Ég leyfi mér að segja, að fáar, ef nokkur sjálfseign- arstofnun búi við jafn stranga skipu- lagsskrá og eftirlit og Hj álparstofnun kirkjunnar nú.“ Þj FRÉTTAYFIRLIT NÝJA JÓRVÍK - Sérstak- ur ákærandi í hneykslismálinu í sambandi við vopnasöluna til Irans mun líklega birta form- lega ákæru um glæpsamlegt athæfi á hendur háttsettum ráðamönnum í Reaganstjórn- inni. RÓM - Francesco Cossiga forseti (talíu boðaði hinn reynda stjórnmálamann Giulio Andreotti á sinn fund og mun þessi leiðtogi kristilegra demó- krata eiga næsta leik í að reyna að leysa úr hinni flóknu stjórnmálakreppu í landinu. JÓHANNESARBORG- Háttsettur ráðherra í suður-afr- ísku stjórninni sagði hugmynd- ir hins ráðandi Þjóðarflokks um réttindi til handa svörtum vera í molum og væri ekki hægt að hrinda þeim í framkvæmd. PEKÍNG - Kínversk stjórn- völd sökuðu vestræna stjórn- málasérfræðinga um að mis- skilja baráttuna gegn pólitísk- um hugmyndum að vestan og sögðu að kínverskir fræði- menn þyrftu ekki að óttast ofsóknir. MANILA — Hin pólitíska bar- átta fyrir þingkosningarnar á Filippseyjum er þegar hafin með viðvörun frá herforingja sem sakaður er um að hafa verið í forystu einnar byltingar- tilraunarinnar gegn Corazon Aquino forseta og stjórn hennar. Herforinginn sagði til- raunir til að velta ríkisstjórninni úr sessi ekki vera úr sögunni fyrr en Aquino tækist að bæta siðferðisþrekið og baráttuhug- inn innan hersins. MOSKVA - Pravda, dag- blað sovéska kommúnista- flokksins, hafði eftir Georgy Arbatov háttsettum Kremlverja að stefna Bandaríkjastjórnar í afvopnunarmálum væri eins hugmyndasnauð og vanalega. TEL AVIV - Yitzhak Shamir- forsætisráðherra (sraels neit- aði að verða við kröfum um að ísraelsk rannsókn færi fram á njósnamálinu í Washington sem olli verulegum samskipta- örðugleikum milli þjóðanna tveggja. Shamir sagði þá sem bæru ábyrgð á málinu þegar hafa goldið þess nóg að viður- kenna þátt sinn í því. STOKKHÓLMUR Sænski ráðherrann sem gefur leyfi fyrir vopnaútflutningi sagði að stjórnvalda biði nánast vonlaust verkefni að reyna að komast til botns í ásökunum um vopnasmygl til Mið-Austur- landa.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.