Tíminn - 10.03.1987, Side 11
Þriðjudagur 10. mars 1987
llllllllllllllllllllllllllll MINNING lllllll
Tíminn 11
Tómas Sigurgeirsson
Dáinn 17. febr. 1987
f fyrrasumar kvaddi ég Tómas
Sigurgeirsson mág minn á Reyk-
hólahlaði. Þá voru liðin 60 ár síðan
ég hafði fyrst heilsað honum á Mið-
húsahlaði. Það var í fyrsta sinn sem
við sáumst, og þó hafði hann áður
átt úrskurðarvaldið að því að ég
flutti í Reykhólasveitina á ný, svo
einkennileg eru atvikin.
Þórarinn Árnason fyrri maður
systur minnar hafði haft á leigu og
ábyrgð jörð og bú á Hólum í Hjalta-
dal í þrjú ár. Þá áraði ekki vel fyrir
stórbýli. Hann hugðist því breyta til
og tók á leigu jörðina Brimnes, ekki
langt frá Hólum. Þetta var þokkaleg
jörð, en einhvern veginn kunni ég
ekki við að flytjast þangað eftir að
hafa verið Hólamaður í þrjú ár.
Þetta sama vor tók ég kennarapróf
og hugðist ráða mig til starfa sunnan-
lands og af því tilefni að selja
skjóttan hest em ég átti. Tómas sem
verið hafði í Hólaskóla um veturinn,
veiktist og varð að hlífa sér frá vinnu
og varð það úr að hann færi með
Þórarni og Steinunni að Brimnesi.
Ég fékk þær fregnir af honum að
hann væri hinn mætasti maður og
varð það úr að ég gaf honum kost á
að kaupa Skjóna, og voru í raun
afgerð kaup. En nú kom það til að
Þórarinn gal fengið Miðhús í Reyk-
hólasveit til ábúðar og ákvað að taka
því boði, þá breyttust mín viðhorf.
Ég hafði áður verið eitt ár í Reyk-
hólasveitinni og tekið ástfóstri við
þessa fallegu byggð, en þó gat ég
ekki hugsað mér að vera á sama bæ
og Skjóni í eign annars manns, til
þess vorum við Skjóni of miklir
vinir. En þá var það að Tómas leysti
málin. Hann gaf eftir kaupin á
Skjóna. Það voru, að ég hygg,
hvorki fyrstu eða síðustu vandamál-
in, sem Tómas leysti. Sem betur fór
náði Tómas fullri heilsu og varð svo
vinnumaður áfram í Miðhúsum, því
oftast eru næg verkefni á eyjajörð,
eða svo var þá meðan eyjar og
hlunnindi voru nytjuð. Mín dvöl
lengdist þarna einnig, en þó var ég
aðeins sumarmaður, þar eð ég réðist
strax til kennslu í sveitinni og varð
það því vetrarstarfið. Tómas gerðist
strax hinn röskasti maður þar sem
saman fór bæði orka og verklagni.
T.d. fór það svo að dalamaðurinn,
eða réttara sagt heiðabúinn gerðist
fljótt ráðamaður í sjósókn, því
hvorttveggja var að heilsa Þórarins
stóð völtum fæti og auk þess var
hann mikill atfylgismaður um ýmis
sveitarmálefni, m.a. að tryggja
læknissetu á Reykhólum. En það
var jafnt um bústörfin, sem önnur
mál er Tómasi var trúað fyrir, að
adrei brást trúnaðurinn og ætla ég
þó ekki að gera lítið úr hlut systur
minnar við forsögn í búnaði.
í nokkur sumur unnum við Tómas
saman að bústörfum, en hvergi
komst ég til jafns við hann nema ef
vera kynni sem sláttumaður. Þetta
voru ánægjuleg ár þó sennilega hafi
þau reynt meir á orku manna en
bústörf gera nú, einkum eyjanytj-
arnar. Og minnisstæð verður mér
gamla stofan, þar sem við sváfum á
þessum árum, sennilega viðhafnar-
stofa Páls bónda, föður Gests Páls-
sonar. Síðari árin, eftir að Tómas
gerðist áhrifamaður í sveitarmálefn-
um, eru mér síður kunn, en koma í
hug tvær setningar úr gullaldarritum
okkar, önnur þessi: „Aldrei níddist
hann á neinu því sem honum var
trúað fyrir“, en hin: „Betri eru
Hálfdán heitin þín, en handsöi ann-
arra rnanna." Tómas var runninn
upp úr þeirri byggð, sem telja má vöggu
samvinnuhreyfingarinnar og sem
fyrst varð til að brjóta á sér í átökum
við erlent eða hálferlent peninga-
vald. Sú orrusta hefði í fyrstu mátt
sýnast töpuð. Annars vegar gróið
vald að auði, reynslu og þekkingu,
hins vegar fátækir og fákunnandi
bændur, en það sem sköpum skipti
var að þeir síðar-nefndu áttu hugsjón
að berjast fyrir. Það hefur aldrei
verið hægt að sigra hugsjón, meðan
hinn gullklyfjaði asni hefur ekki
komist inn um borgarhliðin. Tómas
var alltaf samvinnumaður af
hugsjón, og þó að hann hafi sennilega
verið búinn að gefa flest önnur
umsvif á bátinn, þá hygg ég að hann
hafi lengstaf fylgst með málum
Kaupfélags Króksfjarðar. Af fregn-
um sem heyrst hafa af deilum nokk-
urra félagssamtaka, þá hygg ég að
nokkrir af sonum hins unga lýðveldis
mundu telja að líf hans hafi verið
tímaskekkja, en mættum við þá
biðja um fleiri, sem lifa í tíma-
skekkju.
Þakka þér fyrir 60 ára samfylgd
mágur, og ætli það líði svo langur
tími þar til við tökumst í hendur á
nýju bæjarhlaði.
Hjörtur Hjálmarsson
Bjarni Vilhjálmsson
Fæddur 12. júní 1915
Dáinn 2. mars 1987
Kveðja frá Þjóðskjalasafni íslands.
Bjarni Vilhjálmsson fyrrverandi
þjóðskjalavörður var Austfirðingur
að ætt, fæddur á Nesi í Norðfirði 12.
júní árið 1915, var hann á 72.
aldursári er hann lést. Hann lagði
stund á íslensk fræði og lauk cand.
mag. prófi frá Háskóla íslands árið
1936.
Bjarni Vilhjálmsson stundaði
kennslu framan af starfsævinni og
lengst af í Kennaraskólanum. Auk
þess sinnti hann blaðamennsku og
umfangsmiklum útgáfustörfum.
Hann gegndi í tæpa tvo áratugi
formennsku í erilsömustu nefnd
skólakerfisins, landsprófsnefnd, og
var lengi ritari Hugvísindadeildar
Vísindasjóðs.
Árið 1958 varð Bjarni skjalavörð-
ur í Þjóðskjalasafni. Var starfsvett-
vangur hans þar einkum skjalasöfn
amtmanna og stiftamtmanns, og
voru þau verk öll unnin af stakri
vandvirkni. Bjarni Vilhjálmsson var
skipaður þjóðskjalavörður árið 1968
og gegndi því embætti uns hann lét
af störfum samkvæmt eigin ósk fyrir
aldurs sakir 1. desember 1984.
Hann lét hefja nýja ritröð, sem
nefnist Heimildaútgáfa Þjóðskjala-
safns, og komu út undir stjórn hans
tvö bindi. Hið fyrra árið 1979: Bréf
Þorláks biskups Skúlasonar, sem
Bjarni vann að ásamt Júníusi Krist-
inssyni og Jóni Þ. Þór, en hið síðara
1983, Prestastefnudómar og bréfa-
bók Gísla biskups Þorlákssonar, sem
hann gaf út ásamt Júníusi Kristins-
syni.
Ég kynntist Bjarna Vilhjálmssyni
ekki náið en af stuttum kynnum var
ljóst að þar fór hæglátur öðlingsmað-
ur, sem vel kunni að sjá bjartar
hliðar á mönnum og málefnum.
Eftir að Bjarni Vilhjálmsson hafði
látið af embætti var hann tíður
gestur í Þjóðskjalasafni og sinnti
hugðarefnum sínum. Urðu þau ár
alltof fá, sem hann naut til þeirra
mála eftir að embættisferli hans
lauk.
Ég þakka Bjarna Vilhjálmssyni
góð kynni og flyt ekkju hans og
börnum samúðarkveðjur starfsfólks
Þjóðskjalasafns íslands.
Ólafur Ásgeirsson
Ég var búinn að þekkja Bjarna
Vilhjálmsson lengi, og nægilega vel
vorum við kunnugir til þess að
fréttin um fráfall hans kom illa við
mig. Þó er þetta leiðin okkar allra að
lyktum.
Mér er Bjarni Vilhjálmsson þjóð-
skjalavörður minnisstæðastur fyrir
það einstæða jafnlyndi, blandað
góðlátlegri kímnigáfu, sem hann
sýndi jafnan. Við áttum margvísleg
samskipti eins og gengur. Meðal
annars leitaði ég oft til hans á
Þjóðskjalasafni og aldrei öðru vísi
*en með góðum árangri. Hann var
fróður, glöggur og fundvís á heimild-
ir. Mér er líka minnisstætt að fyrir
nokkrum árum vorum við samferða
í rútu frá Stykkishólmi til Reykjavík-
ur. Það var skemmtileg ferð; við
ræddum fræðileg og söguleg efni alla
leiðina, og varð aldrei lát á.
Sem fræðimaður var Bjarni vand-
virkur og nákvæmur. Hann gaf tölu-
vert út af gömlum ritum, og fékkst
dálítið við fræðirannsóknir. Til
dæmis má nefna stóru útgáfuna af
Þjóðsögum Jóns Árnasonar, vís-
indalegt afrek sem hann átti veruleg-
an hlut í. Ég skal að öðru leyti ekki
telja fræðistörf hans upp hér, en hitt
fór aldrei á milli mála að nákvæmni
hans var slík að hann hefði þurft að
gera af slíku töluvert meira en
honum vannst tími til. Handtaka
hans sér víða góðan stað í íslenskum
fræðum, og þau voru traust.
Eysteinn Sigurðsson.
Afmælis- og minningar-
greinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða minn-
ingargreinum í blaðinu, er bentá, aðþærþurfaað
berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag.
Þær þurfa að vera vélritaðar.
Mjólkurfélag
Reykjavíkur
Orðsending til félagsmanna
Aðalfundir Félagsdeilda M.R. fyrir árið 1986
verða haldnir sem hér segir:
Reykjavíkur-, Bessastaða-, Garða- og
Hafnarfjarðardeildir
Fimmtudaginn 12. mars kl. 20.30 í skrifstofu
félagsins Laugavegi 164.
Kjósardeild
Föstudaginn 13. mars kl. 14.00 í félagsheimilinu
Félagsgarði.
Vatnsleysustrandar-, Gerða og Miðnesdeildir
Laugardaginn 14. mars kl. 14.00 í Iðnsveinafé-
lagshúsinu Tjarnargötu 7, Keflavík.
Suðurlandsdeild
Mánudaginn 16. mars kl. 14.00 að Inghóli,
Selfossi.
Innri-Akraness-, Skilamanna-, Hvalfjarðar-
strandar-, Leirár- og Melasveitardeildir
Þriðjudaginn 17. mars kl. 14.00 í félagsheimilinu
Fannahlíð.
Mosfells- og Kjalarnessdeildir
Miðvikudaginn 18. mars kl. 15.00 í félagsheimil-
inu Hlégarði, Mosfellssveit.
Aðalfundur félagsráðs
verður haldinn laugardaginn 28. mars að Hótel
Sögu og hefst kl. 11.00 fyrir hádegi.
Stjórn Mjólkurfélags Reykjavíkur.
Heildarvinningsupphæð: 9.469.551
1. vinningur var kr. 6.001.306,-
og skiptist hann á milli 17 vinningshafa, kr.,
353.018,- á mann.
2. vinningur var kr. 1.042.800,-
og skiptist hann á 632 vinningshafa, kr. 1.650,-
á mann.
3. vinningur var kr. 2.425.445,- og skiptist á
11.605 vinningshafa, sem fá 209 krónur hver.
Uppl. sími:
685111
IP Kjörskrá
Kjörskrá til alþingiskosninga, er fram eiga að fara
25. apríl nk. liggur frammi almenningi til sýnis á
Manntalsskrifstofu Reykjavíkurborgar, Skúlatúni
2, 2. hæð, alla virka daga frá 13. mars til 9. apríl
nk., þó ekki á laugardögum.
Kjörskrárkærur skulu hafa borist skrifstofu borgar-
stjóra eigi síðar en 6. apríl nk.
Menn eru hvattir til að kynna sér, hvort nafn þeirra
er á kjörskránni.
Reykjavík 10. mars 1987
Borgarstjórinn í Reykjavík
Atvinna
Ráðskonu vantar á sveitaheimili í Eyjafirði 1. apríl
eða sem fyrst. Allt frítt, góð laun.
Upplýsingar í síma 96-22236.
SPENNUM
BELTIN
sjálfra okkar
vegna!
Spennum beltin
ALLTAF