Tíminn - 07.04.1987, Qupperneq 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 7. apríl 1987.
Þroskahjálp á Vesturlandi:
FÖTLUD BÖRN
FÁ SUMARDVÖL
Þroskahjálp á Vesturlandi fékk
fyrir um 3 árum að gjöf jörðina í
Holti í Borgarhreppi, skammt frá
Borgarnesi, með litlu húsi, þar sem
hún starfrækti sumardvalarheimili
fyrir fötluð börn síðastliðið ■sumar.
Það gafst svo vel, að sögn forstöðu-
manns, Laufeyjar Jónsdóttur,
þroskaþjálfa, að nú hefur verið ráð-
ist í byggingu nýs húss þar sem hægt
er að vista 5 börn í einu allt næsta
sumar.
Launakostnaður er greiddur af
ríkinu, en fjármögnun byggingarinn-
ar fæst með styrkjum sveitarfélaga,
fyrirtækja á svæðinu og með happ-
drættissölu. Væntanlega munu 5
starfsmenn auk forstöðumanns
skipta með sér 8 stöðugildum.
Nýbyggingin er reyndar þegar ris-
in og er verið að ljúka innréttingum.
Vígsla fer fram 3. maí nk. um leið
og dregið er í happdrættinu. Lóðin
er þó enn ófrágengin.
„Forgang til okkar hafa fötluð
börn á Vesturlandi," sagði Laufey.
„Ef einhvern tímann losnar pláss
eru börn annars staðar að velkomin.
Þá er réttast að hafa samband við
svæðisstjórnina í síma 7780.“ þj
Um 500 manns mættu á fundinn
Nýtt merki
nytt vfgoró
Hugmyndasamkeppni
Útflutningsráös íslcinds
Á undanförnum árum hafa íslenskir útflytjendur að mestu leyti
unnið hver í sínu lagi að kynningarmálum fyrir íslenskar vörur og
þjónustu á erlendum mörkuðum. Samstarf hefur helst verið í formi
sérstaks kynningarátaks á ákveðnum mörkuðum. Útflutningsráð
íslands var stofnað skv. lögum 1. okt. 1986. Eitt af markmiðum
með stofnun ráðsins er að leiða saman hina ýmsu aðila sem þurfa
á kynningarátaki erlendis að halda og vinna skipulega að undir-
búningi og framkvæmd slíkrar kynningar.
Liður í undirbúningi þessa starfs er hugmyndasamkeppni sem
ráðið efnir nú til. Samkeppnin er í tveimur liðum:
A. Merki
Merki þetta verður í senn tákn Útflutningsráðs
íslands og allsherjarmerki fyrir sameiginlegar
markaðs- og kynningaraðgerðir erlendis. Merki
þetta verður notað á bréfhaus ráðsins, á bækl-
inga og kynningarefni á vegum ráðsins og í
sameiginlegum aðgerðum fyrirtækja. Það verð-
ur notað sem sameiningartákn fyrirtækja á sýn-
ingum. Einnig verða gefnir út límmiðar með
merkinu.
B. VíGORÐ
Vígorðið á að vera setning á íslensku og ensku
sem aðilar í útflutningi á vöru, þjónustu og
ferðamálum geta sameinast um.
Vígorði þessu er ætlað að lýsa þeirri sameigin-
legu ímynd sem íslendingar vilja koma á fram-
færi við erlenda viðskiptaaðila, neytendur og
ferðafólk.
Æskilegt er að bæði merki og vígorð beri
íslensk sérkenni. Samkeppnin er haldin sam-
kvæmt reglum FÍT, Félags íslenskra auglýs-
ingateiknara og er öllum opin.
Verðlaun
Veitt verða ein verðlaun fyrir tillögu sem
dómnefnd telur þess maklega.
a. Fyrirmerki kr. 250.000
b. Fyrirvígorð kr. 150.000
Tillögur að merki skulu vera 10-15 sm í þver-
mál, þeim skal skila í svörtum lit á hvítan
pappír, pappírsstærð 21,0 x 29,7 (A-4). Ein-
kenna skal tillögurnar með dulnefni, en nafn
höfundar og heimilisfang fylgi með í lokuðu
umslagi. Þátttakendum er heimilt að senda
fleiri en eina tillögu. Skal hver tillaga þá hafa
sérstakt dulnefni og henni fylgja sér umslag
með nafni höfundar.
Dómnefndir
Tvær aðgreindar dómnefndir hafa verið skipað-
ar:
Fyrir merki: Ágúst Ágústsson, Póls-tækni hf.
Einar Hákonarson, listmálari
Erlendur aðili
Fanney Valgarðsdóttir, FÍT
Gylfi Þór Magnússon, S.H.
Sigfús Erlingsson, Flugleiðum hf.
Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri
Útflutningsráðs íslands.
Fyrir vígorð: Benedikt Sveinsson, S.Í.S.
Davíð Scheving Thorsteinsson, Sól hf.
Erlendur aðili
Kristín Þorkelsdóttir, SÍA
Magnús Oddsson, Arnarflugi
Sigurður G. Tómasson
Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri
Útflutningsráðs íslands.
Ritari dómnefndar og jafnframt trúnaðarmaður
keppenda er:
Elín Þorsteinsdóttir
Útflutningsráði íslands
Þátttaka er öllum heimil og geta þátttakendur
snúið sér til hennar og fengið frekari upplýsing-
ar um samkeppnina og um Útflutningsráð
íslands. Síminn er 91-688777.
SKILAFRESTUR er til 1. júní 1987.
Tillögur má setja í póst eða koma til Útflutn-
ingsráðs merktar:
Útflutningsráð íslands
Hugmyndasamkeppni
b.t. Elínar Þorsteinsdóttur
Lágmúla 5, Pósthólf 8796, 128 Reykjavík.
SÝNING
Dómnefnd skal skila niðurstöðum innan eins
mánaðar frá síðasta skiladegi. Efnt verður til
sýningar á tillögunum og þær síðan endur-
sendar. Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af
þóknun höfundar.
Útflutningsráð áskilur sér rétt til að nota þær
tillögur sem dómnefnd velur. Jafnframt áskilur
ráðið sér rétt til að kaupa hvaða tillögu sem er.
ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSIANDS
EXPORT COUNCILOFICEIAND
LÁGMÚLI 5 108 REYKJAVÍK
Forsætisráðherraáfundi hjá íslenskum Aðalverktökum:
Eðlilegt að einn
verktaki semji um
nýframkvæmdir
Sl. miðvikudag buðu starfsmenn
Islenskra Aðalverktaka frambjóð-
endum Framsóknarflokksins í
Reykjaneskjördæmi til fundar í
matsal sínum. Þar mættu Steingrím-
ur Hermannsson, Jóhann Einvarðs-
son og Níels Árni Lund. Hinn stóri
matsalur var fullskipaður og all-
margir stóðu.
Fundinn setti, Karl Georg Magn-
ússon formaður starfsmannafélags-
ins, og skipaði hann Jón Bjarnason
fundarstjóra. Eysteinn Haraldsson
verkfræðingur tók fyrstur til máls og
lagði fyrir frambjóðendur Fram-
sóknarflokksins spurninguna: Hver
er stefna Framsóknarflokksins í mál-
efnum fslenskra Aðalverktaka?
Steingrímur Hermannsson varð
fyrir svörum. Hann kvað stefnu
Framsóknarflokksins vera þá, að
einn íslenskur verktaki, fslenskir
Aðalverktakar, semdi við varnarlið-
ið um nýframkvæmdir. Hann kvað
jafnframt eðlilegt, að íslenskir Aðal-
verktakar framkvæmdu sjálfir það
sem nauðsynlegt væri vegna þeirra
umsvifa og fyrir þá starfsemi, sem
þeir þyrftu að hafa, en byðu hins
vegar út að nýju það sem umfram
væri hverju sinni.
Eða með öðrum orðum, að skipu-
lagið yrði að þessu leyti óbreytt.
Steingrímur- kvaðst hins vegar
telja eðlilegt, að aðild að fslenskum
Aðalverktökum gæti breyst, t.d. að
félag starfsmanna yrði þátttakandi,
ef starfsmenn óskuðu þess.
Steingrímur vakti athygli á því, að
þegar íslenskir Aðalverktakar voru
stofnaðir 1954, var þess krafist af
varnarliðinu, að þeir hefðu ætíð
tilbúinn, hvenær sem á þyrfti að
halda, ákveðinn grundvallarvélakost
og mannafla. Fyrir það yrði ekki
fullnægt, ef bjóða ætti út fram-
kvæmdir á vellinum. Þá yrði herinn
sjálfur að hafa þennan nauðsynlega
viðbúnað. Þetta vildi gleymast þegar
fullyrt væri að framkvæmdir væru
dýrar á Keflavíkurflugvelli.
Að loknu svari Steingríms stóð
Eysteinn Haraldsson verkfræðingur
upp að nýju og þakkaði svörin, sem
hann kvað hafa verið skýr og full-
nægjandi.
Jóhann Einvarðsson og Níels Árni
Lund fluttu þá ávörp. Eftir það
komu nokkrar spurningar frá starfs-
mönnum, sem Steingrímur svaraði,
og lauk síðan fundinum með nokkr-
um orðum.
Að fundi loknum heimsóttu fram-
bjóðendur Framsóknarflokksins
vinnustaði íslenskra Aðalverktaka á
flugvellinum í fylgd Helga Marons-
sonar og Magnúsar Sigfússonar.
Stjórn Búnaðarsambands Suðurlands:
„Grundvöllur að
öflugri stjórn"
Stjórn Búnaðarsambands Suður-
lands hefur sent frá sér fréttatilkynn-
ingu varðandi ráðningu fram-
kvæmdastjóra búnaðarsambands-
ins. Þar segir m.a. „Stjórn Búnað-
arsambandsins hefur í samráði við
starfsmenn sambandsins, Búnaðar-
félags fslands og landbúnaðarráðu-
neytið gert starfssamning við Kjart-
an Ólafsson ráðunaut og ráðið hann
sem „fjármálalegan og fram-
kvæmdalegan framkvæmdastjóra
hjá sambandinu jafnframt því sem
hann gegnir ráðunautastörfum eftir
því sem tími hans leyfir“.
í starfssamningi Kjartans segir
m.a. að honum sé falið að hafa
umsjón með skrifstofu sambandsins
á Selfossi, annast reiknishald, inn-
heimtu gjalda, greiðslur til þeirra
sem starfa á vegum sambandsins,
ráðningu starfsfolks og hafa yfirum-
sjón með eignum og rekstri sam-
bandsins í umboði stjórnar þess,
umsjón með útgáfustarfsemi, vinna
að gerð fjárhagsáætlunar fyrir sam-
bandið og skuli það hvort tveggja
vera í samvinnu við faglega fram-
kvæmdastjóra.
Stjórnin t^kur einnig fram að
hliðstæður starfssamningur hafi ver-
ið gerður við Einar Þorsteinsson
ráðunaut til þess að vera fram-
kvæmdastjóri á jarðræktarsviði og
Svein Sigurmundsson ráðunaut til
'þess að vera framkvæmdastjóri á
búfjárræktarsviði.
„Stjórn Búnaðarsambands Suður-
lands telur að með þessu nýja fyrir-
komulagi sé lagður traustur grund-
völlur að öflugri framkvæmdastjórn,
fjárhags og fagmála Búnaðarsam-
bands Suðurlands" segir enn fremur.
Starfssamningar Kjartans, Sveins
og Einars gilda frá og með 1. janúar
1987 til 1. september 1987.