Tíminn - 07.04.1987, Qupperneq 5
Þriðjudagur 7. apríl 1987.
Tíminn 5
RÚV á köldum klaka
- svipt lögbundnum tekjustofnum og meinuð hækkun afnotagjalda
„Nei, þessi 13% hækkun hefði
ekki dugað til að koma rekstrinum
í jafnvægi, en hún myndi skila um
42 millj. króna á heilu ári. En
þegar verið er að dragast með
uppsafnaðan vanda verður alltaf
erfiðara að rífa sig Upp úr honum
eftir því sem lengra líður,“ sagði
Hörður Vilhjálmsson, fjármála-
stjóri Ríkisútvarpsins.
Útvarpsráð var samhljóða í
þeirri afstöðu sinni sl. föstudag að
lýsa miklum vonbrigðum með þá
ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
synja RUV um 13% hækkun á
afnotagjöldum á 2. ársfjórðungi
þessa árs. Með þeirri hækkun hefði
gjald fyrir afnot allra 3ja stöðva
RUV orðið um 21 kr. á dag (um
15,60 kr. fyrir sjónvarpið og 5,20
fyrir hljóðvarpsstöðvarnar tvær).
Má bera það saman við að lausa-
söluverð dagblaða er t.d. 55 kr.
„Við heyrum víðs vegar að, að
fólk undrast hvað afnotagjaldið er
í raun lágt,“ sagði Hörður, sem
taldi flesta fúsa til að borga heldur
hærra gjald.
Samkvæmt upplýsingum í Hag-
tíðindum hækkaði afnotagjald
RUV aðeins um 15% milli 1985-86
á sama tíma og almennt verðlag í
landinu hækkaði í kringum 25% og
launavfsitala um rúmlega 28%, en
laun eru stór hluti rekstrarkostnað-
ar RUV. Dagblaðaáskrift hækkaði
í takt við annað verðlag um 25%
og aðgöngumiði að Þjóðleikhúsinu
t.d. um tæp 43%. Þessir tveir
þættir kostuðu hvor um sig 500 kr.
sl. haust, eða álíka mikið og af-
notagjald allra 3ja stöðva RUV á
mánuði.
Rekstur RUV stóð nokkurnveg-
inn í járnum árið 1985 en sl. ár
sagði Hörður reksturinn aðeins
hafa skilað 31,6 millj. kr. upp í
afskriftir, sem áttu að nema 95,8
millj. og 80,2 millj. framkvæmda-
sjóðsframlagi lögum samkvæmt.
Úm 144,5 millj. vantaði því á að
dæmið gengi upp. Hækkun í takt
við verðlag á síðasta ári hefði
minnkað þann mun um ca 35 millj.
króna.
Auk þess að synja Ríkisútvarp-
inu um hækkun afnotagjalda í takt
við verðlagshækkanir hefur ríkis-
valdið svipt Ríkisútvarpið tekjum
af aðflutningsgjöldum, sem á síð-
asta ári námu um 153 millj. króna,
sem Hörður sagði setja mikið strik
í reikninginn í ár. „Löggjafarvaldið
sá það fyrir, við setningu nýju
útvarpslaganna, að auglýsingatekj-
ur RÚV mundu dragast saman og
þessvegna var Ríkisútvarpinu
fenginn þessi tekjustofn," sagði
Hörður.
Þar sem meginmarkmiðið sé að
halda úti góðri dagskrá sagði Hörð-
ur hafa verið gripið til þess ráðs að
stöðva allar fjárfestingarfram-
kvæmdir, hreinlega til að stefna
ekki öllu í greiðsluþrot. Afskriftir
verið því að stórum hluta teknar
inn í reksturinn og síðan sé reiknað
með að framkvæmdasjóður láni
inn í reksturinn á meðan hann er í
þessum erfiðleikum. Slíkar að-
gerðir geti þó vitanlega ekki orðið
nema tímabundnar.
Hið alvarlega við niðurskurð
allra framkvæmda telur Hörður
það að geta ekki haldið áfram
uppbyggingu dreifikerfisins. í það
verði nú eingöngu ráðstafað um 7
millj. króna, sem fyrst og fremst
fari í senda fyrir Rás 2, að mestu á
Suð-austurlandi.
Auglýsingatekjur RUV urðu
rúmlega 392 millj. kr. á síðasta ári
- höfðu hjá Sjónvarpinu aukist um
rúmlega 20% milli ára en hljóð-
varpinu aðeins um 10%. Hörður
sagði auglýsingatekjurnar hafa far-
ið mjög alvarlega niður síðustu
mánuði ársins, og þá sérstaklega
hjá hljóðvarpi. Hins vegar væri
útvarpið nokkur að sækja í sig
veðrið á ný eftir góða útkomu í
hlustendakönnunum, þar sem
megnið af auglýsingunum væri nú
orðið selt í á dreifikerfinu sam-
tengdu. -HEI
Spekingslið FB í spurningakeppni framhaldsskólanna, Bjarki Hjálmarsson, Kjartan Ólafsson og Armann
Þorvaldsson. (Tímamynd: Pjetur)
Sigurliö FB í spurningakeppni framhaldsskóla:
Hétu á Framsóknar-
flokkinn til sigurs
- „Loforö er loforö og viö það verður staöið“
Hver sem með fylgdist á vart til
orð yfir snilli sigurliðs Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti og liðs Mennta-
skólans við Sund í spurningakeppni
framhaldsskólanna og þeim fróðleik
sem þau búa yfir. Á laugardag
tókust liðin á, svo sem landslýður
veit, í lokaviðureigninni í beinni
sjónvarpsútsendingu. Mjótt var á
munum. FB-liðið, skipað Ármanni
Þorvaldssyni, Kjartani Ólafssyni og
Bjarka Hjálmarssyni, vann keppn-
ina á einu stigi.
„Ármann Þorvaldsson var að
keppa í íslandsmótinu í badminton
um sama leyti og keppnin fór fram
og það gekk erfiðlega að fá hann til
að lesa,“ sögðu liðsnautar hans.
„Við tókum því á það ráð, þar sem
hann er eitilharður framsóknarmað-
ur, að hcita því að kjósa allir Fram-
sókn ef hann fengist til að lesa og við
ynnum. Jafnvel einn liðsstjóra
okkar, sem er yfirlýstur sjálfstæðis-
maður, lofaði því. Og nú stöndum
við frammi fyrir því, að þeir sem
stóðu að sigri FB kjósa Framsókn-
arflokkinn. Loforð er loforð og við
það stöndum við."
„Sumir segja að við höfum unnið
á málshættinum," sagði Bjarki, en á
þeim lið hlutu þeir 6 stig. „Við
unnum á 1 stigi, þar af leiðandi á
hverju einasta stigi sem við hlutum,
ekki satt?"
Sigurliðið velti dálitla stund fyrir
sér hvort það ætti að upplýsa hvernig
undirbúningi hcfði vcrið háttað.
„Keppnin er livort sem er búin. Við
vorum sex saman, þrír aukamenn
sem aðstoðuðu við gagnaöflun og að
semja spurningar. Margar æfinga-
spurninganna komu svo í keppninni
sjálfri. Auk þess höfðum við stranga
verkaskiptingu og fórum aldrei inn á
annars svið."
Eruð þið þá ekki snillingar?
„Þetta kont allt með æfingu,"
svaraði Kjartan og bætti við að þeir
hefðu í raun opinberað fáfræði sína
yfir matseðlinum á veitingastaðnum,
þar sem þeir hcldu upp á sigurinn í
gærkvöldi. Hvort þeir ætluöu að
taka aftur þátt í keppninni að ári
svaraði liðið einróma neitandi.
„Okkur líður vel sem goðsögnunt í
lifanda lífi," göntuðust þeir og hentu
gaman að því, að fólk scm þeir
mættu á götu sneri sér við og horfði
á eftir þeim. „Við fáum samt því
miður frið á skólaböllum."
„Sigurinn var sykursætur og
óvæntur," svaraði Ármann aðspurö-
ur. „Við höfðum ekki staðið okkur
sem best í undankeppninni í út-
varpi." Heildarstig FB voru 188, að
sögn Ármanns, eða nákvæmlega
jöfn heildarstigum MS, sem varð í 2.
sæti. „Það var þetta eina stig sem
réði úrslitum." þj
Poison til
íslands
í maí í vormun bandaríska hljóm-
sveitin Poison koma til landsins og
væntanlcga halda hcr tónlcika.
Hljómsvcitin cr á kynningarferða-
lagi og ástæða þess að hún kcmur
hingað er sú hversu vcl hljómleikar
The Smithereens tókust, en þessar
hljómsveitir eru báðar hjá söinu
hljómplötuútgáfunni.
Fyrsta stóra plata þeirra, „Look
wliat the Cat dragged in" er um
þcssar mundir í 9. sæti yfir vinsæl-
ustu LP plöturnar hjá því virta
tónlistartímariti Billboard.
Það er tvímælalaust fengur í Poi-
son þar sem hér er á ferðinni hljóm-
sveit sem er vcrðugur fulltrúi nýrrar
kynslóðar í rokkinu. -RR
iV
SS,
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands
verður haldinn að Hótel Sögu, Bænda-
höllinni viö Hagatorg, Reykjavík, fimmtu-
daginn 30. apríl 1987 og hefst kl. 10:00
f.h.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aöalfundarstörf.
Stjórnin
^RARIK
rafmagnsveitur RlKISINS
Tækniteiknari
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa lausttil umsóknar
starf tækniteiknara við svæðisskrifstofu Raf-
magnsveitnanna í Stykkishólmi.
Umsókn er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf
sendist svæðisrafveitustjóra í Stykkishólmi, sem
jafnframt veitir upplýsingar um starfið. Skilafrestur
umsóknar er til 21. apríl n.k.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118,
105 Reykjavík.