Tíminn - 07.04.1987, Síða 12

Tíminn - 07.04.1987, Síða 12
12 Tíminn FRÉTTAYFIRLIT BEIRÚT — Fimm vöruflutn- ingabifreiöar hlaðnar matvæl- um, klæðnaði og teppum fengu að halda inn í Shatila flótta- mannabúðirnar i Beirút þar sem Palestínumenn hafa búið, umsetnir af múslimum úr hópi sjíta. Sýrlendingar reyna nú að halda friðinn á svæðinu en þrátt fyrir nærveru þeirra braust út skothríð er bifreiðarn- ar héldu inn í búðirnar. ANTOFAGASTA, Chile - Sex daga heimsókn Jóhann- esar Páls páfa annars til Chile lauk í gær er páfi hélt til Buenos Aires í Argentínu. Átök brutust út milli lögreglu og ungmenna er páfi hélt á brott áleiðis til Argentínu þar sem öryggisvarsla hefur aldrei verið meiri vegna komu háttsetts leiðtoga. MANILA — Ellefu manns, þar á meðal ráðherra í ríkis- stjórn Ferdinands Marcosar fyrrum forseta, hafa verið ákærð í sambandi við morðið á leiðtoga stjórnarandstöðunn- ar Benigno Aquino árið 1983. MANILA — Sovésk stjórn- völd sögðust vera tilbúin til að fjárfesta í fyrirtækjum á Filipps- eyjum en neituðu hinsvegar að stjórnmálaástæður lægju að baki þessari ákvörðun. PARIS — Franska stjórnin sagðist hafa í fórum sér „ná- kvæmar sannanir" um njósna- starfsemi sex sovéskra stjórn- arerindreka sem vísað var úr landi fyrir helgi. BRÚSSEL — Hussein Jórd- aníukonunaur kom til Brussel og ýtti það enn frekar undir fréttir, að hugmyndin um friðar- ráðstefnu um málefni Mið- Austurlanda væri að taka á sig skýrari mynd. TOKYO — Japanski komm- únistaflokkurinn hefur komist yfir bandarískt skjal og birt þar sem í Ijós kemur að jaþanska ríkisstjórnin hefur í 27 ár haldið leynilegt samkomulag við Bandaríkjastjórn um að bandarískir herir megi koma með kjarnorkuvopn inn í landið. COLOMBO — Helsta skæruliðahreyfing tamila á Sri Lanka hefur drepið meira en 250 manns í átökum við aðra minni hópa tamila. Átökin hóf- ust eftir að reynt var að myrða einn leiðtoga stærsta skæru- liðahópsins. ____________________________ Þriðjudagur 7. apríl 1987. iiiiiiiiiiisi útlönd ... ... ... ... ;:í,.íí!í!!ií;!!:' .. .. .. .. ... Kína: Deng lofar breytingum Pekíng-Rcutcr Deng Xiaoping leiðtogi Kína sagði í gær að áætlun um endurskipu- lagningu stjórnmálakerfis landsins yrði lögð fram á þingi kommúnista- flokksins síðar á þessu ári. Fréttastofan Nýja Kína hafði eftir hinum aldna leiðtoga að áætlunin yrði lögð fram á 13. þingi kommún- istaflokksins sem ráðgert er að halda í októbermánuði. Deng sagði þetta í samtali við Ingvar Carlsson forsæt- isráðherra Svíþjóðar sem nú er í opinberri heimsókn í Kína. Leiðtoginn sagði ekki nánar hvað hann meinti með þessum orðum en kínverskur embættismaður lét hafa eftir sér að þetta þýddi ekki að breyting yrði á hlutverki forystu- manna flokksins. „Þetta þýðir að flokkurinn og ríkisstjórnin verða aðskilin, lýðræði verður aukið innan flokksins og hið sósíalíska löggjafarkerfi verður breitt út,“ sagði embættismaðurinn. Carlsson sagði á blaðamannafundi síðar í gærdag að honum hefði ekki virst Deng vera sú persóna er hefði hug á að láta af störfum. Hann vildi ekki tjá sig um hvað þeim Deng hefði nákvæmlega farið á milli en sagðist geta í stuttu máli útskýrt viðhorf kínverskra ráðamanna: “Friður er mögulegur, regla er nauð- synleg og dyrnar eru opnar“. Svo mörg voru orð Carlssons. Deng Xiaoping Kínaleiðtogi: Lofar breytingum og virðist ekkert vera á því að hvfla sig þrátt fyrir háan aldur. Herforingi á Ítalíu: Tók sér í munn orð unga fólks- ins og var sýknaður fyrir Veróna-Rcutcr ítalskur herdómstóll hefur sýknað þarlendan herforingja af öllum ákærum sem á hann voru bornar fyrir að nota ósæmileg orð er hann talaði til undirmanna , sinna. Hershöfðinginn Franco Bosio, sem verið hefur í hernum í meira en tuttugu ár, var í fyrstu dæmdur skilorðsbundið í tveggja mánaða fangelsi eftir að hafa orðið uppvís að nota orðin „bastarðir. hugleys- ingjar og tíkarsynir” er hann ávarpaði nýja hermenn í borginni Padúa á Norður-Ítalíu. Hinn 55 ára gamli Bosio áfrýj- aði hinsvegar dómnunt og var sýknaður eftir að hafa sagt frammi fyrir herdómstólnum að hann hefði ekki ætlað sér að móðga hermennina. „Ég var að tala um vandamálið í santbandi við skemmdarverk í herbúðunum og til að gera mig skiljanlegan notaði ég það orð- bragð sent ungt fólk notar dags daglega,” sagði Bosio. Bandaríkjastjóm: Flugmóðurskipi stefnt í átt að Persaflóanum Washington-Rcutcr Bandaríkjastjórn ætlar að hafa flugmóðurskip og aðstoðarherskip þess í Indlandshafi, nálægt ströndum írans, næstu vikurnar og jafnvel lengur. Að sögn embættismanna í bandaríska varnarmálaráðuneytinu er þetta gert til að fullvissa hófsöm Arabaríki um stuðning Bandaríkj- anna. Embættismennirnir, sem ekki vildu láta nafns síns getið, sögðu einnig að Kuwaitstjórn hefði ekki þegið, a.m.k. að þessu sinni, boð Bandaríkjastjórnar um að bandarísk herskip fylgdu olíuflutningaskipum í þjónustu Kuwaitstjórnar út og inn um Persaflóann. Þar hafa íranar og írakar verið duglegir við að gera árásir á flutningaskip þau sex ár sem stríð þessara ríkja hefur staðið. Það er flugmóðurskipið Kitty Hawk og ellefu aðstoðarskip þess sem verða staðsett suður undan íransströndum a.m.k. þangað til í maí. Rúmlega áttatíu sprengju- og árásarflugvélar eru á palli Kitty Hawk. Mun stjórnin í Washington vilja með þessari staðsetningu í fyrsta lagi, sýna stuðning sinn við ríki á borð við Saudi Arabíu, Kuwait og önnur sem hliðholl eru Vestur- veldunum, og í öðru lagi, vara írönsk stjórnvöld við því að skjóta kínverskum Silkiorma flugskeytum að skipum er flytjaolíu frá ríkjunum við Persaflóa til Japans, Vestur-Evr- ópu og annarra heimshluta. Herzog forseti ísraels kom til Vestur-Þýskalands í gær: skiptum ríkjanna Bonn-Rcutcr Chaim Herzog forseti ísraels varð í gær fyrsti leiðtogi ríkis síns til að koma í opinbera heimsókn til Vest- ur-Þýskalands. Það var Richard Von Weizsácker forseti Vestur-Þýska- lands sem tók á móti Herzog í Bonn og eftir virðulega athöfn við upphaf þessarar sögulegu heimsóknar var haldið til Bergen-Belsen búðanna þar sem þrjátíu þúsund gyðingar létu lífið á síðustu tveimur árum síðari heimsstyrjaldarinnar. Heimsóknin til Bergen-Belsen búðanna, í grennd við borgina Han- over, mun örugglega hafa vakið upp margar minningar í brjósti Herzogs því hann var einmitt í hópi þeirra hermanna sem náðu búðunum af Þjóðverjum í apríl árið 1945. Herzog var þá 27 ára gamall foringi í breska hernum. Bergen-Belsen voru ekki útrým- ingabúðir með gasklefum cins og t.d. Auschwitz heldur var þarna staður þar sem gyðingar voru fluttir frá útrýmingarbúðum austar í Evr- ópu eftir að Sovétmenn höfðu hafið sókn sína til vestijrs. Margir þeirra gyðinga sem létu lífið í þessum búðum dóu úr hungri eða af völdum sjúkdóma. Ein þeirra sem hvarf í þessum búðum var Anna Frank en dagbók hennar hefur verið með víðlesnari bókum í gegnum árin. Von Weizsacker forseti Vestur- Þýskalands fór í heimsókn til ísraels- ríkis árið 1985 og virti almenningur í ísrael hann mjög vegna þeirrar ferðar og sérstaklega vegna yfirlýs- inga um að Þjóðverjar ættu ekki að neita að bera ábyrgð á sögu lands síns. Með för sinni er Herzog að endur- gjalda Weizsácker heimsókn sína til ísraels og brjóta blað í samskiptum þjóðanna sem hafa hingað til ein- kennst af tortryggni og hatri eftir útrýmingarherferð nasista á hendur gyðingum á sínum tíma. Chaim Herzog forseti ísraels: Söguleg heimsókn tilVestur-Þýskalands. Blað brotið í sam-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.