Tíminn - 14.04.1987, Page 12
12 Tíminn
Þriðjudagur 14. apríl 1987.
FRETTAYFIRLIT
SEOUL - Chun Doo Hwan
forseti Suöur-Kóreu féll frá fyrri
ákvöröun sinni og sagðist ekki
ætla aö leyfa breytingar á;
stjórnarskrárlögum fyrr en í
febrúar á næsta ári. Þá lýkur
sjö ára kjörtímabili hans og á
hann aö láta af störfum.
ÚTLÖND
flllllllll!
9IIIIIIIIII!
TEL AVIV - Israelskir her-
menn skutu palestínskan stúd-
ent til bana og særðu fimm
aöra mótmælendur í verstu
átökunum á þessu ári á hinum
hertekna Vesturbakka. Skot- ■
hríðin átti sér stað viö Bir Zeit
háskólann.
WASHINGTON - Nú tíu
árum eftir olíukreppuna miklu
hafa sérfræöingar aftur
áhyggjur af því aö Bandaríkin
og önnur iðnaðarríki Vestur-
veldanna séu aö veröa háöari
olíu frá Mið-Austurlöndum á
nýjan leik.
RÓM - Jóhannes Páll páfi
annar kom aftur til Rómar eftir
tveggja vikna ferð um Suöur-
Ameríku. Þar heimsótti hann
nítján borgir í Uruguay, Chile
og Argentínu.
BELFAST - Lögregla á
Norður-írlandi lokaöi svæöi við
landamærin viö írland eftir aö
skæruliðar írska lýðveldishers-
ins (IRA) höföu tilkynnt aö þeir
heföu tekið svikara af lífi og
skilið lík hans eftir í stolnum bíl.
MOSKVA - Yevgeny
Chazov, hinn nýi heilbrigðis-
málaráöherra Sovétríkjanna,
gagnrýndi lélegt heilbrigði-
skerfi í landi sínu og sagöi
embættismenn þessa kerfis
ekki hafa fundiö upp á neinu
nýju síðustu tvo áratugina.
LUNDÚNIR - Hæstarétta-
dómari í Lundúnum dæmdi
gegn því aö 26 aðdáendur
knattspyrnuliösins Liverpool
yröu framseldir til Belgíu þar
sem þeirra biöu ákærur, meðal
annars fyrir manndráp, vegna
höimungaatburöarins á Hey-
sel leikvanginum í Brussel áriö
1985.
BRÚSSEL - Khan Junejo
forsætisráðherra Pakistan
kom í aær til Brussel til aö
ræða viö embætttismenn Evr-
ópubandalagsins um stríöiö í
Afganistan og viðskipti lands
síns viö Evrópubandalagið.
WASHINGTON - And-
stæðingar kynþáttaaðskilnað-
arstefnu Suöur-Afríkustjórnar
í bandaríska þinginu reyna nú
að beita sér fyrir að ísraels-
stjórn beiti S-Afríkustjórn refsi- |
aogeröum, annars fái hún ekki
hernaðarstyrk frá Bandaríkja-
stjórn.
Shultz kom til Sovétríkjanna í gær:
Ströng fundarhöld
Utanríkisráðherrar stórveldanna ræddu um meðaldrægar kjarnorkuflaugar fram á kvöld
Moskva-Reutcr
George Shultz utanríkisráðherra
Bandaríkjanna kom til Moskvu-
borgar í gær og hóf þegar viðræður
um afvopnunarmál við kollega sinn
Eduard Shevardnadze. Shultz flaug
frá Helsinki og voru háttsettir ráð-
gjafar og sérfræðingar í för með
honum.
Utanríkisráðherrarnir áttu saman
tvo fundi í gærdag og á milli þeirra
sótti Shultz hádegisverðarboð gyð-
inga í Moskvu. Síðdegis í gær til-
kynnti svo Charles Redman talsmað-
ur utanríkisráðuneytisins banda-
ríska að þeir Shultz og Shevardnadze
myndu eiga enn einn fundinn er átti
að standa til kvölds.
Samkvæmt heimildum snérust
viðræðurnar í gær um hugsanlegan
samning um að fj arlægj a meðaldræg-
ar kjarnorkuflaugar risaveldanna frá
Evrópu. Náist slíkt samkomulag
verður það fyrsti afvopnunarsáttt-
málinn sem ríkin tvö gera með sér í
nærri áratug.
Heimsókn Shultz mun standa
fram á miðvikudag og er búist við að
utanríkisráðherrann bandaríski
muni mótmæla njósnum Sovétm-
anna í sendiráði Bandaríkjanna í
Shevardnadze og Shultz ræddu saman í Moskvuborg í gær
Moskvu. Þetta mál hefur valdið
kólnandi samskiptum stórveldanna
að undanförnu og verið mjög í
sviðsljósinu.
En þrátt fyrir hörð orðaskipti í
tengslum við njósnamálið hafa
stjórnir beggja ríkja látið að því
liggja að aldrei hafi þau verið nær
samkomulagi um að fjarlægja allar
meðaldrægar SS-20 flaugar Sovétm-
anna og stýriflaugar og Pershing-2
flaugar Bandaríkjamanna frá Evr-
ópu.
Mikhail Gorbatsjov og stjórn hans
hafa í þessu máli tvívegis gefið
tóninn fyrir samkomulagi, fyrst í
febrúar jjegar Sovétleiðtoginn vék
frá kröfu sinni að samkomulag um
að fjarlægja mcðaldrægu flaugarnar
þyrfti að vera tengt geimvarnaráætl-
un Bandaríkjastjórnar.
Síðan það gerðist hafa stjórnir
ríkja Vestur-Evrópu minnt á yfir-
burði Sovétmanna í fjölda skamm-
drægra eldflauga en í síðustu viku
lagði Gorbatsjov til að viðræður um
fækkun slíkra flauga yrðu teknar
upp án tafar.
Líkur á að samkomulag náist um
meðaldrægu flaugarnar eru þó
nokkrar, talið cr að Reagan Banda-
ríkjaforseti þrái slíkt samkomulag
áður en hann lætur af embætti árið
1989 og Gorbatsjov virðist reiðubú-
inn að koma til móts við Vesturveld-
in í þessu máli.
Shultz hittir Gorbatsjov að máli í
dag og mun einnig halda veislu til
heiðurs starfsfólki sendiráðsins í
Moskvu.
Spegillinn í Vestur-Þýskalandi segir aö Rúdolf Hess
verði bráðlega látinn laus:
Efasemdir hjá
embættismönnum
Vcstur Berlín-Rcutcr
Embættismenn í herjum Bandam-
anna lýstu í gær yfir miklum efa-
semdum um frétt vestur-þýska tíma-
ritsins Der Spiegel, að staðgengill
Hitlers Rudolf Hess yrði bráðlega
látinn laus úr Spandau fangelsinu,
hefði við rök að styðjast.
Frétt Spegilsins unt helgina kom
frá Moskvu og var í henni sagt að
ÚTLÖND
UMSJÓN:
Heimir
Berqsson
BLAÐAMAÐUR
Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi
hefði í hyggju að gefa samþykki sitt
fyrir að Hess yrði látinn laus á
mannúðarlegum forsendum. Fyrri
tilraunir til að fá hinn 92 ára gamla
fanga lausan úr Spandaufangelsinu í
Berlín hafa ekki tekist vegna and-
stöðu Sovétstjórnarinnar.
Embættismennirnir cr starfa fyrir
þau fjögur ríki er ábyrgjast vörslu
Hess, Sovétríkin, Bretland, Frakk-
land og Bandaríkin sögðust ekki vita
til þess að afstaða Moskvustjórnar-
innar hefði breyst.
„Það er mjög ólíklegt að Gobat-
sjov taki upp á að láta tilfinningar
ráða gerðum sínum. Hvað myndi
hann græða á því?“, sagði einn
embættismannanna. Annarsagði að
Gorbatsjov ætti á hættu að móðga
eldri meðlimi kommúnistaflokksins
ef hann tæki upp á þessu. Hinir eldri
líta á Hess sem ímynd herja nasista
er drápu tuttugu milljónir Sovétm-
anna í síðari heimsstyrjöldinni.
Hess var hnepptur í Spandaufang-
elsið eftir réttarhöldin í Núremburg
árið 1946. Hann hefur verið eini
fanginn í því fangelsi síðan árið
1966.
Italía:
Harðsoðin
eggjamynd
Levico Terme, Ítalíu-Reuter
ítalski listamaðurinn Elio Ciola
kemst líklegast á síður heims-
metabókar Guinness innan skamms.
Hann hefur nefnilega verið að dunda
sér við það að undanförnu að búa til
mynd úr 38.990 harðsoðnum eggjum
af ýmsum gerðum og litum.
Myndin er 28,75 metrar sinnum
4,2 metrar að stærð og á hún að lýsa
hinum fjórum frumþáttum, loftinu,
vatninu, jörðinni og eldinum.
Listamaðurinn hyggst komast inn
á síður heimsmetabókarinnar fyrir
að hafa gert heimsins stærstu mós-
aíkmynd, eingöngu úr harðsoðnum
eggjum.
Bandaríkin:
Glæpumfjölgareða
fækkar allt eftir
hvernig á er litið
Washington-Reuter
Glæpum fækkaði í Bandaríkjun-
um um 2% á síðasta ári og hafa
þeir ekki verið færri síðan dóms-
málaráðuneytið hóf að kanna tíðni
glæpa í landinu árið 1973.
Það var sú deild innan dóms-
málaráðuneytisins sem fæst við töl-
ur er kannaði glæpatíðnina. Hún
komst að þeirri niðurstöðu að
þjófnaðir hefðu verið 34,2 milljón-
ir talsins, samanborið við 34,9
milljónir árið 1985.
Ofbeldisglæpum fækkaði einnig
á síðasta ári, alls um 7%.
Þessi könnun dómsmálaráðu-
neytisins kemur ekki heim og sam-
an við tölur sem alríkislögreglan
FBI mun gera opinberar á næst-
unni. Þar er því haldið fram að
alvarlegum glæpum hafi fjölgað
um 6% á síðasta ári.
Könnun dómsmálaráðuneytisins
var byggð á viðtölum við rúmlega
hundrað þúsund einstaklinga í
landinu og út frá því úrtaki var
reiknaður fjöldi glæpa. Tölur FBI
byggja hinsvegar á glæpum sem í
raun voru tilkynntir lögreglunni.
Það er einnig munur á hvernig
glæpir eru skilgreindir og í könnun
dómsmálaráðuneytisins eru t.d.
allir viðskiptaglæpir undanskildir.
Assad Sýrlandsforseti: Til Moskvu í
mánuðinum.
Assad til
Moskvu í
mánuðinum
Moskva-Reuter
Hafez Al-Assad forseti Sýrlands
mun heimsækja Sovétríkin síðar í
þessum mánuði. Það varfréttastofan
Tass sem skýrði frá þessu í gær.
Tass sagði að Assad kæmi til
Moskvu í síðari hluta aprílmánaðar
en gaf engin nánari fyrirmæli.
Assad heimsótti Sovétríkin síðast
í júnímánuði árið 1985 og átti þá
viðræður við Mikhail Gorbatsjov
leiðtoga landsins um ástandið í Lí-
banon og framtíð Palestínumanna.
Tilkynningin nú um heimsókn
Assads fylgir hinsvegar í kjölfar
stjórnmálaþreifinga víða um heim
er miða að því að koma á alþjóðlegri
friðarráðstefnu í Mið-Austurlönd-
um.
Stjórnir bæði Sovétríkjanna og
Sýrlands hafa bæði stutt grunnhug-
myndina að slíkri ráðstefnu en Sýrl-
endingar hafa þó neitað þeirri hug-
mynd að ræða beint við ísraelsmenn
um friðarsamkomulag milli þjóð-
anna tveggja.
Sovétstjórnin hefur skrifað undir
vináttusáttmála við Sýrlandsstjórn
og útvegar henni verulegt magn af
vopnum.