Tíminn - 16.05.1987, Qupperneq 10
10 Tíminn
Laugardagur 16. maí 1987
Skuldir þjóöarinnar aukist úr 77% í 129% af landsframleiðslu 1980-1986:
Einstaklingar 21 faldað
skuldir sínar frá 1980
Einstaklingar hafa meira en 21
faldað skuldir sínar í krónum talið
(úr 2,7 í 58,5 milljarða króna) það
sem af er þessum áratug. Þarna er
um nær þreföldun á skuldum að
ræða miðað við hækkun lánskjara-
vísitölu, og sömuleiðis um hátt í
þreföldun skulda þótt miðað sé við
hlutfall af landsframleiðslu. Á
þessum 6 árum hafa skuldir ein-
staklinga hækkað úr 13,8% í 37%
af landsframleiðslu.
Þótt einstaklingum (háttvirtum
kjósendum) sé gjarnt að skammast
út í ríkið og pólitíkusana fyrir
skuldasöfnun og óráðssíu er raunin
sú að sjálfir hafa þeir verið helm-
ingi duglegrí við skuldasöfnunina á
undanfömum árum heldur en
ríkissjóður og ríkisstofnanir. Ein-
staklingar skulda nú orðið um
9.000 milljónum króna meira en
sjálfur ríkissjóður og stofnanir í
hans eigu.
Skuldum 204 milljarða
í ársskýrslu Seðlabankans kem-
ur fram að heildarútlán í íslenska
lánakerfinu námu um 15 milljörð-
um króna í árslok 1980 en voru
komin í um 204 milljarða króna
um síðustu áramót sem er um 13,5
földun í krónutölu en um 78%
hækkun miðað við hækkun láns-
kjaravísitölu og hækkun úr 77% í
129% sé miðað við hlutfall af
landsframleiðslu. Skuldir einstak-
linga voru því aðeins um 18% af
heildarskuldunum í upphafi ára-
tugarins en komnar í um 29% af
þeim um síðustu áramót.
Einstaklingar skuldugri
en ríkissjóður
Árið 1980 skuldaði ríkið rúma
3,9 milljarða króna eða um 44%
meira en einstaklingarnir í landinu.
Um síðustu áramót skuldaði ríkið
um 49,6 milljarða, eða 15% minna
en einstaklingamir. í byrjun þessa
áratugar voru skuldir atvinnuveg-
anna um 7,4 milljarðar króna eða
um helmingur heildarskuldanna og
um 173% hærri en skuldir einstakl-
inganna (heimilanna), árið 1982
voru þær um 133% hærri, árið 1984
94% hærri og á síðasta ári skulduðu
atvinnuvegirnir aðeins orðið um
48% meira en einstaklingarnir
(heimilin) í landinu.
Hverjir eru duglegastir
við offjárfestingu?
Þessi skuldasöfnun einstaklinga
umfram ríki og atvinnureksturinn
vekur óneitanlega þá spurningu
um hverjir hafi staðið mest í hinni
margumræddu offjárfestingu í
þjóðfélaginu. (Má t.d. í þessu
sambandi rifja upp að árið 1983 fór
fjórðungur af öllu lánsfé til hús-
bygginga til fjölskyldna sem
byggðu hátt í 60 fermetra á fjöl-
skyldumeðlim eða stærra og að
það sama ár voru byggðir yfir
100.000 fermetrar af íbúðarhús-
næði umfram það sem til þurfti til
að halda óbreyttum húsakosti mið-
að við fólksfjölda. (Þessar upplýs-
ingar komu fram í áfangaskýrslu
nefndar þeirrar sem Stefán Ingólfs-
son veitti forstöðu).
Meira til einstaklinga
minna til ríkis og
fyrirtækja
í skýrslu Seðlabankans segir
i.a.: „Það sem einkum einkennir
fjárfestingalánasjóðina hin síðari
ár, er að útlán frá þeim fara í
auknum mæli til einstaklinga, en
hlutur fyrirtækja og opinberra að-
ila fer minnkandi að sama skapi.
Skýringin felst í þeirri áherslu, sem
lögð hefur verið í aukin lán út á
íbúðir frá Byggingarsjóði ríkisins,
sérstaklega árin 1985 og 1986.“
Sem kunnugt er hefur pólitíska
umræðan að undanförnu þó í veru-
legum mæli snúist um þörf á miklu
meiri peningum til útlána í hús-
næðiskerfinu.
Staöa peningalegs sparnaöar í árslok
á verölagi 1986
Sparisk. og
happdr.sk.brs
Innstæður
og seðlar
1975
Lán lánakerfisins
Stöðutölur í árslok á verðlagi 1986
Til atvinnu-
fyrirtækja -
Til bæjar- og sveitarfélaga
Til rikis
Til heimila
1975 76 77 78 79 80 81 82 83 84 85 86
Athyglisvert er að þótt fólk borgaði
sín 10% af launum í lífeyrissjóðina
og legði peninga í banka jukust
innistæður í þessum stofnunum
raunverulega nánast ekki neitt á
árunum 1975-1980, minnkuðu
meira að segja árið 1979. Enn
borgum við 10% af launum í lífeyr-
issjóðina en þó hafa þeir hins vegar
vaxið um 135% eða að raunvirði
um 20 milljarða frá árinu 1980 og
bankainnistæðumar um 64% á
sama tima.
Hin mikla aukning á skuldasöfnun
einstaklinga frá 1980 umfram opin-
bera aðila og atvinnuvegina kemur
glöggt fram á þessari mynd. Næstu
5 árin á undan sá verðbólgan og
neikvæðir vextir um að lækka
skuldimar álíka mikið og við þær
bættist og stundum meira en það.
Þannig hafa skuldimar t.d. lækkað
á núvirði um c.a. 10 milljarða
króna á árinu 1979 og innistæður í
bönkum og lífeyrissjóðum (sjá efri
mynd) nokkumveginnn' sama hlút-
falli.
Heildarskuldirnar úr
77% 1129% af
landsframleiðslu
Mælt sem hlutfall af landsfram-
leiðslu á hverjum tíma voru heild-
arskuldir þjóðarinnar um 77% af
landsframleiðslu árið 1980 en hafa
verið í kringum 130% af lands-
framleiðslu frá 1984,og lækkuðu
þó heldur í fyrra. Skuldahlutfall
ríkisins var þar af um 20% af
landsfr. árið 1980, komst upp undir
35% árið 1984 en var aftur komið
niður í rúm 31% um síðustu ára-
mót. Sömu hlutföll atvinnuveg-
anna voru um 38%, fór í 58% árið
1984 en hefur síðan lækkað um
3%. Hluti bæjar- og sveitarfélaga
var um 5,3% af landsframleiðslu
1980, hækkaði verulega til 1984 en
hefur síðan lækkað aftur í 6%.
Skuldir einstaklinga
úr 14% í 37% af
landsframleiðslu
Miðað við hlutfall af landsfram-
leiðslu hafa því bæði opinberir
aðilar og atvinnuvegirnir heldur
lækkað skuldir sínar á undanförn-
um árum. Einstaklingarnir em þeir
einu sem hafa hækkað skuldir sínar
jafnt og þétt. Sem hlutfall af lands-
framleiðslu var það tæplega 14%
árið 1980, komið í tæp 30% árið
1984, 34% árið 1985 og upp í 37%
af landsframleiðslu um síðustu ára-
mót og því verulega yfir ríkisskuld-
irnar sem fyrr segir.
Skuldasöfnun
einstaklinga mest
1981 og 1983
Er þessi aukning þá ekki fyrst og
fremst til komin vegna misgengis-
ins og kaupránsins 1983 spyr sjálf-
sagt einhver? Ekki sýnist þó auð-
velt að rekja hana alla beint
þangað. Skuldaaukningin umfram
vísitöluhækkanir var mest á árun-
um 1981, 1982 og 1984, milli 19 og
23% umfram vísitöluhækkanir, en
16% umfram vísitöluhækkanir árin
1983, 1985 og 1986. Samtals er
þetta 178% hækkun umfram vísit-
öluhækkanir, eða nær þreföldun
að raunvirði eins og áður er sagt.
Um 62% skuldanna
innlent fjármagn en
38% erlend lán
En hver lánar okkur svo allar
þessar 203.949 milljónir sem við
Þessi tafla úrársskýrslu Seðlabank-
ans sýnir hvernig heildar skuldir
okkar hafa hækkað úr rúmlega 15
milljörðum í tæpa 204 milljarða frá
árslokum 1980 til síðustu áramóta
og peningaeign okkar úr 9,3 millj-
örðum í 126,6 milljarða á sama
tíma. Mismunurinn er erlendu
lánin. Athyglisvert er hvað skuldir
einstaklinga (heimilanna) hafa
hækkað hlutfallslega miklu meira
en annarra.
Skuldir:
Tafla VI. 1. Lánakerfið. Peningalegur spamaður 9.308 26.301 63.405 126.640
(Stöðutölur í árslok í millj. kr.) Frjáls 5.358 14.252 31.769 65.328
Innlán og seðlar Spariskírteini 4.097 11.069 26.052 51.174
oghappdrættisbréf 905 2.220 3.700 8.470
Markaðsbréf, ót.a. 260
Annar 356 963 2.017 5.424
1980 1982 1984 1986 Kerfisbundinn 3.950 12.049 31.636 61.312
Etgntr Eignir Lífeyrissjóða 1.922 6.613 16.987 34.250
Útlán 15.114 47.510 121.728 203.949 Skylduspamaður í fjárfestingarlánasj. 251 554 1.096 1.736
Ríkissj. og ríkisst. 3.918 12.150 32.339 49.606 Eigiðfé lánast. o.fl. 1.778 4.882 13.555 25.326
Bæjar- og svcitarf. Atvinnufyrirtæki 1.041 3.666 7.937 7.431 22.180 53.889 9.556 86.300 Erlent lánsfjármagn 5.806 21.209 58.323 77.309
Hcimili 2.724 9.514 27.563 58.48'' Löng erlend lán 5.858 19.866 52.248 75.947
Eignir=skuldir 15.114 47.510 121.728 203.949 Stutt lán Stuttar kröfur á útlönd 985 -1.037 3.084 —1.741 8.658 -2.583 13.062 -11.700
skulduðum (um 840 þús. á hvern
landsmann) um síðustu áramót?
Um 65 milljarðar var frjáls inn-
lendur sparnaður, þar af rúmlega
51 milljarður í bankakerfinu og hitt
í spariskírteinum og öðrum
skuldabréfum og eignum. Kerfis-
bundinn spamaður var rúmlega 61
milljarður, þar af rúmlega 34 millj-
arðar í lífeyrissjóðunum. Miðað
við að einstaklingar eigi lífeyris-
sjóðina og meirihluta af innlánum
í bönkunum eiga þeir mikinn
meirihluta af þessu fé og sem heild
mun hærri upphæð en þeir skulda.
Lang mestur hluti lána einstaklinga
er og hefur verið af innlendu fé.
Einmitt það atriði taldi hag-
fræðingur einn sem undirrituð
ræddi við höfuðskýringuna á þess-
ari miklu skuldasöfnun þeirra, þ.e.
að fyrir 1980 hafi þeirra lán verið
að mestu óverðtryggð og þar með
brunnið upp í verðbólgunni jafn
harðan. Ríki og atvinnurekendur
hafi að stórum hluta verið með
erlend lán sem þar með voru í raun
verðtryggð. Þeir rúmlega 77 mill-
jarðar sem á vantaði að innlendur
spamaður dygði fyrir öllum lánun-
um vom síðan fengnir með hinum
margumræddu erlendu lánum, sem
við þurfum nú að nota fimmta
hvern fisk til að borga vextina af.
Erlendu lánin vom rúmlega 38%
af heildarskuldunum árið 1980,
komin upp í 48% árið 1984 en
síðan aftur minnkað vemlega eða
niður í 38% af heildarskuldunum á
síðasta ári.
Mun duglegri við
skuMasöfnun
en spamað
Athyglivert er að á sama tíma og
skuldir einstaklinga í krónum talið
meira en 21 földuðust náðu innlán
í bannkakerfinu aðeins að 13
faldast, eignir Iífeyrissjóðanna tæp-
lega að 18 faldast, spariskírteini
ríkissjóðs að rúmlega 9 faldast og
skylduspamaður unga fólksins
aðeins að 7 faldast. Þótt banka- og
stjómmálamenn hafi fagnað aukn-
um spamaði landsmanna nú á allra
seinustu ámm virðast einstaklingar
þó enn duglegri við að auka skuldir
sínar en spamað.
Skuldum Húsnæðis-
stofnun 22.400 milljónir
Af þeim um 58,5 milljörðum
sem einstaklingar skulduðu um
síðustu áramót vom um 22,4 millj-
arðar hjá Húsnæðisstofnun. Þá má
áætla að einstaklingar hafi skuldað
drjúgan hluta þeirra 22 milljarða
sem lífeyrissjóðirnir eiga umfram
það sem þeir hafa lánað fjárfesting-
arlánasjóðum. Þar við má bæta
rúmlega 12 milljörðum sem ein-
staklingar skulduðu í bönkum og
sparisjóðum.
Verðum ekki feit af
núverandi eign í
lífeyrissjóðunum
Mörgum hefur orðið tíðrætt um
gífurlega fjársöfnun lífeyrissjóð-
anna á undanförnum árum, og 34
milljarðar króna eru að vísu dálag-
legur skildingur. Ef við hins vegar
skiptum upphæðinni milli ca. 135
þús. vinnandi manna og lífeyris-
þega í landinu koma aðeins um 250
þús. krónur í hlut hvers og eins.
Fáir verða því feitir í mörg ár sem
lífeyrisþegar af þeim sjóði sem þeir
hafa nú þegar safnað sér með
þessum hætti. -HEI