Tíminn - 19.05.1987, Side 19
Þriðjudagur 19. maí 1987
Tíminn 19
Þriðjudagur
19. maí
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin - Jón Baldvin Halldórsson og
Jón Guðni Kristjánsson. Fréttir eru sagðar kl.
7.30 og 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Tilkynning-
ar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. Guðmundur
Sæmundsson talar um daglegt mál kl. 7.20.
Fréttir á ensku sagðar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barnanna: „Ottó nashyrn-
ingur“ eftir Ole Lund Kirkegárd Valdís Ósk-
arsdóttir les þýöingu sína (2).
9.20 Morguntrimm. Lesið úr forustugreinum dag-
blaðanna. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn - Hvað segir læknirinn?
Umsjón: Lilja Guðmundsdóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Fallandi gengi“ eftir Er-
ich Maria Remarque. Andrés Kristjánsson
bvddi. Hjörtur Pálsson les (19).
14.30 Tónlistarmaður vikunnar. Jakob Magnús-
son.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Landpósturinn Frá Suðurlandi. Umsjón:
Hilmar Þór Hafsteinsson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleikar. a. Norski strengjakvart-
ettinn leikur Kvartett í F-dúr eftir Edvard Grieg.
b. Renata Tebaldi syngur lög eftir ítölsk
tónskáld. Richard Bonynge leikur með á píanó.
17.40 Torgið. Umsjón: Steinunn Helga Lárusdóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni
sem Guðmundur Sæmundsson flytur.
19.40 „La Boheme", ópera eftir Giacomo Carlo
Bergonizi, RenataTebaldi, Cesare Siepi, Ettoro
Bastianini, Gianna D’Angelo og Fernando Cor-
ena flytja atriði úr óperunni með kór og hljóm-
sveit Tónlistarskólans í Róm; Tullio Serafin
stjórnar.
20.40 Félagsleg þjónusta Umsjón: Hjördís Hjart-
ardóttir og Asdis Skúladóttir. (Áður útvarpað i
þáttaröðinni „I dagsins önn“ 17. febrúar s.l.)
21.10 Létttónlist.
21.30 „Þýtur i skóginum", saga eftir Vladimir
Korolenko Guðmundur Finnbogason þýddi.
Kristján Franklín Magnús les síðari hluta.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Leiklist á Akureyri. Hilda Torfadóttir tekur
þátt í sjötugsafmæli Leikfélags Akureyrar. M.a.
ræðir hún við Guðmund Gunnarsson, Harald
Sigurðsson, Harald Sigurgeirsson, Jón Kristins-
son, Sigríði Pálínu Jónsdóttur og Þóreyju Aðal-
steinsdóttur. Einnig fluttir kaflar úr leikritum sem
Leikfélagið hefur fært upp. (Áður útvarpað á
annan i páskum, 20. apríl s.l.)
23.20 Islensk tónlist. a. Háskólakórinn syngur
íslenska tvísöngva, þjóðlög og lög eftir Hjálmar
H. Ragnarsson, Atla Heimi Sveinsson og Karl
Einarsson Dunganon; Hjálmar H. Ragnarsson
nar. b. Philip Jenkis leikur á píanó Fjögur
Isleftsk-líióðlög í útsetningu Hafliða Hallgríms-
sonar.
24.00 Fréttir. Dagskrarfok-
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morauns.
00.10 Næturútvarp Rafn Jónsson stendur vaktina.
06.00 í bítið Erla B. Skúladóttir léttir mönnum
morgunverkin, segir m.a. frá veðri, færð og
samgöngum og kynnir notalega tónlist í morg-
unsárið.
09.05 Morgunþáttur í umsjá Kolbrúnar Halldórs-
dóttur og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Meðal
efnis: Tónlistargetraun, óskalög yngstu hlust-
endanna og fjallað um breiðskífu vikunnar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Leifur Hauksson kynnir létt lög
við vinnuna og spjallar við hlustendur.
16.05 Hringiðan Umsjón: Broddi Broddason og
Margrét Blöndal.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Nú er lag Gunnar Salvarsson kynnir gömul
og ný úrvalslög. (Þátturinn verður endurtekinn
aðfaranótt fimmtudags) kl. 02.00).
21.00 Poppgátan. Gunnlaugur Sigfússon og
Jónatan Garðarsson stýra spurningaþætti um
dægurtónlist. (Endurtekinn þáttur frá laugar-
degi).
22.05 Heitar krásir úr köldu stríði Magnús Þór
Jónsson og Trausti Jónsson dusta rykið af
gömlum 78 snúninga plötum Rikisútvarpsins
frá árunum 1945-57.
23.00 Við rúmstokkinn. Guðrún Gunnarsdóttir
býr fólk undir svefninn með tali og tónum.
00.10 Næturútvarp Gunnlaugur Sigfússon stend-
ur vaktina til morguns.
02.00 Tilbrigði. Þáttur í umsjá Hönnu G. Sigurðar-
dóttur. (Endurtekinn frá laugardegi).
Fréttir eru sagðar kl. 7.00, 8.00, 9.00, 10.00,
11.00,12.20,15.00,16.00,17.00,18.00,19.00,
22.00 og 24.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar
18.03-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni - FM 96,5 Fjallað um menningarlif og
mannlíf almennt á Akureyri og í nærsveitum.
Þriðjudagur
19. maí
18.00 Villi spæta og vinir hans. Átjándi þáttur.
Bandarískur teiknimyndaflokkur. Þýðandi
Ragnar Ólafsson.
19.00/Evintýri barnanna - Skautakeppnin
(Munnspell og snabelsköyter) Þriðji þáttur í
norrænum barnamyndaflokki. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir. Sögumaður Róbert Arnfinnsson.
(Nordvision - Norska sjónvarpið).
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Poppkorn. Umsjón: Guðmundur Bjarni
Harðarson, Ragnar Halldórsson og Guðrún
Gunnarsdóttir. Samsetning: Jón Egill Bergþórs-
son.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dagskrá.
------ ...W. WW.WI IMM.. (IIIIIU IVI IVIUIUCI I r-IIUJI jJUll'
ur Nýr, breskur sakamálamyndaflokkur í sex
sjálfstæðum þáttum. Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
21.35 Úr frændgarði Rætt er við tvær kjarnakonur:
Ritt Bjærregárd, einn leiðtoga danskra jafnað-
armanna og fyrrum menntamálaráðherra, og
Hlín Baldvinsdóttur, hótelstjóra í Kaupmanna-
höfn, sem segir frá óvenjulegu forstjóranám-
skeiði. Umsjón: ögmundur Jónasson frétta-
maður.
22.10 Vestræn veröld (Triumph of the West) 10.
Duttlungar valdsins Heimildamyndaflokkur í
þrettán þáttum frá breska sjónvarpinu (BBC).
Umsjónarmaður John Robeils sagnfræðingur.
Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson.
23.00 Fréttir í dagskrárlok.
aðstoðar 14 ára stúlku við að hafa upp á
morðingja föður hennar. Kempan John Wayne
þykir sjaldan hafa sýnt betri leik og fékk hann
Óskarsverðlaun fyrirframmistöðu sina í þessari
mynd.
00.30 Dagskrárlok.
[ŒUÍ'fUjJ
(t
4
STOÐ2
Þriðjudagur
19. maí
17.00 Stjörnuvíg (Startrek II). Bandarisk stjörnu-
stríðsmynd. Áhöfnin á Enterprise berst við
klæki illræmds snillings sem býr á fjarlægri
plánetu. Aðalhlutverk: Leonard Nimoy, William
Shatner og DeForest Kelley. Leikstjóri: Robert
Wise.
18.40 Myndrokk.______________________________
19.05 Hetjur himingeimsins Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Návígi Yfirheyrslu- og umræðuþáttur í um-
sjón fréttamanna Stöðvar 2._______________
20.40 Húsið okkar Bandarískur gamanþáttur um
þrjár kynslóðir undir sama þaki.
21.20 Brottvikningin (Dismissal) Nýr, ástralskur
þáttur í þrem hlutum. Fyrsti þáttur. Árið 1975 var
forsætisráðherra Ástralíu vikið frá störfum.
Brottrekstur hans var upphaf mikilla umbrota í
áströlskum stjórnmálum. Aðalhlutverk: Max
Phipps, John Stanton og John Meillon. Leik-
stjórn: George Miller o.fl.
22.20 Sönn hetjudáð (True Grit). Bandarísk kvik-
mynd frá árinu 1969 með John Wayne, Kim
Darby og Glenn Campell í aðalhlutverkum.
Leikstjóri er Henry Hathaway. Myndin er byggð
á stórkemmtilegri smásögu eftir Charles Portis
og fjallar um afdankaðan lögreglustjóra sem
Þriðjudagur
19 maí
07.00-09.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni.
Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður litur
yfir blöðin og spjallar við hlustendur og gesti.
Fréttir kl. 07.00, 08.00 og 09.00.
09.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum.
Palli leikur uppáhaldslögin ykkar. Afmæliskveðj-
ur, opin lína og spjall til hádegis. Síminn er
61-11-11.
Fréttir kl. 10.00, 11.00.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10-14.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson á hádegi.
Fréttapakkinn. Þorsteinn og fréttamenn Bylgj-
unnar fylgjast með því sem helst er i fréttum,
spjalla við fólk og segja frá í bland við létta
tónlist. Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00-17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd.
Pétur spilar síðdegispoppið og spjallar við
hlustendur og tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00.
17.00-19.00 Ásta R. Jóhannesdóttir í Reykjavik
síðdegis. Ásta leikur tónlist, litur yfir fréttirnar
og spjallar við fólk sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00-20.00 Anna Björk Birgisdóttir á flóamark-
aði Bylgjunnar. Flóamarkaður og tónlist.
Fréttir kl. 19.00.
20.00-21.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Jón Gúst-
afsson kynnir 10 vinsælustu lög vikunnar.
21.00-23.00 Ásgeir Tómasson á þriðjudags-
kvöldi. Ásgeir leikur rokktónlist úr ýmsum
áttum.
23.00-24.00 Vökulok. Þægileg tónlist og frétta-
tengt efni í umsjá Bjarna Vestman fréttamanns.
Fréttir kl. 23.00.
24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Bjarni
Ólafur Guðmundsson. Tónlist og upplýsingar
um veður, flugsamgöngur.
Fréttir kl. 03.00.
Pabbi hennar kom
óvænt fram á
sjónarsviðið
Catherine fékk taugaáfall!
— og Anne
rægðin hefur ýmsar
skuggahliðar eins og margoft
hefur komið í ljós. Þó að Anne
Catherine Herdorf, danska
söngkonan sem söng lagið „En
lille melodi" í Eurovision-keppn-
inni hér um daginn (lenti í 5.
sæti), sé ekki enn búin að njóta
frægðarinnar lengi, hefur hún
þegar fengið smjörþefinn af
ýmsum óþægilegum aukaverk-
unum.
Anne Catherine hélt til Brúss-
el á vit stærsta ævintýrs lífs síns
fuU bjartsýni og sigurvona. Hún
er ekki nema 19 ára og fannst
betra að hafa foreldra sína og
kærasta sem ferðafélaga. Allt
gekk sem sagt að óskum þar til
á miðvikudag fyrir keppnina. Þá
barst henni í hendur nýjasta
tölublaðið af danska vikuritinu
Se og hör og þar með fannst
Anne Catherine veröldin hrunin.
Hún fékk taugaáfall.
í blaðinu er slegið upp viðtali
við hinn raunverulega föður
Anne Catherine, argentínska
tónlistarmanninn Julius Disire,
sem búsettur er í Osló. Hann
sagðist vera ákaflega ánægður
með árangur dóttur sinnar og
ætla að vera viðstaddur keppn-
ina i Brússel. Fleiri voru þau orð
ekki.
Þegar Anne Catherine hafði
náð sér eftir mesta áfallið og var
hætt að skæla lýsti hún því yfir
að aldrei á ævinni hefði hún
orðið fyrir þvílíkum vonbrigðum.
Hún hefði fengið loforð pabba
síns um að hann héldi sér saman
á meðan hún stæði í þessum
stórræðum og hún hefði treyst
því. En nú hefði hann svikið
loforðið og sálarró hennar væri í
voða, rétt fyrir keppnina.
I Osló svaraði Julius Disire,
sem nú er giftur norsku söng-
konunni Ase Wentsel, spurning-
um blaðamanna og vissi ekki
hvaðan á sig stóð veðrið. Hann
sagðist alltaf hafa haft gott sam-
band við dóttur sína, en hún var
ársgömul þegar foreldrar hennar
skildu. Þau hafi alltaf farið sam-
an í frí og í fyrra hafi þau verið í
6 vikur saman í Buenos Aires og
heilsað upp á ættingja þar. Auð-
vitað sendi hann dóttur sinni
afsökunarbeiðni og blómvönd til
Brússel, en að öðru leyti segist
hann ekki vita hvernig samskipti
þeirra verða eftirleiðis, viðbrögð
hennar hafi komið sér svo á
óvart.
Anne Catherine er ekki heldur
búin að átta sig. Hún segist líta
á Ernst Herdorf sem föður sinn
enda er hann búinn að vera
giftur móður hennar síðustu 12
árin og koparbrúðkaupsafmælið
nálgast.
En það er vonandi að Anne
Catherine eigi ekki eftir að verða
fyrir verri áföllum í lífinu.
dnne Catherine Herdorf söng
lagið „En lille melodi" eins og
engill í Eurovision-keppninni,
prátt fyrir áfallið!
Julius Disire skildi ekki allt
þetta uppistand