Tíminn - 02.07.1987, Side 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 2. júlí 1987
Gámaútflutningurinn innanlands?:
Engar reglur til um kaup
útlendinga á fiskmörkuðum
„Það hefur ekki reynt á þetta
ennþá. Þetta er mjög sérstaks cðlis
og við höfum ekki haft svona
tilfelli áður,“ sagði Þórhallur Ás-
geirsson, ráðuneytisstjóri í við-
skiptaráðuneytinu í samtali við
Tímann, þegar forvitnast var um
lagalegar heimildir útlcndinga til
að kaupa fisk á íslenskum fisk-
mörkuðum, verka hann hér eða
flytja beint út, og þar með flytja
gámaútflutninginn inn í landið.
„Það eru til rcglur um heimildir
útlendinga til að eiga hlut í fisk-
mörkuðum á íslandi. Þæreru alveg
skýrar. Hins vegar eru engar reglur
til um kaup útlendinga. Fiskút-
flutningur er háður leyfum frá
viðskiptaráðuneytinu. Viðskipta-
ráðuneytið hefur nánast, ef svo má
að orði komast, ekki beitt þeim
heimildum, að því er varðar út-
flutning á ferskum fiski, hingað til.
Hvort svo verður í framtíðinni veit
ég ekki, en auðvitað er þetta hlutur
sem verður að koma í ljós,“ sagði
Árni Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri
hjá Sjávarútvegsráðuneytinu í
samtali við blaðið.
„Þetta er prinsipmál og ekki er
alveg Ijóst hvernig túlka á lögin,
því get ég ekki svarað þessu alveg
á stundinni," sagði Þórhallur enn-
fremur.
Svo virðist því sem hér sé komin
leiðin til að taka fyrir gámaútflutn-
inginn,einfaldlega að flytja útlend-
ingana inn, í stað þess að flytja
gámana út.
„En þá fcr maður að velta fyrir
sér hvort það sé eitthvað verra að
útlendingar kaupi íslenskan fisk á
íslenskum uppboöum heldur en
útlendum. Reynslan verður að
leiða í Ijós hvort svarið er já eða
nei við þessari spurningu. Fyrir-
fram sér maður ekki hvort svarið
verður uppi á teningnum," sagði
Árni að lokum.
í hnotskurn er máli því þannig:
Útflutningur á fiski er háður leyf-
um. Viðskiptaráðuneytið, sem hef-
ur slíkar leyfisveitingar með
höndum, hefur gefið slík leyfi,
nánast hverjum sem er, en það
getur einnig hvenær sem er tekið
upp hjá sér breytingar á þeirri
venju sinni. Það er ekkert sem
bannar útlendingum að kaupa fisk
á íslenskum fiskmörkuðum. Þeir
þurfa leyfi til að verka hann hér
innanlands, ef málið horfir svo við
þeim, en það er svo háð útflutn-
ingsleyfum viðskiptaráðuneytisins,
hvort þeim er heimilt að flytja
' hann út.
Útgerðarmaður sagði í samtali
við blaðið að það yrði alger kú-
vending og stefnubreyting hjá við-
skiptaráðuneytinu, ef það færi
virkilega að beita stöðvunarvaldi á
útflutningi á ferskum fiski. „Það fá
allir leyfi sem sækja um, Ég á ekki
von á breytingu í þeim efnum“
sagði hann að lokum. -SÓL
Borgar-
ráð nú
æðstaráð
Borgarráð er nú æðstaráð Reykja-
víkurborgar. Borgarstjórn Reykja-
víkur er nú í sumarfríi og mun ckki
koma til funda fyrren í ágústmánuði
og fer borgarráð með umboð hcnnar
á meðan. Borgarráð kemur að jafn-
aði saman einu sinni í viku á þriðju-
dögum, en oftar ef þörf þykir.
Á fundi borgarráðs á þriöjudag
var m.a. samþykkt að setja ákvæði
sem bannar akstur vélknúinna tor-
færuhjóla, þar með talin fjórhjól,
innan borgarmarkanna. Þó er borg-
arráði heimilt að veita undantckn-
ingar á nánar tilteknum svæðum.
Mun nú vera í undirbúningi að finna
hentug svæði innan borgarmarkanna
fyrir þennan akstur.
Þá samþykkti borgarráð cinnig að
veita 500.(100 krónum til fornleifa-
uppgröfts við Aðalstræti. Auk þessa
voru ýmis viðkvænt mál rædd á
fundinunt. Þar á meðal var rætt um
úthlutun á lóðum til bílasala en
afgreiðslu þeirra mála var frestað.
Borgarráð er skipað þremur full-
trúum Sjálfstæðisflokks og tvcimur
fulltrúum minnihlutans. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur því alræðisvald í
borgarráði eins og í öllum nefndum
borgarinnar. Auk kjörinna fulltrúa
sitja ýmsirembættismenn borgarinn-
ar fundi borgarráðs. - HM
Borgarráðsmenn voru ábúðarfullir í byrjun fundar á þriðjudag þegar Pjetur Ijósmyndari Tímans smellti þessari mynd
af valdamestu stofnun borgarinnar um þessar mundir.
Illlllllllllllllllllllll VEIÐIHORNID b, 1;:: % :ÚÚ 'Ú úl,; ■ ai■;Umsjón: Eggert Skúlason'l
Fornleifagröftur í Aöalstræti:
Enn leitað
að Ingólfi!
Árbæjarsafn er að hefja enn eina
leitina að Ingólfi og bústað hans í
Aðalstrætinu. Nú eru að hefjast
framkvæmdir við hús Sölumiðstöðv-
ar hraðfrystihúsanna sent mun rísa
við hlið Morgunblaðshallarinnarþar
sem Fjalakötturinn sálugi stóð áður.
Áður en þessar framkvæmdir hefj-
ast munu aðilar á vegum Árbæjar-
safns ganga úr skugga um hvort
finna má leifar frá Ingólfi eða seinni
tíma fornminjar á lóðinni. Borgar-
ráð úthlutaði safninu 500.000 króna
aukafjárveitingu til þessa verks á
fundi sínum á þriðjudag. Gert er ráð
fyrir að fornleifagröftur þessi muni
taka tæpan mánuð, en ef merkar
fornleifar finnast má gera ráð fyrir
að borgarráð ntuni lengja þann frest.
Hús Sölumiðstöðvarinnar mun
verða fjórar heilar hæðir, auk einnar
hæðar undir súð. Til samanburðar
þá er Morgunblaðshöllin sex hæðir,
auk þakhýsis. -HM
Nær eingöngu hrygnur
veiðast í Vatnsdalsá
Af þeim 278 löxum, sem komið
höfðu á land í gær, úr Vatnsdalsá
voru aðeins 36 hængar. Svo gríðar-
legur munur á kynjunum er óeðli-
legur, því yfirleitt eru hængarnir
fyrr á feröinni. Veiðimenn úr
Vatnsdalnum hafa rætt þessa skipt-
ingu og sitt sýnist hverjum, en
flesta undrar. Hafa meðal annars
vaknað upp spurningar hvort þessi
óeðlilega skipting, og ef hún helst
áfram, geti á einhvern hátt ógnað
hrygningu í ánni í haust. Tíminn
leitaði til fiskifræðings á Veiði-
málastofnun með þessa spurningu.
Þar fengust þau svör að þessi
skipting teldist óeðlileg en menn
þyrftu að kynna sér betur kynja-
skiptingu í veiði í ánni síðustu ár,
til þess að hægt væri að segja til um
hversu afbrigðilegt þetta væri.
Þess ber að geta að líklega eiga
eftir að koma fleiri torfur af
hængum, en engu að síður er veiði
á hrygnum í miklum meirihluta
enn sem komið er.
Vonbrigði í vatnsleysinu
Margir veiðimenn hafa farið
heint með öngulinn í rassinum
síðustu daga. Vatnsleysi er kennt
um, en það á þó ekki við alls
staðar. Nú velta menn fyrir sér
hvað gerist ef ekki rignir á næst-
unni. Eigum við von á svipuðu og
gerðist ’85, þegar laxinn beið lengi
fyrir utan og sumir segja að hann
hafi jafnvel ekki allur gengið upp
fyrir rest, eða lætur fiskurinn sig
hafa það að ganga upp þegar líður
á sumarið. Þessum spurningum er
ekki hægt að svara.
Það eru þó ekki allar veiðiár
líflitlar sökum vatnsleysis. Stóra-
Laxá í Hreppum er dæmi um það.
Nú rétt eftir helgina var ekkert að
frétta þaðan, nema eymd og vol-
æði, lítill sem enginn fiskur geng-
inn í ána þrátt fyrir ágætt vatns-
magn og góð ytri skilyrði. Hvað er
að gerast með Stóru-Laxá? Þau
voru ekki öll falleg ummælin sem
rituð hafa verið í gestabókina síð-
ustu árin um ána. Ein athugasemd-
in var stutt og laggóð og segir
kannski allt sem segja þarf. „Áin
er biluð“ ritað argur veiðimaður.
Tíu laxar úr Svartá
Veiði hófst í Svartá í gær. Voru tíu
laxar komnir á land þegar veiði-
menn tóku sér hvíld klukkan 13 í
gærdag. Er þetta í fullu samræmi
við veiðina í Blöndu það sem af er,
en hún hefur verið mjög góð.