Tíminn - 02.07.1987, Side 5

Tíminn - 02.07.1987, Side 5
Fimmtudagur 2. júlí 1987 Tíminn 5 „ Vanskilastóllinn" var ekki eini þröskuldurinn þegar á reyndi: Ríkisstjórn flokkanna þriggja loks að fæðast Þingflokkur framsóknarmanna býr sig undir mikilvægar ákvarðanir á fundi í Alþingishúsinu í gær. Samstaða náðist um verkaskipt- ingu í væntanlegri. ríkisstjórn á fundi forystumanna Framsóknar- flokks, Alþýðuflokks og Sjálf- stæðisflokks um miðjan dag í gær. Samkomulag hefur orðið um Þor- stein Pálsson í forsætisráðherra- stólinn. í hlut Framsóknarflokksins kem- ur utanríkisráðuneytið með utan- ríkisviðskiptum,sjávarútvegsráðu- neytið, landbúnaðarráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið. Alþýðuflokkur fær fjármála- ráðuneyti, skert viðskiptaráðu- neyti, dóms- og kirkjumálaráðu- neyti og félagsmálaráðuneyti. Þá fá kratar formann fjárveitinga- nefndar. Sjálfstæðisflokkur fær forsætis- ráðuneyti, menntamálaráðuneyti, samgönguráðuneyti og iðnaðar- ráðuneyti. Þar fyrir utan fá sjálf- stæðismenn embætti forseta Sam- einaðs þings og formann utanríkis- málanefndar. Sex manna nefnd frá flokkunum hafði fundað um verkaskiptinguna frá því snemma á þriðjudagskvöld. Síðan voru formenn flokkanna kallaðir á fund nefndarinnar laust eftir miðnættið og stóðu þau fund- arhöld fram til hálf fimm í gærm- orgun. Miðaði í áttina, en þó töldu menn þýðingarlaust að halda áfram í morgunsárinu. Forystumenn flokkanna hittust síðan í Stjórnar- ráðshúsinu klukkan hálf ellefu í gærmorgun og þar náðist sam- komulag um verkefnaskiptinguna, sem síðan var lögð fyrir þingflokk- ana á fundi þeirra klukkan 10 í gærkveldi. Eina breytingin frá því sem áður hafði verið skýrt frá var það að Alþýðuflokkur og Sjálfstæðis- flokkur skiptust á stólum, sam- göngumálin færðust frá krötum til sjálfstæðismanna, sem sóttust mjög eftir þeim, en í staðinn fengu kratar dóms- og kirkjumál. Þá gaf Framsóknarflokkurinn embætti formanns fjárveitingarnefndar til krata, því Sjálfstæðisflokkurinn sótti fast að fá formann utanríkis- málanefndar. Miklir spádómar eru uppi um ráðherraefni flokkanna. Sam- kvæmt heimildum Tímans munu sjálfstæðismenn stilla auk Þor- steins Pálssonar, upp þeim Friðrik Sóphussyni í mennta- eða sam- göngumál, Birgi ísleifi Gunnars- syni í iðnaðarmálin og Halldóri Blöndal í mennta- eða samgöngu- málin. VirðistÓlafurG. Einarsson hafa orðið úti eftir að upp rann fyrir sjálfstæðismönnum að þá yrðu allir ráðherrar þeirra af sunnan- verðu landinu. Alþýðuflokkur stillir upp þrem- ur ráðherrum úr Reykjavík, Jón Sigurðsson verður með fjármálin, Jón Baldvin sjálfur verður dóms- og kirkjumálaráðherra og fær þar fyrir utan restina af viðskiptamál- unum. Jóhanna Sigurðardóttir mun fá félagsmálin. Hagstofan er hins vegar enn á vergangi. Þá má geta að utanrík- isviðskiptin verða færð til utanrík- isráðuneytis með auglýsingu dag- inn eftir valdatöku ríkisstjórnar- innar. En þrautirnar voru ekki fyrir bí þrátt fyrir að „vanskilastóll" Jóns Baldvins væri kominn í leitirnar, því gamall draugur gekk hastarlega aftur og leiddi til þess að fundur forystumannanna leystist upp um fimmleytið í gær. Þá kom til um- ræðu málamiðlunartillaga sjálf- stæðismanna um kaupleiguíbúð- irnar. Þótti Jóni Baldvin lítið um þá málamiðlun og gekk á dyr. Þingflokksfundir hófust svo klukk- an sex, en ekki þótti fært að afgreiða vcrkaskiptingartillöguna fyrr en lausn væri komin í kaup- leiguíbúðamálinu og voru þing- flokkarnir boðaðir í því skyni til framhaldsfundar klukkan 22 í gær- kvöldi. Fyrir liggja fyrstu heildardrögin af stefnuyfirlýsingu og stjórnarsátt- mála. Þau plögg á eftir að taka til afgreiðslu í þingflokkunum og er stefnt að að Ijúka því starfi í dag. Hugsanlegt er þó að ekki takist að ganga endanlega frá hinum ítarlega stjórnarsáttmála fyrir stjórnar- skiptin og verði hann gefinn út í „hvítri bók“ innan eins mánaðar. Ef allt gengur upp, þá verða miðstjórnir og flokksstjórnir kall- aðar saman á föstudagskvöld. Ríkisráðsfundur og stjórnarskipti færu þá fram á laugardag. ÞÆÓ Húsavíkurbæjarstjóri um Landsmótiö: HÖFUM PLÁSS FYRIR JAFN MARGA OG MÆTA Landsmót Ungmennafélags ís- lands verður haldið á Húsavík í næstu viku, nánar tiltekið dagana 9,- 12. júlí. Bjarni Þór Einarsson, bæjarstjóri á Húsavík, sagði í samtali við blaðið, hlut bæjarstjórnar á landsmótinu sjálfu ekki vera stóran. „Við þurfum að vera viðstaddir setningarathöfn og bjóða frammámönnum ung- mennafélaganna og ýmsum öðrum gestum til kaffisamsætis á eftir. Meira heyrir nú ekki okkur til“ sagði Bjami. Meðal þess sem boðið verður upp á á Landsmótinu má nefna Víkinga- leika, dansleiki, kvöldvökur, mynd- listarsýningar, leiklistarsýningar, brúðusýningar, barnakeppnisatriði og síðast en ekki síst, að sjálfsögðu íþróttakeppnir. Landsmótið í ár, það nítjánda í röðinni, er jafnframt það lang fjöl- mennasta sem haldið hefur verið, en rúmlega fimmtán hundruð keppend- ur í landsmótsgreinum og rúmlega fimm hundruð aðilar í sýningar- greinum ýmiss konar. Húsvíkingar koma jafn vel til með að vera í minnihluta á mótinu, því íbúar pláss- inseru tvöþúsundogfimm hundruð. „Okkar áætlun hljóðar upp á fólksfjölda í tjöldum og gerum ráð fyrir átta til tólf þúsund manns. Það þýðir það að mótsgestir verði mun fleiri, því ekki gista allir í tjöldum. Hins vegar verður engin „katast- rófa“ þó að það komi ennþá fleiri. vegna þess að við höfum nóg pláss til að leyfa fólki að tjalda á. Við von- umst eftir mjög góðu veðri, og þá höfum við rými fyrir jafn marga og mæta“ sagði Bjarni einnig. Stofnkostnaður bæjarsjóðs við Landsmótið er ekki skilgreindur enn, því sumt af honum eru varan- legar framkvæmdir, annað aðeins til bráðabirgða, sem standa aðeins yfir mótið og verða síðan teknar niður aftur. Kostnaður við tjaldstæði, lag- færingar á völlunum, og ýmislegt þess háttar, er um tíu milljónir. En hver verður svo ágóði bæjar- félagsins? „Húsavíkurbær fær vonandi mikla og góða auglýsingu og kynningu á sjálfum sér. Við fáum einnig inn töluvert inn af óbeinum tekjum, eins og af sölu matvæla og þess háttar. Hluti af aðgangseyri kemur í hlut heimamanna, eins og t.d. Völsunga og fleiri félaga og það er óbeint til bæjarins. Mín trú er sú að við stönd- um uppi eftir þetta mót betur en sléttir og ef við tökum landkynning- una inn í, þá erum við komnir í gróða. Og þá á enn eftir að reikna með vel frágenginni aðstöðu til ým- issa nota sem ekki var tilbúin áður. Að vísu verður greiðslustaða bæjar- sjóðs slæm fyrstu mánuðina, en það nær ekki út árið“ sagði Bjarni að lokum. -SÓL Fréttabréf um land- búnaðarmál Upplýsingaþjónusta landbún- aðarins hefur hafið útgáfu frétta- bréfs sem heitir „Fréttir af land- búnaðarmálum". Fyrsta frétta- bréfið er að koma út og verður m.a. sent búnaðarsamböndum, stéttasambandsfulltrúum og ein- staklingum sem þess óska en fréttabréfið fæst ókeypis. Fréttabréfið sem nú er að koma út er helgað landbúnaðarsýning- unni „Máttur lífs og moldar" sem haldin verður í Reiðhöllinni 14. - 23. ágúst n.k. Hugmyndasamkeppni að nýrri atvinnustarfsemi í sveitum er nú í fullum gangi en hún er haldin f tengslum við landbúnaðarsýning- una. Hugmyndum á að skila fyrir 1. ágúst. Þess má geta að fyrir skömmu var haldin sambærileg hugmyndasamkeppni í Noregi. Hugmyndin sam þar bar sigur úr býtum var útfærð hugmynd um dvöl barna í sveit.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.