Tíminn - 02.07.1987, Page 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 2. júlí 1987
arymann Diesel
Vestur-þýskar gæða dieselvélar,
loftkældar, sparneytnar, hjóðlátar.
Fyrirliggjandi til afgreiðslu strax.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Múrhúðun og pípulagnir í
Sjúkrahúsinu á Blönduósi
Tilboð óskast í framkvæmdir við Sjúkrahúsið á Blönduósi er ná til að
skila nýbyggingunni tilbúinni undir tréverk.
Byggingin er nú fokheld. Húsið er kjallari, þrjár hæðir og ris.
Heildarflatarmál er um 3000 m2.
Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 1. maí 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7, Reykjavík,
gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri
þriðjudaginn 21. júlí 1987 kl. 11.00.
Nýju skattalögin: Gróöi fyrir „gamla“ hjónabandiö, tap fyrir
„nýju“ fjölskylduna
Vinna beggja for-
eldra: þýðir lægri
ráðstöfunartekjur
- ef borga þarf daggæslu fyrir börn
Útivinna beggja foreldra ungra.
barna gæti jafnvel skilað fjölskyld-
unni lakari fjárhagsafkomu þegar
dæmið hefur verið reiknað til enda,
heldur en ef aðeins annað foreldr-
anna stundar vinnu utan heimilis.
Þetta má ráða af útreikningum Sig-
urðar Snævarr hagfræðings í tímarit-
inu Mannlíf. Niðurstöður sínar telur
hann benda til að ekki sé sjálfgefið
að tvær fyrirvinnur þurfi í hverri
fjölskyldu.
Sigurður tekur dæmi af eigin-
manni sem hefur um 882 þús. kr.
tekjur í ár og þar af 71 þús. kr. á
mánuði til ráðstöfunar eftir skatt ef
hann er eina fyrirvinnan. Vinni kon-
an hans úti fyrir um 46 þús. krónum
á mánuði eykur það ráðstöfunartekj-
ur fjölskyldunnar aðeins um rúmlega
18 þús. kr. á mánuði þurfi þau að
borga dagmömmu fyrir gæslu eins
barns og aðeins um 3 þús. krónur ef
borga þarf gæslu tveggja barna. Þær
3 þús. krónur mundu tæplega standa
undir ýmsum aukakostnaði af vinnu
utan hemilis. Niðurstaðan af puði
konunnar fyrir 46 þús. kr. mánaðar-
launum gæti raunverulega þýtt rýrari
afkomu fyrir fjölskylduna.
Reiknað út frá nýju skattalögun-
um telst Sigurði til að af 882 þús.
króna árstekjum eiginmannsins
(1987) mundu 30 þús. kr. fara í
skatta, ef hann er eina fyrirvinna
fjölskyldunnar og því 852 þús. kr.
eftir til ráðstöfunar. Ef konan bætti
við 551 þús. kr. árstekjum mundu
sameiginlegir skattar þeirra hækka í
um 193 þús. kr. ( hans 154 þús.,
hennar 39 þús. kr.) Daggæsluna
reiknar Sigurður á 165 þús. kr. á ári
með hverju barni. Af 550 þús.
krónum sent konan bætti við heimil-
istekjurnar yrðu því aðeins 223 þús.
kr. (18 þús. á mán.) eftir miðað við
daggæslu eins barns og aðeins um 58
þús. ef ungbörnin væru tvö. Af því
gæti minna en ekkert orðið eftir
þegar tekið er tillit til aksturskost-
naðar úr og í vinnu og daggæslu - að
ekki sé nú talað um ef þetta kostaði
tvo bíla á heimilið í stað eins - og
annars aukakostnaðar.
Athyglivert er og, að niðurstaðan
virðist sú sama ef hvort hjónanna
vinnur fyrir 551 þús. kr. (um 46 þús.
á mánuði), þ.e. samtals 1.102 kr.
árslaunum eða annað þeirra fyrir
882 þús. kr. árslaunum ef þau þurfa
að borga fulla daggæslu fyrir eitt
barn. Af 220 þús. króna viðbótar-
tekjum færu 213 þús. í hækkaða
skatta og barnagæslu.
Miðað við gæslu 2ja barna virðast
ráðstöfunartekjur jafnvel meiri af 60
þús. króna mánaðarlaunum annars
foreldranna (sem væru þá skatt-
frjálsar) en þótt hvort um sig ynni
fyrir um 48 þús. krónum á mánuði.
Tekið skal fram að miðað við
gömlu (núgildandi) skattalögin
mundu ráðstöfunartekjurnar verða
um 7 þús. krónum minni á ári en í
framangreindum dæmum ef aðeins
annað aflaði 882 þús. kr. tekna, en
um 11 þús. kr. meiri af sameiginleg-
um 1.433 þús. króna tekjum í ár.
Þetta kemur til af aukinni millifærslu
milli hjóna í nýju lögunum. Að sögn
Sigurðar munu nýju lögin m.a. valda
verulegri skattalækkun til barnlausra
hjóna þar sem annað aflar allra eða
meginhluta teknanna. Hins vegar
séu barnabætur óbreyttar og mjög
aukin skerðing á barnabótaauka.
Barnafólk, þar sem bæði afla góðra
meðaltekna muni því þurfa að greiða
aukna skatta eftir nýju lögunum.
HEI
5 kw. á 3000 sn/mín.
3 fasa og 1 fasa
220 volt.
3,5 kv. á 3000 sn/mín.
1 fasa 220 volt.
í versluninni eru veittar allar
upplýsingar um verð og greiðslukjör
SöytrOMDyir Æy©©®!]!) & ©@. IM.
Vesturgötu 16. Símar: 14680/13280
VERTU I TAKT VIÐ
Timann
ÁSKRIFTASÍMI 68 63 00
(Tímamynd: Pjetur)
Jón Sigurðsson í sólarparadís
Jón forseti Sigurðsson stendur á
sínum stalli kyrr í hlýjurn frakka
hvað sem á dynurog í öllum veðrum.
Það reynist hins vegar starfandi fólki
í miðborginni um rnegn þessa undan-
farna sólardaga, en júnímánuður
hefur verið sólarmeiri en elstu menn
muna.
Um hádegi síðustu daga hefur Jón
orðið vitni að sérkennilegu sjónar-
spili, þegar fólk streymir úr loftlaus-
um skrifstofum og verslunum til að
safnast saman framan við þinghúsið
á Austurvelli til að njóta sólarinnar.
Þar er sólarparadís verslunarmanns-
ins og þarf ekki að leita lengra.
Ljósmyndin ber glöggt vitni um
að margir hafi að skaðlausu látið
verk úr hendi falla um nónbil í gær.
5 hö. á 3000 sn/mín.
5 hö. á 3000 sn/mín.
5 hö. á 3000 sn/mín.
0 hö. á 3000 sn/mín.
Beranlegar rafstöðvar
Arsel
Veitingar
og
ferðamannaverslun
opið alla daga frá kl. 9.00—23.30
MIÐSTOÐ VIÐSKIPTANNA Á SUÐURLANDI OPIÐ: MANUD.- FIMMTUD. 09-17.30 FOSTUD. 09-19 LAUGARD. 09-12