Tíminn - 02.07.1987, Qupperneq 10

Tíminn - 02.07.1987, Qupperneq 10
10 Tíminn Fimmtudagur 2. júlí 1987 ÍÞRÓTTIR ^0^ °<Mf ÍR-Víkingur 3-2 (3-2) (Hoxmir Karlsson 3)*(Trausti Ómarsson, Hörður Theodórsson) Lciknir-ÍBV 2-4 (1-1) (Boldur Baldursson. Atli)-(Bergur Ág- ústsson 3, Lúðvík Bergvinsson) Stjarnan-Rcynir S. 3-2 (2-1) (Ragnar Gíslason, Valdimar Kristjáns- sonMDavíð Skúlason. Kjartan Einarsson, Helgi Kárason) Leiftur-KS 1-1 (0-0) Leiftur sigraði 5-4 í vítaspymukeppni. (Hafsteinn Jakobsson)-(Hafþór Kolbeins- son) Þróttur N.-Einherji 2-1 (1-1) (Eysteinn Kristinsson, Guðbjartur MagnasonMEiríkur Sverrisson) Grindavík-Sclfoss 2-0 (1-0) (Sigurgeir Guðjúnsson, Símon Alfreðs- son) Handknattleiksmótið í Júgóslavíu: Slakur fyrri hálf leikur og íslendingartöpuðu með20mörkumgegn 22 fyrir Spánverjum fslenska landsliðið í handknattleik tapaði fyrir Spánverjum í fyrri leikn- um í úrslitakeppminni á handknatt- leiksmótinu í Júgóslavíu í gærkvöldi. Lokatölur urðu 22-20 eftir að Spán- verjar voru yfir 13-8 í hálfleik. UMSJÓN: Hiördís Árnadóttir BLAÐAMAÐUR fslenska liðið átti mjög slakan fyrri hálfleik og tókst ekki að vinna upp muninn í þeim síðari. Þó voru þeir ekki langt frá að ná a.m.k. öðru stiginu en misnotuðu vítakast á mikilvægu augnabliki og urðu að bíta í það súra epli að tapa. Spánverjar mættu mjög grimmir til leiks og uppskáru sigur. Islenska liðið leikur gegn A-Þjóðverjum á morgun og tryggir sér annað sætið á mótinu með sigri í þeim leik en Sovétmenn unnu A-Þjóðverja í gær- kvöldi. Mörk íslenska liðsins í leiknum í gærkvöldi gerðu: Karl Þráinsson 5, Alfreð Gíslason 4, Þorgils Óttar Mathiesen 3, Jakop Sigurðsson 3, Sigurður Gunnarsson, Sigurður Sveinsson, Kristján Arason, Geir Sveinsson og Atli Hilmarsson 1 hver. Mjög erfitt er að ná símasambandi við Júgóslavíu en í gærkvöldi þegar það náðist loks lágu þau skilaboð frá Guðjóni Guðmundssyni liðsstjóra íslenska landsliðsins að mikið ónæði hefði verið af símhringingum og að menn þyrftu hvíld. Þeir myndu því ekki svara síma. - HÁ Mjólkurbikarinn: Mikið af mörkum - Heimir Karlsson og Bergur Ágústsson báðir með þrennu Einar Einarsson Víkingur í færi við ÍR markið en Þorsteinn markvörður ÍR-inga tók boltann nánast af tánum á honuitl. Tímamynd Pjelur. Futre til Atletico Madrid: Fyrir 25 milljónir og gulan Reuter Portúgalski knattspyrnumaðurinn Paulo Futre, aðalstjarna Porto. hef- ur gengið til liðs við spænska 1. deildarliðið Atletico Madrid. For- ráðamenn Atletico borguðu 6,6 milljónir dollara fyrir Futre (25 millj. ísl. kr.), 3,1 til Porto, Futre fékk Porscne sjálfur 3,5 milljónir og fær að auki ýmsar auka sporslur. Þá féllst félagið á að láta draum hans um að eignast gulan Porsche rætast. Futre mun búa í lúxusvillu í góðu hverfi vestur af Madríd þar sem meðal íbúa er Hugo Sanchez leikmaður Real Madrid. Það var mikið skorað í þriðju umferð Mjólkurbikarsins í gær- kvöldi, fimm mörk í tveimur leikjum og sex í einum. Tveir leikmcnn skoruðu þrennu, Heimir Karlsson hjá ÍR þegar lið hans vann Víkinga 3- 2 og Bergur Ágústsson hjá ÍBV þegar Eyjamenn unnu Leikni 4-2. IR-ingarvoru komnir í 2-0 eftir 13 mínútur gegn Víkingum en Hæðar- garðsdrengirnir náðu að minnka muninn og jafna. ÍR-ingar áttu síð- asta orðið og tryggðu sér sæti í 16 liða úrslitunum. Jafnræði var í leik Leiknis og Eyjamanna framanaf en Eyjamenn skoruðu fyrsta markið. Leiknismenn náðu að jafna og þannig var staðan í hálflcik. Eyjamenn skoruðu tvö mörk á einni mínútu í seinni liálf- leiknum og þrátt fyrir að Leiknis- menn bættu einu marki við tíu mínútum fyrir leikslok tókst þeim ekki að slá Eyjamenn út af Iaginu. Þeir svöruðu einfaldlega með fjórða markinu rétt fyrir leikslok og sigruðu 4- 2. í Neskaupstað var það Eiríkur Sverrisson sem kom Vopnfirðingum yfir strax á I. mín. en Eysteinn Kristinsson jafnaði fyrir heimamenn skömmu fyrir leikhlé. Guðbjartur Magnason skoraði svo sigurmark Norðfirðinga þremur mínútum fyrir leikslok. Leikurinn var hraður og fjörugur, mikil barátta og opin færi á báða bóga, ekta bikarleikur. Leiftur sigraði KS eftir framlengd- an leik og vítaspyrnukeppni 6-5 á Ólafsfirði. Staðan að loknum venju- legum leiktíma var 1-1 og ekki voru skoruð mörk í framlengingunni. Þctta var mikill baráttuleikur eins og ævinlega þegar þessi lið mætast. Hafþór Kolbeinsson náði forystunni fyrir KS á 65. mín. en Hafsteinn Jakobsson jafnaði fyrir heimamenn 10 mín. síðar. í framlengingunni hefðu KS-ingar átt að tryggja sér sigur þegar Hafþór Kolbeinsson komst í mjög gott færi en Þorvaldur Jónsson markvörður, besti maður leiksins, varði glæsilega. KS átti heldur meira í þessunt leik og máttu heimamenn teljast frekar heppnir að sigra. Eins og áður sagði átti Þorvaldur mjög góðan dag í marki Leifturs og varði hann m.a. tvær vítaspyrnur í lokin. Hjá KS átti Jakob Kárason ágætan leik. -HÁ/öþ Karl Þráinsson var markahæstur fslendinganna í leiknum gegn Spánverjum og skoraði 5 mörk. íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild kvenna: Valur vann KR - Guðrún skoraði sitt 5. mark beint úr aukaspyrnu Valsstúlkur sigruðu KR-inga með einu marki gegn engu f 1. deild kvenna í knattspyrnu á Valsvcllinum í gærkvöldi. Það var Guðrún Sæm- undsdóttir sem gerði eina mark leiksins beint úr aukaspyrnu, fimmta markið sem hún skorar á þann hátt í sumar. Þetta var líklega það glæsi- legasta, spyrnan tekin til hliðar við vítateiginn og boltinn fór í boga yfir varnarvegginn, markmanninn og í hliðarnetið fjær. Jafnræði var með liðunum fram- anaf en Valsarar sóttu í sig veðrið er á leið og voru mun meira með boltann. Þær fengu nokkur ákjósan- leg færi sem þeim tókst ekki að nýta og verður sigur þeirra að teljast sanngjarn. -HÁ Navratilovaáfram Reoler Martinu Navratilova er komin í undanúrslit á Wimbledonmót- inu í tennis. Hún hefur ekki enn lent í vandræðum með mótherja sína. Andstæðingur hennar í undanúrslitum vcrður Chris Evert. í hinum undanúrslita- leiknum mætast Steffi Graf scm vann Gabrielu Sabatini og Pam Shrivcr sem vann HelenuNSuk- ovu. McClairogAnderson til Manchester Utd. Reuler Landsliðsmennirnir Brian McClair og Viv Anderson gengu í gær til liðs við Manchcster United. Báðir fengu þeir fjögurra ára samning hjá breska 1. deildar- liðinu en upphæðin sem liðið þarf að greiða fyrir þá hefur ekki verið gefin upp. United mun þó hafa boðið Celtic og Arsenal um helm- ing þess sem liðin vilja fá fyrir McClair og Anderson'.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.