Tíminn - 02.07.1987, Blaðsíða 15

Tíminn - 02.07.1987, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 2. júlí 1987 Tíminn 15 LESENDUR SKRIFA Illllí Fóstureyðing - rangsnúið hugarfar í landafræði Karls Finnbogasonar (útg. 1910), segir frá háttum og siðum Ástralíusvertingja, sem þá voru taldir meðal frumstæðustu kyn- þátta jarðar okkar. Þar segir svo um úrræði þeirra til þess að komast hjá offjölgun kynþáttarins: „Ekki fá nema tvö til þrjú börn hverra for- eldra að lifa. Hin eru deydd nýfædd og étin.“ Öllum er þetta lásu blöskraði vitanlega slíkt athæfi hinna frum- stæðu manna svo sem eðlilegt var, en bót í máli var, að þetta fólk var okkur svo fjarlægt, að ekki þurfti verulega um þetta mál að hugsa, nema sem furðulegan fróðleik, sem lítið kom okkur íslendingum við. Síðan þessi kennslubók var rituð, eru liðnir margir áratugir. En nú er svo komið að barnamorð eru orðin algengur viðburður hér á landi okkar. Þessir ógnaratburðir hafa eins og flætt yfir land okkar og þjóð. Við Islendingar höfum færst það langt aftur á bak í siðmenningu okkar, að við erum komnir á hlið- stætt menningarstig að þessu leyti, eins og Ástralíunegrar þeir, sem af segir í nefndri kennslubók. Nú blöskrar tiltölulega fáum, þótt hundruð barna á fósturstigi, séu drepin hér árlega. Lög hafa verið sett, sem leyfa þetta athæfi. Læknar framkvæma þessa aðgerðir, og þykj- ast ekki menn að minni. Sjúkrahús láta fóstureyðingaraðgerðir sitja í fyrirrúmi, fyrir ýmissi annarri lækn- isþjónustu. Tilvonandi mæður óska sjálfar eftir eyðingu afkvæma sinna, Enginn þarf að efa að barn á fyrstu stigum fósturskeiðs sé þegar orðið maður. og telja þessar aðgerðir til mannrétt- inda. Viss kvennasamtök hafa barist fyrir eyðingu mannslífa á fóstur- skeiði. Hversvegna hefur menning okkar íslendinga stigið þetta skref aftur á bak? Hvers vegna höfum við, í þessum efnum, farið niður á menn- ingarstig þeirra villimanna, sem áður voru taldir einna verst siðaðir allra frumstæðra manna á þessari jörð? Hvers vegna erum við farin að brjóta, á svo herfilegan hátt, hin heilögu lögmál lífsins, að eigin af- kvæmi eru gerð með öllu réttlaus til lífs, eins og refir eða minnkar? íslendingar gætu fyrstir þjóða af- numið núgildandi fóstueyðingarlög, og veitt börnum á fósturskeiði full lífréttindi, eins og öllum öðrum mönnum, á hvaða aldri sem þeir eru. Því barn á fósturskeiði, jafnvel á fyrstu vikum meðgöngutímans, er þegar orðið maður. Um það skyldi enginn efast. II. Hömlulitlar fóstureyðingar eru augljós helstefnueinkenni, og benda til þess, ásamt ýmsu öðru, að við erum að fara framhjá því marki, sem okkur hefur verið ætlað að ná. Helgi Pétursson hefur sagt: „Þar sem sann- leikurinn er fyrirlitinn er mannúð- inni hætt,“ og sannast þessi orð áþreifanlega, þar sem ástæðulitlar fóstureyðingar eiga sér stað í miklum mæli. Hin merkilegasta kenning, líf- sambands kenningin, sem leitt hefði getað til stefnubreytingar fyrir löngu, hefur enn ekki verið þegin og hagnýtt. En enn er hægt að breyta um stefnu, þótt komið sé að hengi- flugi. Bætt sambönd við lengra komna lifendur, annarsstaðar í geimi, verða að takast, ef unnt á að verða, að taka upp þá lífstefnu, er ein getur leitt til sannrar farsældar. Ingvar Agnarsson. TIL AFGREIÐSLU STRAX Flestar stærðir til afgreiðslu af lager. >•* / MJÖG HAGSTÆTT VERÐ - GREIÐSLUKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI Járnháls 2 nn'TKSfíf’/ft UC Pósthólf 10180 yiyJö) WíAnr 11 o Fleykjavík — — Sími 83266 Starf sveitarstjóra Starf sveitarstjóraSúðavíkurhrepps í Norður-ísa - fjarðarsýslu er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. júli n.k. Upplýsingar gefur oddviti Hálfdán Kristjánsson í síma 94-4969 eða 94-4888. Sveitarstjóri. UMFERÐARMENNING y--\ Ökum jafnan á hægri rein á akreinaskiptum vegum. RÁÐ Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: Aarhus: Alla þriðjudaga Svendborg: Alla miðvikudaga Kaupmannahöfn: Alla fimmtudaga Gautaborg: Alla föstudaga Moss: Alla laugardaga Larvik: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Hvassafell............. 1/7 Santa Maria .......... 15/7 Leningrad: Santa Maria .......... 13/7 Gloucester: Jökulfell.............. 9/7 Jökulfell..............29/7 Jökulfell............. 19/8 New York: Jökulfell............. 11/7 Jökulfell.............. 1/8 Jökulfell..............21/8 Portsmouth: Jökulfell.............. 8/7 Jökulfell..............28/7 Jökulfell............. 18/8 SKIPADEILD f&kSAMBANDSINS LINDARGATA 9A PÓSTH. 1480 • 121 REYKJAVlK SlMI 28200 TELEX 2101 TÁKN TRAUSTRA FUJTTNINGA coopw Síur í flestar vélar á góðu verði WÉIU\^& KWUSmHF Járnhálsi 2. Sími 673225 110 Rvk. Pósthólf 10180 Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk. Pósthólf 10180 iR BÍLALEIGA Útibú í kringum landið REYKJAVIK:. 91-31815/686915 AKUREYRI:. 96-21715/23515 BORGARNES: ...... 93-7618 BLÖNDUÓS:. 95-4350/4568 SAUÐARKROKUR: . 95-5913/5969 SIGLUFJÖRÐUR:. 96-71489 ’fiUSAVÍK:. 96-41940/41594 EGILSSTAÐIR: ......... 97-1550 VOPNAFJÖRÐUR: . 97-3145/3121 FASKRUÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: ..... 97-8303 interRent

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.