Tíminn - 06.09.1987, Blaðsíða 3

Tíminn - 06.09.1987, Blaðsíða 3
Tíminn 3 Oddný Anna Björnsdóttir. Mamma og pabbi borga Oddný Anna Björnsdóttir er að setjast í 7. bekk Öldusels- skóla nú í haust. Við hittum hana þar sem hún var að skoða skólaföt. Hún sagðist vera búin að kaupa sér pcysu en væri að leita að snjóþvegnum gallabux- um sem hún sagði að væru allsráðandi áfram. Oddný var í vist að passa börn í sumar, en ekki ætlaði hún að nota þá peninga sem hún vann sér inn í fatnað, heldur væri hún að safna. Mamma og pabbi borg- uðu það sem vantaði fyrir skólann. Aðspurð hvort hún skipti um föt eftir skóla, sagðist hún ekki gera það, heldur nota fötin jöfnum höndum alla daga. Skólavörurnar ætlar hún ekki að kaupa fyrr en hún er búin að mæta einn dag í skólann. því fyrr viti hún ekki hvers hún þarfnast. Hvað kostaði að klæða sig fyrir skólann sagðist hún ekki vita enn, því hún þyrfti að fata sig alveg fyrir veturinn-ekki eingöngu fyrir skólann. Erla Hallgrímsdóttir. Bleikt og Ijós- blátt aðal litirnir í verslun Máls og Menningar við Síðumúla var nóg að gera þegar við litum þar inn. Erla Hallgríinsdóttir verslunarstjóri sagði viðskiptin hefjast strax þegar opnað væri kl. 8 á morgnana. Hún sagði Mál og Menningu hafa allt til skólans fyrir alla aldursflokka og ekki væri óalgcngt að framhalds- skólanemar færu með um 20 þús. í bókakaup. Grunnskóla- nemar slyppu betur þar sem þeir þyrftu aðeins að kaupa stílabækur og skriffæri, en þó væri kostnaðurinn vart undir tvö þúsund krónum. Erla gisk- aði á að verð hel'ði hækkað um 20-30% frá í fyrra, en það kænii ekki að sök þar sem nemendur yrðu að kaupa þær bækur sem þeir þörfnuðust. Hvað yngstu nemendurna varðaði þá gætti ákveðinna tískusveiflna í vali bæði á skólatöskum, pennaveskjum og stílabókum. Bleikt og ljós- blátt væru aðal litirnir og mikið væri um fallega hluti. Sú tíð væri liðin að aðeins væri um gula blýanta og einfaldar stíla- bækur að ræða. Börnin hefðu mjög gaman af að kaupa hluti með allskyns fígúrum sem væru að sjálfsögðu eitthvað dýrari. Að lokum sagðist Erla ekki verða vör við að fólk horfði í eyririnn, það liti á þessi kaup sem nauðsyn. Úrval mikið og verð misjafnt Sigríði Þorvarðardóttur og börn hennar tvö þau Þorvarð og Huldu hittum við einnig fyrir í Hagkaupum. Sigríður sagðist aðeins vera að skoða- hún væri búin að kaupa það sem börnin þyrftu til skólans. Hún sagðist hafa keypt smátt og smátt og byrjað snemma þannig að hún hefur ekki fund- ið svo mjög fyrir innkaupun- Sigríður Þorvarðardóttir. um. Þorvaður cr að hefja nám í 11 ára bekk í Seljaskóla og Hulda að stíga sín fyrstu skref á námsbrautinni. Þorvarður sagðist ekki hlakka til að byrja í skólanum, en Hulda er liins vegar spennt að hefja sína skólagöngu. Sigríður sagðist láta börnin skipta um föt eftir skóla, að minnsta kosti hefði það gengið vel með Þorvald og stefndi hún að því aö venja Huldu einnig á það. Hún sagði aðspurð ekki hafa fundið svo mikið fyrir kostnaði við skólaundirbúning barnanna, en Ijóst væri að verð á fatnaði væri mjög misjafnt og úrvaliö mikiö. Það væri því mjög mikilvægt að hafa augun hjá sér við valið. IMISSAN DOUBLE CAB 2,4 bensín 4x4 pallbíll með 5 í sæti NISSAN PICK-UP 2,3 díesel m Verið velkomin Eigum þessa traustu NIS5AN bíla til á lager Bílasyning laugardag og sunnudag kl. 14.00- 17.00 ^ 1957-1987^)/ 30 St >4^ ára jwf Alltaf heitt á könnunni INGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560. TRAUSTIR NISSAN PATROL 3,3 díesel - 7 manna jeppi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.