Tíminn - 06.09.1987, Síða 9
Sunnudagur 6. september 1987
Tíminn 9‘
þrönga fyrir svo stórt hús.
Ráðherra lét því byrja á fram-
kvæmdum 1930 og lagði mikið kapp
á að koma húsinu sem lengst. Hann
óttaðist að andstæðingar sjóðsins
ntundu skerða hann ef þeir kæmust
til valda í þingkosningunum 1931.
Stjórn sú sem Jónas átti sæti í sat
til 1932 og þá var Þjóðleikhúsið
komið svo langt að ekki varð snúið
við. Þó gekkst fjármálaráðherra, -
Ásgeir Asgeirsson, - fyrir þvf 1932
að lögunum um leikhússjóðinn var
breytt þannig, að ríkissjóður fékk
hann til alménnra þarfa. En 1932 var
gengið frá húsinu að utan og settir í
það gluggar.
1933 var hætt við framkvæmdir að
mestu við Þjóðleikhúsið og stóð það
ónotað til þess tíma að Bretar her-
námu lsland 10. mat' 1940. Tóku þeir
húsið til sinna nota og höfðu þar
bækistöð. Að stríðinu loknu var
tekið til við að fullgera Þjóðleikhús-
ið. Þjóðin hafði grætt mikla fjárupp-
hæð á stríðstímanum. Bjartsýni ríkti
á ný.
Þjóðleikhúsið tók til starfa 1950.
Eitt af þremur leikverkum sem sýnt
var við opnunina var Nýársnóttin
eftir Indriða Einarsson.
Opnunin markaði tímamót í leik-
starfsemi Islendinga og sótti fólk
sýningar i ríkum mæli. Árið 1974
voru leikhúsgestir hússins komnir
yfir 100 þúsund.
Hér að framan hefur verið rakin
saga Þjóðleikhússins í stórum
dráttum. Næstum 50 ár liðu frá því
að hugmyndin kom fyrst fram og þar
til húsið var tekið í notkun. Þetta er
langur tími og nieðan húsið stóð
ónothæft var sungið í Rcykjavík:
„Þjóðleikhúsið þolir bið, þarna bak
við Safnhúsið." En þetta hafðist og
í dag er Þjóðleikhúsið verðugt
minnismerki um þá menn sem aldrei
gáfust upp - og náðu settu marki.
Hcimilduskrá:
Alþingislíðindi. Rcýkjavík. 1923. 1925.
Heimir Rorlcifsson: Frú cinvddi til lýðvcldis.
íslandssuga cftir 1830. I'riöja útgáfa.
Bókavcrslun Sigfúsar Eymundssonar. Rcykja-
vik 1977.
Jónas Jónsson: Fcgurd lífsins. Samband ungra
framsóknarmanna. Rcykjavík 1940.
Stcfán Einarsson: Skúldaþing. Bókaútgáfa
Guöjóns Ó. Guðjónssonar. Rcykjavík 1948.
talsmcnn á móti frumvarpinu voru
þeir Jónas Jónsson og Jakob Möller.
En leikhúsið átti sér fleiri stuðnings-
menn á Alþingi og ber nú sérstaklega
að nefna ungan nýkjörinn þingmann
-ÓlafThors. Hann var tengdasonur
Indriða Einarssonar.
Fyrsta áhlaupi á Ieikhússjóðinn
var hrundið og óx hann nú ört.
Jónas Jónsson varð ráðherra
menntamála 1927. Hann hélt stöð-
ugt vöku sinni í leikhúsmálinu og
fylgdist vel með að unnið væri að
undirbúningi framkvæmda. Hann
réð Guðjón Samúelsson húsameist-
ura til þess að gera teikningu að
húsinu. M.a. fór Guðjón til Norður-
landa og kynnti sér þarlendar leik-
húsbyggingar. Með honum í förinni
var formaður leikhúsnefndar, Ind-
riði Einarsson.
Næst kom að því að velja stað
undir leikhúsið og kontu nokkrir
staðir til greina. Talað var um íshús-
lóðina vestur við Tjarnarbrúna, neð-
an til í Arnarhólsbrekkunni, Skóla-
vörðuhæðina og að síðustu lóðina
fyrir ofan Landsbókasafnið við
Hverfisgötu.
Ekki var hægt að leysa þessi
lóðamál á viðunandi hátt, því uppi
voru háværar raddir í bænum um
það að skerða leikhússjóðinn og
nota hann til ýmissa annarra bygg-
inga eins og háskólann, útvarpshúss,
dómkirkju, verkamannabústaða
o.fl.
Lóðin fyrir ofan Landsbókasafnið
var því valin, þó svo að húsameistari
væri því andvígur, - taldi hana of
Flmmtíu ár liðu áður en draumurinn um þetta mikla hús varð að veruleika.
UMBOÐIÐ,
.eSt seldu vasareiknar
W í heimi.
Mikið úrval af vasareiknum og
tölvum. Kynnið ykkur Casio
og kannið verðið.
wr
CASIO
I
® SKÓLANN
SKÓLATÖLVURNAR
MEÐ ALMENN
BROT OG BROTABROT.