Tíminn - 10.09.1987, Síða 10
10 Tíminn Fimmtudagur 10. september 1987
lllllllllllllllllHlllllllil íþróttir !:llllíliliivi!ll!ll;j:|! ■ i;í:llil:l|:;''Í:l;il'Ní';!:íi!l:!!!;:i!!!ilTii;■ iJ'l!l|:!;i1 ■ j.lilli!--';■ !I!IT..'.liiJiT'!,j,il!lil;|!,„iiiiiill;!r;,'l;i;liii';:!;.;i.:l'i|ii|:' i'lli,ii|iP"",,i:illi!iT'„,1:111 ,i^IT1 ' ,:i:iiiii!■ V'
Pétur Pctursson skoraði fyrra mark íslendinga og hér er boltinn á leiðinni í netið án þess að Erik Thorstvedt koini neinum vörnum við. Pétur er greinilega ekki búinn að átta sig á að boltinn ætli
í netið en norsku varnarmennirnir virðast skelfingu lostnir. Tímam.vnd pjctur.
Evrópukeppni landsliöa í knattspyrnu á Laugardalsvelli:
Sigur á Norðmönnum
- íslenska landsliöið gerði tvö mörk gegn einu og tryggði sér sigur þrátt fyrir að eiga lengi vel undir högg að sækja
íslenska landsliðið í knattspyrnu
sigraði landslið Norðmanna mcð
tvcimur mörkum gegn einu á Laug-
ardalsvelli í gærkvöld. Leikurinn
var liður í undankeppni Evrópu-
móts landsliða. Mörk íslenska liðs-
ins gerðu Pétur Pétursson og nafni
hans Ormslev en Jörn Andersen
skoraði fyrsta mark leiksins fyrir
Norðmenn. Leikurinn var lítt
skemmtilegur á að horfa en sigur-
inn eigi að síður sætur.
Það voru Norðmenn sem hófu
leikinn af miklum krafti og virtist
strax í upphafi sem þeir ætluðu að
kafsigla íslenska liðið. íslensku
leikmennirnir virkuðu mjög hik-
andi og allt að því hræddir og
Norðmcnn réðu lögum og lofum á
vellinum. „Við hefðum getað tapað
leiknum á fyrstu 20 mínútunum"
sagði Sigi Held landsliðsþjálfari eft-
ir leikinn. „Strákarnir voru mjög
óákveðnir og spenntir í upphafi
leiksins, lítil hreyfing og sóknin
ómarkviss" sagði Held og ekki er
það of mikið sagt því íslenska liðið
hafði ekki komið boltanum svo
mikið sem einu sinni inn í vítateig
andstæðinganna þegar Norðmenn
voru búnir að skora. Markið gerði
Jörn Andersen sem var aleinn á
vinstra markteigshorni íslenska
liðsins og átti ekki í minnstu vand-
ræðum með að senda boltann í autt
markið. Sendinguna fékk liann frá
Kai Erik Herlovsen sem hafði
dregið til sín alla íslensku vörnina.
Þar var staðan orðin 0-1 og útlitið
fjarri því að vera bjart. íslenska
liðið átti sitt fyrsta færi stutlu eftir
markið en það var ekki ýkja hættu-
legt. Norðmenn höfðu sem fyrr
yfirhöndina og Erik Solér komst í
dauðafæri á 14. mín. en skaut beint
á Bjarna Sigurðsson í markinu sem
þakkaði fyrir og gómaði boltann.
Á 22. mín. var komið að íslend-
ingum að jafna metin. Boltinn hóf
ferð sína hjá Gunnari Gíslasyni,
barst til Ragnars Margeirssonar og
hann sendi gullfallega stungusend-
ingu á Pétur Pétursson. Pétur lék
áfram, snéri laglega á varnarmenn
Norðmanna og sendi boltann í net-
ið með þrumuskoti. Hreint stór-
kostlegt rnark og eitt af þessum
færum sem Pétur Pétursson er snill-
ingur í að skora úr, virðist vonlítið
en hann afgreiðir boltann sallaró-
legur í netið.
Nú fór að vænkast hagur
strympu og fram að lcikhléi var
meira jafnræði með liðunum þótt
íslenska vörnin virkaði á tíðum
ansi óörugg. Þannig áttu Norð-
menn tvívegis dauðafæri þegar
seint gekk að hreinsa frá en Wil-
fred Wallace dómari flautaði til
leikhlés án þess að til stórtíðinda
drægi.
Seinni hálfleikurinn var mun jafn-
ari þó íslenska liðið héldi áfram að
lcika sama hlédræga leikinn og fyrr
þar sem boltinn kom æði oft við hjá
Bjarna Sigurðssyni markverði.
Norðmenn voru ekki eins sprækir og
í upphafi og tókst ekki að skora úr
færum sínum. Það tókst hinsvegar
íslendingum á 60. mín. og var þar á
ferðinni Pétur Ormslev. Hann fékk
stunguscndingu frá nafna sínum Pét-
urssyni, lagði boltann fyrir sig og
skoraði með föstu skoti. Falleg sam-
vinna þeirra félaga og markið reynd-
ist tryggja íslendingum sigur í leikn-
um.
Leikurinn var sem fyrr sagði ekki
skemmtilegur á að horfa enda býður
leikaðferð íslenska liðsins ekki upp
á það, engin áhætta tekin og treyst á
skyndisóknir. Þessi aðferð er engu
að síður árangursrík þó varla sé
hægt að segja með góðri samvisku
að úrslitin hafi verið sanngjörn, til
þess áttu Norðmenn of mörg dauða-
færi. „Við áttum fleiri færi og hefð-
um átt að nýta þau betur" sagði Tord
Grip þjálfari Norðmanna eftir leik-
inn. Hann bætti því við að íslenska
liðið hefði ekki komið sér á óvart,
hann hefði vitað það fyrirfram að
þeir myndu berjast vel. Sigfried
Held landsliðsþjálfari var ánægður
að sjá eftir leikinn og sagðist vera
hress með úrslitin en gaf lítið út á
það þegar hann var spurður um
leikinn sjálfan; „það sást gott spil á
köflum í seinni hálfleik og það var
góð barátta í liðinu" sagði Held.
Enginn íslensku leikmannanna
lék áberandi vel í leiknum í gær-
kvöldi, menn stóðu vel fyrir sínu án
þess að sýna stórleik. Helst er að
nefna Sævar Jónsson og mörk þcirra
Péturs Péturssonar og Ormslev voru
einstaklega vel útfærð.
Leikurinn var síðasti heimaleikur
íslendinga í Evrópukeppninni og
eru þeir komnir uppfyrir Norðmenn
að stigum eftir sigurinn. -HÁ
Annað mark íslenska liðsins að verða staðreynd. Norski markvörðurinn var of seinn að verja fast skot Péturs Ormslev sem greinilega er við öllu búinn.
Tímamynd Pjelur.