Tíminn - 15.09.1987, Blaðsíða 11
10 Tíminn
Þriðjudagur 15. september 1987
Þriðjudagur 15. september 1987
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Víkingar í fyrstu deild
Víkingar endurheinitu á sunnu-
daginn sæti sitt í 1. deild eftir tveggja
ára fjarveru með því að sigra Selfyss-
inga 3-2 á Valbjarnarvellinum. Vík-
ingar höfðu yfir 2-1 í lcikhléi.
Það voru Selfyssingar sem sóttu
undan vindinum í fyrri hálfleik og
skoruðu fyrsta markið, stórglæsilegt
skallamark Jóns Gunnars Bergs.
Selfyssingar höfðu fram að því verið
í sókn nánast allan tímann og héldu
því áfram. Jón Gunnar átti skalla
ofan á slá Víkingsmarksins en ör-
skömmu síðar komust Víkingar í
skyndisókn sem Björn Bjartmarz
jafnaði úr. Markið kom eins og
reiðarslag yfir Selfyssinga og var í
raun úrslitamark leiksins, svo miklu
breytti það. Selfyssingar höfðu legið
í sókn og Víkingar virtust vera aö
brotna en dæmið snérist þarna alveg
Björn Bjartmarz á fullri ferð í átt að marki Selfyssinga, óáreittur, og örskömmu síðar lá boltinn í markinu.
Tímamynd Pjclur
við. Atli Einarsson bætti við öðru
marki fyrir Víkinga nokkru síðar og
þar með var varla spurning um
úrslit. Björn Bjartmarz skoraði
þriðja mark Víkinga á 75. mín.,
bókstaflega labbaði með boltann inn
í mark Selfyssinga og þrátt fyrir að
Björn Axelsson næði að minnka
ntuninn á síðustu mínútu leiksins
breytti það ekki neinu. Selfyssingar
voru miklir klaufar að fá á sig þessi
mörk, þeim var svo mikið í mun að
sækja að vörnin gleymdist augnablik
og það var nóg.
Siglfirðingar unnu auðveldan sig-
ur á ÍR-ingum í roki og rigfiingu á
sunnudaginn. Lokatölur urðu 6-3 en
í hálfleik var staðan 5-1. Siglfirðing-
ar léku undan vindi í fyrri hálfleik og
voru þá mjög ágengir við mark
ÍR-inga. Heimir Karlsson skoraði
þrjú mörk fyrir ÍR í leiknum og varð
þar með markahæsti leikmaður 2.
deildar. Fyrir KS skoruðu Róbert
Haraldsson og Jónas Björnsson 2
hvor en Baldur Benediktsson og
Gústaf Björnsson 1 hvor. Gústaflék
þarna að öllum líkindum sinn síðasta
leik með KS í bráðina því hann
heldur nú erlendis til náms.
Eyjamenn unnu ísfirðinga 5-2 og
Blikarnir sigruðu Vopnfirðinga með
sömu markatölu og færðust þar með
upp í þriðja sæti deildarinnar.
- öþ/HÁ
Reykjavíkur-
mótið í hand-
knattleik
Úrslit leikja hafa orðið
þessi undanfarna daga:
Mfl. kvenna:
Valur-Víkingur 15-12
KR-Fram 20-19
Stadan
Víkingur........ 2
Valur........... 1
KR ............. 2
Fram ........... 1
Mfl. karla:
KR-Fylkir 30-11
Ármann-ÍR 15-25
KR-Ármann 34-18
Fylkir-Valur 14-40
Fram-KR 18-21
Ármann-Víkingur 19-25
ÍR-Fylkir 28-26
Fram-Valur 25-23
Staðan
KR .......
Fram .....
Víkingur . . .
ÍR........
Ármann ....
Fylkir....
Nœstu leikir:
Mfl. kvenna:
15.09. kl. 19.15 Valur-KR
17.09. - 19.15 Víkingur-Fram
Mfl. karla:
15.09. kl. 20.30 KR-Víkingur
15.09. - 21.45 Ármann-Fylkir
17.09. - 20.30 Fram-ÍR
17.09. - 21.45 KR-Valur
Lokakeppni stigamóta frjálsíþróttamanna:
Einar varð fimmti
Reuter
Einar Vilhjálmsson hafnaði í 5.
sæti í úrslitakeppni stigamóta frjáls-
íþróttamanna sem haldin var í Brus-
sel á föstudagskvöldið. Einar kastaði
77,56 m en sigurvegari varð Viktor
Yevsyukov frá Sovétríkjunum með
84,02 m. Einar varð einnig fimmti í
heildarstigakeppni spjótkastaranna.
Pað var Bandaríkjamaðurinn
Tom Petranoff sem sigraði í stiga-
keppninni í spjótkastinu, fékk 51
stig. Bretinn Mike Hill varð annar
með 43 stig og Sovétmaðurinn Yevs-
yukov þriðji með 34. Tékkinn Jan
Zellezny varð fjórði með 38 stig og
Einar sem fyrr sagði fimmti, fékk 36
stig. Svíinn Peter Borglund kom
næstur með 30 stig, V-Þjóðverjinn
Tafelmeier sjöundi með 22 og Dag
Wennlund frá Svíþjóð varð áttundi
með sömu stigatölu.
Röð keppenda í spjótkastinu í
úrslitakeppninni varð þessi:
1. Viktor Yevsyukov 84,02 m
2. Tom Petranoff 83,24 m
3. Jan Zellezny 79,26 m
4. Klaus Tafelmeier 78,16 m
5. Einar Vilhjálmsson 77,56 m
6. Mike Hill 77,54 m
7. Peter Borglund 77,52 m
8. Dag Wennlund 76,12 m
Ben Johnson og Carl Lewis sigr-
uðu í 200 m hlaupi með stuttu
millibili á mótinu í Brussel. Johnson
keppti ekki í stigahlaupinu heldur í
boðshlaupi sem fram fór samhliða.
Johnson kom í mark á 20,76 sek. og
var vel á undan Desai Williamms
sem varð annar á 28,83 sek. Johnson
geystist af stað eins og venjulega
með ótrúlegu starti og eftir að hægja
á í beygjunni bætti hann aftur við á
beinu brautinni og sigraði sem fyrr
sagði örugglega.
Lewis hljóp á 20,31 sek. og átti
greinilega nóg eftir þrátt fyrir það.
Thomas Jefferson varð annar á 20,43
sek.
Sabine Busch endurtók afrek sitt
frá HM og sigraði í 400 m grinda-
hlaupinu í kvennaflokki, hljóp á
54,28 sek. Sama stúlka varð önnur
og í Róm, ástralski Samveldismeist-
arinn Debbie Flintoff á 54,56 sek.
- HÁ
Vinningstölurnar 12. september 1987
Heildarvinningsupphæð: 4.735.981
1. vinningur var kr. 2.372.636,-
2.
og skiptist hann á milli 4ra vinningshafa, kr.
593.159,- á mann.
vinningur var kr. 709.275,-
og skiptist hann á 965 vinningshafa, kr. 735,-
á mann.
vinningur var kr. 1.654.070,-
og skiptist á 13.670 vinningshafa, sem fá 121
krónu hver.
532
Upplýsingasími:
685111
Carl Lewis.
Lokastaðan i 2. deild
Víkingur 18 n 2 5 35-26 35
Leiftur . 18 9 5 4 32-22 32
UBK ... 18 9 2 7 34-23 29
Selfoss . ■■■■■■■■■■■■■•■•■ 18 8 5 5 35-28 29
Þróttur . 18 9 1 8 35-31 28
ÍBV .... 18 7 5 6 35-30 26
KS .... 18 7 4 7 33-32 25
ÍR 18 7 4 7 33-34 25
Einherji 18 5 4 9 21-35 19
ÍBÍ .... 18 : > 0 16 22-54 6
Evrópukeppni bikarhafa, ÍA-Kalmar:
Spila öðruvísi fótbolta
en við eigum að venjast
- segir Guðjón Þórðarson þjálfari Skagamanna um Kalmarliðið
Pétur Ormslev og Rúnar Kristinsson með verðlaun sín í lokahófi 1. deildarleikmanna á sunnudagskvöldið. Pétur var kosinn besti
leikmaður 1. deildarinnar sumarið 1987 og Rúnar sá efnilegasti. Þetta er annað árið í röð sem Framarar eiga besta ieikmann deildarinnar
en Guðmundur Torfason hlaut titilinn í fyrra. Kjör Péturs og Rúnars kom fæstum á óvart, þeir þóttu líklegastir fyrirfram. Tímamvnd Pjetur.
Skagamenn fá lið Kalmar frá Sví-
þjóð í heimsókn í fyrstu umferðinni
í Evrópukeppni bikarhafa í knatt-
spyrnu á Akranesi í kvöld. Lcikurinn
hefst kl. 17.30 á heimavelli þeirra
Akurnesinga.
Kalmarliðið er í 2. deild í Svíþjóð,
féll í fyrra en tryggði sér jafnframt
bikarmeistaratitilinn. Sýnir það
nokkuð vel styrk liðsins en jafnframt
„karakter" þess, liðið leikur mjög
vel á góðum degi en dettur niður á
milli. Guðjón Þórðarson þjálfari ÍA
var ekki nema passlega bjartsýnn
þegar Tíminn hafði samband við
hann í gær og sagði Guðjón leikinn
leggjast þokkalega í Skagamenn.
„Maður er auðvitað alltaf með vissan
kvíða fyrir svona leiki, en kannski
ekki neinn ótta samt.“ Guðjón sagði
sína menn tilbúna í slaginn en þó
hefði einn helst úr lestinni um helg-
ina, Hafliði Guðjónsson öklabrotn-
aði í leiknum á móti KA í 1.
deildinni.
Guðjón sagðist hafa kynnt sér
sænska liðið og sagði það leika
öðruvísi knattspyrnu en við hér
ættum að venjast og vera mjög
leikna með boltann. Án efa yrði
erfitt að eiga við þá. „Við förum
auðvitað varlega en reynum samt að
spila okkar leik. Við verðum að ná
hagstæðum úrslitum en fyrst og
fremst verða allir að gera sitt besta,
meira er ekki hægt að gera“ sagði
Guðjón.
Þekktastur af leikmönnum Kalm-
ar FF er líklega Peter Nilson sem
áður lék með belgíska liðinu FC
Brugge og þar áður með Teiti Þórð-
arsyni hjá Öster. Hann hefur leikið
35 landsleiki fyrir Svíþjóð. Aðrir
landsliðsmenn eru Hakan Arvidsson
með 17 leiki, Johny Erlandsson með
3 og Martin Holmberg með 2.
Liði Kalmar FF hefur gengið
þokkalega í deildinni í sumar en er
reyndar ekki í toppbaráttunni.
Leikurinn hefst sem fyrr sagði á
Akranesi kl. 17.30. Miðaverð er kr.
400 fyrir fullorðna og kr. 100 fyrir
börn. Afsláttur er veittur af
“pakka", þ.e. ferð með Akraborg
og leik á miða og fer Akraborgin kl.
16.00 frá Reykjavík og kl. 20.30 til
baka eftir leik, aukaferð.
- HÁ
Pétur bestur og
Rúnar ef nilegastur
Pétur Ormslev knattspyrnumaöur úr Fram
var á sunnudagskvöld kjörinn besti leikmaður
1. deildar íslandsmótsins árið 1987. Rúnar
Kristinsson úr KR hlaut útnefninguna efnileg-
asti leikmaðurinn. Tilkynnt var um valið í
lokahófi 1. deildarleikmanna sem haldið var í
veitingahúsinu Broadway.
Kjör þeirra Péturs og Rúnars kom fáum á
óvart, þeir höfðu verið taldir líklegastir fyrir-
fram. Pétur hefur líklega aldrei leikið betur en
í sumar og hefur hann verið potturinn og
pannan í spili Framliðsins auk þess sem hann
hefur leikið með landsliðinu. Rúnar hefur
einnig verið áberandi í leik KR-liðsins og
leikið með unglingalandsliðinu að auki.
Það var Frank McLintock, fyrrum fyrirliði
Arsenal. sem afhenti Pétri verðlaun sín en
hann var gestur 1. deildarleikmanna í lokahóf-
inu.
í hófinu var einnig kosin besta knattspyrnu-
mynd sumarsins og varð mynd Brynjars Gauta
á DV úr leik Vals og Fram fyrir valinu.
- HÁ
Valsstúlkur urðu
bikarmeistarar
Valsstúlkur tryggðu sér á sunnudaginn bika-
rmeistaratitilinn í meistaraflokki kvenna, sigr-
uðu ÍA 2-1 í úrslitaleik sem háður var á
Valbjarnarvelli.
Veðrið var í stóru hlutverki í þessum leik
eins og flestum knattspyrnuleikjum helgarinn-
ar og varð knattspyrnan fyrir bragðið ekki eins
skemmtileg. Bæði lið börðust af krafti og urðu
úrslitin alls ekki ljós fyrr en flautað var til
leiksloka þrátt fyrir að öll mörkin hafi verið
gerð í fyrri hálfleik.
Fyrsta markið kom eftir mistök markvarðar
Skagamanna, hún hugðist stíga skref afturábak
inn í vítateiginn og grípa síðan boltann en var
of fljót á sér og fékk dæmda á sig hendi..
Guðrún Sæmundsdóttir sendi síðan boltann í
netið eftir aukaspyrnuna. Ingibjörg Jónsdóttir
bætti við öðru marki Vals eftir að hún komst
ein í gegnum vörn Skagastúlkna en mark-
mannsmistök hinumegin urðu kveikjan að
marki ÍA, Laufey Sigurðardóttir skoraði þá
eftir að dæmd höfðu verið skref á markvörð
Vals.
Leikurinn einkenndist fyrst og fremst af
mikilli baráttu og áttu bæði lið þokkalegustu
færi. Engin ein stóð uppúr jöfnu liði bikar-
meistaranna en hjá Skagastúlkum er helst að
nefna Halldóru Gylfadóttur.
Keppt var á Valbjarnarvelli og er óskiljan-
legt hversvegna kvenfólkið fær ekki að leika
sjálfan bikarúrslitaleikinn á aðalleikvanginum.
- HÁ
Tvíbökur
tvíbakaðar - nýbakaðar
nákvæmlega
eíns og tvíbökur
eíga að vera.
Ragnheiður Víkingsdóttir fyrirliði Vals hamp-
ar bikarnum. Tímamynd Pjetur.