Tíminn - 15.09.1987, Blaðsíða 5

Tíminn - 15.09.1987, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 15. september 1987 Tíminn 5 Reiknað með lausn hvalamálsins í Hvalamálið er enn ekki leyst. Allar líkur benda þó til að það leysist seinna í dag, eða í síðasta lagi í kvöld, samþykki íslensk stjórnvöld orðalagsbreytingar Bandaríkj amanna. í samtali við Tímann seint í gærkveldi sagðist Halldór Ás- grímsson, sjávarútvegsráðherra ekki búast við að endanleg niðurst- aða lægi fyrir, fyrr en síðdegis í dag. Halldór benti á að það væri ekki nóg að Bandaríkjamenn skil- uðu inn tillögunum, heldur þyrftu íslendingarnir að kynna sér þær líka. Það tæki einhvern tíma. í gær og langt fram á kvöldið leit út fyrir að málið væri að komast í höfn. Ekki var búist við öðru en að Bandaríkjamenn myndu skila inn tillögunum aftur til íslenska sendi- ráðsins innan þeirra tímatakmark- ana, þ.e.a.s. innan þessara fimm daga sem þeir höfðu talað um. Sá frestur rann út í gærkveldi. Nær öruggt er talið að tillögur Bandaríkjamanna með breyttu orðalagi iiggi nú fyrir hjá íslenskum aðilum, bæði ytra sem hér heima. Því séu íslensku aðilarnir nú að fara yfir breytingar Bandaríkja- manna og séu þeir þeim samþykk- ir, leysist málið seinna í dag. Samkvæmt heimildum Tímans hafa bandarískir aðilar glímt við það nótt sem nýtan dag að breyta orðalagi tillagnanna, þannig að tillögurnar stangist ekki á við bandarísk lög. Meginatriði tillagnanaa_5tfifldÉlfc samt eftir sem áður eftirT5breyiR" Pannig munu Bandaríkjamenn samþykkja fyrir sitt leyti að fslend- ingar veiði 20 sandreyðar ásamt því að leggja sínar athafnir fyrir vísindanefnd Alþjóðahvalveiðir- áðsins. Vandi Bandaríkjamanna er á hinn bóginn auðskilinn. Þeir geta ekki skyndilega samþykkt vísinda- veiðarnar, nýbúnir að gefa í skyn að viðskiptaþvinganir vegna þeirra séu á næsta leiti. Þeim virðist hins Fari svo sem sjávarútvegsráðherra býst við, halda tveir hvalbátanna til veiða mjög fljótlega. vegar hafa tekist að sneiða framhjá Iagaákvæðum, og standist það, geta þeir haldið friðinn við íslend- inga annars vegar, og hins vegar friðað „pressuhópana" ytra, með því að vitna í tillögurnar sem ekki stangast á neinn hátt við bandarísk lög. Bandarískum aðilum virðist hafa tekist að koma málinu fyrir horn með orðalagsbreytingunum. Hvort þær standast íslenskar kröfur, er hins vegar enn ekki ljóst. Verði í lagi með orðalagsbreytingarnar, og íslendingarnir samþykki þær, halda hvalbátarnir á miðin strax í kvöld eða nótt. Hafi Bandaríkja- menn á hinn bóginn breytt tillögun- um það mikið, að þær breyti eðli þeirra á einhvern hátt, er málið komið í nýjan og jafnvel illleysan- legan hnút. Tveir hvalveiðibátar standa til- búnir til að halda á miðin og veiða þær 20 sandreyðar sem eftir eru af hvalveiðikvótanum. Ákveðið hef- ur verið að veiða fram í október- mánuð, en þess eru dæmi að slíkt hafi verið gert áður, en undir venjulegum kringumstæðum er Tímumynd: Brein ekki veitt lengur en fram undir miðjan septembermánuð. Veiðunum verður hagað með tilliti til vinnuhraða þeirra aðila sem enn eru við vinnu í Hvalstöð- inni. Mikið er um að skólafólk vinni á sumrin í hvalstöðinni, og þar sem skólarnir eru nú byrjaðir, hefur starfsliði Hvalstöðvarinnar fækkað til muna. - SÓL Æfing Almannavarna: Hvernig er brugðist við Suðurlandsskjálftanum? „Við tókum út þrjá staði sem módel. Það voru Selfoss, Hvolsvellir og Flúðir. Þangað fórum við með þrjátíu vettvangsstjóra, sérþjálfaða, til að skoða hvernig við mundunt skipuleggja hjálparstarf inn á þessa staði í kjölfar Suðurlandsskjálfta. Það voru valin starfssvæði fyrir hjálparliðið, mcð tilliti til söfnunar- svæða fyrir tækjabúnað og mann- afla. miðað við úr hvaða áttum maður sækir með liðið og tækin inn á byggðina og síðan voru valin svæði fyrir slasaða, hvar óslösuðum er komið fyrir áður en fólk er flutt á brott og einnig hvaðan flutningar færu fram með þyrlum og þess háttar” sagði Guðjón Pctersen, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins, cn um helgina var haldin vettvangskönnun á Suðurlandi. Könnunin tókst í alla staði mjög vel, og má segja að æfingin hafi leitt í ljós agnúa á drögum þeim sem Almannavarnir höfðu dregið upp í nýju skipulagi, og því var hægt að breyta því. Mistökin voru fólgin í skiptingu milli Skeið- og Gnúpverja- hrepps og Hrunamannahrepps, sem reyndist röng á pappírunum, en var leiðrétt. Æfingarnar stóðu yfir frá 8 á laugardagsmorgni til 17 um daginn, og tóku rúmlega 30 manns þátt í æfingunni, en þeir koma úr röðum lögreglumanna, slökkviliðsstjóra og björgunarsveitarmanna. Mennirnir koma af svæðinu frá Snæfellsnesi til Vestur-Skaftafellssýslu. - SÓL , Fiskmarkaöur á Suðurnesjum: Agætt meðalverð á fyrsta uppboði Fyrsta uppboð Fiskmarkaðs Suðurnesja hf. var haldið í húsnæði félagsins í Njarðvík í gær klukkan 15. Var um nokkurskonar prufu- uppboð að ræða og var boðinn upp afli úr skipunum Unu í Garði GK 100 og Vörðufelli GK 205, samtals um 8 tonn. 5,3 tonn seldust af kola á meðal- verðinu 36,60 krónur. 800 kíló af þorski fóru á meðalverðinu 30,40 og síðan voru seld 700 kíló af keilu, steinbít og löngu á 10 krónur. Um 8 aðilar buðu í aflann og þótti uppboðið takast afbragðsvel.' í dag verða haldin tvö uppboð á vegum Fiskmarkaðs Suðurnesja og fara þau fram samtímis í Njarðvík og Grindavík. Verður þá boðinn upp afli úr nokkrum bátum, þ.á m. úr Vörðufellinu. Hefjast þau bæði klukkan 15. - SÓL VERSLUNARRAD ÍSLANDS 70 ÁRA I fréttatilkynningu frá Verslunarr- áði íslands segir að þann 17. sept- ember séu 70 ár liðin frá stofnun þess. Það var upphaflega sett á laggirnar sem fulltrúaráð fyrir verslun, iðnað og siglingar, en starfar nú scm alh- liða samtök viðskiptalífsins. í til- kynningunni segir: Verslunarráð ís- lands hóf starfsemi sína á erfiðum tímum í sögu þjóðarinnar. Vöru- skortur var mikill og það verslunar- frelsi sem náðst hafði með langri sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar var skert af landsstjórninni sjálfri. Ennfremur segir, að Verslunar- ráðið sé málsvari viðskiptalífsins gagnvart stjórnvöldum og öðrum aðilum. Miklar framfarir hafi orðið í öllum viðskiptaháttum á síðustu áratugum. Viðskiptafrelsi og and- staða við ríkiseinokunina hafi jafnan verið efst á blaði í stefnuskrá Versl- unarráðsins. Verslunarráðið hafi oft og tíðum verið umdeilt vegna stefnu sinnat. Ráðið hafi fyrst og fremst litið til lengri tíma og til almannahagsmuna í stefnumörkun sinni og verið óhrætt að hreyfa við og styðja ýmis fram- faramál sem ekki geti náðst fram átakalaust. Fundi VSÍ og VMSÍ frestað Fyrirhuguðum samningafundi Verkamannasambandsins og Vinnuveitendasambandsins sem halda átti í dag, hefur verið frcstað fram á mánudag. Að sögn Þórarins V. Þórarins- sonar frkvstj. VSÍ virtust þeim enn mörg atriði óljós sem þyrftu að vera skýrari. Auk þcss væri vinna varðandi samningamálin, sem ákveðið hefði verið að færi frani í hópum, mjög skammt á veg komin. Þess vegna hefðu aðilar orðið sammála um þessa frestun. - phh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.