Tíminn - 22.09.1987, Page 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 22. september 1987
ÁTVR:
VÍNÚTSÖLUR OPNA
VÍDA Á NÆSTUNNI
„Við þurfum að ganga frá lóð-
inni á Stuðlahálsi og vegna legu
þessarrar lóðar þurfum við senni-
lega að steypa upp hluta af húsi.
Það er hins vegar ótímabært að
segja að þarna sé áfengisverslun á
ferðinni en það gæti orðið það,“
sagði Höskuldur Jónsson forstjóri
Áfengis-og Tóbaksverslunar ríkis-
ins aðspurður hvort ÁTVR væri að
byggja stórhýsi yfir áfengisútsölu
að Stuðlahálsi 2.
„Þessar framkvæmdir eru bara
hluti af þessu vöruhúsamáli okkar.
Til þess að mega gcra eitthvað
verða menn að leggja fram heildar-
skipulag á lóð. Það má ekki byggja
grunn án þess að gera grein fyrir
því hvernig húsið kemur til með að
líta út. Við erum aðeins að leggja
í þær framkvæmdir sem eru
skynsamlegar á þessu stigi
málsins,“ sagði Höskuldur cnn-
fremur, en búið er að ganga frá
teikningum að húsinu.
„Við erum hins vegar aftur alvar-
lega að hugsa um áfengisverslun í
væntanlegri verslunarmiðstöð i
Mjóddinni, svo erum við að opna
útsölu á Ólafsvík." Höskuldur
sagði einnig að innan skamms
myndi útsala opna á Norðfirði.
Aðspurður sagði Höskuldur að
vegna þess hve áfengisverslun í
Kringlunni ætlaði að gefa góða
raun væri farið að skoða opnun í
Mjóddinni. Þar yrði um leiguhús-
næði að ræða en ekki búið að
ákveða hvort um sjálfsafgreiðslu
yrði að ræða líkt og í Kringlunni.
Hátt í tvö ár eru liðin síðan
Ólafsvíkingar samþykktu að heim-
ila áfengisbúð á staðnum og að
öllum líkindum verður búðin opn-
uð eftir um það bil einn og hálfan
mánuð. ÁTVR opnar búðina í
samvinnu við verslunina Þóru sem
er fataverslun. Gólfflötur þeirrar
verslunar er um 60 fermetrar í allt
en vínbúðin er aðeins hluti af þeirri
búð. Áfengisbúð á Norðfirði verð-
ur að líkindum með svipuðu sniði,
gefist þetta form í Ólafsvík vel.
Garðabær, Hafnarfjörður,
Kópavogur og Seltjarnarnes hafa
einnig beðið um opnun áfengisút-
sölu og sagði Höskuldur að það
hlyti að þurfa að fara að líta á þær
óskir.
ABS
Deilan í húsgagnaiðnaöinum:
Kjararannsókn
arnefnd túlkar
ágreininginn
„Það ber enn heilt úthaf á milli,“
sagði Kristbjörn Árnason, formað-
ur Félags starfsfólks í húsgagnaiðn-
aði þegar Tíminn ræddi við hann í
gær. Virðast það orð að sönnu, því
enn hafa deiluaðilar ekki einu sinni
komið sér saman um hvaða laun
starfsfólk í húsgagnaiðnaðinum
hafi haft og því ekki von að hægt
sé að ná samningum um það hversu
mikið sú óvissutala eigi að hækka.
Að sögn Kristbjörns hafa dei-
ífúaðilar fengið Kjararannsóknar-
nefnd til að leggja sitt mat á hver
laun hafa verið og þó fyrst og
fremst hvernig þau hafa verið
samsett.: „Við höfum ekki getað
orðið sammála um þetta, en von-
andi næst niðurstaða í þessu. Það
voru starfsmenn Kjararannsóknar-
nefndar sem framkvæmdu á sínum
tíma launakönnun meðal félaga
okkar og þeir ætla að túlka þetta
fyrir okkur," sagði Kristbjörn
Arnason.
Komu starfsmenn Kjararann-
sóknarnefndar síðan á samninga-
fund deiluaðila í gær, en að sögn
Kristbjörns er lítil von til þess að
deilan leysist fljótlega. Til þess
beri enn of mikið á milli.
-phh
Vegaframkvæmdir á' Norðurlandi vestra:
Styrkingar, klæðningar
og endurbyggingar víða
Við hér á Tímanum látum ekki
deigan síga fremur en fyrri daginn.
Enn erum við mætt með kort yfir
helstu vegaframkvæmdir Vegagerð-
ar ríkisins og nú í Norðurlandi
vestra.
Áður höfum við farið yfir Vestur-
land, Vestfirði og Austurland. í
rökréttu framhaldi af því kemur
Norðurland vestra.
Snillingurinn Jónas Snæbjörns-
son, umdæmisverkfræðingur Vega-
gerðarinnar á Sauðárkróki útbjó
kortin og verður að segjast að frá-
gangur hans á kortunum var með
eindæmum góður.
Við byrjum á að líta yfir Miðfjarð-
arveg frá Austurá að Laugarbakka,
því næst Norðurlandsvegur frá Múla
að Vatnshorni og að lokum yfir
VEIÐIHORNIÐ
Meðalársveiði í Elliðaánum
Lokið er nokkuð undarlegu
veiðisumri. Veiðitölur er víða farn-
ar að berast og munum við greina
frá þeim í blaðinu. Elliðaárnar
gáfu 1175 laxa í sumar og reyndar
er varla hægt að kalla það allt
saman fiska. Talsvert var um laxa
á bilinu eitt til tvö pund. Ótrúlega
smátt. Leitað var til Veiðimála-
stofnunar eftir skýringum á þessu.
Að sögn Garðars Þórhallssonar
formanns árnefndar Elliðaánna
fengust þau svör frá Veiðimála-
stofnun að líklegast væri um að
ræða laxaseiði sem hefðu gengið
seint niður í fyrra og þarafleiðandi
haft stutta viðkomu í sjó.
Skemmdarverk
Ekki alls fyrir löngu var greint
frá því í fjölmiðlum að skolp hefði
komist í Elliðaárnar og mátti helst
skilja á fréttinni að slíkt væri
alvanalegt. Þegar farið var að
grennslast fyrir um ástæður þessa
kom í ljós að unnin höfðu verið
skemmdarverk á holræsisbrunni í
grennd við ána. Stórhgrýti hafði
verið hent í brunninn og þar af
leiðandi opnaðist rás fyrir skolpið
og fór það beint út í á. Þessu var
fljótlega kippt í liðinn og sam-
kvæmt bestu vitneskju aðstand-
enda árinnar fer nú ekki dropi í
hana af skolpi fremur en endranær.
Næst besta sumar Breið-
dalsár
Alls veiddust 257 laxar í Breið-
dalsá í sumar og er það næst besta
sumarið frá stofnun veiðifélagsins,
en það var stofnað 1963. Besta
sumarið var árið 1978, en þá veidd-
ust 412 laxar. Stærsti laxinn sem
veiddist í ánni í sumar var átján
punda lax sem veiddist í Norður-
dalsá og greint var frá í Veiðihorn-
inu fyrr í sumar. Besta veiði á eina
stöng í einn dag reyndust vera níu
laxar en mikið var um að menn
fengu fjóra og upp í fimm.
Vatnsnesveg frá Böðvarshólum að styrkingar, klæðningar og endur-
Norðurlandsvegi. Um er að ræða byggingar. -SÓL