Tíminn - 27.09.1987, Page 11
Sunnudagur 27. september 1987
Tíminn 11
að bera það saman við skó
grunaðs manns.
Af ummerkjum þótti sýnt, að
gamla konan hafði ekki verið
myrt liggjandi í rúminu. Hún
hafði ef til vill staðið við rúmið,
þegar ráðist var á hana. Blóð-
bletturinn í teppinu hafði ekki
runnið úr rúminu.
Það sem lögreglumenn veltu
mjög fyrir sér, var hvers vegna
húsið allt var svo tandurhreint
og fágað. Meira að segja stórir
blettir á veggjum virtust hafa
verið skrúbbaðir alveg nýlega.
Var hugsanlegt að morðingjarn-
ir hefðu undið sér í meiriháttar
hreingerningu eftir ódæðið?
Fljótlega varð Ijóst, að harla
fátt var um sönnunargögn í hús-
inu. Alls engin fingraför
fundust, þó fingraför íbúa séu
venjulega um allt, jafnvel í
hreinustu húsum. Samt lá fyrir,
að leitað hefði verið í hirslum í
öllum herbergjum, þó sums
staðar hefði verið reynt að ganga
vel frá aftur. Sumt sem talið var
vanta, var illskiljanlegt, til dæm-
is fundust alls engin gleraugu,
þó ætla mætti að 83 ára kona
notaði slík.
Snagi á eldhúsveggnum vakti
athygli Sherwoods. Auðséð var
á málningunni neðan við hann,
að eitthvað óreglulega lagað
hafði hangið þarna lengi, en nú
var þar ekkert. Gæti það hafa
verið annað morðvopnið?
Utan við húsið fundust
fótspor, greinilega eftir nokkuð
stórvaxinn karlmann og lá slóðin
nokkra hringi umhverfis húsið.
Tekin voru mót af nokkrum
sporum, en mynstrið var ekki
hið sama og markast hafði í
höku hinnar myrtu.
Tekinn var hluti af blóðuga
gólfteppinu við rúmið, í því
skyni að rannsaka blóðið. Tepp-
ið var ónýtt hvort sem var.
Blóðugu rúmfötin voru líka fjar-
lægð til rannsóknar, en hvergi
fannst eitt einasta fingrafar og
útlit um lausn málsins virtist því
harla fátæklegt. Morðvopnin
voru á bak og burt, öll för
þurrkuð af og það eina, sem
hald virtist í, var skófarið á lík-
inu, þó það eitt sér gæti ekkert
sannað. Meira aðsegjasímatæk-
ið var eins og sótthreinsað.
- Við verðum að leita til fólks,
sagði Rodgers. - Þetta er lítill
bær og einhver hlýtur að hafa
séð eitthvað. Þar með lögðu þeir
af stað í göngu milli húsa.
Konan sem fann líkið, bjó á
búgarði skammt utan við bæinn.
Þó hún væri lostin sorg og skelf-
ingu, var hún greinargóð og
hjálpsöm við lögregluna. Hún
sagði að frænka sín hefið verið
við hestaheilsu að öllu leyti,
skörp í hugsun, ánægð með lífið
og hefði átt marga vini.
Hún kvaðst hafa komið í bæ-
inn síðdegis þann áttunda, kom-
ið við hjá Elsie, en hún ekki
verið heima. Um kvöldið reyndi
hún að hringja til gömlu kon-
unnar, en þá var ekki heldur
svarað. Konunni þótti þetta eðli-
legt, því Elsie skrapp gjarnan til
kunningja, en þegar enginn
svaraði heldur að morgni þess
níunda og fram eftir degi, fóru
að vakna grunsemdir um að
ekki væri allt með felldu og
konan fór að aðgæta um Elsie.
Nú sá hún strax brotnu rúðuna
í hurðinni, en var sannfærð um
að hún hafði verið heil daginn
áður. Hún var líka viss um að
nokkur þúsund krónur í reiðufé
hefðu verið í húsinu, því Elsie
safnaði þannig fyrir jólagjöfum
frá því snemma á haustin.
Lögreglumennirnir fréttu nú
einnig, að ókunnir menn hefðu
verið á ferð í Shandon þann
áttunda. Heyrst hefði af tveimur
náungum, sem hringsóluðu um
allt á litlum bíl. Þeir höfðu vakið
athygli vegna sérkennilegs útlits
annars þeirra. Konan hafði ekki
sjálf séð þá, en verið sagt að
annar hefði verið með sítt hár og
skegg, sem rann saman í eitt.
Hann væri eins og gamall hippi
á árum áður.
Sherwood spurði konuna um
snagann í eldhúsinu og hvað
hefði venjuelga hangið á honum.
Hún svaraði strax, að þar hefðu
alltaf hangið nokkuð stór skæri.
Morguninn eftir var rannsókn
hafin að nýju og beindist hún þá
einkum að ókunnugu mönnun-
um tveimur, sem virtust hafa
verið í Shandon meginhluta þess
áttunda. Ekki var erfitt að kom-
ast á slóð þeirra, því tekið var
eftir öllum gestum og þessir
tveir höfðu veri einkar athygl-
isverðir.
Er talað var við íbúana, kom
Myndin, (t.v.) sem vitni settu
saman af Glen Hurd, varð til þess
að hann náðist úti á götu.
í ljós, að flestir höfðu annað
hvort séð mennina, eða heyrt
um þá. Bílnum var lýst sem
grænum Ford Falcon, 1963. Það
var farþeginn sem flestir mundu
eftir. I Shandon voru flestir
karlar snöggklipptir og sléttrak-
aðir og þess vegna var þessi
loðinbarði afar sérstæður. Hann
var sagður hávaxinn, skolhærð-
ur og með flatan kúrekahatt,
sérlega óhreinan. Vegna útlits
farþegans, höfðu fáir tekið eftir
ökumanninum.
Lítið kaffihús í miðbænum
var samkomustaður íbúa eftir
vinnutíma og um helgar. Morðið
hafði verið framið síðdegis á
föstudegi og líkið fannst á laug-
ardag. Þegar lögreglan kom á
veitingastaðinn, var þar þröng á
þingi og meðal gestanna var
annar ættingi Elsie Brown.
Nær allir viðstaddir mundu
eftir græna bílnum og loðinbarð-
anum. Mennirnir höfðu meira
að segja komið þarna inn, farið
beint á salernið og út aftur, án
þess að versla neitt. Með hjálp
fólks tókst að setja saman mynd
af hippanum, sem þótti líkjast
honum mjög vel.
Kvöldið áður hafði lögreglan
farið að húsinu beint á móti
Elsie, en þar var þá enginn
heima og nú var reynt aftur. í
þetta sinn var maður þar og nú
skýrðist sitt af hverju.
Maðurinn sagðist hafa komið
úr vinnu klukkan 16.15 á föstu-
dag. Hann sat úti á veröndinni
skömmu síðar og sá þá grænan
Ford Falcon aka inn á heimreið-
ina hjá Elsie. Ökumaðurinn
steig út og gekk að dyrunum. Þá
fór nágranninn inn og í bað. Að
því loknu leit hann út og sá þá
græna bílinn aka burtu.
Um kvöldmatarleytið skrapp
granninn svo í bæinn í hálftíma,
en þegar hann kom til baka,
stóð græni bíllinn aftur í heim-
reiðinni hjá Elsie, mannlaus.
Seinna fór granninn enn út að
hitta fólk og skoðaði bílinn betur
um leið. A hann vantaði tvo
hjólkoppa, að aftan og hinum
megin að framan.
Með þrotlausri leit hafðist
einnig upp á konu, sem tekið
hafði betur eftir ökumanni
græna bílsins en flestir aðrir. -
Hann vann einu sinni í hreinsun-
ardeild bæjarins, sagði hún og
bætti við að hann hefði ekki sést
um nokkurt skeið. Ekki mundi
hún nafnið, enda hafði hún ekki
þekkt hann nema í sjón. Þó
rifjaðist upp fyrir henni, eftir
nokkra umhugsun, að hafa heyrt
hann kallaðan Steven, en svo
vísaði hún til hreinsunardeildar-
innar eftir frekari upplýsingum.
Sherwood fékk strax að vita,
að Steven nokkur Hinds hefði
starfað í deildinni og auk þess að
hann hefði verið viðriðinn of-
beldisglæp og dvalið á hæli fyrir
geðsjúka afbrotamenn um hríð.
Hann átti fjölskyldu á svæðinu,
en var bannað að heimsækja
hana, þar sem hann hafði haft
morðhótanir í frammi.
Fyrir kvöldið var vitað að
Hinds bjó á búgarði norðan við
Santa Marguerita og ráðgert var
að fara þangað strax að morgni.
Þá var það að heppnin var
með Rodgers, sem hafði einnig
augun hjá sér. Hann var að aka
að heiman, þegar hann sá bláan
Falcon í vegarbrúninni og á
hann vantaði tvo hjólkoppa. Við
nánari athugun sást að bíllinn
hafði nýlega verið handmálaður
•‘og var það illa gert í meira lagi.
Rodgers kallaði Sherwood upp
og var sagt að bíða þarna og
fylgjast með bílnum.
Sherwood var að koma til
félaga síns, þegar hann sá mann
koma út úr verslun og það sem
meira var, þetta hafði getað
verið náunginn á myndinni, sem
teiknuð var eftir lýsingu vitna á
loðinbarðanum úr græna Falc-
onbílnum.
Sherwood og Rodgers fóru
báðir í einn bíl og ákváðu að láta
til skarar skríða. Ung kona kom
og steig inn í þann bláa, og
þegar ekið hafði verið spotta-
korn, stöðvaði lögreglan bílinn
og handtók ökumanninn. í öll-
um dyrafölsum var gamla græna
lakkið á bílnum vel sýnilegt og
inni í bílnum angaði allt af nýju
lakki.
Náunginn kvaðst heita Glen
Hurd, en harðneitaði að hafa
verið nokkurs staðar í grennd
við Shandon þann áttunda. Svo
skipti hann skyndilega um skoð-
un og sagði lögreglunni hvað
gerst hafði.
Eftir hádegið þann tiltekna
dag hefðu hann og félagi hans,
Steven Hinds ákveðið a heim-
sækja Elsie Brown. Raunar sag-
ði Sherwood seinna, að aldrei
hefði fengist viðunandi skýring
á hvers vegna þeir sögðu gömlu
konunni, að bíllinn hefði bilað
og fengið lánað hjá henni skæri
og skrúfjárn. Þeir skiluðu verk-
færunum aftur og óku burt, en
þá stakk Hinds upp á að þeir
rændu gömlu konuna, hún ætti
áreiðanlega helling af pening-
um. Hurd fannst hugmyndin
góð, en Hinds bætti við að þeir
yrðu þá líka að drepa hana, þar
sem hún þekkti hann.
Hurd gerði engar athuga-
semdir, svo þeir sneru við og
báðu um verkfærin aftur. Gamla
konan opnaði til að rétta þeim
þau, en þá ruddist Hinds inn og
stakk hana í hálsinn með skrúf-
járninu. Elsie féll á eldhúsgólfið
og þá kom Hinds auga á skærin
á snaganum, greip þau og stakk
hana nokkrum sinnum til við-
bótar.
Þá kom Hurd inn og hjálpaði
félaga sínum að draga gömlu
konuna inn í svefnherbergið.
Sherwood var viss um að þeir
hefðu stungið hana nokkrum
sinnum eftir það, en loks komu
þeir henni fyrir í rúminu og
breiddu sængina yfir.
Hurd hélt vörð úti, meðan
Hinds leitaði í hirslum og fann
loks jólagjafasjóð gömlu kon-
unnar. Af illskiljanlegum ástæð-
um tók hann líka gleraugu
hennar, skó og veski. Eftir að
hafa þvegið sér lauslega, fóru
félagarnir til vinkonu Hinds í
Paso Robles og keyptu ríkulega
í matinn á leiðinni. Á eftir átti
að kaupa áfengisbirgðir, en
skyndilega mundi Hinds eftir
dálitlu, sem gleymst hafði.
Gert var hlé á veisluhöldum,
farið til Shandom og gert hreint
í ákafa, þar til hvergi sást neitt
athugavert í húsinu. Síðan héldu
þeir aftur til Santa Marguerita
og skemmtanalífsins.
Meðan verið var að yfirheyra
Hurd, náði lögreglan Hinds í
Santa Marguerita. Að yfir-
heyrslum loknum bauðst Hurd
til að fara með lögreglunni og
sýna hvar þeir hefðu grafið það
sem þeir stálu úr húsi Elsie
Brown.
Hinds reyndist erfiðari viður-
eignar en félagi hans og harð-
neitaði öllu, þar til hann fékk að
heyra játningu Hurds af bandi.
Þá talaði hann og talaði og sagði
að mestu sömu sögu, nema hvað
þar var Hurd sá sem fór inn og
stakk gömlu konuna.
Nágranninn handan götunnar
sagðist hafa séð Hinds fara inn í
húsið og þar með var ljóst, að
hann var morðinginn.
Allar eigur Elsie Brown
fundust, líka skærin og skrúf-
járnið, ásamt blóðugum skó
Hinds. Blóðið reyndist í sama
flokki og gömlu konunnar og
mynstrið á sólanum kom heim
við farið á höku hennar.
Félagarnir voru ákærðir fyrir
morðið og dæmdir ári síðar.
Hinds fékk lífstíðarfangelsi án
möguleika á náðun, en Hurd 25
ár, með möguleika á náðun eftir
16 ár.
Teaqle - í rúllurnar
Pakkar
fílmu
utanum
rúllu-
baggana
★
Afrúllar
bagga
inn á
fóðurgang
Verð:
kr. 82.540,