Tíminn - 22.10.1987, Page 19
Fimmtudagur 22. október 1987
Tíminn 19
SPEGILL
lllllllll!!!
Illl!llllll!l!llllllllllllllllllllllllll!lllllllll!llllllllllllll!
Illlllllllllllllllllllllli
Górilluapi á heimilinu
Frakkinn Jacques Judes hafði
nýlega tekið lokapróf sitt fyrir 13
árum, þegar hann fór ásamt konu
sinni til Gabon til að gegna þar
störfum sem herlæknir. Þar sem
starfssvæði hans var á fremur af-
skekktu svæði í austanverðu land-
inu, féll það meðal annars í hans
hlut að aðstoða við fæðingar, þegar
við lá.
Dag einn bar að óvenju erfiða
fæðingu og hefði Jacques ekki
notið viö, er vafasamt að móðir
eða barn hefðu lifað af. Nokkrum
dögum síðar sal hann með Genevi-
eve konu sinni á veröndinni við
litla húsið í skógarjaðrinum og þá
sáu þau mann koma gangandi með
eitthvað svart í fanginu.
Þetta var eiginmaður konunnar,
sem Jacques hafði hjálpað að fæða
nokkru áður og það sem hann hélt
á, var mannapabarn, illa haldinn
og umkomulaus górillaungi. Mað-
urinn kvaðst hafa drepið móður-
ina, án þess að vita um ungann.
Það var ekki fyrr en apynjan lá í
valnum, að hann sá litla vesaling-
inn, sem skjögraði kjökrandi
kringum hræið og leitaði eftir móð-
uratlotum. Nú vildi maðurinn gefa
Jacques ungann í þakklætisskyni
fyrir að bjarga konu hans og barni.
Judes-hjónin tóku þegar í stað
að sér litla apann og kölluðu hann
Platon. - Hann virtist alltaf vera í
svo þungunt þönkum, segja þau til
skýringa á nafngiftinni.
Platon var fljótur að jafna sig og
ekki bar á öðru en honum liði
mætavel í litla rúminu sínu, sem
þau hjón smíðuðu handa honum.
- En hann kom inn til okkar á
hverjum morgni, vakti okkur og
vildi láta gæla við sig dálitla stund.
segir Jacques. - Svo elti hann mig
allan daginn. Ef hann hélt ekki í
fótleggina á mér, hékk hann um
mittið. Ljóst var að hann hafði
mikla þörf fyrir snertingu. Þannig
neyddist ég til að taka við móður-
hlutverkinu.
- Ef hann væri ekki svona stór,
væri hann enn hjá okkur, segir
Emmanuel, sem verður að láta
sér nægja að horfa á Platon
gegnum öryggisgler.
Hvorki Jacques né Gencvieve
höfðu litið á apa sem annað en apa
áður, en fljótlega rann upp fyrir
þeim, að barn var á heimilinu.
- Þegar við settum hann í
rúmið, nægði það eitt ekki. Nei,
það varð að halda í hendina á
honum, þangað til hann sofnaði,
segir Geneviveve.
Þegar þau fluttu aftur til
Frakklands, tóku þau Platon með
sér, því hvorugt þeirra gat hugsað
sér að yfirgefa fósturbarnið.
Nokkru seinna eignuðust þau sitt
fyrsta barn og voru auðvitað full
eftirvæntingar um viðbrögð
Platons. Margir vildu vara þau við
því að apinn yrði ef til vill afbrýði-
samur og myndi skaða barnið.
Hins vegar varð Platon himinlif-
andi yfir að eignast „bróður”. í
fyrstu var Genevieve á verði fyrir
einkennunum um árásarhneigð af
hálfu apans, en hann kom hins
vegar fram við nýja fjölskyldu-
meðliminn af ítrustu virðingu og
varkárni. þegar hann nálgaðist
hann.
Tíminn leið og Emmanuel litli
og Platon urðu bestu vinir, rétt
eins og þeir væru bræður. Þeir sátu
hlið við hlið á koppunum sínum,
léku sér saman og nutu félagsskap-
ar Itvors annars.
Tveimur árum seinna fæddist
Guillaume, svo Emmanuel átti líka
raunverulegan bróður og sjö árum
eftir það fæddist systir þeirra Mar-
ion.
Þegar Platon var fimm ára, var
hann orðinn yfir metri á hæð og tók
að þroskast. En hann var sem einn
af fjölskyldunni í tvö ár enn, þá var
Ijóst, að ekki dygði það miklu
lengur, Platon yrði brátt risavax-
inn.
Kunningi fjölskyldunnar stjórn-
aði dýragarði í grennd við Lyon og
Judes-hjónin komu sér saman um
að veita Platon framtíðarheimili
þar. Sú ákvörðun var síður en svo
auðveld. því Platon var feikilega
vinsæll, bæði í fjölskyldu sinni og
meðal nágrannanna. Hann kom
alltaf vel fram. og olli aldrei vand-
ræðum. Fólk velti því oft fyrir sér,
hvort hann væri ekki frentur maður
en api í sér.
Jacques og Genevieve hugsuðu
mikið um, hvernig Emmanuel
rnyndi bregðast við því að missa
besta vin sinn og leikfélaga til
margra ára. Þau vissu þó, að því
lengur sem aðskilnaðurinn drægist,
þeim mun erfiðari yrði hann, ekki
síður fyrir þau sjálf.
Árið 1978 var síðan endanleg
ákvörðun tekin. Platon var kontið
fyrir í dýragarðinum í Rive de
Gers, þar sem hann átti þess kost
að vera innan um ættingja sína.
Emmanuel var niðurbrotinn yfir
að þurfa að skilja við hjartans
vininn sinn og foreldrar hans börð-
ust líka við grátinn, þegar Platon
var afhentur dýragarðinum. En
þau vissu öll, að þetta var eina
leiðin.
Platon var heldur ekki lengi að
jafna sig á þessum umskiptum og
varð brátt einn af górilluhópnum.
Nú er hann risavaxinn, 180 sm á
hæð og 230 kílóa þungur.
Emmanuel hefur heimsótt gamla
vininn sinn reglulega, en enginn
veit með vissu, hvort Platon þekkir
enn „uppeldisbróður" sinn. Þar
sem alltaf er þykkt öryggisgler á
ntilli þeirra, geta þeir ekki tjáö sig
neitt hvor við annan.
Forstjóri dýragarðsins útilokar
ekki að Platon muni el'tir Entman-
uel. en til að rifja upp þá minningu,
yrði liann annaðhvort að finna
lyktina af drengnum eða snerta
hann, en það gæti reynst varhuga-
vert aö taka áhættuna, aðeins til að
komast að þessu. - Ómögulegt er
að segja, hvernig apinn bregst við,
segir hann.
Þess vegna verða Emmanuel og
foreldrar hans að láta sér nægja að
horfa á l'yrrum fjölskyldumeðlim
gegnum öryggisgler. Það er þeim
þó huggun að vita að Platon líður
vel meðal ættingja sinna.
- Eg held að hann sé ánægður,
segir Emmanuel, sem er orðinn
tólf ára. - En viö söknum hans
samt. Ef hann væri ckki svona stór,
væri hann ennþá hcirna hjá okkur.
Nirfils-
háttur
Hagsýni lcikarans Ryan O’Neal
cr farin að minna ískyggilcga mikið
á kerfísbundinn nirfílshátt, einkuni
hvað varðar hin ýinsu flugfclög,
scin Ryan notar til að koniast inilíi
New York og Los Angeles.
Hann kaupir alltaf ódýrasta far-
niiðann, en þegar hann er kominn
uin borð í vélina, kveður hann upp
úr ineð, hver hann sé og biður
flugfreyjuna elskulega uin betra
sæti.
Ef þetta gerðist bara endrum og
eins, væri það svo sem ckkcrt til að
fjargviðrast út af, enO’Neal flýgur
þessa leið og jafnaði vikulcga og
nú hafa flugfreyjur fengið fyrir-
inæli um að segja blákalt nei,
leikarinn verður að láta sér nægja
það sæti, sein hann grciddi fyrir.
Alltá
aftur-
fótunum
sem leikur Jefl' í
Ættarveldinu, var koniinn í slæmt
skap einn daginn, þegar hann loks-
ins gat sest undir stýri og ekið í
vinnuna. í fyrsta lagi svaf hann yfir
s'8 °g þegar hann fór fram úr
hrasaði hann uin hundinn sinn.
Þegar hann gat loksins lagt af stað,
hafði liann ekki ekið lengi, þegar
lögreglumaður stöðvaði hann.
Jeff brást ókvæða við, þandi sig
óspart og licimtaði að fá að vita,
hvers vegna hann, stórstjarnan,
væri stöðvaður.
Lögreglumaðurinn hlustaði hinn
rólegasii, en þegar hnnn komst að,
útskýrði hanii að hann væri einlægur
aðdáandi og hefði aðeins ætlað að
biðja um eiginhundaráritun.
John James, sá
IIIirUM STRÆTI OG TORG
KRISTINN SNÆLAND
„SILFURSTJÖRNUR
í MALBIKINU“
Þegar veturinn er framundan er
rétt að huga að nokkrum atriðum
sem skifta máli varðandi aksturinn
oggangsetningu íkuldaogtrekki.
Hálka og sérstaklega skyndi-
hálka er ökumönnum skeinuhætt
og því rétt að huga að því sem til
varnar má verða. í Fyrsta lagi ættu
ökumenn að temja sér að fylgjast
með hitastigi. Það mágera með því
að fylgjast með veðurfregnum en
einna árangursríkast er að við
glugga hverrar íbúðar sé hitamælir
sem lesa má á innanfrá. slíkir
mælar eru ódýrir, auðveldir upp-
setningar og fást í byggingarvöru-
verslunum og víðar. Einnig væri
mjög æskilegt að hitamælar væru
þar útivið sem fólk gengur um frá
vinnustað að bílastæðum. Með því
að fylgjast með hitamæli við
heimili. til dæmis uppi í Breiðholti
og mæli við vinnustað, til dæmis
við Laugaveg má fá nokkuð örugga
vísbendingu um hálku sem kynni
að vera á akstursleið milli þessara
staða. Auk hitastigs þarf að gefa
gaum að ástandi lofts, er það rakt
eða þurrt og er logn eða vindur.
Þegar til dæmis mikið hrím sest á
bílinn má búast við hálum götum.
í snöggri lítilfjörlegri logndrífu
getur orðið afar hált. Þegar súld eða
rigningu gerir og styttir upp með
kólnandi veðri án þess að þorni á
steini getur hálka myndast á mjög
skömmum tíma. Við slíkar aðstæð-
ur birtist í malbikinu við upplýstar
götur aðvörun sem taka má eftir.
Þegar hálkan er að myndast og
áður en vatnið verður að samfelld-
um ís, kvikna litlar silfurstjörnur á
malbikinu. Sá sem tekur eftir þess-
ari fögru myndasýningu náttúrunn-
ar er viðbúinn þegar hálkan tekur
endanlega völdin á votu malbikinu.
Þessi stjörnusýning birtist ekki á
óupplýstum vegum. Það eru ekki
ljós bílsins sem kveikja stjörnuljós-
in heldur skin ljósastauranna.
Sé aftur vikið að hitastiginu má
segja sem svo að við plús 2-3
gráður á mæli á 1,5 til 2 metra hæð
sé komin aðvörun um hugsanlega
hálku. í kyrru veðri getur einnig
verið mikill hitamunur eftir hæð
frá jörðu. Til dæmis var uppgefinn
hiti í Reykjavík síðastliðinn
mánudagsmorgun -f2 stig sem mun
vera mælt í um 2 metra hæð frá
jörðu en við jörðu mun hafa mælst
um -t-11 stiga frost. Alkunna er að
í lægðum getur orðið kaldara og
myndast hálka þó það gerist ekki
þar sem hærra ber. í köldu lygnu
veðri að sumri má stundum sjá
ástæðuna, dalalæðuna. Hálka í
lægðum að vetri er þannig einskon-
ar ósýnileg dalalæða sem sest á
göturnar og verður að hrími eða ís.
Þeir sem þekkja veginn sinn og
hvar helst er að vænta dalalæðu á
honum geta merkt við þá staði í
huga sér sem sérlega varhugaverða
með hálku. Jafnframt er gott að
fylgjast með ferðum lægða og gera
sér grein fyrir þeim veðurhring
sem væntanlegur er. Algengur
veðurhringur í Reykjavík að vetri
er til dæmis svona: Sunnanátt með
rigningu gengur í suð-austan og
rigningin breytist í slyddu. Þá kem-
ur austan átt með blautri þungri
snjókomu og gengur síðan í norð-
austan. Snjókoman minnkar og
þornar og hverfur alveg með
hreinni norðan átt og frostið tekur
við. Næst kemur norð-vestan áttin
með áframhaldandi kulda og stöku
él getur náð til Reykjavíkur. Þá
gengur hann í vestanátt og í henni
getur kyngt niður snjó. Til dæmis
mun einna mesti snjór í einni
snjókomu hafa fallið í vestanátt
um 1952 hér í Reykjavík. Síðast í
hringnum er loks suð-vestan áttin
með éljum og hlýnandi uns sunnan-
áttin ertekin við á nýmeð rigningu.
Þessi veðurhringur getur einnig
verið öfugur, ef svo má segja, það
er að segja veðrið gengur úr sunnan
í vestan o.s.frv. Fyrir nútíma Reyk-
víking getur því verið afar mikil-
vægt að fylgjast vel með hitastigi
og hvaða veðurhringur er í gangi
hverju sinni. Sé til dæmissuð-aust-
an átt að kvöldi, gangandi í austur
og veðurstofan spáir snjókomu er
mjög skynsamlegt fyrir þann sem
ekur á naglalausum snjódekkjum
að fara út einhvern tíma kvöldsins
og setja keðjurnar undir bílinn
(Því hver nennir því nývaknaður)
og vera þannig viðbúinn snjókomu
og þæfingi að morgni.
Það sem ég hef rakið hér að
framan hnígur að því að ökumenn
kynni sér veðrið og veðurútlit og
geri sér jafnframt grein fyrir vænt-
anlegu ástandi vegar á fyrirhugaðri
leið sinni. Þá er eftir að búa
bifreiðina svo að líklegt sé að hún
komist þessa leið í flestum veðrum.
Þar sem ökumenn eru misjafnir
getursami bíll, misvel búinn, kom-
ist sömu leið með sæmilegu öryggi.
Það er svo rétt að rekja hér hvernig
ég tel að hinn fullkomni vetrarbún-
aður bíls ætti að vera. Á öllum
hjólum séu góð vetrardekk með
nöglum. Þau séu tjöruhreinsuð
öðru hvoru yfir veturinn. Keðjur
séu í skottinu, gjarnan settar á að
kvöldi ef vænta má snjóþyngsla að
morgni. Skófla í skottinu. Vel
lokaður sand-dunkur eða fata
(lokuð) með salti stráðu yfir sand-
inn til þess að hann frjósi ekki, í
skottinu og þá óaðgengilegur ef á
honum þarf að halda. Ný eða góð
þurrkublöð. Snjóskafa til þess að
þrífa skilyrðislaust allar rúður
bílsins, ljósabúnað og skráningar-
númer áður en lagt er af stað.
ísvari í eldsneyti og nægur frostlög-
ur á kælikerfi vélar og í þvottavatn
rúðu. Kveikjukerfi sé sérstaklega
varið og því haldið hreinu. Dráttar-
tóg og loks fatnaður sem hægt er
að fara í út í slæmt veður. Reyndar
eru hverfandi líkur að það þurfi að
nota hann ef bíllinn er útbúinn svo
sem fyrr greinir. Vasaljós og
keðjutöng.
Vissulega má gera minni kröfur
en þetta en það fer þá eftir því
hvaða leiðir, vegi eða götur er
ætlað að aka, svo og á hvaða tíma
sólarhrings. Sá sem til dæmis að-
eins ekur að jafnaði frá Seltjarn-
arnesi inn á Laugaveg að degi til
getur með öryggi búið bíl sinn mun
verr en sá sem til dæmis ekur að
jafnaði kvöld og nætur úr Breið-
holti upp að Álafossi. Ef allir aka,
miðað við aðstæður hverju sinni og
búa bíla sína vel til þess aksturs
sem fyrirhugaður er, þá getur kom-
andi vetur orðið ánægjulegur í
umferðinni. Hefur þú ekki áhuga á
því?