Tíminn - 03.11.1987, Qupperneq 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 3. nóvember 1987
ST. JÓSEFSSPI'TALI,
LANDAKOTI
Hjúkrunarfræðingar
Landakotsspítali býður ykkur ákjósanlegan vinnu-
stað í hjarta borgarinnar. Góðarstrætisvagnaferðir
í allar áttir. Þar geta hæfileikar ykkar notið sín, því
við erum opin fyrir öllum nýjungum og viljum að
starfsfólk okkar fái tækifæri til þess að vinna að
þeim með okkur. Við reynum að gera öllum kleift
að sækja námskeið og ráðstefnur. Við bjóðum
aðlögunarkennslu áður en starfsmenn fara á
sjálfstæðar vaktir.
Við höfum lausar stöður á öllum legudeildum,
móttökudeild, svæfingadeild og gjörgæsludeild.
Hafið samband við skrifstofu hjúkrunarstjórnar
sem veitir nánari upplýsingar í síma 19600/220/
300, alla virka daga frá kl. 08.00-16.00.
Reykjavík 30/10 1987.
ST. JÓSEFSSPÍTALI,
LANDAKOTI
Röntgendeild
Okkur vantar aðstoð á Röntgendeild Landakots-
spítala. Um fullt starf er að ræða. Umsækjandi
þyrfti að geta hafið störf strax.
Upplýsingar veitir deildarstjóri í síma 19600/330
Reykjavík 30.10. 1987
l'—7^
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmíðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fVrir tölvuvinnslu.
PRENTSMIDJAN
Smiðjuvegí 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar
móður, tengdamóður og ömmu
Rebekku Guðmundsdóttur,
Eskiholti 21, Garðabæ
Guð blessi ykkur öll
Ragnheiður Brynjólfsdóttir Engilbert Engilbertsson
Ólöf Brynjólfsdóttir Sigurður Þorsteinsson
og barnabörn
t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Egill Gestsson, tryggingamiðlari til heimilis að Klapparbergi 23, Reykjavik, lést á Borgarspítalanum sunnudaginn 1. þessa mánaðar. Útförin
verður auglýst síðar. Örn Egilsson Lonni Egilsson
Höskuldur Egilsson Soffía Rögnvaldsdóttir
Ragnheiður Egilsdóttir Lárus Svansson
Margrét Þ. Egilsdóttir Óskar Smári Haraldsson
barnabörn og langafabörn
18 milljónir inn
á bjarghringnum
Slysavarnafélag íslands halaði inn
18 milljónir á bjarghringnum sem
féiagsmenn buðu almenningi í land-
inu til sölu á svokölluðum “Merkis-
dögum“ um síðustu helgi. Al-
menningur í landinu tók merkjasölu-
mönnum með eindæmum vel og
styrkti starf Slysavarnafélagsins og
deilda þess að sjóslysavörnum mjög
myndarlega.
Slysavarnadeildir og björgunar-
sveitir um allt land munu verja
sínum hluta ágóðans af sölu merkj-
anna til kaupa á búnaði og tækjum
fyrir sjóbjörgunarflokka sína. Slys-
avarnafélag íslands mun hins vegar
nota peningana til fræðslu að örygg-
ismálum sjómanna og einnig styrkja
minni slysavarnadeildir til tækja-
kaupa.
í kjölfar merkisdaganna hefur
Slysavarnafélag íslands viljað koma
sérstökum þökkum sínum á framfæri
við landsmenn enda eru hinar já-
kvæðu viðtökur mikil hvatning fyrir
félagið og deildir þess til áframhald-
andi öflugs starfs á þessum vett-
vangi.
Sölufólk Merkisdaga í Reykjavík gat fengið sér hressingu af þessari
myndarlegu tertu sem var eftirlíking af sjálfu barmmerkinu.
Frægðarbrautin framundan:
SYKURM0LUM B0DINN
MILLJÓNASAMNINGUR
Hljómsveitin Sykurmolar, eða
Sugarcubes, eins og hún nefnir sig
á ensku, virðist stefna í að slá í
gegn í Bretlandi. Það er að minnsta
kosti álit forráðamanna nokkurra
stærstu hljómplötufyrirtækja
Bretlands, því þessa dagana kepp-
ast þeir við að yfirbjóða hver
annan og bjóða gull og græna
skóga, skrifi hljómsveitin undir
plötusamning við sig.
Sykurmolarnir hafa gert það gott
á breskum vinsældalistum, bæði
hinum opinbera og einnig á óháða
listanum svokallaða. Lagið þeirra
Ammæli hefur heldur betur gert
það gott á báðum þessum listum og
fyrir skömmu prýddi hljómsveitin,
eða öllu heldur söngkonan, Björk
Guðmundsdóttir, forsíður tveggja
virtustu poppblaða Breta, New
Musical Express og Melody
Maker. í framhaldi af þessu var
þeim boðinn hljómplötusamningur
sem hljóðaði upp á 6,5 milljónir
króna. Á föstudag hélt hljómsveit-
in svo tónleika í Casablanca, þar
sem viðstaddir voru umboðsmenn
nokkurra hljómplötufyrirtækja.
- SÓL
Utivistarsvæði
í Fossvogsdal
Séð yfir Fossvogsdalinn sem Yngvi Þór Loftsson mun fjalla um frá sjónarhóli
landslagasarkitektsins í Odda á fimmtudagskvöld.
Fossvogsdalurinn hefur verið
þrætuepli sveitarfélaganna tveggja,
Reykjavíkurborgar og Kópavog-
skaupstaðar um alllangt skeið, en
meirihluti borgarstjórnar Reykj-
avíkur hefur viljað leggja hraðbraut
um dalinn á meðan Kópavogur hefur
vísað slíkum tillögum á bug og
samþykkt að gera sinn hluta dalsins
að útivistarsvæði. Þar sem Reykja-
víkurborg á ekki nægt landsvæði í
sínum hluta dalsins verður brautin
að liggja inn á fyrirhugað útivistar-
svæði Kópavogsbúa. Því eru mun
meiri líkur á að Fossvogsdalurinn
verði skipulagt útivistarsvæði í fram-
tíðinni.
Landfræðifélagið mun gangast
fyrir fræðslukvöldi um Fossvogsdal-
inn næstkomandi fimmtudag. Þar
mun Yngvi Þór Loftsson landslags-
arkitekt fjalla um Fossvogsdalinn
frá sjónarhóli landslagsarkitektsins,
en Yngvi Þór lauk Mastergráðu
sinni með lokaritgerð sem fjallaði
einmitt um Fossvogsdalinn sem úti-
vistarsvæði. Fyrirlesturinn verður í
Odda stofu 101 í Háskóla íslands og
hefst klukkan 20:30.
- HM