Tíminn - 03.11.1987, Page 11
10 Tíminn
ÍÞRÓTTIR
Leiftursmenn
fá leikmenn
Frá Johunnesi Bjurnusyni a Akureyri:
Hörður Bcnónýsson sem lék
með Völsungum mun að öllum
líkindum leika með Leiflrí í 1.
deildinni í knattspyrnu næsta sum-
ar en Leiftursmenn komu scm
kunnugt er upp úr 2. deild í haust.
Þá hafa Ólafsfírðingar rætt við
Áma Stefánsson Þórsara en ekki
er orðið Ijóst hvort hann skiptir um
félag.
íslandsmótið
íblaki
Átta leikir voru um helgina á
íslandsmótinu í blaki. Úrslit urðu
mjög á þann veg sem búast mátti
við og urðu í stuttu máli þessi:
1. deild karla:
Fram-Þróttur N. 3-0 (15-12, 15-
10, 11-15, 15-11)
Víkingur-Þróttur 1-3 (8-15, 15-6,
10-15, 16-18)
KA-IS 0-3 (7-15, 6-15, 10-15)
HK-Þróttur N. 3-0 (15-1, 15-7,
15-4)
Staðan:
ÍS . 3 3 0 9-16
Þróttur . 2 2 0 6-14
HK .3216-34
Víkingur .... .2114-42
KA .2113-32
Fram . 3125-72
Þróttur N . 3 0 3 1-9 0
HSK . 2 0 2 0-6 0
Ldeildkvenna:
KA-ÍS 0-3 (7-15, 6-15, 10-15)
HK-Þröttur 0-3 (0-15, 14-16, 7-
15)
UBK-Þróttur N. 3-0 (15-4, 15-3,
15-6)
Staðan:
UBK . 3 3 0 9-1 6
ÍS . 2 2 0 6-0 4
Víkingur . 110 3-12
Þrúttur . 3 12 5-62
Þróttur N .2113-52
KA .2 0 2 2-6 0
HK................. 3 0 3 0-9 0
Bikarkeppni kvenna:
Þróttur-Þróttur N. 3-0 (15-6. 15-
3, 15-8)
Körfuknattleikur, 1. deild
kvenna:
SigurhjáÍBK
ÍBK sigraði UMFN 45-35 í
meistaraflokki kvenna í körfu-
knattleik í Njarðvík á föstudags-
kvöldið. Staðan í hálfleik var
23-21 fyrir Keflavík. Fyrri hálf-
leikur var jafn og skiptust liðin á
um að skora. Keflavík náði síðan
7 stiga l'orskoti snemma í síðari
hálflcik og hélt því til loka.
Stigin, UMFN: Þórunn Magn-
úsdóttir 11, Harpa Magnúsdóttir
11, Ólöf Einarsdóttir 8, Sigríður
Guðbjörnsdóttir 4, María Jó-
hannesdóttir 1. ÍBK: Anna María
Sveinsdóttir 15, Björg Hafsteins-
dóttir 13, Auður Rafnsdóttir 6,
Kristín Blöndal 5, Bylgja Sverris-
dóttir 4, Margrét Sturlaugsdóttir
2.
■ Þá sigruöu Haukar KR með
52 stigum gegn 50.
-ms
Staðan
Staðan í úrvalsdeildinni í
körfuknattlcik eftir leiki hclgar-
innar:
UMFN . . . .
Valur ....
ÍBK.......
KR........
UMFG . . . .
Haukar . . . .
ÍR .......
Þór.......
UBK ......
2 2 0 213-123 4
3 2 1 235-183 4
2 2 0 148-124 4
2 2 0 153-140 4
3 2 1 214-213 4
211 151-136 2
2 0 2 133-171 0
3 0 3 211-261 0
3 0 3 154-265 0
KA stöðvaði FH
KA menn stöðvuðu sigurgöngu
FH-inga í 1. deildinni í handknatt-
leik á sunnudaginn en þá kepptu
liðin á Akureyri. Jafntefli varð
niðurstaðan úr leiknum og voru það
FH-ingar sem áttu síðasta orðið,
jöfnuðu 21-21 hálfri mínútu fyrir
leikslok. Leikurinn var æsispenn-
andi og um eittþúsund áhorfendur
voru vel með á nótunum. Heyrðist
vart mannsins mál í íþróttahöllinni
þegar mest gekk á. Þetta er fyrsta
stigið sem FH tapar á þessu keppn-
istímabili en nú fer róðurinn væntan-
lega að þyngjast hjá þeim því næstu
þrír Ieikir eru gegn Breiðabliki,
Víkingum og Valsmönnum.
Jafnræði var með liðunum fram-
anaf en svo kom að kafla Magnúsar
Árnasonar markvarðar FH. Hann
gerði sér lítið fyrir og varði fimm víti
í röð, Pétur Bjarnason reyndi fyrst
fjórum sinnum og þá Friðjón Jóns-
son einu sinni en allt kom fyrir ekki.
KA-menn misnotuðu að auki tvö
hraðaupphlaup stuttu síðar. Ef ekki
hefði komið til stórleikur Erlings
Kristjánssonar í liði KA er hætt við
að FH-ingar hefðu stungið af en
munurinn var þó ekki meiri en tvö
mörk í hálfleik, 9-11. FH skoraði
fyrsta markið í síðari hálfleik en
fljótlega fór að draga saman með
liðunum. KA komst svo yfir 20-19
og aftur 21-20 þegar hálf mínúta var
eftir. Guðjón Árnason jafnaði úr
víti fyrir FH og þrátt fyrir mikinn
hasar og endurtekin aukaköst tókst
KA ekki að skora eftir það.
Erlingur Kristjánsson átti stórleik
í liði KA, skoraði 10 mörk og lék
mjög vel í vörninni. Leikurinn var
tvímælalaust sá besti sem KA- liðið
hefur spilað í vetur. Þeim tókst að
stöðva hættulegustu vopn FH,
hraðaupphlaupin og þá Þorgils Óttar
og Héðin. KA-menn fóru illa með 5
víti og 2 hraðaupphlaup og máttu
FH-ingar þakka fyrir að sleppa með
annað stigið úr hasarnum á Akur-
eyri.
Mörkin, KA: Erlingur Kristjánsson 10(1),
Guðmundur Guðmundsson 4, Axel Bjömsson
3, Pétur Bjarnason 2, Friðjón Jónsson 1,
Eggert Tryggvason 1. FH: Guðjón Árnason
7(3), Héðinn Gilsson 4, óskar Helgason 3,
Pétur Pedersen 3, Gunnar Beinteinsson 2,
óskar Ármannsson 1, Þorgils óttar Mathies-
en 1.
Oruggur Valssigur
Valsmenn sigruðu KR-inga með
10 marka mun, 23-13, að Hlíðarenda
á laugardaginn. Valsmenn höfðu
yfir 1Ö-8 í leikhléi. Leikurinn var
nokkuð sveiflukenndur en góðir
kaflar sáust inn á milli. Bæði lið léku
sterkan varnarleik. Valsmenn
tryggðu sér sigurinn með góðum
síðari hálfleik. Einar Þorvarðarson
lokaði markinu á síðustu mínútun-
um en hann varði alls 12 skot í síðari
hálfleiknum, þar af 4 víti.
Valdimar Grímsson nýtti sín færi
mjög vel og lék best Valsmanna.
Geir Sveinsson skoraði falleg mörk
af línunni og Jón Kristjánsson var
sterkur fyrir utan. Hjá KR var
Stefán Kristjánsson bestur í fyrri
hálfleik en hann lék lítið með í þeim
síðari.
Mörkin, Valur: Valdimar Grímsson 10(2),
Jón Kristjónsson 6, Geir Sveinsson 3, Jakob
Sigurðsson 2, Júlíus Jónasson 2(2). KR:
Stefán Kristjónsson 7(2), Konráð Olavsson 4,
Sigurður Sveinsson 1, Þorsteinn Guðjónsson
1.
-jb/tg/HÁ
Staðaní 1. deild
FH......................... 6 5 1 0 186-130 11
Valur ...................... 6 5 1 0 133-90 11
Víkingur................... 6 4 0 2 156-142 8
Breiðablik ................ 6 4 0 2 122-124 8
Stjarnan................... 6 3 1 2 143-151 7
ÍR......................... 6 2 1 3 126-139 5
KR ........................ 6 2 0 4 128-140 4
KA .........................6 1 1 4 118-137 3
Fram....................... 6 1 1 4 136-157 3
Þór........................ 6 0 0 6 123-161 0
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Lítið skorað á Hlíðarenda
- ÍBK vann Val og KR sigraði ÍR
Guðni Guðnason var bestur KR-
inga í leiknum og Birgir Mikaels-
son átti ágætan síðari hálfleik. Þá
var Símon Ólafsson traustur. Jón
Sigurðsson lék með KR að nýju og
stóð sig alveg prýðilega þó hann
hafi reyndar verið talsvert frá því
sem til hans sást fyrir nokkrum
árum. Hjá ÍR var Jón Örn Guð-
mundsson bestur en liðið barðist
vel sem heild.
Stigin, KR: Símon Ólafsson 24,
Guðni Ó. Guðnason 21, Birgir
Mikaelsson 17, Matthías Einarsson
6, Ástþór Ingason 3, Guðmundur
Jóhannsson 3, Jón Sigurðsson 2.
ÍR: Jón Örn Guðmundsson 22,
Kristinn Jörundsson 12, Björn
Leósson 10, Karl Guðlaugsson 9,
Jóhannes Sveinsson 5, Bragi Reyn-
isson 4, Halldór Hreinsson 4,
Björn Stefánsson 2, Vignir Hilm-
arsson 2.
Keflvíkingarunnu Valsmenn 71-
59 í miklum baráttuleik á Hlíðar-
enda. Keflvíkingar voru öllu sterk-
ari allan leikinn en munurinn varð
þó aldrei mikill. Hittni leikmanna
beggja liða var bókstaflega engin í
fyrri hálfleik og má sjá það á
hálfleikstölunum, 31-22IBK í hag.
Leikurinn var mjög hraður, mikið
um brot, þörf og óþörf á báða bóga
og harður varnarleikur í fyrirrúmi.
Valsmenn gerðu fleiri mistök í
sókninni og munaði helst því á
liðunum. Leikurinn var að mörgu
leyti mjög slakur en engu að síður
skemmtilegur á að horfa.
Litlum tilgangi þjónar að tína út
einstaka menn, bæði lið hittu illa
og börðust vel en þó má nefna
Torfahjá ValogJón Kr. hjáÍBK.
Stigin, ÍBK: Jón Kr. Gíslason
20, Guðjón Skúlason 10, Axel
Nikulásson 9, Magnús Guðfinns-
son 8, Sigurður Ingimundarson 7,
Hreinn Þorkelsson 7, Falur Harð-
arson 5, Matti Ó. Stefánsson 3,
Brynjar Harðarson 2. Valur: Tóm-
as Holton 18, Leifur Gústafsson
16, Torfi Magnússon 15, Björn
Zoéga 2, Einar Ólafsson 2, Páll
Arnar 2, Svali Björgvinsson 2,
Þorvaldur Geirsson 2. -HÁ
Tveir leikir voru ■ úrvalsdeildinni
í körfuknattleik um helgina. í þeim
fyrrí vann KR nauman sigur á IR,
lokatölur 76-70. Síöari lcikinn
unnu Keflvíkingar 71-59 í leik þar
sem hittnin var nánast ekki nein,
sérlega þó í fyrri hálfleik.
KR-ingar máttu þakka fyrir að
fara með sigur af hólmi í viðureign-
inni við ÍR. ÍR-ingar sem komu
upp úr 1. deild í vor höfðu foryst-
una lengst af í fyrri hálfleik, mest
9 stig, og stuttu fyrir leikslok var
munurinn aðeins tvö stig. KR-ing-
ar léku mjög yfirvegað síðustu
mínútuna og náðu með því að
tryggja sér sigurinn.
Jón Örn Guðmundsson, besti
maður ÍR-inga í leiknum, fór af
leikvelli með 5 villur 7 mín. fyrir
leikslok og bjuggust þá flestir við
því að eftirleikurinn yrði KR-ing-
um auðveldur. Það var öðru nær
og 1 1/2 mín. fyrir lok var staðan
72-70 KR í hag. KR-ingar héldu
boltanum vel í lokin og unnu 76-70.
Magnús Guðfinnsson Keflvíkingur hefur hér náð frákasti, Valsmönnunum
Torfa Magnússyni og Kristjáni Ágústssyni greinilega til mikillar armæðu.
Tímamynd Pjetur.
Þriöjudagur 3. nóvember 1987
Þriðjudagur 3. nóvember 1987
Tíminn 11
Ipróttir ............................................................■Illllll
Stjörnumönnum dýrt
Kari Þráinsson stekkur upp og býst til að skjóta að marki Kolding. Karl lék vel í liði Víkinga á
móti dönsku meÍSturunum. l ímamynd Pjelur.
Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik:
Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik:
Víkingar meo þrjú
mörk til Kolding
Víkingar sigruðu danska liðið
Kolding IF með 19 mörkum gegn 16 í
fyrri Evrópuleik þessara liða er fram
fór í Laugardalshöll á sunnudags-
kvöldið. Áhorfendur fjölmenntu í
Höllina og fengu að sjá skemmtilega
viðureign tveggja góðra liða.
Víkingar byrjuðu betur á sunnu-
dagskvöldið, danska liðið virkaði
slakt og fróðir menn töldu að um
góðan sigur gæti orðið að ræða.
Bjarne Jeppesen, sá gamalreyndi
leikmaður sem einnig þjálfar lið
Kolding, reif þó sína menn upp með
góðum leik og eftir fyrstu fimmtán
mínúturnar hafði leikurinn jafnast.
Víkingar spiluðu ágæta vörn í fyrri
hálfleik og Kristján varði vel. í sókn-
inni gekk ekki sem skyldi, aðeins
Karl Þráinsson stóð fyrir sínu og
skoraði fjögur mörk úr fjórum til-
raunum. Aðra sögu var að segja af
Sigurði Gunnarssyni, ekkert gekk
hjá honum í fyrri hálfleiknum og
fimm skot hans fóru í súginn. Staðan
í hálfleik var 7-7, lítið skorað og
greinilegt að stefndi í hörkuviður-
, eign.
Síðari hálfleikurinn var skemmti-
legri og heimaliðið tók sannarlega
við sér. Staðan jöfn til að byrja með
en fjögur mörk í röð frá Víkingum
um miðbik seinni hálfleiks breyttu
stöðunni úr 13-12 í 17-12. Því miður
gátu okkar menn ekki haldið þessum
mun, Koldingmenn tóku við sér á
lokamínútunum og tókst að minnka
muninn í þrjú mörk. Þessi þrjú mörk
Reynsluleysið varð
verður danska liðið að vinna upp á
sínum heimavelli um næstu helgi.
Kristján Sigmundsson varði mark
Víkinga mjög vel, kom í veg fyrir að
fimmtán skot færu rétta boðleið í
netið og lokaði markinu á mikilvæg-
um augnablikum.
Sigurður Gunnarsson skoraði sjö
mörk fyrir Víking, öll í síðari háíf-
leik og lék þá eins og sá sem valdið
hefur. Það þarf sterkan persónuleika
til að rífa sig svona upp því Siggi átti
nefnilega afleitan fyrri hálfleik,
skaut fimm sinnum án þess að skora
og aðrir hlutir gengu hreinlega ekki
upp.
Bjarki Sigurðsson skoraði fimm
mörk og stóð sig vel í sóknarleikn-
um, átti tvær misheppnaðar skottil-
raunir eins og gengur. Karl Þráins-
son skoraði fjögur mörk, öll í fyrri
hálfleik þegar hann bar uppi sóknar-
aðgerðir Víkinga. Hilmar Sigur-
gíslason skoraði tvívegis af línunni,
fékk úr talsverðu að moða en Dan-
irnir höfðu góðar gætur á Hilmari og
brutu á honum áður en hann náði að
komast inn.
Árni Friðleifsson skoraði eitt
mark en átti fjögur misheppnuð
skot.
Aðrir sem léku voru Guðmundur
Guðmundsson, Siggeir Magnússon,
Árni Indriðason og Einar Jóhannes-
son.
Víkingar léku vel í síðari hálf-
leiknum og nái þeir að spila af sama
krafti allan leikinn úti eiga þeir góða
möguleika á að komast í þriðju um-
ferð keppninnar.
Bjarne Jeppesen og Karsten Holm
markvörður voru bestu menn
Kolding. Bjarne skoraði sex mörk og
þeir Tomas Lyng, Werner Möller,
Michael Kold og Hans Peter Munk-
Andersen skoruðu tvö mörk hver.
Danska liðinu hefur ekki gengið sem
skyldi í deildarkeppninni í Dan-
mörku, fengið aðeins eitt stig úr
fyrstu þremur leikjum sínum og mun
sjálfsagt leggja allt í leikinn á heima-
velli sínum í Kolding.
Sænsku dómararnir dæmdu aðeins
eitt víti í leiknum, lítið var um útaf-
rekstur en samt höfðu þeir fulla
stjórn á leiknum. Þetta mættu sumir
íslenskir dómarar taka sér til fyrir-
myndar. hb
Knattspyrna:
Ormarr á heimleið
Fri Júbannesi Bjamasy ni á Akurcyri:
Allar líkur eru á að Ormarr
Örlygsson leiki að nýju með KA
næsta sumar í 1. dcildinni í knatt-
spyrnu. Ormarr hefur undanfarin
ár keppt með Fram en hann lýkur
í vor háskólanámi í Reykjavík og
hyggst ganga að nýju til liðs við
sína gömlu félaga í KA fái hann
vinnu á Akureyri.
KA menn hafa rætt við Guðjón
Þórðarson um þjálfun á liðinu
næsta sumar en Guðjón þjálfaði
Skagamenn síðastliðið sumar.
Lítið skrið er komið á þær við-
ræður. KA-menn höfðu sýnt mik-
inn áhuga á að fá Sævar Jónsson
til að þjálfa liðið en nú er orðið
Ijóst að af því vcrður ekki.
„Þetta er tap, við vorum með fjögurra
marka forskot og áttum að geta haldið
því,“ sagði Gunnar Einarsson þjálfari
Stjörnunnar sársvekktur eftir að Stjarnan
og Urædd léku fyrri leik sinn í 2. umferð
Evrópukeppni bikarhafa á laugardaginn.
Stjarnan vann leikinn 20-19 en eins og
Gunnar sagði var forskot þeirra orðið
fjögur mörk og hefði liðið átt að geta
haldið því. Liðin leika að nýju í Noregi
eftir viku og þá ræðst hvort þeirra heldur
áfram í átta liða úrslit.
Stjörnumenn hófu leikinn af miklum
krafti, Gylfi Birgisson skoraði fljótlega
með þrumuskoti og síðan tók Einar
Einarsson við með fjórum glæsimörkum
og þegar Skúli Gunnsteinsson bætti enn
einu Stjörnumarkinu við af línunni var
staðan orðin 6-2 heimamönnum í hag og
aðeins 10 mínútur búnar af leiknum.
Garðbæingar héldu áfram sömu keyrsl-
unni en svo fór að þeir hættu að ráða við
hraðann, flýtirinn og æsingurinn varð allt
of mikill og munurinn fór niður í eitt
mark skömmu fyrir leikhlé. Jafnræði var
með liðunum framan af síðari hálfleik en
þá tóku Stjörnumenn aftur við sér og
juku muninn í fjögur mörk, 17-13. Við
tók afleitur kafli, skref, ruðningur og
boltinn tvívegis sendur beint í hendur
andstæðinganna. Staðan breyttist f 17-16
á örskammri stundu og Norðmenn fengu
reyndar tækifæri til að jafna en fengu þá
sjálfir á sig ruðning. „Þetta er fyrst og
fremst spurning um reynslu, reynslu í
alþjóðlegum leikjum, ekki deildarleikj-
um,“ sagði Gunnar þjálfari eftir leikinn.
Orð að sönnu, Stjörnumenn voru nefni-
lega talsvert sterkari í þessum leik, það
voru bara þessi klaufalegu mistök sem
sáust allt of oft, mistök sem eingöngu
stafa af reynsluleysi, menn hreinlega
tapa einbeitingunni út í verður og vind í
öllum æsingnum.
Eftir þennan slæma kafla var munurinn
þetta 1-3 mörk en Norðmenn áttu tvö
síðustu mörkin og lokatölur20-19 Stjörn-
unni í hag.
Stjörnuliðið kom talsvert öðruvísi út
úr þessum leik en það á vanda til, þannig
kom ekki eitt einasta mark úr hornunum
og í seinni hálfleik heldur ekkert af
línunni. Mest af mörkunum skoruðu
Stjörnumenn utan af velli en Gylfi Birgis-
son skoraði þó aðeins eitt þeirra. Einar
Einarsson byrjaði mjög vel og skoraði
fjögur mörk á fyrstu tíu mínútunum en
maður leiksins, einkum seinni hálfleiks-
ins er án efa Sigurður Bjarnason sem
gerði hvorki fleiri né færri en 7 mörk í
seinni hálfleik. Þrjú þeirra voru reyndar
víti en hin gullfalleg. Sannarlega mikið
efni þar á ferðinni þó óreyndur sé, aðeins
16 ára gamall. Ef frá eru talin tvö
hraðaupphlaup skoraði Sigurður öll
mörk Stjörnuliðsins í seinni hálfleik.
Vörn Stjörnuliðsins var í ágætu lagi en
reynsluleysi sem lýsti sér í allt of miklum
asa og látum var það sem varð til þess að
þessi leikur vannst ekki með 4-5 marka
mun. „Það er ekki hægt að kenna einum
eða neinum um þetta,“ sagði Gunnar.
„Það sem fyrst og fremst brást var að
stoppa hraðaupphlaup Uræddliðsins og
svo það að bíða eftir besta færi þegar við
vorum þrem - fjórum mörkum yfir“.
Ekki vildi Gunnar meina að Stjarnan
væri úr leik í Evrópukeppninni en það
verður að segjast eins og er að líkur
liðsins á að komast áfram eru afskaplega
litiar eftir þessi úrslit. Uræddliðið á
sterkan heimavöll og eitt mark er fljótt
að fara.
Hjá Urædd var Roger Kjendalen áber-
andi sterkastur en Ketil Larsen var einnig
öruggur á línunni.
Mörkin, Stjarnan: Sigurður Bjamason 8(4), Einar
Einarsson 5, Skúli Gunnsteinsson 4, Gylfi Birgisson
2, Magnús Teitsson 1. Sigmar Þröstur óskarsson
varði 12 skot, mörg hver í galopnum færum.
Urædd: Ketil Larsen 6, Roger Kjendalen 5, Brede
Larsen 3(2), Stein Höibö 2, Jonny Haugen 1, Bent
Svele 1, Jörgen Young 1. P&1 Oldrup Jensen varði
7 skot- -HÁ
Gylfi Birgisson brýst inn að marki Urædd án þess að varnarmaður norska liðsins nái að
stöðva hann. Tímamynd Pjetur.
Vinningstölurnar 31. október 1987
Heildarvinningsupphæð: 11.072.236,-
1. vinningur var kr. 6.854.204,-
og skiptist hann á milli 7 vinningshafa, kr.
979.172,- á mann.
2. vinningur var kr. 1.270.472,-
og skiptist hann á 686 vinningshafa, kr.
1.852,- á mann.
3. vinningur var kr. 2.947.560,-
og skiptist á 17.864 vinningshafa, sem fá 165
krónur hver.
Auk þess komu eftirfarandi tölur upp í fyrri
útdrætti, sem reyndist ógildur
3
11
18
20
32
Þeir sem voru með 3, 4 eða 5 réttar tölur í
þessum útdrætti eru beðnir að snúa sér tii
skrifstofu íslenskrar Getspár, en þar verða
þeim greiddar samsvarandi fjárhæðir og
vinningshafar fá.
Nánari upplýsingar hjá umboðsmönnum
Upplýsingasími:
685111
puimi'
ÆFINGA
SKOR
V.M. 86
Frábærir skór.
Litur: Hvítt/blátt.
Verð kr. 4.363,-
Tokyo
Lcttir og liprir skór.
Efni nylon/rúskinn.
Stærðir 2-11. Verð kr 1647,-
Handball Star
Fisléttir og mjúkir rúskinns-
skór.
Stærðir3-12.
Verðkr. 2.396,-
Stenzer Universal
Þrælsterkir leðurskór.
Litur hvítt/svart.
Verð kr. 2.412,-
Stærðir 3l/i—6.
Handball
Sterkir leðurskór.
Litur blátt/hvítt.
Verð kr. 2.595,-
Stærðir 3l/i—12
Aeróbikkskór
Úr sérstaklega mjuku
leðri. Stærðir 36—42.
Litir svart/ hvítt.
Verð háir kr. 3.496,-
Verð lágir kr. 3.114,-
• Sí’HíflUllíO
PÓSTKRÖFU
SPORTVÖRUVERSLUN
JNGOLFS
ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 40.
Á H0RNIKLAPPARSTIGS
0G GRETTISGÖTU
S:117S3