Tíminn - 07.11.1987, Qupperneq 2

Tíminn - 07.11.1987, Qupperneq 2
2 Tíminn Laugardagur 7. nóvember 1987 Aðalfundi LÍÚ lokið: Meginreglur kvóta- kerfis samþykktar Aðalfundi LÍÚ lauk í gær. Sam- þykkt var ályktun, þar sem segir að fundurinn samþykki þær meginregl- ur sem koma fram í frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða næstu fjögur árin, með nokkrum breytingum og athugasemdum. Þær eru helstar að aðalfundurinn telur nauðsynlegt að gildistími laganna verði fjögur ár, til að aðilar í sjávarútvegi hafi nægan tíma til að skipuleggja rekstur sinn fram í tímann. Fundurinn áréttaði þá skoðun sína að rétturinn til veiða úr sjó verði áfram alfarið í höndum útgcrðarinnar og hafna skiptingu kvótans. Aðalfundurinn lýsir sig mótfaliinn ráðagerðum um að afli sem fluttur er óunninn á erlendan markað verði reiknaður með 20% álagi í stað 10% áður. Undirstrikar fundurinn að fram- salsheimildir þurfi að vera rúmar og ekki bundnar við það að skipin hafi samskonar veiðileyfi. Fallist er á þær tillögur ráðuneytis- ins um breytingar á sóknarmarki, með tilliti til væntanlegrar skerðing- ar á heildarafla á næsta ári og ástands fiskistofnanna. Einnig telur fundurinn það nauð- synlegt að takmarka rækjuveiðar og telur eðlilegt að við stjórn rækjuveiða verði settur kvóti á hvert veiðiskip. Leitað verði allra leiða til að nýting einstakra árganga þorsk- stofnsins verði sem skynsamlegastur og telur fundurinn raunhæft að auka heimildir Hafrannsóknarstofnunar til skyndilokana á uppvaxtar og hrygningarstöðvum þorsksins. Þá samþykkti aðalfundurinn að lokum að taka beri sérstakt tillit til mikillar rýrnunar tekna af loðnu- veiðum hjá loðnuskipum við ákvörð- un fiskveiðistefnu nú í haust. Á fundinum var einnig samþykkt efnahagsályktun. í henni segir að þrátt fyrir hagstæð ytri skilyrði í sjávarútvegi hafi afkoma sjávarút- vegsins ekki batnað til samræmis við það. Innlend kostnaðaraukning hef- ur verið nær hömlulaus og er það krafa fundarins að stjórnvöld beiti sér fyrir því að stemmt verði stigu við vaxandi verðbólgu í þjóðfélag- inu. Stöðugt gengi íslensku krónunnar byggist á tekjuaukningu sjávarút- vegsins og því beri að skapa jafnvægi og stöðugleika í efnahagsmálum. Ríkisvaldinu ber að sýna aðhald í eigin fjármálum og draga úr útgjöld- um. Mótmælir fundurinn harðlega nýjum álögum á sjávarútveginn í formi launaskatts og lántökugjalds. Einnig mótmælir hann áformum stjórnvalda um að endurgreiða ekki nema 40% af þeim söluskatti sem sjávarútvegurinn greiðir. Einnig lýs- ir hann furðu sinni á beiðni Hafnar- sambands sveitarfélaga um að fara fram á hækkun aflagjalds. Kristján Ragnarsson var endur- kjörinn formaður LÍÚ, en auk þess voru Bjarni Grímsson, Gísli Jón Hermannsson, Guðrún Lárusdóttir, Gunnlaugur Karlsson, Hallgrímur Jónasson og Haraldur Sturlaugsson kosnir í stjórn. Fyrir voru Brynjólfur Bjarnason, Finnur Jónsson, Hilmar Rósmundsson, Ingvar Hólmgeirs- son, Jakob Sigurðsson, Sverrir Leósson, Tómas Þorvaldsson og Vil- helm Þorsteinsson. -SÓL Þetta graf sýnir heildarútflutning þorsks í milljónum kílóa og krónuverð á kflói á tímabilinu janúar til desember 1986. Á því sést hvernig framboð og cftirspurn haldast í hendur. I marsmánuði er lítið framboð og því hækkar verð mikið, en þegar framboð jókst mikið, eins og í ágúst og september, féll verðið niður úr öllu valdi. Kjötverslun með; Kyrkjot i dulargervi Loðdýr í landinu ástunda miklar nautakjötsveislur þessa dagana. Fram hefur komið að kjötið sem íer í ioðdýrin eru dýrustu tegundir nautakjöts, nánar tiltekið ekki kýrkjöt. í því sambandi skulu birgðir nautgripakjöts undanfarin ár rifj- aðar upp. Þann 1. september 1985 voru þær samtals rúm 580 tonn. Þær voru ári síðar rúm ellefu hundruð tonn, eða nánar tiltekið um 97% aukning milli ára. Aukn- ingin á nautgripakjötinu cr að stórum hluta vegna mikillar kúa- slátrunar á verðlagsárinu 1985/86, sem leiddi til um 300% aukningar á birgðum kýrkjöts. Birgðir kýr- kjöts 1. júní 1986 voru þannig tæp 467 tonn af heildarbirgðunt naut- gripakjöts sem voru 1.295 tonn. Birgðir kýrkjöts voru ekki nema rúm 88tonn 1. júní 1985 en þá voru heildarbirgðir nautgripakjöts tæp 698 tonn. Eins og kemur fram í frétt Ttm- ans í dag á bls. 7, kemur fram að Framieiðnisjóður landbúnaðarins hefur aðstoðað við að losna við um 500 tonn af gömlu og illseljanlegu nautgripakjöti, sem þótt ótrúlcgt sé reynist vera alvöru nautakjöt, en ekki ólseigt kýrkjöt. f ofanálag fór kjöt af nýslátruðum nautum í reftnn, en það var fyrir mistök. Kýrkjötið og iakari flokka naut- gripakjöts kaupa kaupmenn f heildsölu á helmingi lægra verði heldur en fyrsta flokks nautakjöt- ið, en selja það síðan sem fyrsta flokks nautakjöt, cnda rekur menn vart minni til að hafa séð kýrkjöt á „kjarapöllum" kjörbúðanna, né heldur aðrar tegundir nautgripa- kjöts annað cn „nautakjöt" og „kálfakjöt". Þvt skal á það minnt að flokkar nautgripakjöts eru minnst 17 talsins. Sala á nautgripa- kjöti hefur aukist sfðustu ár og ástæða þess eflaust sú að kýrkjöt er í flestum tilfellum ágætt, en það réttlætir það samt ekki að selja það undir fölsku flaggi. Sumirstaðhæfa reyndar að þeim hafi verið selt hrossakjöt sem nautakjöt sem er þá enn faiskara flagg. ABS Þýskalandsmarkaður: Viðkvæmt ástand og verð sveiflukennt „Ástandið er hreinlega viðkvæmt. Þeir eru ekki búnir að finna út það magn sem markaðurinn þolir. Jafn- vel fiskkaupmennirnir vita það ekki" sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson hjá LÍÚ í samtali við Tímann í gær um ástandið á ferskfiskmörkuðunum í Þýskalandi. Neyslan er eitthvað að stíga, en verðið er mjög sveiflu- kennt, þannig að metsala getur verið á þriðjudegi, en verðhrun á mið- vikudegi. LÍÚ hafði í vikunni samband við fiskmarkaðinn í Bremerhaven og forvitnaðist um löndun þýskra togara, en í síðustu viku kom allstór hópur þeirra og landaði á sama tíma. Fyrirspurnin var á þann veg hvort búast mætti við fleiri slíkum tilvikum, enda gerði slíkt íslenskum skipum erfiðara fyrir, og samkvæmt viðurkenndum hagfræðikenningum, þá orsakar framboð umfram eftir- spurn verðfall, en eftirspurn umfram framboð verðhækkanir. Svar Þjóð- verjanna var á þá lund að skyndileg aflahrota hefði valdið þessu, og þeir gætu lítið stjórnað slíku, en hins vegar myndu þeir reyna að dreifa skipunum í slíkum tilvikum. -SÓL Ólafur Egilsson sendiherra í London: „Fundurinn var undirbúningur að íslandsferð“ „Hann lýsti í stórum dráttum sínum hugmyndum og hann lýsli áhuga sínum á að fara til íslands til viðræðna við aðila þar, Landsvirkj- un og aðra þá sem málið snertir. Síðan skýrði ég honum frá stór- iðjuframkvæmdum sem verið hafa á íslandi og orkuframleiðslu,“ sagði Ólafur Egilsson sendiherra íslands í London um fund hans og Mr. Copson forstjóra North Vcnt- ure Assc. en pins og kom fram í fréttTímans í gær, hefur fyrirtækið áhuga á umtalsverðum orkukaup- um frá íslandi og flytja um sæstreng til Bretlands. Aðspurður sagði Ólafur að ekki væri búið að ákveða hvenær Mr. Copson færi til íslands en það væri stefnt að þeirri lerð áður en langt um liði. „Þcssi fundur vareinkum undirbúningur að því að hann færi til íslands tii að ræða þessi mál nánar. Einnig fékk cg tækifæri til að kynna fyrir honum hvað kynni að vera raunhæf orkukaup frá íslandi eftir að í Ijós kænii að það væru tæknilegar aðstæöur til að flytja rafmagnið og hann er mjög bjartsýnn í því efni. Hann telur að þær tækniframfarir scm hafa orðið að undanförnu á gerð kapla, eigi að skapa möguieika á slíku. Hann telur einnig að það verði öruggur markaður í Bretlandi á þessari orku,“ sagði Ólafur. ABS Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda: Sammála aukinni kvótaskerðingu Á stjórnarfundi Sölusambands ís- lenskra fiskframleiðenda voru sam- þykktar tvær ályktanir. Sú fyrri er á þá leið að stjórn SÍF sé sammála frumvarpsdrögum sjáv- arútvegsráðherra að lögum um stjórn fiskveiða næstu fjögur árin j meginatriðum, en tekur sérstaklega undir það atriði frumvarpsins sem gerir ráð fyrir aukinni kvótaskerð- ingu vegna útflutnings á ferskum fiski. „Stjórn SÍF telur að slík niður- staða sé eðlileg málamiðlun og ásætt- anleg fyrir alla aðila.“ Síðari ályktunin fjallar um þá uggvænlegu þróun sem nú er að eiga sér stað í tollamálum saltfisks í Evrópubandalaginu. „Bæði tollfrjálsir kvótar og kvótar sem fela í sér tollalækkun eru nú uppurnir í ýmsum markaðslöndum og skerðir því 13% tollur því sam- keppnisgetu íslensks saltfisksiðnað- ar, bæði á mörkuðunum og greiðslu- getu á hráefni. Ekkert liggur fyrir um fyrirkomulag tollamála saltfisks í Evrópubandalaginu á árinu 1988. Stjórn SÍF skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir viðræðum um tollamál saltfisks við Evrópubandalagið“ seg- ir í ályktun stjórnar SÍF. _ Miðum hraða ávailt við aðstæður IUMFERÐAR rAð

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.