Tíminn - 07.11.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Laugardagur 7. nóvember 1987
Kjördæmisþing framsóknarmanna í
Norðuriandskjördæmi vestra
veröur haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 28.-29. nóv. n.k.
Þingið hefst á laugardag kl. 13.
Dagskrá auglýst síðar.
IÐNSKOLINN f REYKJAVÍK
Innritun á vorönn 1987
Innritun stendur nú yfir og henni lýkur 5. desember.
Þetta nám er í boði:
I. Dagnám:
1. Samningbundiðiðnnám
2. Grunndeildmálmiðna
3. — tréiðna
4. — rafiðna
5. Framhaldsdeild rafvirkja/rafvélavirkja
6. — rafeindavirkja
7. — bifvélavirkja
8. — hárgreiðslu
9. — húsasmíði
10. Fornám
II. Almenntnám
12. Tækniteiknun
13. Rafsuða
14. Tölvubraut
15. Tæknibraut (lýkur með stúdentsprófi)
11. Kvöldnám:
1. Meistaranám (húsasmíði, múraraiðn og pípu-
lögn).
2. öldungadeild
a) Grunndeild rafiðna
b) Framhaldsdeild í rafeindavirkjun.
Fyrri umsóknir, sem ekki hafa verið staðfestar með
skólagjöldum þarf að endurnýja.
Framhaldsnemendur sem hyggja á nám á vorönn
verða að staðfesta það með skólagjöldum fyrir 5. des.
n.k.
Nánari upplýsingar eru gefnar í skrifstofu skólans og
hjá námsráðgjöfum.
Innritun í einstakar deildir er með fyrirvara um næga
þátttöku.
Skrifstofa skólans er opin virka daga kl. 9.30-15.00.
Þakkir frá Langholtsklerki
Ástvinum, sóknarnefnd, söfnuði og vinum mínum öðrum, sem
gerðuð mér, sextugum, 25. okt. sl. ógleymanlegan, sendi ég
hjartans þakkir.
Víst voru gjafir ykkar góðar, en hlýhugurinn, góðvildin, sem
þið umvöfðuð mig þennan dag, er einn skærasti sólstafurinn
í því ylríka sumri er langa ævi hefir haldið mér í fangi.
Kærleikans Guð vaki yfir brautinni ykkar.
Sig. Haukur Guðjónsson
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Egill Gestsson,
trygglngarmiðlari,
Klapparbergl 23, Reykjavík,
verður jarðsettur frá Dómkirkjunni mánudaginn 9. nóvember n.k. kl.
13.30. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir
örn Egilsson Lonni Egilsson
Höskuldur Egilsson Soffia Rögnvaldsdóttir
Ragnheiður Egilsdóttir Lárus Svansson
Margrét Þ. Egilsdóttir Óskar Smári Haraidsson
barnabörn og langafabörn
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Eyþór ÓSKAR Sigurgeirsson
Kjarrhólma 36, Kópavogi
sem lést 30. október verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudag-
inn 10. nóvember kl. 13.30.
Hrafnhiidur Sveinsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Tilboö til kúabænda að renna út:
Hundrað ærgildi
í sauðfé eru 2 kýr
og210þúsund
Framleiðnisjóður iandbúnaðarins
hefur framlengt tilboð sitt til
kúabænda sem eiga fullvirðisrétt í
sauðfé til 15. nóvember næstkom-
andi.
Tilboðið nær til kúabænda í Borg-
arfjarðarsýslu, Mýrasýslu, Snæfell-
snes- og Hnappadalssýslu, A-Húna-
vatsnssýslu, Skagafjarðarsýslu,
Eyj afjarðarsýslu, S-Þingeyj arsýslu,
Skaftafellssýslum, Rangárvalla-
sýslu, Árnessýslu og Gullbringu-og
Kjósarsýslu.
Tilboðið er fólgið í því að eigi
menn á þessum svæðum fullvirðis-
rétt í sauðfé, eiga þeir kost á aukn-
ingu á fullvirðisrétti í mjólk gegn
sölu á sauðfjárrétti sem nemur helm-
ingi af selda réttinum. Auk þess
greiðir Framleiðnisjóður förgunar-
bætur á hverja kind kr. 3.300,- sem
greiðast þann 1. mars 1988. Fram-
leiðnisjóður tryggir einnig haust-
grundvallarverð fyrir lambainnlegg
viðkomandi bónda í hlutfalli við
þann fullvirðisrétt sem látinn er af
hendi.
Tilbúið dæmi skýrir þetta kannski
nánar. Bóndi sem á 100 ærgilda
fullvirðisrétt í sauðfé en hefur aðal-
atvinnu af mjólkurframleiðslsu selur
Framleiðnisjdði fullvirðisrétt sinn í
sauðfénu. Hann fær 50 ærgildisaf-
urðum breytt í mjólk sem eru 8.700
lítrar og getur bætt tveimur kúm í
fjósið, en fyrir hinar 50 ærgildisaf-
urðirnar fær hann 210 þúsund krónur
greiddar á fjórum árum, (4.200,- kr.
Bændaskólinn á Hólum efnir til
eins dags námskeiðs fyrir loðdýra-
bændur, ráðunauta og nemendur
skólans í mati á pelsgæðum minka.
Námskeiðið verður dagana 6. til
9. nóvember. Fyrsta daginn er nám-
skeið fyrir ráðunauta og aðra sem
starfa við flokkun á mink. Dagarnir
7. til 9. eru ætlaðir starfandi bændum
ásamt nemendum og starfsmönnum
Hólaskóla sem sinna loðdýrarækt.
Leiðbeinendur á námskeiðunum
verða tveir danskir flokkunarmenn.
fyrir hverja ærgildisafurð), en greið-
slurnar eru verðtryggðar með
byggingavísitölu. Og að lokum fær
hann haustgrundvallarverð fyrir
þann hluta fullvirðisréttarins sem
hann selur, en fær ekki aukningu í
mjólk í staðinn.
Pels minka er almennt ekki orðinn
fullþroskaður á þessum tíma, en
hátt á annað hundrað minkar af
skólabúinu voru settir í myrkvun til
að flýta pelsmyndun þeirra. Þátttak-
endum gefst því kostur á að hand-
leika mink með fullþroskaðan pels á
námskeiðinu.
Bændaskólinn á Hólum mun
einnig bjóða upp á námskeið í
förgun og fláningu á mink og verkun
minka- og refaskinna.
Bændaskólinn á Hólum:
Namskeið i mati a
pelsgæðum minksins
Tómas Enok Thomsen í nýju húsnæði Vatnstæki að Hyrjarhöfða 4. Allt fyrir pípulagnir. Tímamynd: Pjetur.
Allt fyrir pípulagnir:
Heildsala, smásala,
ráðgjöf og þjónusta
Ekki alls fyrir löngu opnaði fyrir-
tækið Vatnstæki verslun að Hyrjar-
höfða 4 með vörur til pípulagna.
Eigendur Vatnstækis eru hjónin
Tómas Enok Thomsen og Sesselja
Halldórsdóttir. Tómas er með yfir
20 ára reynslu í pípulögnum og nú
síðustu ár verið með stór verk, þ.á
m. pípulögn í Kringluna. Þessi reyn-
sla stendur nú öllum til boða þar sem
ætlunin er að viðskiptavinir geti
fengið faglegar ráðleggingar í versl-
uninni.
Fyrir utan ráðgjöfina og smásölu-
verslun, mun fyrirtækið vera með
heildsölu ásamt verktakastarfsemi
þar sem viðskiptavinir geta sér að
kostnaðarlausu fengið tilboð í efni
og vinnu.
Verslunin er björt og rúmgóð og
nóg er af bílastæðum.