Tíminn - 07.11.1987, Side 11

Tíminn - 07.11.1987, Side 11
Laugardagur 7. nóvember 1987 Tíminn 11 VETTVANGUR Ingvar Gíslason: Raunhæfar aðgerðir í þróunarsamvinnu Það gerðist á Alþingi fyrir tveim- ur árum, vorið 1985, að samþykkt var þingsályktun sem fól það í sér að íslendingar skyldu jafnt og þétt hækka ríkissjóðsframlög sín til svonefndrar þróunaraðstoðar, - sem þýðir á mæltu máli fjárframlög til fátæktarþjóða svo að náð yrði því marki að íslendingar byðu fram af ríkisfé sem svarar til 0,7% af þjóðarframleiðslu til þessarar alþjóðastarfsemi, en 0,3% af þjóð- arframleiðslu skyldi koma frá frjálsum félagasamtökum hér á landi, samtals 1% af þjóðarfram- leiðslu. Með þessu vildi Alþingi verða við gamalli áskorun Allsherj- arþings Sameinuðu þjóðanna um að velmegunarþjóðir í Evrópu og Norður-Ameríku legðu fram sem ncmur 1% af þjóðarframleiðslu sinni til aðstoðar fátækum og van- þróuðum þjóðum. Hugsunin var sú að ríkar þjóðir munaði ekkert um að gefa fátækum þjóðum 1% af tekjum sínum. Ekki fer milli mála að fslending- ar eru í hópi velmegunarþjóða. Þjóðarframleiðsla er mikil og þjóð- artekjur á mann tiltölulega háar á íslandi, neyslustigið hátt og ótal ytri velsældareinkenni sem hægt er að draga fram og sýna að íslending- ar eru auðug þjóð, þegar á allt er litið. Þeir ættu því að vera færir um að sjá af 1% af þjóðarframleiðsl- unni til fátæktarþjóðanna, svo að þeim mætti farnast ögn betur. 1% af þjóðarframleiðslu sýnist lítil fjárhæð við fyrstu sýn, en verður miklu stærri í hugum manna þegar búið er að brcyta henni í krónu- tölu, þá mun talan nálgast það að vera 1,5 milljarðar króna. Þegar það er haft í huga að ríkissjóður hefur verið rekinn með milljarða halla og mikill ágreiningur um það hvernig afla skuli ríkissjóði tekna, þá er varla að furða þótt vomur komi á ríkisstjórn og þingheim allan, þegar hlutfallstalan lága er farin að jafngilda milljörðum króna. Enda hefur svo farið að ályktun- argleði Alþingis 1985 um stóraukin framlög til þróunaraðstoðar hefur ekki komið fram í verki, og er ekki líkleg til að gera það á næstu árum, einfaldlega vegna þess að hvorki er til staðar pólitískur vilji né raunhæf fjárhagsleg skilyrði til þess að koma þessari stefnu í framkvæmd nema til komi gerhreyft skipulag varðandi álagningu ríkissjóðs- tekna, eða einhver sérstakur þjóð- arvilji til þess að láta jafna niður á landsmenn þeirri upphæð sem um ræðir í þingsályktuninni. Þeirri hugmynd hefur Steingrímur Her- mannsson reyndar hreyft. Þegar alþingismenn, sem á þingi sátu vorið 1985, samþykktu þingsálykt- un um stóraukin framlög til þróun- arþjóða, þá hugsuðu þeir að vísu göfugmannlega, en gleymdu að hugsa raunsætt. Að hugsa raunsætt Yfirleitt hafa íslendingar ekki hugsað raunsætt eða af mikilli þekkingu um þróunarmál, þann brýna vanda sem fátæktarþjóðirn- ar eiga við að stríða. Sannleikurinn er sá að íslenskir stjórnmálamenn hafa mjög lítið lagt sig eftir því að kynnast þessu alþjóðamálefni af eigin raun, enda fátt fjarlægara venjulegum alþingismanni en efna- hags- og menningarástand fólks í hinni svörtustu Afríku eða hvernig slíkt ástand kann að vera hjá kynblendingum í Suður- eða Mið- Ameríku. Um þess háttar mál hafa flestir tótið sér nægja tilfallandi fróðleiksmola úr stöðluðum frétta- maskínum eða hástemmdar út- skýringar áhugamannahópa (ef ekki „baráttuhópa"), sem eru vafalaust vel meinandi, en brestur alla hófsemi og raunsæi í málflutn- ingi svo að fólk fáist til að hlusta á þá og geti lært af þeim. Þróunaraðstoð Evrópuþjóða, t.d. Norðurlanda, Bretlands, Hol- lands og Frakklands, svo og Bandaríkjanna og Kanada, hefur varað í áratugi og ekki að sökum að spyrja að þessar ríku þjóðir hafa lagt mikið af mörkum í þessu skyni. Norðurlandaþjóðir þykja örlátar í þessu efni, ekki síst Norð- menn og Svíar. íslendingar skera sig algjörlega úr öðrum Norður- landaþjóðum í þessu tilliti og leggja þjóða minnst til þróunarað- stoðar. Hér skal ekki frekar eytt rúmi í að útskýra hvers vegna íslendingar eru eftirbátar annarra Norður- landaþjóðaíþessu efni. Hinsvegar má að vissu leyti þakka fyrir að íslendingar eru þarna á seinni skipunum, því svo mikil og djúp- stæð mistök hafa þessar örlátu frændþjóðir og nágrannar látið henda sig í skipulagi og efnisinn- taki þróunaraðstoðar að það ætti að vera skyldulexía íslenskra áhugamanna um þróunarsamvinnu að kynna sér mistökin og láta þau sér að kenningu verða. Að læra af mistökum annarra Það er nú meira virði að lesa gagnrýni skarpra rithöfunda og fræðimanna á árangri ýmissa þró- unarverkefna annarra þjóða en rjúka til og safna fé í þróunarað- stoð án þess tryggt sé til fullnustu að henni sé skynsamlega varið og að hún komi því fólki að gagni sem hennar á að njóta. Að svo komnu máli er ekki ástæða til að hneyksl- ast á lágum fjárframlögum íslend- inga til þróunaraðstoðar. Aðýmsu leyti erum við að stíga okkar fyrstu spor í skipulagðri þróunarsam- vinnu og nauðsynlegt að íslending- ar læri af reynslu annarra í þessu efni og loki ekki augunum fyrir mistökunum sem gerð hafa verið í því sambandi. Það er auðvitað gott að vera örlátur á fé, en meginatrið- ið er þó hitt að verja því vel, þannig að þróunaraðstoð verði fá- tæklingum í fátæktarlöndunum að gagni og lendi ekki í eyðsluhít spilltra stjórnvalda og milliliða eða notuð til þess að fjármagna illa undirbúnar áætlanir, en dæmi um slíkt eru svo mörg, að fram hjá þeim má ekki líta. Tilraunastarfsemi Þróunarsamvinnustofnun ís- lands (stofnuð með lögum 1981) hcfur valið sér það viðfangsefni að veita íbúum Grænhöfðaeyja í Vestur-Afríku aðstoð til þess að nýta fiskveiðimöguleikana við eyjarnar meira en verið hefur. Líta verður á þetta verkefni sem ís- lenska tilraunastarfsemi í þróunar- samvinnu. Á árangri þessa verk- efnis veltur hvers fslendingar eru megnugir í því að láta fátækum þjóðunt í té gagnlega efnahagsað- stoð. í þcim praktísku verkefnum sem við tökum okkur fyrir hendur á sviði þróunaraðstoðar er okkur nauðsynlegt að læra af annarra reynslu og leitast ekki síður við að kynnast liinum neikvæðu hliðum í slíku starfí en því sem vel hefur tekist, því að mistökin eru ekki síður einkenni á þróunaraðstoð en hinn góði árangur. Það þarf ekki að vera nein skömm að því, þótt íslendingar séu aftur úr um hlutfall þeirra fjárhæða sem velmegunarþjóðir verja til aðstoðar í fátæktarlöndum meðan grunur leikur á stórfé sé sóað og verði til einskis gagns fyrir þá sem fátækir eru, því ekki eru allir fátækir í þessum þróunarlönd- um, a.m.k. ekki þeir sem völdin hafa eða þeir sem stunda millilið- astarfsemi. Þegar Islendingar hafa fengið reynslu á sviði þróunaraðstoðar og vissu fyrir því að framlög þeirra til útrýmingar fátækt og neyð komi að gagni, þá eiga þeir að láta sem það sé ekkert ntál að reiða af höndum 1-2 milljarða króna í þróunarað- stoð. En meðan núvcrandi reynsluskeið varir er rétt að fara með gát og leggja ekki meira af mörkum en hægt er að hafa full- komna stjórn á. Ingvar Gíslason, stjórnarmaður í Þróunar- samvinnustofnun fslands. LENGI BÝR AÐ FYRSTU GERÐ. Dagvist barna í Reykjavík rekur 61 dagvistarheimili víðs vegar um borgina fyrir um 4000 börn ó aldrinum 6 mán — 10 ára. Megin viðfangsefni Dagvista er að búa hinum ungu Reykvíkingum þroskavænleg uppeldisskilyrði í öruggu og ástríku umhverfi í leik og starfi með jafnokum. Við erum nú þegar um 600 manns sem önnumst þessa yngstu borgara, en til að ná ofangreindum markmiðum þurfum við liðstyrk áhugasamra einstaklinga. Við óskum eftir: Fóstrum, þroskaþjálfum, uppeldis fræðingum (BA —próf eða sambærilegt), einstaklingum sem hafa öðlast reynslu við uppeldi eigin barna, einstaklingum sem vilja öðlast reynslu í dagvistaruppeldi fyrir væntanlegt nám. Allar nánari upplýsingar um störfin gefur Fanny Jónsdóttir, deildarstjóri í síma 2 72 77 alla virka daga frá kl. 9.00 — 16.00 og í síma 2 14 96 laugardag og sunnudag frá kl. 11.00 — 15.00

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.