Tíminn - 07.11.1987, Qupperneq 14

Tíminn - 07.11.1987, Qupperneq 14
14 Tíminn Laugardagur 7. nóvember 1987 FRÉTTAYFIRLIT LUNDÚNIR - Bandarikj- adalur hækkaöi aðeins í verói á mörkuðum í Evrópu eftir að seðlabankar Sviss og Vestur- Þýskalands blönduðu sér í málið og keyptu dali til að gera gjaldmiðilinn stöðugari. Hlutabréf í Tokyo hækkuou í verði í kjölfar hækkunar verð- ’ bréfavísitölunnar í New York i fyrradag. I Lundúnum gerðist þó lítið á hlutabréfamarkaðn- um þar sem fésýslumenn höfðu áhyggjur af seinaganai bandarískra stjórnvalda ao ákveða hvernig draga megi úr fjárlagahallanum. BAGHDAD - Irakskar her- þotur gerðu loftárásir á helstu olíuefnastöð írana við höfnina í Bandar Khomeini í norður- hluta Persaflóans. I tilkynningu frá hernaðaryfirvöldum í írak var sagt að herþoturnar hefðu gert nokkrar slíkar árásir sem tekist hefðu vel. DUBAI - iranskir bylt- ingaverðir á hraðbátum sínum gerðu árás á olíuflutningaskip i eigu Bandaríkjamanna án þess að bandarísk freigáta, sem var í grennd, gæti nokkuð aðhafst. Bandaríska skipið sigldi undir fána Panama en bandaríski sjóherinn getur aðeins varið skip sem sigla undir fána Bandaríkjanna. SEOUL - Fyrrum leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Suður- Kóreu hætti afskiptum sínum af stjórnmálum og sakaði for- setaframbjóðendurna Kim Dae-Jung og Kim Young-Sam um að gera að engu allar vonir um sameiginlegan frambjóð- anda stjórnarandstöðunnar. Lee Min-Woo, leiðtogi Nýja kóreaska lýÓræðisflokksins, sagði á blaðamannafundi að hann myndi segja af sér sem þingmaóur og láta af öðrum trúnaðarstörfum. WASHINGTON -Atvinnu- leysi í Bandaríkjunum jókst um 0,1 % í októbermánuði, var 5,9% í september en 6,0% í síðasta mánuði. Þrátt fyrir þetta fjölgaði störfum um meira en hálfa milljón, en það dugði þó ekki alveg til að halda í við aukinn fjölda vinnu- færra manna. ELÍSARBETARHÖFN, Suður-Afríku - Govan Mbeki, leiðtogi svartra þjóðernissinna í Suður-Afríku, dvaldi fyrstu stundir sínar utan fangelsis- múranna sem frjáls maður á hóteli þar sem hans var tryggi- lega gætt. Mbeki hefur setið í fangelsi síðustu 23 árin en var látinn laus í vikunni. Óttast er að hvítir harðlínumenn reyni að ráða Mbeki af dögum. DYFLINNI — JohnO'Grady, sem írskir hryðjuverkamenn | héldu í gíslingu, var leystur úr | haldi eftir skotbardaga milli lög- í reglu og þeirra sem héldu þessum tengdasyni írsks mill-! jónamærings. I ÚTLÖND Franska íranshneykslið: Chirac reynir að bera klæði á vopnin Francois Mitterrand forseti (t.v.) og Jacques Chirac forsætisráðherra takast í hendur: Kemur Chirac forseta sínum til hjálpar? Jacques Chirac forsætisráðherra Frakklands reyndi í gær að gera lít- ið úr vopnasöluhneykslinu sem nú fyllir allar forsíður blaða í landinu og gæti átt eftir að hafa slæmar af- leiðingar fyrir Francois Mitterrand forseta og Sósíalistaflokk hans, helsta stjórnarandstöðuflokk landsins. Chirac sagði að málið væri að fara úr böndunum og einungis andstæðingar Frakka í Mið-Austur- löndum græddu á því. Talsmaður forsætisráðherrans sagði hann ekki hafa í hyggju að verða við kröfum sumra flokks- manna sinna í röðum íhaldsmanna og krefja Mitterrand forseta svara í sambandi við hið svokallaði Lucha- iremál. Mál þetta kom upp á yfirborðið í vikunni þegar Charles Hernu, fyrr- um varnarmálaráðherra sósíalista, var í opinberri skýrslu sakaður um að hafa hjálpað ráðamönnum í fyrirtækinu Luchaire að breiða yfir ólöglega sölu á 500 þúsund sprengjukúlum til frans á árunum rnilli 1983 og 1986. í skýrslunni var sagt að Mitter- rand hefði verið látinn vita af grun um þessa sölu í maí árið 1984 en einhverra hluta vegna ekki getað eða reynt að stöðva útflutninginn. Þetta var í annað skiptið á tveim- ur dögum sem Chirac reynir að bera klæði á vopnin í hneykslismál- inu sem orðið hefur kveikja að hatrömmum deilum milli sósíalista og íhaldsmanna* Sósíalistar saka stjórnvöld um rógsherferð á hendur flokknum en íhaldsmenn hafa, í kjölfar skýrslubirtingarinnar, heimtað að Mitterrand segi sann- leikann í þessu máli. Mitterrand hefur hingað til verið þögull sem gröfin. Frakkar, sem styðja fraka í stríði þeirra gegn frönum, bönnuðu sölu vopna til írans fljótlega eftir að Persaflóastríðið braust út. f júlí- mánuði var enn dregið úr sam- skiptunum ríkjanna eftir umsátur unt sendiráð ríkjanna í París og Te- heran. Reuter/hb Páfinn hefur áhyggjur af umhverfínu og skyldi engan undra. Páfi í gervi grænfriðungs Jóhannes Páll páfi sagði í gær að öll tækni yrði að byggjast á virðingu fyrir náttúrunni en mætti ekki ein- ungis beita í hagnaðarskyni. Hann varaði við kjarnorkuúrgangi og mengun af völdum súrs regns. Páfi flutti ræðu á ráðstefnu í Vatíkaninu þar sem vísindamenn funda næstu daga um umhverfismál. Honum var greinilega annt um um- hverfisverndarmál og sagði að öll vísindi og tækni yrðu að byggjast á siðferðis- og siðfræðilegum grund- velli. „Vísindi eru verk mannanna og þeim má einungis beita í þágu mann- kynsins," sagði Páfi. Jóhannes Páll er ekki ókunnur náttúrunni með öllu, hann er mikið gefinn fyrir fjallgöngur sem hann iðkaði í Póllandi áður en hann var kjörinn til að gegna æðsta embættinu innan rómversk-kaþólsku kirkjunn- ar árið 1978. Rcuter/hb Sovétríkin: Skrifræðið bjargar Rust Mathias Rust, Vestur-Þjóðverjinn sem flaug á lítilli einkavél í gegnum sovéska lofthelgi og lenti í grennd við Rauða torgið í Moskvu, komst alla þessa leið óáreittur vegna þess að enginn yfirmaður var til staðar til að ákveða hvernig bregðast ætti við þessum óvenjulegu aðstæðum. Þetta var haft eftir hinum nýja yfirmanni sovéska loftvarnaeftirlitsins í gær. „Enginn yfirmaður fannst til að taka ábyrga ákvörðun," sagði Ivan Tretyak herforingi í viðtali við vik- ublaðið Nedelya. Tretyak tók nýlega við starfinu af Alexander Koldunov sem var rekinn eftir flug Rust í maí- mánuði í vor. Tretyak minntist á að flugherinn ætti að fylgja sérstökum leiðbeining- um þegar svona atburður ætti sér stað og sagði að ef annað slíkt atvik kæmi upp myndi flugvélin einfald- lega vera skotin niður án þess að leit- að vrði eftir boðum frá æðri stöðum. I framhaldi af þessum orðum ráð- lagði Tretyak öðrunt að reyna ekki eitthvað svipað því sem Rust gerði. Sovéski fiugherinn skaut niður farþegaflugvél frá Suður-Kóreu árið 1983 sem var innan sovéskrar loft- helgi. Allir farþegarnir létust, 269 talsins. Sovétmenn héldu því fram að vélin hefði verið í njósnaflugi. Hinn nítján ára gamli Rust var heppnari. Hann var dæmdur til fjögurra ára vistar í vinnubúðum en svo gæti farið að honum yrði sleppt innan tíðar. Reuter/hb Heimsmeistarakeppnin í krikket tekur sinn toll: Að þola ekki að tapa Einn maður lést í indversku borg- inni Bombay í gær er óeirðir brutust þar út eftir tap Indverja fyrir Eng- Íendingum í undanúrsíitum heims- meistarakeppninnar í krikket. í Pak- istan lést einn námsmaður úr hjartas- lagi eftir að hafa horft upp á lands- menn sína liggja fyrir Ástralíumönn- um í hinum undanúrslitaleiknum og sumir féllu í svefndá. Lögreglan skaut að minnsta kosti fimmtán skotum upp í loftið til að reyna að hemja óeirðarseggi í Bontbay er létu illa eftir að heims- meistararnir Indverjar höfðu legið fyrir Englendingum. Vitað var um einn mann sem lést og um tuttugu slösuðust. 1 nágrannaborginni Ahmedabad kom líka til óláta og þar þufti að flytja ungan dreng á sjúkra- hús, alvarlega slasaðan eftir götubar- daga í kjölfar ósigursins. Flestir höfðu búist við að Indverj- ar og Pakistanar myndu komast alla leið í úrslitaleikinn. 1 Pakistan, þar sem íþróttin er lík- ust trúarbrögðum, var fólk nánast límt við sjónvarpsskerminn þegar leikur Pakistana og Ástralíumanna var sýndur í beinni sjónvarpsútsend- ingu. Ekki kom þó til neinna óláta eftir tap Pakistana en ungur námsmaður lést eftir leikinn. Hann hafði fylgst með honum í sjónvarpi og þegar honum var Ijóst tapið fékk hann brjóstverki og tók að kasta upp, lífi hans var ekki bjargað. Þá skýrði hin opinbera fréttastofa landsins frá þvf að læknir og hjúkrunarkona við sjúkrahúsið í Lahore hefðu fallið í eins konar svefndá þegar ieiknum lauk. Það var eins gott að fleiri lækn- ar og hjúkrunarkonur voru til staðar á sjúkrahúsinu því komið var með nokkra menn sem ekki höfðu þolað ósigurinn og þjáðust af innvortis verkjum allskonar. Eriglendingar og Ástralíumenn mætast í úrslitleik keppninnar á ntorgun. Reuter/hb

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.