Tíminn - 07.11.1987, Page 16

Tíminn - 07.11.1987, Page 16
16 Tíminn Laugardagur 7. nóvember 1987 F yrir skemmstu bárust þær fregnir út um heimsbyggöina að 75% Breta væru vansælir í hjónarúminu. Líklega er ástandið síst betra í Bandaríkjunum ef marka má grein um þetta efni í vikuritinu Newsweek nýlega, en það mega Ameríkanar þó eiga að þeir gera eitthvað í málinu en sætta sig ekki við óbreytt ástand. Tekið er dæmi af hjónunum Anne, 31 árs yfirmanni í banka, og manni hennar Bob, sem líka gegnir hárri stöðu í fjármálastofnun. Hann er að nálgast fertugt. í aug- um vina þeirra er hjónaband þeirra og lífsstíll óaðfinnanlegt. En þau vita sjálf betur. Frá því þau leggja af stað til vinnu snemma morguns frá stóra húsinu sínu í fína hverfinu í Chicago hittast þau sjaldan aftur fyrr en kl. 10 um kvöldið og þá hefur Anne eytt síðustu tveim klukkustundunum í heilsuræktar- stöð. Eins og að líkum lætur eru þau þá bæði orðin úrvinda og verður lítið þrek eftir til ástar- leikja. Enda segir Anne að í 8 ára hjónabandi hafi þau aðeins lifað „hálf-eðlilegu“ hjónalífi í eitt ár. Að öðru leyti segir hún hjónaband- ið hafa byggst á því að forðast hvort annað og það sé í rauninni sorglegt þar sem þeim þyki innilega vænt hvoru um annað. í þeim sjaldgæfu tilvikum þegar þau hyggjast hafa kynmök fer tilraunin meira og minna út um þúfur og engar ástríður koma þar til sögunn- ar. Afleiðingin er náttúrlega að þau hafa að mestu leyti gefist upp við þetta kák. En Anne er framkvæmdamann- eskja og hún sá að við svo búið mætti ekki standa. Hún innritaði sig sem sjúkling við þá deild Loyola háskólans sem fer með kynlíf- svandamál. „Ekki í kvöld elskan“ Vandamál þessara hjóna er síður en svo einsdæmi. Sálfræðingar og sálgreiningarfræðingar segjast fá í æ ríkari mæli sjúklinga sem berjast við þennan sama vanda, fólk sem hefur ekki ráðið við önnur við- brögð við kynlífsbyltingunni en eitthvað sem samsvarar „Ekki í kvöld elskan". Á máli sérfræðinga hefur þetta vandamál hlotið sjúk- dómsheitið ISD (Inhibited Sexual Desire = bæld kynþrá) og einkenni sjúkdómsins er vangeta til að byggja upp nokkurn áhuga á hinni miklu bandarísku þráhyggju, kyn- lífi. „Sá sem býr við litla kynlöngun er ekki „harður af sér“. Hann finnur ekki hjá sér hvöt til að leita uppi kynlíf né heldur hleypir hann ímyndunaraflinu lausu um kynlíf,“ skrifar sálfræðingurinn Helen Sin- ger Kaplan í bók 1979, en þar var fyrst vakin athygli á þessu vanda- máli. Á undanförnum áratug hefur ISD komið í ljós sem algengasta kvörtunaratriðið í sambandi við kynlíf í Bandaríkjunum. Mat þeirra sem til þekkja er að allt að 20-50% almennings verði fórnar- lamb þessa kvilla að einhverju marki. Einn þeirra sem veitir ráð- gjöf á þessu sviði gengur svo langt að kalla vandann „plágu níunda áratugarins" en tekur fram, eins og reyndar margir starfsbræður hans, að hann álíti ekki að það sé vegna þess að vandamálið sé orðið al- mennara, heldur vegna þess að nú ræðir fólk hispurslaust um málið og leitar sér hjálpar. Það er samt allsendis óvíst að nokkurn tíma verði vitað um umfang vandans. í menningu þar sem kynlíf er hafið upp til skýjanna, er skortur á þrá eins og hvert annað ósæmilegt leyndarmál og mörg pör eiga erfitt með að viðurkenna að þau eigi við þetta vandamál að stríða, jafnvel ■ þegar þau leita hjálpar. Ráðgjafi einn segist vera undrandi á þeim fjölda hjóna sem gangast undir meðferð en halda því statt og stöðugt fram í upphafi að kynlífið sé í góðu lagi, þegar það sé í raun á hraðri niðurleið. Hann segist hafa fengið sjúklinga sem ekki hafi lifað kynlífi í 15-19 ár. Erfitt að eiga við ISD Það er oft erfiðara að sjúkdóms- greina ISD og vinna bug á því en mörgum öðrum kynlífsvandamál- um. Engin ein ástæða leiðir til ástandsins. Þar getur legið að baki þunglyndi, streita, ágreiningur í hjónabandinu eða líkamlegar ást- æður eins og hormónaskortur. Og oft eru orsakirnar enn óljósari, ótti við að tengjast öðrum of náið, sem sumir sérfræðingar vilja meina að sé einkenni á tilfinningasambandi á níunda áratugnum. Kynlíf er sennilega hámark þess að karl og kona sýni hvort öðru ástúð og fólki getur fundist það vera algerlega berskjaldað ef það leggur niður tilfinningalegu varnirnar. Fólk get- ur orðið hrætt við að verða sært ef það verður of „náið“ annarri pers- Fólk hræddara við náin tilfinningabönd en kynlífið sjálft Ráðgjafarnir rekast oft á sjúkl- inga sem finnst auðveldara að Uppametnaöurinn hefur tekiö sinn toll í einkalífinu. Margir uppanna hafa hins vegar oröiö fyrir áfalli viö verðbréfahrunið og áhyggjusvipurinn á þeim sem hér fylgjast meö þróuninni á kauþhöllinni í New York leynir sér ekki. Ekki er komið í Ijós hvaöa áhrif þetta áfall hefur á kynlíf þeirra, kannski missa sálfræöingar nú einhvern spón úr aski! Valdabaráttan í svefn- herberginu En stundum er meira að en „smáatriðin". Sérstaklega í hjóna- böndum þar sem báðir makarnir leita að frama í starfi. Þar getur verið ómeðvituð valdabarátta í gangi, og hún lætur ekki svefnher- bergishurðina loka sig úti. Einn meðferðarfræðingurinn segir frá slíku sláandi dæmi en hjónin sem þar eiga hlut að máli eru nú að leita lækningar við vandanum. Þau höfðu gert með sér óskráðan „samning" um að bæði ynnu úti, en þó að það væri aldrei nefnt lá í loftinu að maðurinn ætti að vera hærra settur. Þegar konunni bauðst betra starf, missti maðurinn alla löngun til hennar enda var hann reiður og fannst sér ógnað. Þá missti konan líka alla löngun. Þó að hún kynni vel við starfið var hún með samviskubit yfir því að upp- fylla ekki hefðbundnu fjölskyldu- skilyrðin. Stundum er gripið til þrárbælingar, ómeðvitað, til að halda yfirráðunum, með því að neita um kynlífsfullnægingu. Kynlíf Bandaríkja- manna í rusli stunda kynlíf með tiltölulega ókunnugum en makanum. Þeir segja að oft líti helst út fyrir að fólk á þeirra menningarsvæði sé hrædd- ara við of náin tilfinningabönd en kynlífið sjálft. Og þeir sem aðhyll- ast kenningar Freuds þykjast sjá ödipusarkomplexinn í vandanum, eiginmaður eða eiginkona kunna að sjá foreldri sitt einhvers staðar í undirmeðvitundinni, og þar með eru þau orðin aðilar að illræmdum sifjaspellum. Einfaldari skýring getur verið sú að bælingin stafi af áhyggjum um hvernig takist að framkvæma verknaðinn. Þessar áhyggjur stafa að vissu marki af þeirri ímynd um kynfimleika sem endalaust er hald- ið að fólki í kvikmyndum og sjón- varpinu. Bæði karlar og konur hafa áhyggjur af að þeirn takist ekki að standa við þennan dular- fulla mælikvarða. En þessar kvaðir virðast hvíla þyngst á karlmönnun- . um. Margir þeirra sem virðast þjást af ISD eru í raun að koma sér hjá kynlífi vegna þess að þeir óttast að standast ekki kröfurnar. Og þessi ótti hefur magnast um helm- ing samfara því sem konur hafa sýnt meiri framtakssemi á þessu sviði sem öðrum. „Fyrir 20 árum voru það eiginmennirnir sem drógu konurnar með sér til hjónabands- ráðgjafa. Nú hefur dæmið snúist við. Konur eru ekki lengur tilbúnar að sætta sig við hvað sem er og karlarnir eru orðnir hræddir um að standa sig ekki,“ segir einn ráðgjaf- inn. Auðvitað kemur eyðnióttinn hér við sögu, einkum í hópum kyn- hverfra og einstaklinga sem lifað hafa fjölskrúðugu kynlífi. En það eru hin önnum köfnu hjón á frama- braut sem mynda stærsta hóp ISD sjúklinga. Venjulega kvarta þau hreinlega undan þreytu eða leiðindum við að stunda reglu- bundið kynlíf einu sinni í viku. Sumir sérfræðingar ganga svo langt að kalla ISD „nýja uppasjúkdóm- inn“. Hjónakornin komast að raun um að þau geta ekki „einfaldlega - „upparnir" verst farnir og leita sér meðferðar í stórum stíl stungið krökkunum í rúmið, kveikt á einhverjum takka, fyllst af ástríð- um, klárað verkið sitt og farið svo að sofa,“ segir einn ráðgjafinn. En aðrir halda því fram að húsmóðirin sem er heima alla daga og gætir bús og barna sé síður en svo betur sett. Satt best að segja er enginn óhult- ur. En almennt talað ber meðferð- arfræðingum saman um að fleira ungt fólk en gamalt sé meðal sjúklinganna og fleiri konur en karlar. Yfirlit sem gert hefur verið um rannsóknir á bandarísku þjóð- inni undanfarna hálfa öld, setur fram það mat að allt að 15% karla og 35% kvenna búi við þetta vandamál. Niðurstöður Kinseys standast margar enn Enn sem komið er eru fáar beinharðar vísindalegar niðurstöð- ur um ISD fyrirliggj andi, þar sem sjúkdómurinn uppgötvaðist ekki fyrr en á síðasta áratug. Og með- ferðarfræðingar benda á að ekki gefi öll tilfelli þrárbælingar tilefni til að leita hjálpar. Það geti verið innan eðlilegra takmarka að missa áhugann á kynlífi tímabundið og stundum þurfa sjúklingarnir ekki annað en að vera sannfærðir um að tíðni samfaranna sé innan eðlilegra marka. Það er nefnilega engin ákveðin og afmörkuð re'gla til um tíðnina. Kinsey skýrslan fræga komst að þeirri niðurstöðu að með- alfjöldi væri 2.4 sinnum á viku og varð fleyg skrítla í tilefni þess á sínum tíma: Hann fær þessa 2, en ég 0.4! En nýrri tíma rannsóknir þykja styðja þessar niðurstöður Kinseys. En það geta verið meiri og minni frávik frá henni og fer þá eftir aldri og líkamlegu ástandi viðkomandi. Nú er mælikvarðinn yfirleitt sá að parið sé ánægt með sinn hlut. Nú segja sérfræðingar að enginn vandi skapist nema ef „sá (sú) sem þarf kynlíf einu sinni í mánuði giftist þeirri (þeim) sem þarf það einu sinni á dag“. En það er staðreynd að óánægja í hjónabandi er ein af algengustu orsökum þrárbælingar. ISD sjúkl- ingar kunna í raun að hafa eðlilega kynhvöt, en að mati sérfræðing- anna er „skrúfað fyrir hana“ af t.d. reiði eða áhyggjum. Sem sagt oft er vandans frekar að leita í tilfinn- ingalegum samskiptum makanna en kynþránni sjálfri. Og þá víkur sögunni aftur að Anne og Bob sem sagt var frá í upphafi. Þau eru enn að reyna að leysa sín mál. Anne segir að Bob sé innilokaður og reiður maður sem eigi erfitt með að láta uppi óskir sínar. Hún aftur á móti sé viðkvæm og auðsærð og nístandi gagnrýni Bobs geri það að verkum að hún fái minnimáttarkennd. Og nú sé svo komið að þau lifi varla hjónalífi og hún er viss um að rifrildin þeirra eigi þar stærsta sök. „Það eru öll smáatriðin sem hlaðast upp þar til ég er hrædd við kynlífið af því að ekkert gengur eins og það á að ganga,“ segir hún. Þrátt fyrir að nú sé farið að ræða opinskátt um kynlíf verða ekki mikil skoðanaskipti milli hjóna sem eiga í þessum samskiptaerfið- leikum og oftast nær hafa þau gagn af hreinskiptri hjónabandsráðgjöf. „Vandinn liggur í því sem er að gerast í talfærunum á þeim en ekki því sem býr í lendunum," segir einn ráðgjafinn. „Kynlífsbyltingin er komin og farin og ég á enn eftir að hleypa af fyrsta skotinu“ Þó að skilningur á ISD hafi mikið aukist að undanförnu og lækningameðferð tekið breyting- um eiga vísindamenn enn langt í land að kunna öll skil á sjúkdómn- um. Meðferð er vandmeðfarin og ekki hægt að ábyrgjast bata. Sumir meðferðarfræðingar segja batalík- ur 80% við meðferð sem taki allt frá 6 vikum til 18 mánaða. íhalds- samir meðferðarfræðingar segja batalíkur um 50%. Eitt er víst, að í lífi miklu fleiri en tölu verður á komið er kynlífsá- stríða ekki hin sjálfsagða og ótæm- andi hvöt sem sífellt er haldið fram í ræðu og riti. Og við sláum botninn í þessa umræðu í þetta sinn með því að vitna í einn ISD sjúklinginn sem kom með þá at- hugasemd við sálfræðinginn sinn að „Kynlífsbyltingin er komin og farin og ég á enn eftir að hleypa af fyrsta skotinu"!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.