Tíminn - 07.11.1987, Qupperneq 17
Laugardagur 7. nóvember 1987
Tíminn 17
Blaðamannafélagið 90 ára:
Mikil aðsókn að
afmælissýningunni
Mikil aðsókn hefur verið að afmæ-
lissýningu Blaðamannafélags
íslands, sem opnuð var í Listasafni
alþvðu við Grensásveg sl. laugardag.
Á sýningunni eru m.a. sýndar um
100 fréttaljósmyndir frá síðustu ára-
tugum, en yfir 30 fréttaljósmyndarar
eiga myndir á sýningunni.
Pá gefst sýningargestum kostur á
að sjá þróun í útliti dagblaðanna
fram eftir öldinni, og lesa og hlýða á
af segulbandi fyrstu fréttir og frétta-
skýringar sem fluttar voru í ríkisút-
varpinu. Einnig eru á sýningunni
fjölmörg merkileg skjöl sem tengjast
sögu félagsins sl. 90 ár.
Sýningin er opin á virkum dögum
kl. 16:00-20:00 og um helgar kl.
14:00-22:00. Sýningin stendur til 15.
nóvember.
Albert að stoppa í fjárlagagatið. Eitt
þeirra skemmtilegu augnablika sem
ber fyrir augu blaðaljósmyndara.
Ljósm. Róbert
Kristniboðsdagurinn
Hún hafði ekki tækifæri til að læra í bernsku, Pókotkonan í Kenýu, þá voru
engir skólar í sveitinni hennar. Nú hafa íslendingar reist fimm skóla í
Pókothéraði. - Kristniboðamir sinna konum sérstaklega, kenna þeim
saumaskap og ýmislegt um heilsugæslu og mataræði, auk kristinfræði sem er
aðalatriðið.
1987
Kristniboðsdagurinn er að þessu
sinni sunnudaginn 8. nóvember og
verður kristniboðsins minnst í kirkj-
um landsins og á nokkrum samkom-
um á þessum degi.
Nú eru 34 ár síðan íslenskir
kristniboðar hófu að starfa meðal
Konsóþjóðflokksins í S-Eþíópíu.
Þar er nú mikið unnið á vettvangi
kirkju, skóla, heilsugæslu, þróunar-
hjálpar o.s.frv.
Hungursneiðir hafa sett nokkurt
mark á mannlíf í Konsó síðustu árin,
en þar er líka hungur í orð Guðs.
Fólk kemur víða saman til að hlusta
á boðun fagnaðarerindisins og til að
biðjast fyrir. Mjög margt ungt fólk
er í söfnuðunum.
Söfnuðirnir í Konsó eru hluti af
lúthersku kirkjunni í heiminum. Vakn-
ingar eru víða á starfssvæðum henn-
ar og hefur hún eignast marga góða
leiðtoga.
Skólastarfið gengur mjög vel í
Konsó, einkum eftir að nýr maður
tók við stjórn skólans. Hann er
reyndar sonur fyrsta mannsins í
Konsó sem tók kristna trú. Sá var
seiðmaður.
Sjúkraskýlið á kristniboðsstöðinni
í Konsó er eins og vin í eyðimörk.
Þangað leituðu um 30 þúsund manns
á árinu sem leið. Greinilegt er að
skilningur fólks á sjúkdómsvörnum
og heilbrigðum lifnaðarháttum fer
vaxandi.
Þó að stefna yfirvalda í Eþíópíu
rekist að ýmsu leyti á starf kirknanna
í landinu eru tækifæri til boðunar og
hjálpar óteljandi og hafa leiðtogar
lúthersku kirkjunnar lagt mjög fast
að kristniboðunum að þeir haldi
áfram að starfa og leggi hinum ungu
söfnuðum lið eftir föngum. Þess má
geta að kristnir menn í Konsó minn-
ast þess þegar þeir voru án þekkingar
á kristindómnum og vilja greiða
þakkarskuld með því að boða ná-
grannaþjóðflokkum trúna á Krist.
Engir lslendingar eru í Konsó eins
og sakir standa. Ung hjón sem eru
heima í leyfi gera ráð fyrir að fara
þangað aftur á næsta ári.
Góðar fréttir berast frá íslensku
kristniboðunum í Pókot í V-Kenýu.
Þar hafa risið fjórir söfnuðir á starfs-
svæði þeirra í Cheparería og ná-
grenni. Fimm skólar hafa verið
byggðir fyrir fé frá íslandi. Hvort
tveggja eflist, starfið í söfnuðunum
og uppbygging skólanna. Pókot-
menn urðu löngum útundan að því
er varðaði kristilega boðun og
fræðslu í landinu svo að íslend-
ingarnir hafa orðið að byggja upp
starf sitt að miklu leyti frá grunni.
Haldin eru sktrnar- og biblíunám-
skeið og er áberandi hversu æskufólk
fylkir sér í raðir kristinna manna.
Ein hjón starfa í Cheparería en
önnur íslensk hjón dveljast á stað
sem heitir Kongolai, um 70 km frá
Cheparería. Þau komu þangað fyrir
skömmu eftir rúmlega árs leyfi hér
heima. Þau segja frá því í nýlegu
bréfi að þeim hafi verið vel tekið.
Eru þau þegar farin að taka til hendi
- þó að hitinn sé oft um 38 stig - og
eru verkefnin óþrjótandi.
Allur kostnaður kristniboðsins í
Eþíópíu og Kenýu er greiddur með
frjálsum framlögum áhugafólks. Á
þessu ári þarf að safna á áttundu
milljón króna og vantar enn tvær
milljónir á þá upphæð. Fjárhagsáætl-
un næsta árs gerir ráð fyrir nokkru
hærri upphæð. Þess er fastlega vænst
að almenningur leggi starfinu lið svo
að unnt verði að sinna þeim verkefn-
um sém ákveðið var að taka fyrir.
Um þessar mundir er að koma út
almanak Kristniboðssambandsins
1988. Það er prýtt litmyndum frá
kristniboðsakrinum og ýmsum upp-
lýsingum um starfið. Kristni-
boðssambandið hefur lengi selt
minningarkort og nú í haust hafa
verið prentuð jólakort sem seld
verða til ágóða fyrir starfið. Kristni-
boðið getur einnig hagnýtt sér notuð
frímerki og ættu menn að hafa það í
huga nú um hátíðarnar þegar jóla-
kveðjurnar fara að berast. Þarna er
líka tækifæri fyrir fyrirtæki að losa
sig við frímerki og umslög á „arðbær-
an“ hátt.
Það er einkenni lifandi kristnidóms
að breiða út truna. Kristniboð meðal
heiðingja er sjálfsagður þáttur í
starfi kristinnar kirkju. Kristni-
boðssambandið væntir þess að lands-
menn allir vilji styðja þarft málefni.
Afhenda má framlög í Aðalskrifstof-
unni, Amtmannsstíg 2 B, Rvík, eða
á gíróseðli nr. 65100-1. Á aðalskrif-
stofunni liggur og frammi bæklingur
um starfið.
Staða
framkvæmdastjóra við greiningar- og ráðgjafar-
stöð ríkisins er hér með auglýst laus til umsóknar.
Framkvæmdastjóri skal sjá um fjárhagslegan
rekstur stofnunarinnar og hafa umsjón með dag-
legum rekstri.
Áskilið er að umsækjandi hafi menntun og starfs-
reynslu á rekstrarsviði. Laun samkv. kjarasamn-
ingi opinberra starfsmanna.
Umsóknir um stöðuna ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist félagsmálaráðuneyt-
inu deild fyrir málefni fatlaðra - fyrir 1. desember
n.k.
Staðan veitist frá 1. janúar 1988 eða eftir sam-
komulagi.
Félagsmálaráðuneytið
3. nóvember 1987.
Varnarliðið á
Keflavíkurfiugvelli
óskar eftir að ráða stjórnunarstarfsmann í áætl-
anadeild stofnunar verklegra framkvæmda.
Hæfnikröfur:
Krafist er yfirgripsmikillar þekkingar eða reynslu í
verkefna- og fjármálastjórnun ásamt þekkingu á
hinum ýmsu byggingariðngreinum, með tilliti til
viðhalds og viðgerða. Reynsla við tölvuvinnslu
nauðsynleg, mjög góð enskukunnátta skilyrði.
Umsóknir berist Varnarmálaskrifstofu Utanríkis-
ráðuneytisins, Ráðningardeild, Brekkustíg 39,260
Njarðvík, eigi síðar en 24. nóvember n.k. Nánari
upplýsingar veittar í síma 92-11973.
Frá starfsþjálfun
fatlaðra
Innritun er hafin fyrir vorönn 1988. Starfsþjálfunin
er ætluð einstaklingum sem fatlast hafa vegna
sjúkdóma eða slysa og þarfnast endurhæfingar til
starfa eða náms.
Á fyrstu önn verður kennd íslenska, enska,
verslunarreikningur, bókfærsla, samfélagsfræði
og tölvufræði (notkun ýmissa forrita). Umsóknir
sendist fyrir 1. desember til Starfsþjálfunar fatl-
aðra, Hátúni 10A. Einnig er forstöðumaður til
viðtals í síma 29380 þriðjudaga, miðvikudaga og
föstudaga frá kl. 10-13.
Forstöðumaður
Flutningar
Tilboö óskast í flutninga á tímabilinu 1. des. '87-1. sept. ’89 á um þaö
bil 1140 tonnum af áfengi og tóbaki frá Reykjavík til útsölustaða ÁTVR
á ísafirði, Siglufiröi, Seyðisfiröi og Selfossi. Gert er ráö fyrir vikulegum
ferðum. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, og tilboð veröa
opnuö á sama staö í viðurvist viöstaddra bjóöenda kl. 11:00 f.h. 23.
nóvember n.k.
Bílarif Njarðvík
Er að rífa: Lancer ’81, Mazda 929 '82, Honda
Accord ’80, Honda Accord ’85, Lada Canada ’82,
Bronco ’74, Daihatsu Charmant 79, Dodge Aspen
st. 79. BMW 320 ’80. Einnig varahlutir í flesta aðra
bíla. Sendum um allt land. S. 92-13106.