Tíminn - 07.11.1987, Qupperneq 18

Tíminn - 07.11.1987, Qupperneq 18
18 Tíminni nóyember 1987 pfl á 1 Framsóknarfólk Suðurlandi 28. þing kjördæmissambands framsóknarfélaganna á Suðurlandi verður haldið í Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri helgina 7. og 8. nóv. n.k. og hefst kl. 14.00 laugardag. Gestir þingsins verða: Steingrímur Hermannsson Guðmundur Bjarnason Sigurður Geirdal Guðrún Jóhannsdóttir frá L.F.K. Gissur Pétursson frá S.U.F. Gisting verður í Hótel Eddu. Rútuferð frá Selfossi kl. 10.00. Formenn munið að tilkynna þátttöku. Nánari upplýsingar i simum 99-2547 og 99-6388. K.S.F.S. Árnesingar Lokaumferð hinnar árlegu f ramsóknarvistar Framsóknarfélags Árnes- sýslu verður föstudaginn 13. nóvember kl. 21, að Flúðum. Ávarp kvöldsins flytur: Ólaf ía Ingólfsdóttir formaður Félags framsóknarkvenna í Árnessýslu. Aðalvinningur er ferðavinningur frá Samvinnuferðum-Landsýn. Heildarverðmæti vinninga er kr. 75.000,- Allir velkomnir. Stjórnin. Mýrasýsia Aðalfundur Framsóknarfélags Mýrasýslu verður haldinn miðvikudag- inn 11. nóvember kl. 21. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing 3. Önnur mál Alexander Stefánsson alþingismaður kemur á fundinn. Stjórnin Húsavík Aðalfundur Framsóknarfélags Húsavíkur verður haldinn að Hótel Húsavík mánudaginn 9. nóvember kl. 20.30. Dagskrá: Inntaka nýrra félaga. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. Vetrarstarfið. önnur mál. Félagar hvattir til að fjölmenna. Framsóknarfélag Húsavíkur. Borgarfjarðarsýsla Aðalfundur verður í Framsóknarfélagi Borgarfjarðarsýslu, að Hvann- eyri sunnudaginn 8. nóvember kl. 16. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. 3. önnur mál. Alexander Stefánsson alþingismaður mætir á fundinn. Stjórnin. Vestur-Húnvetningar Aðalfundur Framsóknarfélags Vestur-Húnvetninga verður haldinn miðvikudaginn 11. þ.m. í Vertshúsinu, Hvammstanga og hefst kl. 21.00. Stjórnin. Snæfellsnes Aðalfundur Framsóknarfélags Snæfells- og Hnappadalssýslu verður haldinn að Lýsuhóli þriðjudaginn 10. nóvember kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á Kjördæmisþing. Önnur mál. Alexander Stefánsson kemur á fundinn. Kaffiveitingar. Stjórnin. BÆKUR TJrene. Kassorla STAIFS musr SIGUR VISSA Sjálfstraust og sigurvissa Komin er út hjá Iðunni bókin Sjólfstraust og sigurvissa eftir bandaríska sálfræðingin Irene Kassorla. 1 bókinni er að finna árangurinn af þrotlausu starfi hennar og mikilli reynslu í meðferð og þjálfun eins til aukins persónulegs þroska, sjálfsvirðingar og sjálfstrausts. En á þeim vettvangi hefur hún náð undraverðum árangri og hlotið viðurkenningu víða um heim. 1 formála bókarinnar kemur fram að hún hafi haft margt fólk til meðhöndlunar sem átt hafi sérstakri velgengni að fagna og að athygli hafi vakið að atferli alls þessa fólks hafi falið í sér sameiginlegan þátt, þ.e.a.s. að hér sé um að ræða atferli sem kenna megi og læra. Jafnframt hafi hún haft með höndum fjölda manna sem bæði fjölskyldan og þjóðfélagið kalli tapara og í atferli þess fólks sé einnig að finna sameiginleganþátt sem samofinn sé öllu lífsmynstri þess. En það sé einnig lært - og að breyta megi þessu atferli tapara í atferli vinnanda. Á ofangreindu byggir hún þær kenningar sem fram koma í bókinni, en hún skiptist í fimm hluta sem hver um sig innihalda jafnframt æfingar til uppbyggingar, ýmsar staðreyndir um mannleg samskipti og frásagnir. Egill Egilsson þýddi. íslandsbók á 12tungumálum - frá Iceland Review Nýlega hefur Iceland Review gefið út myndabók um ísland, sem er nýstárleg að því leyti, að í henni er texti á tólf tungumálum, þar á meðal á japönsku og arabísku. Hingað til hefur ekki verið völ á efni hérlendis um ísland á þessum framandi tungum og vafalaust mun þessi nýja útgáfa leysa vanda einhverra. önnur tungumál í bókinni eru: enska, franska, þýska, danska, sænska, norska, finnska, hollenska, spænska og ítalska. Bókin er í handhægu broti og með 32 völdum litmyndum eftir Pál Stefánsson, ljósmyndara Iceland Review. í textanum um Island, sem er á fyrrgreindum 12 tungumálum, er dreginn saman helsti fróðleikur og staðreyndir um land og þjóð. Myndatextar eru einnig á öllum fyrrgreindum tungumálum. í bókinni er litið Islandskort og inn á það merkt hvar myndirnar eru teknar. Þar að auki er í bókinni stærra kort, sem sýnir afstöðu íslands til landanna beg'gja vegna Atlantshafs. Bókin er til sölu í bókabúðum (498.75 kr.) Hún er unnin til prentunar af starfsliði Iceland Reviéw. Kópavogsbúar Skrifstofa Framsóknarfélaganna, Hamraborg 5, 3. hæö er opin alla virka daga kl. 10-12, sími 41590. Opið hús alla miövikudaga kl. 17-19. Starfsmaður: Einar Bollason Tökum höndum saman og hefjum öflugt vetrarstarf. Heitt á könnunni. Framsóknarfélögin. Hafnfirðingar Opið hús að Hverfisgötu 25, mánudaginn 16. nóvember kl. 20.30. Dagskrá: Starfið framundan - Bæjarmálin - Önnur mál - Kaffiveitingar Stjórn Fulltrúaráðsins Hörpukonur Hafnarfirði, Garðabæ og Bessastaðahreppi Aðalfundur Hörpu verður haldinn þriðjudaginn 10. nóvember kl. 20.30 að Hverfisgötu 25, Hafnarfirði. Stjórnin Vesturland Skrifstofa kjördæmissambandsins Brákarbraut 1, Borgarnesi verður opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 13.00-17.00. S(mi 71633 og sími utan skrifstofutíma 51275. Stjórnin Vesturland Kjördæmisþing framsóknarmanna á Vesturlandi verður haldið í Ólafsvík laugardaginn 14. nóv. n.k. Nánar auglýst síðar. Stjórnin Framsóknarvist Fyrsta Framsóknarvist vetrarins verður haldin sunnudaginn 8. nóvember að Rauðarárstíg 18, og hefst kl. 14.00. Veitt verða þrenn verðlaun kvenna og karla. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi flytur stutt ávarp. Framsóknarfélag Reykjavíkur Reykjanes Skrifstofa kjördæmissambands framsóknarmanna ( Reykjaneskjör- dæmi eropin að Hamraborg 5, Kópavogi kl. 17-19 alla virka daga og kl. 17-21 á þriðjudögum. Sími 43222. Stjórnin. Happdrætti Suðurlandi Drætti í skyndihappdrætti kjördæmissambands Framsóknarfélag- anna á Suðurlandi hefur verið frestað til 17. nóvember n.k. Upplýsingar i síma 99-2547 og 99-6388. Suðurland Skrifstofa Kjördæmissambands Framsóknarfélaganna á Suðurlandi, Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin alla þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13-17 sími 2547. Heimasími starfsmanns er 6388. Framsóknarmenn eru hvattir til að líta inn eða hafa samband. 32. kjördæmisþing framsóknar- manna í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldið i Hrafnagilsskóla Eyjafirði dagana 13. og 14. nóv. n.k. og hefst kl. 20.30 á föstudagskvöld. Sérmál þingsins verða heilbrigð- ismál. Erindi flytja: Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingaráðherra. Sigurður Halldórsosn, héraðslæknir Kópaskeri. Margrét Tómasdóttir, brautarstjóri við Háskólann á Akureyri. Regína Sigurðardóttir, launafulltrúi sjúkrahúss Húsavikur. Halldór Halldórsson, fyrirlæknir Kristnesspítala. Gestir þingsins: Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins. Fulltrúi frá Landssambandi framsóknarkvenna. Fulltrúi frá Sambandi ungra framsóknarmanna. Nánar auglýst síðar. Stjórn KFNE.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.