Fréttablaðið - 19.02.2009, Blaðsíða 2
2 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
Ólafur, var þetta ekki bara
hóflegt hjá Óskari?
„Þetta hóf fór fram úr hófi eins og
öll framsóknarvæðing.“
Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi
borgarstjóri, gagnrýndi Óskar Bergsson,
formann borgarráðs, harðlega á síðasta
fundi borgarstjórnar, fyrir hóf sem Óskar
hélt framsóknarmönnum á kostnað
borgarinnar.
VIÐSKIPTI Gengi krónunnar stóð
óbreytt í 191 stigi í gær en krón-
an hefur ekki verið sterkari
gagnvart erlendum gjaldmiðl-
um frá bankahruninu í október
í fyrra.
Greiningardeild Glitnis bendir
á að krónan hafi styrkst um ell-
efu prósent í janúar og sé ljóst að
áætlun stjórnvalda og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins (AGS) að ná
stöðugleika á krónuna og styrkja
hana hafi hrokkið í gírinn eftir
brösuglega byrjun í desember.
Það geti kætt sendinefnd AGS
sem ræðst á næstu dögum í
fyrstu endurskoðun á efnahags-
áætlun sjóðsins og íslenskra
stjórnvalda.
Bandaríkjadalurinn kostaði
144 krónur og evra 143 krónur
í gær. Þá stóð breska pundið í
162,3 krónum og sú danska í 19,2
krónum. - jab
Krónan gæti kætt AGS:
Krónan ekki
sterkari á árinu
SJÁVARÚTVEGSMÁL Steingrímur J.
Sigfússon sjávarútvegsráðherra
hefur ákveðið að reglugerð for-
vera hans um hvalveiðar standi
og veiðar verði heimilaðar á yfir-
standandi fiskveiðiári. Framtíð
veiðanna er hins vegar háð gagn-
gerðu endurmati stjórnvalda á
forsendum veiðanna. Lögfræð-
ingur, sem fenginn var til að meta
lagalega stöðu málsins, gagnrýn-
ir málsmeðferð fyrrverandi ráð-
herra. Skilgreind verða veiðisvæði
til hrefnuveiða
og griðlönd til
hvalaskoðunar.
Steingrím-
ur tók af allan
vafa um það á
blaðamanna-
fundi í gær að
þrátt fyrir að
hvalveiðar verði
leyfðar í sumar
eins og reglu-
gerð forvera hans gerir ráð fyrir
þá geti hvalveiðimenn ekki geng-
ið út frá því að veiðar verði leyfð-
ar til næstu fjögurra ára, eins og
áætlað var. Ekki duldist neinum
sem á fundinum var að Steingrími
mislíkaði niðurstaðan og vísaði
ábyrgðinni á komandi veiðum til
Einars K. Aðspurður sagðist hann
gera skýran greinarmun á veið-
um á langreyði og strandveiðum
á hrefnu fyrir innanlandsmark-
að. Hann sagði sína skoðun hins
vegar vera aukaatriði en „það er
ekkert launungarmál að ég hef
efasemdir um að það þjóni heild-
arhagsmunum Íslands best að
hefja atvinnuhvalveiðar í stórum
stíl, til útflutnings“.
Stjórnvöld fengu Ástráð Har-
aldsson hæstaréttarlögmann til
að meta lagalega stöðu ákvörðun-
ar fyrrverandi sjávarútvegsráð-
herra sem gaf út reglugerð um
veiðar á 150 langreyðum og 100
hrefnum 27. janúar síðastliðinn.
Niðurstaða Ástráðs var að ríkið
sé bundið af ákvörðun Einars en
málsmeðferðin sé gagnrýnisverð.
Steingrímur segir lagagrund-
völl hvalveiða almennt veikan
og stjórnvöld hyggi á allsherjar
úttekt á grundvelli veiðanna og
endurskoðun laga um hvalveiðar
í vetur. „Ákvarðanir um framhald
veiðanna verða teknar á nýjum
forsendum, nýjum lagagrunni og
að undangenginni miklu víðtæk-
ari greiningu á hagsmunum þjóð-
arbúsins þegar á næsta ári,“ sagði
Steingrímur.
Hafrannsóknastofnun hefur
verið falið að skilgreina veiði-
svæði hrefnu og sérstök griðlönd
hvala sem ætluð er til hvalaskoð-
unar. Með þessu er þess freist-
að að koma í veg fyrir árekstra á
milli veiðimanna og hvalaskoðun-
arfyrirtækja.
Sjávarútvegsráðuneytið hyggst
jafnframt grafast fyrir um það
hvort hvalveiðimenn hafi sannar-
lega öll tilskilin leyfi sem starf-
semi þeirra þarfnast og sérstak-
lega verði þess gætt að eyðing
úrgangs sé samkvæmt reglum um
umhverfismál. svavar@frettabladid.is
Hvalveiðar í sumar
en framhaldið óljóst
Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að reglugerð um hvalveiðar standi fyrir
yfirstandandi ár. Málsmeðferð forvera hans er gagnrýnd. Framtíð og forsendur
hvalveiða verða endurmetnar og lög um hvalveiðar verða endurskoðuð í vetur.
HVALUR 9 Tvö skip munu veiða 150 langreyðar í sumar. Hrefnuveiðimenn hyggja á
uppbyggingu á Akranesi fyrir sína útgerð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Ég fagna þess-
ari niðurstöðu sjávarútvegs-
ráðherra og hún byggist auðvit-
að á þeim efnislegu forsendum
sem lágu til grundvallar minni
ákvörðun. Vitaskuld hlýtur hún
líka að vera stutt þeirri vitn-
eskju að fyrir liggur meirihluta-
vilji þingsins um að þessum veið-
um verði haldið áfram,“ segir
Einar K. Guðfinnsson, fyrrver-
andi sjávarútvegsráðherra, um
ákvörðun eftirmanns síns um að
hvalveiðar hefjist í sumar.
Hann hefur engar áhyggjur af
því að frekari hvalveiðar verði
stöðvaðar eftir vertíðina í ár. „Ég
fagna jafnframt endurskoðun
laga um hvalveiðar; sú vinna var
hafin undir minni forystu.“ - shá
Einar K. Guðfinnsson:
Veiðar komnar
til að vera
SJÁVARÚTVEGUR „Það má segja að
þetta sé farið að minna mann á ver-
búðartímann þegar bændasynirnir
og annað fólk komu ofan af landi til
að vinna í fiski,“ segir Þór Vilhjálms-
son, starfsmannastjóri hjá Vinnslu-
stöðinni í Vestmannaeyjum. Mikið
hefur verið hringt þangað síðustu
misserin og spurst fyrir um vinnu.
„Það eru ekki nema tvö, þrjú
ár síðan að það gat verið erfitt að
manna bátana en það hefur nú held-
ur betur breyst,“ segir hann en ríg-
haldið er í hvert pláss núna og vel
mannað í vinnslunni.
Albert Már Eggertsson, eigandi
Perlufisks í Vesturbyggð, segir að
einnig sé mikið spurst fyrir um laus
störf fyrir vestan. „Það er nú ekk-
ert skrýtið miðað við það hvernig
ástandið er, sem betur fer vill fólk
frekar vinna en að sitja og klóra
sér,“ segir hann.
Þór segir að það eina sem vanti
núna til að allt verði eins og þegar
best lét í útgerðinni sé loðnan. „Ann-
ars var ég að tala við Línu áðan og
hún segir að þetta sé ekki búið með
loðnuna,“ segir hann. Þess má geta
að umrædd Sigurlína Árnadótt-
ir er berdreymin mjög og reyndist
sann spá í fyrra þegar hana dreymdi
fyrir því að rætast myndi úr loðnu-
vertíð þó svo að sjávarútvegsráð-
herra hefði blásið hana af á tíma-
bili. - jse
Fólk sækir í fiskvinnslustörf hvort sem er vestur á fjörðum eða í Eyjum:
Landinn sækir aftur í fiskinn
DREYMDI FYRIR LOÐNUVERTÍÐ Þór
veitti Sigurlínu verðlaun, fyrir hönd
Vinnslustöðvarinnar, í fyrra þegar rættist
úr loðnuvertíðinni rétt eins og draumar
hennar höfðu sagt til um.
MYND/ÓSKAR FRIÐRIKSSON
LÖGREGLUMÁL Slökkviliðið á Suð-
urnesjum hafði mikinn viðbúnað
í gær vegna eiturefnaleka í gámi
í Grindavík. Talið er að eiturguf-
ur hafi myndast þegar vatn komst
að óþekktu efni innst í gámnum.
Aðgerðir vegna lekans stóðu frá
hádegi og langt fram eftir degi.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
sendi slökkvibíl og gámabíl með
eiturefnabúnað á staðinn.
Um tvo tonn af efninu voru í
gámnum, en ekki liggur fyrir
hvaða efni það er. - sh
Sýra myndaðist í gámi:
Viðbúnaður
vegna eitrunar
STJÓRNMÁL Gunnar Svavarsson,
þingmaður Samfylkingarinnar í
Suðvesturkjördæmi, ætlar ekki
að gefa kost á sér til endurkjörs
í komandi alþingiskosningum.
Hann telur að
skapa þurfi
svigrúm til
endurnýjunar
í efstu sætum
lista flokksins
eins og þjóð-
in hafi kallað
eftir.
Gunnar
settist fyrst á
þing eftir síð-
ustu þingkosningar og hefur því
setið á þingi í tæp tvö ár. Hann
skipaði efsta sæti lista Sam-
fylkingarinnar í Suðvesturkjör-
dæmi. Hann hefur síðan gegnt
starfi formanns fjárlaganefndar
Alþingis. - sh
Gunnar Svavarsson:
Hættir á þingi
GUNNAR
SVAVARSSON
STJÓRNMÁL Viðskiptanefnd Alþing-
is kom saman tvisvar í gær til að
ræða frumvarp um breytingar á
yfirstjórn Seðlabankans, fyrst í
gærmorgun og aftur í gærkvöldi.
Til umræðu á báðum fundunum
voru fyrirhugaðar breytingar á
frumvarpinu áður en það verður
afgreitt úr nefndinni til annarrar
umræðu.
Meðal breytinganna sem rætt
er um er að víkka út hæfniskröf-
ur sem gerðar verða til seðla-
bankastjóra, en sú breyting er
nær örugg, og að skipa aðstoðar-
bankastjóra. Ekki verður þó fall-
ið frá þeirri fyrirætlan að hafa
seðlabankastjóra aðeins einn. - sh
Stíft fundað í viðskiptanefnd:
Tvífundað um
Seðlabankann
DÓMSMÁL Ákvörðun um að selja 550 milljón hluti í
Straumi-Burðarási til erlends fjárfestis fyrir á ell-
efta milljarð króna var aðeins tekin af forstjóra
Straums. Salan var hvorki rædd í stjórn félagsins
né á hluthafafundi. Þetta kom fram við aðalmeðferð
skaðabótamáls Vilhjálms Bjarnasonar og dætra
hans á hendur stjórn Straums í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær.
Vilhjálmur og dætur hans krefja stjórn félags-
ins um ríflega þrjátíu þúsund krónur í skaðabætur,
vegna þess að þeim hafi verið mismunað sem hlut-
höfum í Straumi, þegar ákveðið var að selja hlutina
á því sem Vilhjálmur kallar undirverð.
Tekist var á um það fyrir dómi hvort kaupverð-
ið, 18,6 krónur á hlut, væri undirverð eða ekki. Það
væri litlu lægra en meðalkaupverð á bréfum í félag-
inu daginn áður, en síðar sama dag og kaupin gengu
í gegn hafi verðið hins vegar risið töluvert.
Þá er einnig ágreiningur um það hvort Vilhjálm-
ur og dætur hans séu réttir aðilar að málinu. Lög-
maður stjórnarmanna í Straumi fullyrðir að stakir
hluthafar geti ekki höfðað mál vegna meints tjóns
af þessum toga, heldur verði félagið sjálft að vera
stefnandi, enda sé það félagið sem verður þá fyrir
tjóni. Þar fyrir utan hafi viðskiptin verið afar hag-
felld. - sh
Hvorki stjórn né hluthafafundur komu nálægt 11 milljarða kaupum í Straumi:
Tekist á um kaup í Straumi
FORSTJÓRINN OG DÓMTÚLKUR William Fall, forstjóri Straums,
kom fyrir dóminn og sagði viðskiptin öll með eðlilegu móti.
Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums, mætti
ekki. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
Átján bjargað úr sjónum
Mannbjörg varð í Norðursjó þegar
Super Puma-þyrla með 18 manns
innanborðs hrapaði í sjóinn við Bret-
landsstrendur í gærkvöldi. Mönnun-
um var bjargað úr björgunarbátum
og komust þeir allir frá atvikinu án
teljandi meiðsla. Fjölmargir bátar og
þyrlur komu að björguninni.
SLYS
SPURNING DAGSINS