Fréttablaðið - 19.02.2009, Qupperneq 8
8 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
1 Hvað heitir fráfarandi
framkvæmdastjóri Samfylking-
arinnar?
2 Hversu mikið hefur fjármagn
til Umferðarstofu verið skorið
niður?
3 Hvaða dáta hefur félags-
skapur í hávegum sem hittist á
Kryddlegnum hjörtum síðar í
mánuðinum?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46
PALESTÍNA, AP Ísraelar settu í gær
það skilyrði fyrir vopnahléi á
Gasaströnd að Palestínumenn þar
láti fyrst lausan ísraelska her-
manninn Gilad Shalit, sem hefur
verið haldið í gíslingu þar síðan í
júní 2006.
Ísraelar hafa einnig krafist þess
að vopnahléssamkomulag kveði á
um að Palestínumenn á Gasa hætti
að skjóta sprengjuflaugum yfir
landamærin til Ísraels.
Hamas-samtökin vilja hins
vegar að Ísraelar aflétti einangr-
un Gasasvæðisins og opni landa-
mærastöðvar. Hamas vill semja
sérstaklega um lausn ísraelska
hermannsins, en krefst þess að
fá hundruð Palestínumanna látna
lausa úr fangelsum í Ísrael.
Efnahagsleg einangrun Gasa-
svæðisins torveldar mjög alla upp-
byggingu á svæðinu, sem er afar
illa farið eftir þriggja vikna linnu-
lausar loftárásir Ísraelshers í byrj-
un ársins.
Ísraelsstjórn segir þó ekki um
það að ræða fyrr en tryggt sé að
Shalit verði látinn laus.
„Ég held varla að við þurfum að
opna landamærastöðvarnar fyrr
en mál Gilads Shalit hefur verið
leyst,“ sagði Ehud Olmert, forsæt-
isráðherra Ísraels í gær að loknum
fundi svonefndrar öryggisríkis-
stjórnar, sem er hópur þeirra ell-
efu ráðherra ríkisstjórnar lands-
ins sem lætur öryggismál helst til
sín taka.
Hamas segir að Ísraelar séu með
þessu að grafa undan vopnahlés-
viðræðum sem Egyptar hafa haft
milligöngu um.
Hosni Mubarak Egyptalandsfor-
seti hafði á þriðjudag sagt að mál
hermannsins Shalits ætti „ekki á
nokkurn hátt að tengja við vopna-
hlésviðræðurnar“.
Bæði ísraelsk og egypsk stjórn-
völd lokuðu landamærum Gasa-
svæðisins árið 2007 og síðan hefur
sáralitlu af nauðsynjavörum og
hjálpargögnum verið hleypt inn á
svæðið. Þingnefnd frá Evrópuþing-
inu segist hafa orðið fyrir áfalli og
fundið til vanmáttar eftir þriggja
daga heimsókn á Gasasvæðið í
lok síðustu viku. Eyðileggingin
og mannfallið eftir árásirnar hafi
verið skelfileg.
Í tilkynningu frá Louisa Morg-
antini, varaforseta þingsins, segir
að nefndin hafi orðið vitni að vís-
vitandi manndrápum og eyðilegg-
ingarstarfi ísraelskra hermanna á
nauðsynlegustu innviðum samfé-
lagsins á Gasa, svo sem iðnaðar-
hverfum, skólum, sjúkrahúsum og
heimilum fólks.
gudsteinn@frettabladid.is
Vilja gíslinn
lausan fyrst
Ísraelsstjórn er ekki til viðræðu um vopnahlé á Gasa
nema samið verði um að hermaðurinn Shalit verði
látinn laus úr gíslingu. Íbúar Gasa enn í einangrun.
KAMBÓDÍA, AP Fyrstu réttarhöldin
vegna ógnarstjórnar Rauðu kmer-
anna í Kambódíu fyrir meira en
þrjátíu árum hófust á mánudag.
Það er Kaing Guak Eav, jafnan
kallaður Duch, sem fyrstur þarf
að svara til saka. Hann er ákærð-
ur fyrir glæpi gegn mannkyninu,
ásamt fjórum öðrum sakborning-
um sem síðar verða dregnir fyrir
dómarann.
Dómstóllinn er í Kambódíu, en
nýtur stuðnings frá Sameinuðu
þjóðunum. Lengi hefur dregist að
þessi réttarhöld hæfust. Sakborn-
ingurinn Duch var fangelsisstjóri
í einu illræmdasta fangelsi sög-
unnar, nefnt S-21, og stóð í Pnohm
Penh. Duch er sá eini af sakborn-
ingunum fimm sem hefur sýnt af
sér iðrun, og baðst í gær fyrirgefn-
ingar.
Hann er sakaður um margvís-
lega glæpi, þar á meðal morð,
pyntingar og nauðganir, í fangels-
inu þar sem stjórn Rauðu kmer-
anna hélt föngum sínum og pyntaði
þá grimmilega áður en þeir voru
teknir af lífi.
„Þegar ég horfi á Duch núna þá
virðist hann vera gamall og ljúfur
maður. Það var allt öðru vísi fyrir
þrjátíu árum,“ segir Vanh Nath,
einn þeirra fáu sem lifðu af fanga-
vist í S-21.
Duch fór í felur eftir fall Rauðu
kmeranna árið 1979 og fannst ekki
fyrr en tuttugu árum síðar. - gb
Réttarhöld yfir fangelsistjóra Rauðu kmeranna í Kambódíu:
Fyrstu réttarhöldin eru hafin
KAING GUAK EAV Fyrrverandi fang-
elsisstjóri í einu illræmdasta fangelsi
sögunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ALÞINGI „Stefna VG er skýr og
afdráttarlaus. Við teljum að hags-
munum Íslands sé betur borgið
utan Evrópusambandsins og telj-
um að á grundvelli sjálfstæðrar
stefnu sé hag okkar best borgið,“
sagði Jón Bjarnason, þingflokks-
formaður Vg, á Alþingi í gær.
Annan daginn í röð var nokkur
umræða um afstöðu Vg og Sjálf-
stæðisflokks til aðildar að ESB.
Framsóknarþingmenn hvöttu til
að tímanum yrði frekar varið í að
ákveða bráðaaðgerðir til að verja
heimilin í landinu. „Evrópuum-
ræðan er eitt af okkar brýnustu
málum,“ sagði Katrín Júlíusdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar. - ss
Þingmaður Vinstri grænna:
Skýr afstaða
gegn ESB
LÍFIÐ Á GASA Palestínumenn biðja í rústum mosku sem Ísraelar eyðilögðu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Í Ráðhúsi Reykjavíkur verður kynning á námi frá Háskólanum á Akureyri, Háskólanum á
Bifröst, Háskólanum á Hólum, Háskólanum í Reykjavík, Landbúnaðarháskóla Íslands og
Listaháskóla Íslands. Á Háskólatorgi, Gimli og Odda verður kynning á námi við Háskóla
Íslands. Í Norræna húsinu verður kynning á framhaldsnámi í Danmörku og Svíþjóð.
Háskóladagurinn um allt land:
Ísafjörður: Kynning í MÍ 3. mars
Akureyri: Kynning í VMA 11. mars
Egilsstaðir: Kynning í ME 12. mars
Kynntu þér möguleika framtíðarinnar á www.haskoladagurinn.is
ÞETTA ER SNÚIÐ – ÞITT ER VALIÐ!
HÁSKÓLADAGURINN 21. FEBRÚAR KL. 11.00–16.00
HÁSKÓLA
DAGURINN
VEISTU SVARIÐ?