Fréttablaðið - 19.02.2009, Side 27
FIMMTUDAGUR 19. febrúar 2009 3
Útsölum er lokið og sumartískan hefur að mestu tekið völd-in í verslunum hér
eins og annars staðar. Vissulega
hressandi að sjá bjarta vorliti
eftir dökku vetrarlitina í búðar-
gluggunum og eins og vorhrein-
gerning þegar útsölurvörurnar
og auglýsingaspjöldin eru horfin.
Sumir bjóða þó enn vetrarvör-
ur á vægu verði því sumartískan
fer hægt af stað og betra er að
selja gamlar vörur með afslætti
en alls ekki neitt. Og víst er að
margir eiga sömuleiðis nóg eftir
af vetrarvörum.
Almennt má segja að tískan
hallist til hagsýnni og nothæf-
ari varnings með versnandi
efnahag en þó má ekki gleyma
að tískuhús og verslunareigend-
ur pöntuðu sumarlínuna sem
nú er að að koma á markað síð-
asta sumar svo að kreppuáhrif-
in eru ekki komin fram að fullu
og verða ekki fyrr en með næstu
hausttísku. Í Mílanó til dæmis
var tískuviku að ljúka og var hún
stytt um einn dag vegna þess
hversu margir afboðuðu komu
sína. Nú er að sjá hvað gerist í
París í marsbyrjun á tískuvik-
unni hér.
Það er kannski einmitt vegna
þess að nokkurrar litagleði gætir
í herratískunni og margt sem
gleður augað í sumar. Til dæmis
hjá Calvin Klein sem hannar
jakkaföt í skærum litum, ljós-
græn eða gulrauð. Hvernig væri
nú að sletta úr klaufunum eins
og kýr að vori, gefa lífinu lit og
leggja svörtu fötunum, þó ekki
væri nema í nokkra mánuði?
Eins og flestir tískuáhuga-
menn vita sækja hönnuðir mikið
til fortíðar um þessar mundir
og það sama verður upp á ten-
ingnum í sumar. Tilvistar kreppa
fylgir nútímalífi, nú meira en
nokkru sinni, þótt ekki væri
nema vegna umhverfisvanda og
heimskreppu sem jafnvel fylgja
átök milli ólíkra stétta og heims-
hluta. Þá er auðvelt að snúa sér
að nafla sínum og sækja inn-
blástur til fortíðar.
Dior er undir áhrifum elektró
og teknó með þröngum buxum,
jafnt silfruðum sem gylltum
eða bronslitum, og uppháum
íþróttaskóm sem nota á við
fagurbláa og málmlita vind-
jakka og ekki verra að eiga
gulrauðan hlýrabol við. Örfín
belti eru notuð með buxunum
sem auðvitað eru gyllt. Thierry
Mugler gengur í endurnýjun líf-
daga án Muglers og nú er það
Rosemary Rodriguez sem hann-
ar og leitar í gullöld Muglers í
kringum 1980. John Galliano er
hins vegar einn af fáum sem
tekur áhættu, setur menn í pils
og leggins-buxur og við þetta
notar hann auðvitað leðurólar í
sadó-masó-stíl. Ekki hægt að
segja að hann bjóði upp á upp-
hitaðan graut meðan flest-
ir aðrir eru á sveimi í fortíð,
milli áranna 1970-90.
Þegar litið er í búðarglugga
fer þó heldur minna fyrir litum.
Góðu fréttirnar eru hins vegar
þær að það er auðvelt að endur-
nýta gamlar lummur í sumar.
bergb75@free.fr
Gamlar lummur fyrir herrana
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Sögulegar
skírskotanir
Nostalgían sveif yfir vötnum á
nýlegri tískusýningu Christian
Dior.
John Galliano heldur áfram
að leika sér með kvenleg form
og sögulegar skírskotanir ef
marka má vor- og sumarlínu
hans fyrir Christian Dior sem
hann sýndi í París á dögunum.
Þar mátti sjá reyrð mitti, marg-
laga pils og barðastóra hatta.
Galliano er þekktur fyrir
nostalgíska hönnun í anda
fjórða áratugarins. Flíkurnar
minna oftar en ekki á leikhús-
búninga og eru auðugu ímynd-
unarafli
hans
engin
takmörk
sett. „Ég lít
á það sem mitt
hlutverk að
hanna kven-
fatnað sem er
til þess fallinn
að draga karl-
peninginn á
tálar,“ hefur
verið haft
eftir honum.
- ve
Síðasta vika útsölu
60-80% afsl.
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími: 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Laugaveg 54,
sími: 552 5201
• Kjólar
• Ermar
• Leggings
• Skart
Sófalist
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki